Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992. 7 Fréttir íbúar við Grenilund á Akureyri vilja bætur fyrir tjónið í flóðunum vorið 1990: Ætla í mál við bæjarsióð Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Benedikt Ólafsson, lögmaður íbúa við Grenilund á Akureyri, segir það fullvíst að íbúamir muni innan skamms hefja skaðabótamál gegn Akureyrarbæ viðurkenni bærinn ekki skaðabótaskyldu sína vegna tjóns sem íbúarnir urðu fyrir vorið 1990. í miklum leysingum þá flæddi vatn inn í hús við götuna og urðu miklar skemmdir hjá níu húseigend- um. Ástæðu flóðsins og tjónsins má rekja til þess að yfirborðsvatn safn- aðist saman sunnan húsanna við Grenilund og átti ekki greiða leið vegna snjóruðninga sem bæjar- starfsmenn höfðu ýtt upp. Þegar stíflan brást flæddi vatn niður göt- una, frárennshslagnir höfðu ekki undan og því flæddi inn í húsin. Tjónið var á sínum tíma metið af starfsmanni Viðlagatryggingar ís- lands og var ekki ágreiningur um tjónupphæð sem metin var 14 mihj- ónir króna á þeim tíma. Hins vegar Þröstur Elliðason á bökkum Rang- ánna með lax síðasta sumar. DV-mynd G.Bender viðurkenndi Akureyrarbær aldrei bótaskyldu sína í máhnu. Nú nýverið hafa tveir dómkvaddir menn kannað ástæður flóðsins og er umsögn þeirra í stórum dráttum sú að frárennslis- lagnir í götunni séu of grannar og starfsmenn bæjarins hafi ekki brugðist við á réttan hátt er stíflan brast. „Ég tel að staða íbúanna hafi styrkst mjög við þessa niðurstööu," segir Benedikt Ólafsson, lögmaður íbúanna. „Ég tel það alveg fuhvíst að viðurkenni bærinn ekki bóta- skyldu sína í þessu máh muni mjög fljótlega verða höfðað skaðabótamál th að leita réttar íbúanna,“ bætti Benedikt við. Bæjaryfirvöld hafa ávallt hafnað bótaskyldu sinni í þessu máh. Það var rætt í bæjarráði fyrir nokkrum dögum eftir að áht hinna dómkvöddu matsmanna lá fyrir og varð engin breyting á afstöðu bæjarráðsins. Virðist því liggja ljóst fyrir.u.ð íbú- arnir við Grenilund, sem urðu fyrir umræddu tjóni, muni innan skamms leita réttar síns fyrir dómstólum. Nissan Patrol konungur fjallanna árgerð 1992 Ytri- Rangá leigð á 9 milljónir - sjö ára samningur Þröstur Elhðason gerði sjö ára samning í gærkvöldi um leigu á Ytri- Rangá og vesturbakka Hólsár. Þetta er um 40 km svæði sem um ræðir. Hann hefur th umráða 20 stangir á dag eða 1800 stangardaga ár hvert. Rangánum hefur veriö skipt niður í tvær dehdir, Eystri- og Ytri-Rangá. Þröstur er með sjö ára leigusamning og greiðir 5,2 nhhjónir fyrir næsta sumar, auk þess sem hann sleppir 50 þúsund seiðum á hverju ári en seiðin má meta á um 4 milljónir. Það var Búfiskur sem hafði þetta svæði, sem Þröstur leigir, síðustu sumur. Ódýrasti dagurinn verður á tvö þúsund en sá dýrasti 19 þúsund. Það er aðeins hækkun á dýrasta tíman- um síðan í fyrra sumar. „Það verður spennandi að takast á við þetta verkefni að leigja ána. Vor- veiöin dettur út en haustveiðin kem- ur í staðinn," sagði Þröstur Ehiðason í samtah við DV. ' Samingurinn þýðir á milh 37 og 40 mhljónir króna th bænda næstu sjö árin. -G.Bender 7 manna hágæðabíll með nýrri 4,2 lítra bensínvél og 4ra gíra sjálfskiptingu. Auk þess hefur nýi Patrolinn tvær miðstöðvar, eina í mælaborðinu og aðra í miðjum bílnum og öll hugsanleg þægindi. Einnig fáanlegur með hinni sívinsælu 2,8 lítra turbó díselvél Stórsýning um helgina kl. 14-17. Verið velkomin Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 sími 91-674000 NI55AN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.