Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992.
21
Fordkeppnin:
Veglegt úrslitakvöld í mars
- skilafrestur á myndum til 15. febrúar
Eileen og Jerry Ford ásamt Birnu Bragadóttur, Fordstúlkunni 1991. Birna er nú starfandi fyrirsæta á ítaliu.
Eileen og Jerry ræddu við alla þátttakendur keppninnar áður en hún fór
fram. Hér ræða þau við Hlín Snorradóttur. DV-myndir Hanna
Fordkeppnin mun að öllum líkindum
fara fram hér á landi sunnudags-
kvöldiö 22. mars. Þá mun fulltrúi
koma frá Ford Models í New York
og krýna íslenska Fordstúlku. Ekki
hefur enn verið tekin ákvörðun um
hver það verður en fulltrúinn mun
koma héðan frá írlandi þar sem
keppnin fer frarn 20. mars.
Að sögn Alix Labatut, umsjónar-
manns Supermodelkeppninnar hjá
Ford Models, var fyrirhugað að Katie
Ford, dóttir Eileenar Ford, kæmi
hingað. Hún rekur Ford Models í
París. Vegna mikilla anna og ferða-
laga mun þó ekki verða af því.
Supermodel of the World keppnin
fer síðan fram 16. júlí í Los Angeles
og verður jafnglæsileg og undanfarin
ár. Keppendur munu mæta 8. júlí,
vera við æfingar og fara í skoðunar-
ferðir dagana fyrir keppnina sem
verður sjónvarpað víða um heim. í
fyrsta skipti verður þátttakandi frá
Kína í keppninni.
Um fjörutíu stúlkur frá jafnmörg-
um löndum taka þátt í keppninni.
Undanfama mánuði hafa stúlkur
veriö valdar í Austurlöndum og í
Rússlandi. Á næstu mánuðum veröa
stúlkur í Evrópu valdar til þátttöku.
í hveiju landi fer keppnin fram með
svipuðu sniði í gegnum dagblöð eða
tímarit.
Það eru færri stúlkur en vilja sem
komast í Supermodel of the World
keppnina enda til mikils að vinna.
Sigurvegari keppninnar fær í verð-
laun samning við Ford Models skrif-
stofuna í New York upp á tæpar
fimmtán milljónir króna. Auk þess
fær hún dýrindis skartgripi.
Áður en að þeirri keppni kemur fer
fram undankeppni hér á landi.
Myndir eru famar að berast í Ford-
keppnina en skilafrestur rennur út
15. febrúar. Þá verða allar myndir
sem berast sendar til Ford Models í
New York og Eileen Ford velur þær
stúlkur sem henni líst á til að taka
þátt í Fordkeppninni hér heima. Þær
stúlkur sem komast í úrslit verða
kynntar í blaðinu áður en sjálf
keppnin fer fram.
Misjafnt hefrn- verið undanfarin ár
hversu margar stúlkur komast í úr-
sht. í fyrra vom þær óvenju margar
eða sextán. Þijár þeirra áttu þess
kost að fara utan til fyrirsætustarfa
en nýttu sér það ekki.
Fyrirsætuheimurinn er harður
heimur en jafnframt þroskandi fyrir
sterkar stúlkur. Ef vel gengur geta
stúlkur þénað mUljónir á fyrirsætu-
störfum. Starfið felur í sér ferðalög
vitt og breitt um heiminn. Það er þó
ekki alltaf tekið út með sældinni aö
sitja fyrir hjá kröfuhörðum ljós-
myndurum. Ándrea Brabin, sem tók
þátt í Supermodel keppninni fyrir
nokkmm árum fyrir Islands hönd,
hefur haft nóg að gera í starfi sínu
sem fyrirsæta. Hún sagði í viðtali við
blaðið fyrir nokkru frá ferð sinni í
eyðimörk þar sem taka átti myndir
af henni í pels. Það getur hver séð
fyrir sér hvernig sá klæðnaöur er í
brennandi sólskini. Jafnframt hafa
fyrirsætur þurft að sitja fyrir í sund-
fötum í snjó og kulda. Það er þó ekki
alltaf þannig og margt við staríið
mjög áhugavert og skemmtilegt.
Elsta og virtasta
umboðsskrifstofan
Eileen Ford rekur elstu og virtustu
umboðsskrifstofu fyrirsæta í heimin-
um. Hún setti skrifstofuna á fót nán-
ast fyrir tilviljun áriö 1946. Eileen var
starfandi fyrirsæta á yngri árum.
Eftir að hún og Jerry Ford giftu sig
og áttu von á fyrsta barni sínu tók
hún að sér að svara í símann fyrir
vinkonur sínar sem vom í fyrirsætu-
störfum og útvegaði þeim vinnu. Upp
úr því varð Ford Models til í New
York. Nú rekur Eileen Ford umboðs-
skrifstofur einnig í Japan og í París.
Þar fyrir utan er hún í nánum tengsl-
um við aðrar umboðsskrifstofur, t.d.
í London, á Ítalíu og í Þýskalandi.
Eileen Ford er eftirsótt viðtalsefni
í Bandaríkjunum og mjög oft er leitað
áhts hjá henni varðandi tísku og feg-
urð. Samtalsþættir í sjónvarpi í
Bandaríkjunum hafa einnig sóst eftir
henni. Eheen Ford gefur þó ekki
mörg viðtöl. Blaðamaður DV fékk að
heimsækja hana á síðasta ári áður
en hún kom hingað til lands. Það var
í fyrsta skipti sem hún hleypti blaða-
manni inn á heimih sitt. Eileen Ford
er á skrifstofu sinni fimm daga vik-
unnar og þar fara öll viðskipti fram.
Hún þykir brautryðjandi í sinni
grein og hefur jafnframt notið mikih-
ar virðingar. Eileen Ford þykir
ströng „móðir" og væntanlega þess
vegna hafa ekki komið upp hneyksl-
ismál hjá stúlkunum hennar. Hún á
íbúðarhús á Manhattan þar sem hún
býr virka daga. Þar búa einnig
yngstu fyrirsæturnar og eru á
ábyrgð hennar. Um helgar og í fríum
býr Eileen Ford á búgarði sínum í
New Jersey. Hún var einmitt nýflutt
þangaö þegar blaðamaður DV heim-
sótti hana á síðasta ári. Áður bjó hún
í Fairfield, Connecticut. Hún hefur
þjóna á hverjum fmgri eins og sagt
er enda vel efnuð. Talið er að fyrir-
tæki hennar velti einum og hálfum
mhljarði á ári. Yfir tíu þúsund stúlk-
ur óska eftir að komast í vinnu hjá
fyrirtækinu ár hvert.
Eileen og Jerry Ford eiga fjögur
böm; Jamie, Bill, Katie og Lacey. Öll
nema Jamie hafa starfað við fyrir-
tækið. Eileen Ford fær fjölda bréfa
daglega þar sem hún er spurð um
hin ýmsu vandamál kvenna. Það er
svo sem ekkert skrýtið því hún hefur
gefið út fimm bækur varöandi fyrir-
sætustörf, fegurð og ekki síst hvernig
konur geta orðið enn fahegri.
Eileen Ford hugar mjög að heil-
brigði og er sérvitur varðandi mat.
Hún boröar helst grænmeti og fitulít-
inn mat og brýnir fyrir stúlkum sín-
um að gera slíkt hið sama.
Nú er um að gera að drífa myndirn-
ar í póst svo þær berist á réttum tíma
en utanáskriftin er: Fordkeppnin,
helgarblað DV, Þverholt 11, 105
Reykjavík.
-ELA
Ert þú fyrirsæta ársins?
Mofn
■ lUII I ■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Aldur
Hi m 111 ■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■
Símanúmer................
Póstnr. og staður
Hæð......................
Staða ■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■
........þyngd.
Hefur þú starfað við fyrirsætustörf?
Fyllið í réttan reit já □ nei □
Ef svarið er játandi þá hvar.........
Myndirnar sendist til:
Ford-keppnin, Helgarblað DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík
Gleymið ekki að senda myndir með