Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992.
r FYLLINGAREFNI
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi.
Gott efni, lítil rýrnun, frostþoliö og þjappast
Ennfremur höfum við fyrirliggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
Sævarhöföa 13 - sími 681833
REYKJAHLÍÐ VIÐ MÝVATN
Nýr umboðsmaður
frá 1. febrúar:
Sigfríður Steingrímsdóttir
Skútahrauni 4A - Sími 44122
Laus staða
Staða skólastjóra Leiklistarskóla Islands er laus til
umsóknar.
Samkvæmt 3. gr. laga um Leiklistaskóla Islands skal
skólastjóri „settur eða skipaður af ráðherra til fjög-
urra ára í senn" og miðast ráðningartími við 1. júní.
„Skólastjóri getur sá einn orðið sem öðlast hefur
menntun og reynslu í leiklistarstörfum."
Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
starfsreynslu, sendist menntamálaráðuneytinu, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 20. febrúar nk.
Menntamálaráðuneytið
29. janúar 1992
AUGLÝSING
LÖGGILDINGARNAMSKEIÐ FYRIR LÆKNARITARA
Með reglugerð um menntun, réttindi og skyldur
læknaritara sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið gaf út og öðlaðist gildi hinn 15. júlí 1991 er
kveðið á um það að þeim sem hófu störf við lækna-
ritun fyrir gildistöku reglugerðarinnar en uppfylla
ekki skilyrði til þess að fá löggildingu samkvæmt
verklagareglum skuli heimilt að veita löggildingu að
undangenginni þátttöku í sérstöku löggildingarnám-
skeiði.
Ákveðið hefur verið að slíkt löggildingarnámskeið
verði haldið í Fjölbrautaskólanum við Ármúla dagana
18.-22. febrúar nk. Námskeiðið er 40 kennslustund-
ir og lýkur með prófi. Kennsla fer fram í húsnæði
Fjölbrautaskólans við Ármúla. Á námskrá verða heil-
brigðisfræði, lyfjafræði, siðfræði, stjórnun, skjala-
varsla en einkum læknaritun, líffæra- og lífeðlisfræði
og sjúkdómafræði.
Umsóknir um þátttöku á námskeiðið skal senda Fjöl-
brautaskólanum við Ármúla í Reykjavík fyrir 7. febrú-
ar 1992. Umsóknum skulu fylgja vottorð vinnuveit-
anda um að umsækjandi hafi hafið störf fyrir 15.
júlí 1991.
Þátttökugjald er kr. 2.000.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fjölbrauta-
skólans við Ármúla, s. 814022. Bréfsími skólans er
680335.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
30. janúar 1992.
Matgæðingrir vikuimar
Flamberaður
hörpudiskur
„Undanfarin þrjú ár hef ég starf-
aö við tilraunaeldi á hörpuskel í
Breiðafirði og þess vegna valdi ég
þennan rétt sem er bæði mjög fljót-
lagaður og einfaldur," segir Guð-
rún Þórarinsdóttir, sjávarlíffræð-
ingur og matgæðingur vikunnar.
Guðrún segir að ræktaður hörpu-
diskur sé mun betri en villtur og
þess vegna ætti ekki að vera neitt
því til fyrirstöðu að heíja slíka
ræktim hér á landi sem búgrein.
„Þetta er gert í öllum löndum," seg-
ir hún. „Það er í raun furðulegt að
ekki skuii vera hörpuskelsræktun
hér á landi því frændur okkar
Norðmenn hafa gert þetta lengi,“
segir Guðrún. Hún kom frá námi í
Danmörku árið 1986 en hóf rækt-
unina árið 1988 eftir að hafa fengið
styrk frá Hafrannsóknarstofnun og
Rannsóknarráði ríkisins. Starfi
Guðrúnar er nú lokið í Breiðafirði
en hún situr nú við að gera skýrslu
um þessar rannsóknir.
Guðrún er sjávarlíffræðingur
með kræklingategundir sem sér-
grein og lá því beinast við að fara
út í rannsókn á hörpudiski. Hún
segir að hörpudiskræktun geti far-
ið fram á margan hátt. „Þar fyrir
utan er hörpudiskur einstaklega
góður matur og bestur hrár, beint
úr skelinni," segir Guðrún.
Guðrún Þórarinsdóttir, matgæö-
ingur vikunnar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Hún ætlar aö gefa okkur upp-
skrift af flamberaöum hörpudiski
og ættu menn og konur nú að reyna
sig í eldsteikingum. „Menn þurfa
einungis að gæta þess að pannan
sé nógu heit annars kviknar ekki
í koníakinu," segir Guörún. Og þá
er þaö uppskriftin.
Það sem þarf:
500 g hörpudiskur
1 rauð paprika
'A kínakál
1- 2 tsk. karrí
/i tsk. hvítlauksduft
2- 3 dl ijómi
- sait/pipar
3 msk. koníak
tabaskósósa
tómatar
Aðferðin
Fiskurinn steiktur í olíu og
kryddaður. Koníakinu hellt yfir og
kveikt í, látið brenna. Rjóma bætt
út í ásamt tómötum og papriku.
Hitað að suðu. Slökkt og látið
standa í 2-3 mínútur. Kryddað.
Tabaskósósan og kínakálið sett út í.
Borið fram með hrísgijónum og
snittubrauði.
Guðrún ætlar að skora á Helgu
Þórðardóttur félagsráðgjafa að
vera næsti matgæðingur. „Hún er
mjög góður kokkur. Eg hef farið í
matarboð til hennar margoft. Helga
er sérfræðingur í kínverskri mat-
argerð og ég vonast til að hún komi
með einhverja slíka uppskrift,"
segir Guðrún Þórarinsdóttir.
-ELA
Hinhliðin
Að syngja fyrir
troðfullum sal
- þykir Karli Örvarssyni tónlistarmanni skemmtilegast
Karl Örvarsson tónlistarmaður
er mörgum að góðu kunnur fyrir
söng sinn með hljómsveitunum
Stuðkompaníinu og Eldfughnum.
Karl hefur verið aðaldriffjöður Eld-
fuglsins síðan í haust en til stendur
að leggja þá hljómsveit á hilluna í
núverandi mynd. Karl hefur þó nóg
að gera. Hann er á leið norður til
Akureyrar (á heimaslóðir) þar sem
hann mun syngja í sýningunni Allt
geggjað: Saga af sveitaballi. Þá mun
Karl syngja tvö lög í Eurovision-
söngvakeppninni sem fer fram al-
veg á næstunni. Það er í fyrsta
skipti sem Karl tekur þátt í þeirri
keppni en hann hefur áður tekið
þátt í keppninni um Landslagið.
Karl sýnir lesendum á sér hina
hhðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Karl Örvarsson.
Fæðingardagur og ár: 8. janúar
1967.
Maki: Hrefna Erlingsdóttir.
Böm: Björg, 4 ára.
Bifreið: Fiat Ritmo 1986.
Starf: Tónlistarmaður.
Laun: Rokkandi.
Áhugamál: Það sem ég tek mér fyr-
ir hendur hverju sinni og sjón-
varpsgláp.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Tvær.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að syngja fyrir troðfullum
sal af fólki í góðu sándi.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að syngja fyrir tómum sal í
vondu sándi.
Karl Örvarsson.
Uppáhaldsmatur: Tandoori-kjúkl-
ingur.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólkin stend-
ur alltaf fyrir sínu og ískaldur öll-
ari svíkur aldrei.
Hvað íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Karl Freyr
Karlsson, handknattleiksmaður í
Fram.
Uppáhaldstímarit: Ekkert sérstakt.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Það er
til svo mikið af fallegum konum að
það er erfitt að benda á einhveija
eina.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Andvígur.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Mig langar að eiga kvöld-
stund með afmælisbróður mínum,
David Bowie.
Uppáhaldsleikari: Terry Terrel.
Uppáhaldsleikkona: Lena Olin.
Uppáhaldssöngvari: Tom Jones.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng-
inn.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Homer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og
'92 af Stöðinni. Svo er fátt betra en
að horfa á góðar bíómyndir.
Ertu hlynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Ég hlýt
að vera andvígur þegar tilgangur-
inn með veru þess er enginn.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Þær mættu allar batna.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Stefán
Jón Hafstein.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið sem stend-
ur.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Kristj-
án „heiti ég“ Ólafsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Gaukur
á Stöng.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KA.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? í fyrsta lagi: Að sjá
fjölskyldu minni farborða. í öðru
lagi: Að halda mér á jörðinni. í
þriðja lagi: Að verða heimsfrægur.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór með konu og dóttur í Skaftafell
og austur í Lónssveit. Hins vegar
er alveg óvíst hvað við gerum
næstasumar. -hlh