Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1992, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1992, Síða 15
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1992. 15 Hvert stefnir í fjár- málum borgarinnar? Frumvarp að fjárhagsáœtlun Reykjavíkur árið 1992 Þess ber ab gœta, aB allar fjárhœBir eru taldar íþús. kr., þótt þess sé ekki viB þcer getiB. „Rekstri Reykjavíkurborgar er þröngur stakkur skorinn í frumvarpi sjálf- stæðismanna að fjárhagsáætlun fyrir árið 1992.“ í dag mun borgarstjóm Reykja- víkur afgreiöa íjárhagsáætlun borgarinnar fyrir þetta ár eftir sviptivindasamt framkvæmdaár núverandi meirihluta sjálfstæðis- manna í borgarstjórn. í því fram- varpi að fjárhagsáætlun, sem meirihlutinn hefur lagt fram, kennir ýmissa grasa og leynir sér ekki að þrengra er í búi nú en oft áður. Rekstri Reykjavíkurborgar er þröngur stakkur skorinn í fram- varpi sjálfstæðismanna að fjár- hagsáæÚun fyrir áriö 1992. Sú staða er afleiðing óvarlegrar með- ferðar fjármuna undanfarin ár, aukinnar skuldasöfnunar og nýtil- kominna álagna ríkisvaldsins á sveitarfélagið sem að þessu sinni munu kosta Reykjavíkurborg tæp- lega þrjú hundruð milljónir króna. Er það nánast jafnvirði Perluævin- týrisins á síðasta ári. Þrengt að rekstri, lántökur auknar Sá vandi, sem við blasir, er ávöxt- ur ötullar framgöngu núverandi forsætisráðherra, Davíðs Oddsson- ar borgarfulltrúa. Nútíðarvandinn, sem birtist í álögum ríkisvaldsins á sveitarfélög landsins, era hans verk; fortíðarvandinn, sem við er að eiga í fjársýslu Reykjavíkur- borgar eftir hans viðskilnað, sömu- leiðis. Einn angi fortíðarvandans er stóraukin skuldasöfnun. Síðustu tvö kjörtímabil tvöfölduðust heild- arskuldir borgarsjóðs að raungildi: Yfirdráttur á hlaupareikningi hef- ur aldrei verið eins hár og síðastlið- ið ár og fjármagnskostnaður tekur til sín sífellt meira fé. Þessi vandi heyrir sjálfstæðismönnum til - og þeim ber að leysa hann. En hvaða úrræði sjá menn þá þegar svipast Kjallaiinn Ólína Þorvarðardóttir borgarfulltrúi Nýs vettvangs er um í þyrnirósargarði fyrirhggj- andi fjárhagsáætlunar? Jú, þar er nóg um þyma og þistla. Þrengt er að rekstri til þess að halda sjó við framkvæmdir og greiðslur langtímaskulda en ljóst er að til rekstrar þyrfti mun meira fé en áætlað er til ráðstöfunar í þessu frumvarpi. Til dæmis eru 130 milljónir ætlaðar til viðhalds skóla- bygginga þegar þörf er fyrir 440 milljónir. Til eignabreytinga verð- ur varið minna fé en á síðasta ári en lántökur þó auknar. Ráðhúsið tekur nú sjötta árið í röð til sín dijúgan hluta fram- kvæmdafjár. A þessu ári munu fara ríflega fjögur hundruð milljón- ir króna í lokafrágang hússins en það er eilítið lægri upphæð en rennur til allra framkvæmda vegna öldrunarmála. Óneitanlega stingur þetta í augun á tímum versnandi efnahagsafkomu, yfir- vofandi atvinnuleysis og harðra spamaðaraðgerða hins opinbera sem nú beitir blóðugum niður- skurðarhnífnum á flestum sviðum þjónustu og framkvæmda, ekki síst vegna velferðarmála. Sökum þess ofurkapps, sem lagt hefur verið á einstök gæluverkefni og lítt aðkallandi kosningaloforð sjálfstæðismanna, hafa brýnir hagsmunir borgarbúa verið fyrir borð bornir. Hefur sá trassaskapur orðið til þess að þjónusta borgar- innar hefur ekki haldist í hendur við öra fólksfjölgun og nútíma lifn- aðarhætti heldur þvert á móti sigið á ógæfuhliðina. Stöðnuð og ómark- viss þjónusta Hjúkrunarheimili og önnur nauösynleg aöstaða fyrir aldraða hefur setið á hakanum. í þeim málaflokki blasir nú við átakanleg- ur úrræðaskortur og ómarkviss stefnumótun. Er einna sárast að horfa upp á afdrif B-álmu Borgar- spítalans sem ætluö var undir öldr- unardeild en mun með sama áframhaldi trúlega aldrei komast í gagnið, til hneisu fyrir bæði ríki og borg. Uppbygging skóla og dagvistar- heimila hefur verið allt of hæg þannig að aðstæður bama era víða til skammar og mikill skortur er á félagslegu húsnæði í borginni. Þrátt fyrir þá staðreynd lét núver- andi borgarstjóri sér nýlega um munn fara þá stefnuyfirlýsingu að draga þyrfti úr félagslegum úrræð- um í húsnæðiskerfinu. Ekki er veitt heimild fyrir nýjum störfum sem bráðnauðsynleg era vegna aukinnar þjónustuþarfar. Eins og kunnugt er greiðir Reykja- víkurborg starfsfólki sínu lægri laun en tíðkast í öðrum sveitarfé- lögum með þeim afleiðingum að erfitt er að manna bráðnauðsynleg störf og halda uppi lágmarksþjón- ustu. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar síðasta árs flutti Nýr vettvangur 32 breytingartillögur við frumvarp sjálfstæðismanna án þess að tillit væri til þeirra tekið. Að þessu sinni verður sá leikur ekki endurtekinn. Það er nokkuð Ijóst að meirihluti sjálfstæðismanna vill hvorki sjá né hlusta á ábendingar, rök og viðvar- anir stjórnarandstöðunnar varð- andi áherslur og forgangsröð verk- efna í borginni, enda hefur fjár- málastjóm og skuldasöfnun sett svip sinn á nýliðið framkvæmdaár. Við teljum rétt að þeir sem hafa farið þannig með íjármuni axli þá ábyrgð sem þeir hafa tekist á hend- ur og ráði fram úr þeim vanda sem við blasir. Góð ráð duga skammt ef ekkert tillit er til þeirra tekið. Ólína Þorvarðardóttir „Síðustu tvö kjörtímabil tvöfölduðust heildarskuldir borgarsjóðs að raun- gildi: Yfirdráttur á hlaupareikningi hefur aldrei verið eins hár og síðastlið- ið ár...“ Gegn menntun; gegn sjálf u sér ísland er ekki hollt bömum sín- um. Við eyðum þijú hundrað þús- und krónum á ári á hvem háskóla- námsmann á meðan til dæmis Bandaríkjamenn eyða milljón. ís- lenska þjóðin leggur augljóslega lít- ið upp úr menntun þegna sinna, homsteini velferðarinnar. Eða er það kannski bara tilviljun að stór hluti hennar er vart talandi á móð- urmáli sínu? Já, það er skrýtið að fólk skuli undra sig á slöppu gengi okkar um leið og það byggir fram- tíðina á sandi. Púkinn á fjósbitanum Námslánin, forsenda náms hjá flestum, hafa verið skert á ýmsan hátt þó svo þau hafi vart dugað til framfærslu fyrir. Rétt eins og fram- lög til skóla era þau umtalsvert lægri hér en annars staðar á Norð- urlöndunum, svo dæmi sé tekið. Það er því ljóst að menntakerfið á íslandi er ekki til þess fallið að mennta fólk á sómasamlegan hátt. Þrátt fyrir það er dýrmætasta eign hverrar þjóðar menntunin. Hér er því komið enn eitt dæmið um heimsku íslensku þjóðarinnar. Svo virðist sem aðaláherslan sé lögð á það sem minnstu máli skipt- ir fyrir heildina. Er það ekki grát- broslega fáránlegt að á meðan skólakerfinu, heilbrigðiskerfinu og ellilífeyrisþegum er fyrirskipað að herða sultarólina í spamaðarskyni fitna bændur eins og púkinn á fjós- bitanum? Já, það er margt skrýtið í kýrhausnum. Sú þjóð „sem kurlar það lifandi og tínir á glóð / en elskar það dauð- vona og dauða“, eins og Þorsteinn Erlingsson kvað, kemst harla stutt í lifsbaráttu sinni. Hún getur í besta falli orðið meðalskussi. KjaHarinn Sigurgeir Orri Sigurgeirsson námsmaður í HÍ Afætur Námsmenn á íslandi era af mörg- um litnir hornauga. Ástæðumar kunna aö vera margar en allar era þær meira og minna sprottnar af misskilningi eða hreinlega bama- legri öfund. „Huh! ég hef nú unnið mitt siarf í gegnum tíðina og ekki þurfti ég skóla til þess,“ segja þau sem vanmeta gildi menntunar og fylgjast ekki með tímanum. „Við þurftum að koma undir okkur fót- unum án nokkurra sníkjulána," segja þau öfundsjúku, uppfull af minnimáttarkenndinni sem fylgdi því að búa í fátæku landi sem hafði ekki burði til að bjóða upp á að- stöðu sem nú ætti að vera leikur einn. „Fyrst við fengum ekki þá eiga þau ekki heldur“ er viðkvæð- ið. Hver kannast ekki við: „Ekki fékk ég svona þegar ég var á mín- um yngri árum, ha!“ og vandlæt- ingartóninn í röddinni. - Þetta segja þau hin sömu og fengu hý- býli nánast ókeypis í óverötryggðri óðaverðbólgu. Sérhver er nú sann- girnin! Annað viðhorf, sem ríkti hér til skamms tíma og var í sjálfu sér réttmætt, er það að menntakerfið hefur alla tíð verið uppfullt af kommúnistum sem lágu yfir því eins og hrægammar með það eitt í huga að troða sósíalískum viðhorf- um sínum inn í nemendurna (eins og maður rakst á sjálfur) og leggja þannig grunninn að framtíðar- „Ríkinu“. Það er vel skiljanlegt að hugsandi fólk hafi haft Úlan bifur á menntakerfinu af þessum sökum. - Guði sé laun að botninn datt úr þessari glórulausu hugsjón. Viðhorf eins og það að náms- menn séu bara afætur og sníkju- dýr, sem sólunda lánum sínum í hégóma, er rangt. Það ber vott um hræðilega skammsýni. Námslán era afsprengi framsýni og enginn er verri þótt hann þiggi þau. Reikult, rótlaust þang Námsmenn virðast ekki hirða um hagsmuni sína. Þeir minna einna helst á rótlaust, reikult þang sem lætur strauma og vinda segja sér hvaða stefnu skal taka. Hvorki heyrist hósti né stuna frá leiðtog- um þeirra þegar hagur þeirra er fyrir borð borinn. Þeim virðist nokkuð sama um velferð skjól- stæðinga sinna. Þaö er leiðinlegt til þess að hugsa að eflaust stafar þetta af því að þeir sömu og era í forsvari fyrir námsmenn eiga líka ímyndaðra hagsmima að gæta innan flokka sinna. Ef þeir æsa sig eitthvað er póhtískri framtíð þeirra stefnt í voða, að þeirra dómi. Skósveinarn- ir og skómeyjamar era þannig bundin í báða skó. Þau virðast líta svo á að flokkurinn sé þau, en ekki þau flokkurinn. Þekking og þroski Er menntun bara tæki til þess að fá hærra kaup og í framhaldi af því meiri hamingja? Nei, hún er annað og meira en svoleiðis vélræn tækniþekking. Hún er andlegur þroski í víðum skilningi, þó margir horfi fram hjá því, skiljanlega, þar sem hamingjan er að mínum dómi afar misskihð hugtak hér á landi. Ég veðja á þjóð sem gengur menntaveginn; skapar sjálfri sér þokkalega aðstöðu th menntunar og nýtir sér hana. En hvers vegna í ósköpunum stöndum við svo aula- lega að verki? Sigurgeir Orri Sigurgeirsson „Ef þeir æsa sig eitthvað er pólitískri framtið þeirra stefnt í voða .. „Eg veðja á þjóð sem gengur mennta- veginn; skapar sjálfri sér þokkalega aðstöðu til menntunar og nýtir sér hana. En hvers vegna í ósköpunum stöndum við svo aulalega að verki?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.