Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Blaðsíða 44
56 LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992. Fréttir Rússasamningar ekki enn í höf n „Það var gengið frá greiðslusamn- ingi í fyrradag milli Seðlabanka ís- lands og banka Rússneska lýðveldis- ins. Hann var nauðsynleg forsenda þess að unnt væri að ganga endan- lega frá greiðsluákvæðum síldar- samnings, það er að segja samnings varðandi þær 30 þúsund tunnur sem ábyrgð er fyrir frá Tryggingadeild útflutningslána við Ríkisábyrgða- sjóð. Það tókst því miður ekki að ganga frá því máli í gær en unnið er áfram í Moskvu við að fmna lausn á því. Strax og það kemst í lag veröur sölt- un leyfð upp í umræddan 30 þúsund tunna síldarsamning," segir Gunnar Flóvenz, formaður Síldarútvegs- nefndar. Meginefni greiðslusamnings bank- anna er að í Seðlabankanum veröur opnaöur reikningur í nafni Rosnevs- htorgbank sem verður notaður til greiðslujafnaðar í gagnkvæmum við- skiptum landanna. Gagnkvæm yfir- dráttarheimild er 3 milljónir Banda- ríkjadala sem er nánast sama upp- hæð og síldarsamningurinn hljóðar upp á. - Fituinnhald síldarinnar fer ört minnkandi á þessum árstíma. Menn velta því fyrir sér hvort nægur tími sé til stefnu? „Fituinnhald síldarinnar hefur til þessa verið yfir því lágmarki sem gert er ráð fyrir í samkomulagsdrög- um við Rússa en verið að kanna í öryggisskyni hvort samkomulag geti tekist um lægri fitumörk," segir Gunnar. -J.Mar Kistufell skal skipið heita. - Strandferðaskipið Esja, sem Samskip leigðu af Skipaútgerð ríkisins með kaup í huga, er nú í slipp á Akureyri. Verið er að dytta að ýmsu um borð og þá hefur skipið fengið nýtt nafn á stefnið eins og sjá má. Þar stendur nú Kistufell í stað Esja áður. DV-mynd gk Egilsstaöir: Talstöðvum og útvörp- um stolið úr ólæstum bflum Tveimur talstöðvum og tveimur bílútvarpstækjum var stolið úr bíl- um í svokölluðu iðnaðarhverfi á Eg- ilsstöðum aöfaranótt fimmtudagsins. Um var að ræða dráttarbíla og vöru- bíla sem skildir voru eftir ólæstir. Einnig var stolið verkfærum úr bíl Pósts og síma. Lögreglan er með málið í rann- sókn. Talsvert hefur borið á því á undanfornum vikum að stolið hafi verið úr bfium sem eigendur eða umsjónarmenn þeirra hafa skiliö eft- ir opna. Lögreglan beinir þeim tfi- mælum til bíleigenda að þeir læsi bílum sínum til að leitast við að koma í veg fyrir þjófnaði af þessu tagi. -ÓTT Smáauglýsingar - Sími 6327CX) Þverholti 11 dv Benz 190 E '84, beinskiptur, ABS bremsur, litað gler, rafmagn í rúðum og speglum, centrallæsing, topplúga, útvarp, hvítur, verð 1050 þús., ath. skipti á ódýrari. Símar 91-73276 og 985-21072. BMW 3181 ’85, 4 dyra, mjög snyrtilegur vagn, góður staðgreiðsluafsláttur. Til sýnis á Biffeiðasölu Islands, sími 91-675200. Econolfne 350 4x4, árg. '91, til sölu, 7,2 1 dísil, óinnréttaður, verð 3.100.000 (m/vsk). Sími 91-641720 og 985-24982. Til sölu sendibill Mazda T 3500, árg. ’85, ekinn 150 þús. Góður bíll, tilboð óskast. Uppl. í síma 985-29817. Nissan 100 NX, árg. '91, til sölu, ek. 11.000 km, verð 1.100.000 stgr. Bein sala, ath. skuldabréf. Upplýsingar í síma 91-624324 á kvöldin. Toyota Corolla GTi, árg. '88, til sölu, með öllum aukabúnaði, verð kr. 980 þúsund, 790 þúsund staðgreitt, athuga skipti á ódýrari. Uppl. í síma 95-35245. Chrysler LeÐaron, árg. 79, til sölu, V8,360, einn með öllu, toppvagn. Verð kr. 280.000. •V.Æ.S. hf„ sími 674767. Blazer ’84 Sllverado til sölu, ekinn 46 þús„ 305 vél, 4 gíra, 4:10 drifhlutföll, driflæsingar, 36" radialdekk, velti- grind o.fl. Toppbíll, ath. skipti. Uppl. í síma 91-679878. með farinn, þýskur Ford Granada 2,0 vél, station, 5 gíra, vökvastýri, árg. ’85, fluttur inn ’87, góður bíll, tilbúinn í hvað sem er, tilboðsverð 450 þús. Uppl. í síma 92-15718. Eðalvagn! Audi 100 cc ’86, innfluttur ’88, ekinn 70 þús. km, útvarp/segul- band, verð 950 þús., staðgreitt 650 þús., skuldabréf, skipti á ódýrari koma til greina. Uppl. í síma 91-611235. RAUTT RAUTT IfjÖS! v_______________UíXERÐAR > Myndgáta dv Andlát Helgi Þórarinsson, Hrafnistu í Hafn- arfirði, andaðist í Sankti Jósefsspíta- , lanum í Hafnarfirði, fimmtudaginn 30. janúar. Anna Guðmundsdóttir, Miðstræti 8A, Neskaupstað, lést á heimili sínu 30. janúar. Jón Sigurðsson, Þórunnargötu 1, Borgarnesi, lést 30. janúar. TOkynningar Q.A. samtökin á íslandi í tilefni af 10 ára afmæli O.A. á íslandi, samtaka fólks sem á viö ofátsvandamál að striða, verður haldinn kynningarfund- ur sunnudaginn 2. febrúar kl. 16 í Safnað- arheimili Langholtskirkju. Fundurinn er opinn og allir velkomnir. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík Aðalfundur félagsins verður funmtudag- inn 6. febrúar kl. 20.30 f safnaðarheimili Dómkirkjunar. JC Ness 6. félagsfundur JC Ness verður haldinn mánudaginn 3. febrúar kl. 20.30 að Aust- urströnd 3, Seltjamamesi. Stafnbúi, félag sjávar- útvegsnema við Há- skólann á Akureyri gengst fyrir röð fyrirlestra um fiskveiði- stjómun. Þriðji fyrirlesturinn verður fram sunnudaginn 2. febrúar kl. 15. Fundurinn veröur haldinn í Safnahúsinu á Sauðárkróki og ber yfirskriítina: Ahrif fiskveiðistjómunar á hagsmunaaðila. Framsöguerindi flytja: Snær Karlsson, VMSÍ. Árni Benediktsson, íslenskum sjávarafurðum. Einar Svansson fram- kvæmdstjóri. Kristján B. Garðarsson iðnráðgjafi. Að framsöguerindum lokn- um verður opnað fyrir fyrirspumir og almennar umræður. Stafnbúi og bæjar- stjóm Sauðárkróks bjóða alla velkomna. Silfurlínan, sími 616262 Síma- og viðvikaþjónusta fyrir eldri borg- ara alla virka daga frá kl. 16-18. Vitni vantar Vitni vantar að árekstri sem varð kl. 12.15 á umferðarljósunum við Smiðjuveg og Reykjanesbraut 8. jan- úar sl. Þar rákust á fólksbfil og jeppi. Maður á nýlegum Toyota 4-Runner, rauðum að lit, var staddur á ljósun- um. Hann er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Gunnar Öm í síma 78110 eða 77112. Grönn-veisla Mánudaginn 3. febrúar verður Grönn- veisla í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi í Breiðholti. Verð kr. 1000 fyrir manninn. Allir velkomnir, engin þörf að skrá sig. Kl. 19 heilsukvöldmatur. Kl. 20 fyrirlestur um matarfikn og GRÖNN- námskeiðið kynnt. Kl. 20.30-22.30 sam- skipti og sjálfsskoðun. Kl. 22.30-23 skrán- ing á GRÖNN-námskeiðið sem hefst laug- ardaginn 8. febr. GRÖNN-námskeiðið er fyrir þá sem vilja takast á við mataræðið með raunhæfum hætti. Offita er ekkert skilyrði. Námskeiðið hefst í Mannrækt- inni, Vesturgötu 16, laúgard. 8. febr. og stendur yfir í 4 vikur. Leiðbeinandi er Acel Guðmundsson sem sjálfur hefur átt við matarfíkn að stríða. Þeir sem áhuga hafa komi í Gerðuberg 3. febrúar. Kvenfélagið Freyja í Kópavogi Félagsvist á morgim, sunnudaginn 2. fe- brúar, kl. 15 að Digranesvegi 12. Kaffi- veitingar og spilaverðlaun. Húnvetningafélagið Félagsvist í dag, laugardag, kl. 14 í Húna- búð, Skeifunni 17. Allir velkomnir. Félag eldri borgara Gönguhrólfar fara frá Risinu kl. 10 laug- ardagsmorgun. Innbrotiðvar ekki í Óiafsvik Frétt, sem birtist í DV á þriðjudag um innbrot í veitingahúsið Sjólyst á Hellissandi, hefur valdiö nokkrum kurr á meðal Ólafsvíkinga. Sagt var frá tveimur mönnum sem sátu 1 makindum inni á staðnum þegar lög- reglan kom að þeim þar sem þeir voru búnir að láta potta, pönnur, rækjur, eitt kfió af fiski og fleira í plastpoka en báru því við að þeir hefðu verið svangir. Á fréttinni mátti skfija að veitinga- húsiö Sjólyst væri í Ólafsvík. í texta fréttarinnar var ekki minnst á bæjar- nafn en misskilningur hefur orðið þar sem sagt var að lögreglan í Ólafs- vík hefði handsamað þjófana - eins og rétt er. Til að girða fyrir allan misskilning skal áréttað að veitinga- húsið Sjólyst er á Hellissandi. Ólafs- víkingar, svo og aðrir sem látið hafa málið til sín taka, eru því beðnir vel- virðingar. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.