Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1992, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1992, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1992. Fréttir Kjarasamningamir hanga á bláþræði: Búist við að slitni upp úr viðræðum næstu daga - VSÍ hafnaði öllum kröfum ASÍ á samningafundi í gær Á samningafundi Alþýðusam- bandsins og Vinnuveitendasam- bandsins í gær lögðu fulltrúar ASÍ fram tvær aöalkröfur. Annars vegar var krafa um samræmingu á hinum svonefnda jólabónusi sem greiddur er út í desember. Þar eru greiðslur mismunandi eftir félögum eða allt frá 10 þúsund krónum og upp í 25 þús- und krónur. Hins vegar er krafist samræmingar á orlofi sem er mis- munandi eftir félögum og starfsaldri. Vinnuveitendur höfnuðu báðum þessum kröfum. Að auki standa svo þær sérkröfur verkalýðsfélaganna sem hafa verið til umræðu í margar vikur. Að mati þeirra aðila vinnumarkað- arins sem DV ræddi við í gær er nú er svo komið að kjarasamningarnir eru komnir í blindgötu. Allir voru sammála um að upp úr samningavið- ræðunum myndi slitna alveg á næst- unni, jafnvel á mánudaginn kemur en þá er næsti samningafundur boð- aður. Um leið og slitnar upp úr þeim viðræðum vinnuveitenda og verka- lýðshreyfingar, sem staðið hafa með hléum síðan í haust, er komin upp alveg ný staða í málinu. Þá verður því vísað formlega til ríkissáttasemj- ara og um leið færist aukin harka í kjarasamningana. Samtímis og þetta gerist ætlar öll launþegahreyfingin í slag við ríkis- stjórnina með kröfu um að sú skerð- ing, sem átt hefur sér stað á velferð- arkerfinu og menntakerfinu, verði tekin til baka. Þar ætla launþega- samtökin að standa með nýjum sam- tökum, öryrkja, aldraðra og sjúkl- inga, sem stofnuð verða í dag með það að markmiði að verja velferðar- kerfið. Loks er þess að geta að kjarasamn- ingum Sjómannasambands íslands og útgerðarmanna hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. í gær var fyrsti fundur þessara aðila haldinn án nokkurs árangurs. Þar virðist allt standa jafnfast og í viðræðum ASÍ og VSÍ. Almennt er búist við að þetta nýja viðhorf, sem komið er upp, muni leiða til aukinnar hörku á vinnu- markaði með ófyrirsjáanlegxnn af- leiðingum. -S.dór Það er gaman að leika sér í snjónum eins og sést á þessari mynd. Stelpurnar, sem hér renna sér, heita Hlín Stefánsdóttir, Guðbjörg Ágústsdóttir, Kristín Clausen og Sunna Ósk Friðbertsdóttir. DV-mynd Hanna Ný samtök verða stofnuð í dag: Breiðfylking öryrkja, aldraðra og sjúklinga - tilganguriiin aö beijast gegn niöurskurði á velferðarkerfinu Fyrir hádegi í dag verða stofnuð ný samtök sem óhætt er að kalla breiðfylkingu. Að stofnun samtak- anna standa meðal annarra Öryrkja- bandalagið, Samtök aldraðra og hin ýmsu félög sjúklinga sem til eru í Íandinu. Þessi nýju samtök munu njóta stuðnings allra launþegahreyf- inga í landinu og hafa raunar fengið frá þeim aðstoð viö undirbúning stofnmiar samtakanna að undan- fömu. Tilgangm- samtakanna er að beij- ast gegn þeim niðurskurði á velferð- arkerfinu sem þegar hefur orðið og til stendur að framkvæma. í drögum að stefnuskrá samtakanna segir meöal annars: „Aðilar skora á ríkisstjómina og Alþingi að snúa þegar í stað við blað- inu ellegar gefa þjóðinni kost á segja álit sitt á áorðnum og fyrirhuguðum breytingum á velferðarkerfmu." Síðan er upptalning á því sem sam- tökin vilja að hætt verði við og em það atriði eins og niðurskurður á bamalífeyri, elli- og örorkulífeyri, fjármunum til sjúkrahúsa, niöur- skurði í skólakerfinu og hækkun á lyfjakostnaði og þjónustu lækna. Einn viðmælenda DV orðaði það svo að hér væri verið að stofna „gras- rótarsamtök" sem yrðu þau fjöl- mennustu sem sögur fara af hér á landi, ekki síst þegar litið er til fulls stuðnings launþegasamtaka lands- ins. Samkvæmt heimildum DV ætla launþegasamtökin að snúa bökum saman og krefjast þess sama af ríkis- stjórninni og samtökin, sem stofnuð verða í dag, ætla að gera. Ljóst er að vörn fyrir velferðarkerfið verður ein aðalkrafa launþegasamtakanna í þeim kjarasamningum sem nú standayfir. -S.dór Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra á fimdi með Siglfirðingum 1 gærkvöldi: Við getum ekki kostað rekstur þjóðfélagsins með erlendum lánum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þegar við erum að tala um 15 milljarða niðurskurð eða spamað á einu ári ráða menn ekkert við slíkar tölur með því að ganga framhjá ráðu- neyti eins og heilbrigðisráðuneytinu með 43 milljaröa á sínum vegum, og menn komast ekki hjá að ganga að ráðuneyti eins og menntamálaráðu- neytinu sem er með 13,7 milljarða króna. Og hvað er þetta? Þetta er velferðarkerfi íslands. Þegar út- gjaldavandi okkar er orðinn jafn- mikiU og hann er komumst við ekki hjá því að endurskoða þetta kerfi,“ sagði Sighvatur Björgvinsson heil- brigðisráðherra á opnum fundi á Hótel Höfn á Siglufirði í gærkvöldi. - stefnan að hlífa þeim sem minna mega sín, sagði ráðherrann Þetta var fyrsti fundurinn í fundaröð ráðherrans sem ber heitið „Velferð á varanlegum gmnni“ en fundirnir em til þess haldnir að kynna al- menningi aðgerðir ríkisstjómarinn- ar sem sumir kalla niðurskurð en aðrir sparnað. Um 50 Siglfirðingar mættu á fund Sighvats á Siglufirði en fundurinn stóð yfir fram á nótt. Fjölmargir þeirra tóku til máls á fundinum og það var ljóst að fleira brann á Sigl- firöingum en niðurskurður í heil- brigðiskerfmu. Flestir ræðumanna vildu líka ræða við ráðherrann um skiptingu niðurskurðarins á þegn- ana s.s. hátekjuskatt og skatta á íjár- magnstekjur og það kom greinilega fram á fundinum að Siglfirðingum þykir mörgum sem byrðinni sé ekki réttlátlega skipt. Sighvatur fór vitt og breitt yfir stöðu ríkisíjármálanna pg skýrði mál sitt meö myndum. Þegar kom að heil- brigðiskerfmu sagði Sighvatur að það hefði verið haft að leiðarljósi í þeim spamaði sem þar á sér stað að hlífa þeim sem minnst mega sín. „Það höfum við reynt að gera í sam- bandi viö skerðingu á lífeyri og gjald- töku í heilbrigðisþjónustunni. Mér dettur ekki í hug að neita því að það sem við erum að gera er að innleiða hærri notendagjöld 1 heilbrigðisþjón- ustunni en áður voru. Við erum að láta fólk borga meira og ég er ekki að draga fjöður yfir það. En við erum að reyna aö framkvæma það þannig að hlífa þeim sem minnst mega sín. Það er annars vegar gamla fólkið og hins vegar barnafólkið." Sighvatur sagði að Siglfirðingar könnuðust við þann vanda sem bæj- arfélag sem þjóðfélagið stæði nú frammi fyrir. Hran síldarstofnsins hefði komið hart niður á Siglfirðing- um á sínum tíma eins og aflabrestur og óráðsía undanfarin ár bitnaöi nú á þjóðinni sem heild. „Það sem við höfum gert undanfarin ár er aö fara út fyrir landsteinana og ná okkur í lánsfé til að fjármagna útgjöld þjóð- arinnar sem hún hefur ekki átt fyrir. Á sama tíma og kakan sem við höfum haft til skiptanna hefur verið að minnka hefur erlend skuldasöfnun verið á uppleið. Við höfum haldið óbreyttri neyslu og útgjaldastigi en tekið lán fyrir því erlendis," sagði Sighvatur. Sighvatur sagöi að erlendu lánin hefðu verið notuð til að kosta al- mennan rekstur samfélagsins, Lána- sjóður námsmanna væri rekinn á erlendum lánum, byggingalánasjóðir þjóðarinnar einnig og erlend lán væra tekin til að kosta skólakerfið og heilbrigðiskerfið. „Það er löngu tímabært aö menn geri sér grein fyr- ir þvi að við getum ekki kostað rekst- ur íslensks þjóðfélags með erlendum lánum,“ sagði ráðherra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.