Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1992, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1992, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1992. 11 Aramót í Kína Kinverjar fagna nýju ári í byrjum febrúar. Þeir kenna þetta ár viö apa og af þvi tilefni hafa myndir af konungi apanna verið áberandi i landinu. íbúar í Peking, höfuðborg Kina, höfðu á lofti þennan loftbelg í líki apakonungsins til að minnast áramótanna. Simamynd Reuter Forseti Venesúela heldur fast 1 stefnu sína: Valdaránsmönnum refsað grimmilega Carlos Andres Perez, forseti Venesúela, hvikaði ekki frá óvinsæl- um efnahagsumbótum sínum í gær þrátt fyrir valdaránstilraun óánægjuafla innan hersins. Hann fordæmdi uppreisnarmennina og sagði að þeim yrði refsað grimmi- lega. „Ríkisstjórnin er alitaf að endur- skoða stefnu sína en við hljótum að vera stoltir yfir því að okkur hefur orðið vel ágengt með stefnuna á öll- um sviðum," sagði Perez þegar hann var spurður hvort breyting yrði gerð á aðhaldsaðgerðum stjórnvalda. Óánægja vegna versnandi efna- hags og gífurlegra verðhækkana er talin vera helsta ástæðan að baki valdaránstilrauninni. í febrúar 1989 létu að minnsta kosti þrjú hundruð manns lífið í uppþotum vegna efna- hagsaðgerða stjómarinnar. Efnahagsumbæturnar fela m.a. í sér einkavæðingu ríkisfyrirtækja, afnám niðurgreiðslna á matvæh og verðlagshafta. Perez lét orð sín falla viö athöfn þar sem minnst var fimm lífvarða hans sem féhu í uppreisninni en hann fór ekki nánar út í efnahags- stefnu sína. Stjómarerindrekar sögðu þó að forsetinn mundi líklega verja meira fé til félagsmála til að lægja óánægju- öldurmeðalalmennings. Reuter Drottning í 40 ár EUsabet Bretadrottning heldur 1 dag upp á það að fjöratíu ár era liðin frá því hún settist í hásætið. Af því tilefni verður sýnd sjónvarpsmynd þar sem sýnt er frá daglegu lífi drottningarinnar. Þar kemur fram að hún er skyldurækin kona sem hefur þó gaman af því að spauga dáUtið. Ekki verður haldið upp á tímamót- in meö neinni viðhöfn, m.a. vegna mikfilar efnahagskreppu í Bretlandi. Landsmenn hafa og að undanfórnu viðrað efasemdir sínar um konung- dæmið. Samkvæmt skoðanakönnun- um eru flestir Bretar þó hoUir þegnar en engu að síður telja þrír af hveijum fjóram að drottning eigi að greiða tekjuskatt af auðæfum sínum. Reuter Jeltsín og Mitterrand undirrita samning í dag: Binda enda á fjandskap - sammála um takmörkun kjamavopna Francois Mitterrand Frakklands- forseti og Borís Jeltsín Rússlandsfor- seti undirrita í dag sögulegan samn- ing milU ríkjanna þar sem bundinn er endi á fjandskap þeirra. Þetta er fyrsti slíki samningurinn sem hið nýja rússneska ríki gerir við eitt af vesturveldunum frá því að Samveldi sjálfstæðra ríkja var stofnað í des- ember. Borís Jeltsín sagöi að samningur- inn væri „lagagrundvöfiur fyrir al- veg ný tengsl miUi ríkjanna um ókomin ár“. Jeltsín var vel fagnað þegar hann kom í opinbera heimsókn til Frakk- lands í gær og á meðan á dvöl hans stendur mun hann reyna að telja franska atvinnurekendur á að auka aðstoð sína og fjárfestingu í Rúss- landi. Fækkun kjamavopna var efst á baugi á fyrsta fundi Jeltsíns af tveim- ur með Francois Mitterrand í Elysée- höll. Franskir embættismenn sögðu að forsetarnir heföu verið sammála í stórum dráttum um þörfina á að takmarka kjarnorkuvopnabirgðir til að fyrirbyggja hugsanlegar árásir. „MikUvægasti þátturinn var sá að þeir vora sammála um nauðsyn lág- marks kjarnoravopnabirgða tíl að tryggja fælingu," sagði Pierre Morel, ráðgjafi Mitterrands. Áður en hann lagði upp frá Moskvu sagði Jeltsín að hann ætlaðist til að Frakkar mundu svara tillögum risa- veldanna um fækkun kjarnavopna með því að fara að dæmi þeirra og var búist við að það mundi valda ágreiningi. Bæði Frakkar og Bretar hafa hafnað þvi þar sem þeir segjast aðeins hafa Francois Mitterrand Frakklandsfor- seti tók á móti Boris Jeltsin Rúss- landsforseta meö mikilli viðhöfn í Paris í gær. Símamynd Reuter fáeinar kjamaflaugar. Jeltsín sagði í London í síðustu viku að hann sæi ekki tilgang með að leggja hart að Bret- um að fækka kjamavopnum sínum. Viðræður um efnahagsmál fóru vel af stað þegar Jeltsín tilkynnti að báð- ir aðilar væru sammála um að um fjöratíu milljarða króna lán sem voru veitt Sovétríkjunum á sínum tíma yrðu nú færð yfir til Rússlands. Lánin átti að nota til að kaupa land- búnaðarvörur en þau voru fryst við hrun Sovétríkjanna þar sem franskir bankar neituðu að láta þau af hendi við nýja rússneska banka sem ekki væri vitað hvemig mundu pluma sig. Reuter Útlönd leiki í skriftar- klefanum Sóknarbörn i kirkju einni í bænum Sluis í Hollandi komu að ungu pari i eldheitum ástaleikj- um þegar farið var að rannsaka gransamleg hljóð sem heyrðust frá einum skriftaklefanum. Kirlqugestimir áttu ekki von á öðru en að þeir mundu grípa þjófa glóðvolga þegar þeir sviptu tjaldinu frá klefanum og uppgötv- uðu í staðinn hálfnakin skötuhjú- in. Sóknarpresturinn var ekki, kallaður til að veita þeim synda-^ aflausn. Reuter LITIA FRÁBÆRA ÞVOITAVÉLIN FYRIR ÞIG SPARNEYTIN OG HENTAR ÞÍNUM AÐSTÆÐUM ÆUMENIAX ENGRI LÍK Rafbraut BOLHOLTI4 S* 681440 Hvað er það sem gerir BMW bíla áhugaverðari en aðra? Þaðgeturverið hagstættverð, lægri rekstarkostnaður, minnaviðhald, háþróuð tækni, fyrsta flokks þjónusta eða hámarks öryggi. Nyja BMW 3 línan sameinar alla þessa kosti, en býður jafnframt upp á hinn "klassíska" stíl g'jg | sem ávallt er að finna í BMW. BMW - bíll sem vekur athygli Któ'há^MioReyk]av(k-s(mieseess Engum líkur NY BMW 3 LINA BUK AF FRAMTÍÐINNI •ÍSKSSBS 59 wst*® móm WitöMUM SKILAFRESTUR TIL 15. MARS NK. FARVÍS-ÁFAN GAR TÍMARIT FERÐAMANNSINS ASKRIFTARSIMI: 91-680699 QLÆSILEQ FERÐAVERÐLAUn FLUQ TIL BALTIMORE QISTinQ í WASHINGTOM SKILAFRESTUR TIL 1. MARS NK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.