Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1992.
j.yx
o>5^
Fallegt og níösterkt
parkett frá [||perstorp
neS
llafið samband við sölumenn okkar
HF.OFNASMIOJAN
Háteigsvegi 7. s 21270, 105 Revkjavik
ÍJtlönd_________________________________
Átökin 1 Bosmu-Hersegóvinu:
Bosnía hindrar
brottf ör hersins
Júgóslavneski herinn sakaði yfir-
völd í Bosníu um að hindra að sam-
bandsherinn gæti yfirgefið lýðveldið,
en átökin milh Serba og íslamstrúar-
manna harðna með degi hveijum í
Sarajevo, höfuðborg Bosníu-Herse-
góvínu, og í öðrum borgum í hinu
sjálfstæða ríki. Átökin byijuðu aftur
eftir að meirihluti friðargæslusveitar
Sameinuðu þjóðanna fór frá
Sarajevo.
Eftir því sem talsmenn sambands-
hersins sögðu komu sveitir íslams-
trúarmanna og Króata í veg fyrir aö
herinn gæti yfirgefið borgina með því
að gera árásir á hann. Frá því 27.
apríl hafa 17.500 hermenn frá Svart-
fjallaiandi or Serbíu úr sambands-
hernum yfirgefið Bosníu samkvæmt
fyrirskipun júgóslavneska ríkisins,
sem eru Serbía og Svartfjallaland.
Forseti Bosníu gaf sambandshern-
um leyfi á sunnudaginn til að yfir-
gefa búðir sínar í Sarajevo svo fram-
arlega sem hermennirnir bæru að-
eins létt vopn. Sambandsherinn hef-
ur þó ekki enn svarað þessu tilboði,
en hann hefur stutt Serba með
þungavopnum og loftárásum.
í gær gerðu Serbar árásir á svæði
rétt utan við Sarajevo þar sem ísl-
amstrúarmenn búa og barist var
milli húsa í þessari fornu höfuðborg
Bosníu þar sem vetrarólympíuleik-
arnir fóru fram fyrir átta árum.
„Þ'etta er ótrúlega hræðilegt," er haft
eftir blaðamanni í borginni. Að sögn
vitna þá lágu líkin út um allt, en
engin leið var aö komast að þeim
vegna skothríðar. Meirihluti íbúa
borgarinnar eru án rafmagns, vatns
og fersks matar. Reuter
Samkvæmt indverskum siðum eru Sadhu-menn heilagir. Þegar himintunglin eru í ákveðinni stöðu hafa þeir það
fyrir sið að baða sig í anni Ksippa þvi að þeir trúa að slíkt losi þá undan þeirri kvöð að fæðast aftur og aftur.
Einum þeirra hefur ekki fundist nóg að geyma minningarnar í hugskoti sínu og beinir því myndbandsupptökuvél
að félögum sínum. Simamynd Reuter
Peronýtur
meirafylgis
enBush
H. Ross Perot, sem enn er ekki
opinberlega frambjóðandi í
bandarísku forsetakosningun-
um, heldur því fram að hann eigi
mikið fylgi sitt aö þakka gremju
og óánægju bandarísku þjóðar-
innar meö stjórnmálamenn í
Washington en ekki persónutöfr-
um sínum.
„Þetta hefur ekkert með mig
sjáifan að gera heldur miklu
fremur með þetta iand og áhyggj-
ur fólksins í landinu,“ sagöi Perot
á sunnudaginn í viðtali viö
bandaríska kapalsjónvarpiö C-
Span.
Skoðanakönnun, sem birt var é
iaugardaginn, sýndi að Perot hef-
ur náð forystunni í kosningabar-
áttunni. Þetta gefur til kynna að
kjósendur vilja hann fremur sem
forseta en George Bush, núver-
andi forseta Bandaríkjanna, eöa
Bill Ciinton, sem mjög líklega
verður frambjóðandi Demókrata.
Voru það 33 prósent aðspurðra
sem sögðust mundu kjósa Perot
en aðeins 28 prósent ætluöu aö
greiða Bush atkvæði sitt og 24
prósent vildu Clinton.
Perot sagði á fimmtudagjnn aö
hann væri meö forskot á Bush í
Kalifomíu, Texas og Flórída.
Hann hefur þó enn ekki sagt op-
inberlega að hann væri í fram-
boði. Hann hefur ekki gefið upp
hvenær hann muni tilkynna
framboð sitt en hefur sagt að það
verðiektóþann27.júní. Reuter
ítalskir þingmenn
uppvísir að svindli
Ongþveiti ríkti á ítalska þinginu
eftir að þingmenn urðu uppvísir að
svindh þegar þeir reyndu að kjósa
nýjan forseta landsins á laugardag.
Kosningareglunum var breytt í kjöl-
farið í gær.
Hneykslismál þetta, sem á sér ekki
fordæmi á þinginu, kom upp eftir að
samsteypustjórn landsins kom sér
ekki saman um nýjan forseta vegna
innbyrðisátaka. Það varð til þess að
Amaldo Forlani, leiðtogi kristilegra
demókrata, dró framboð sitt til baka.
Ekki er hægt að skipa nýja ríkis-
stjóm í landinu til að binda enda á
stjómarkreppuna fyrr en þingið
kemur sér saman um eftirmann
Francescos Cossiga sem sagði af sér
forsetaembættinu í apríllok, tveimur
mánuðum áður en kjörtímabil hans
var á enda. Með afsögn sinni vildi
hann mótmæla pólitíska kerfinu á
ítalíu.
Oscar Luigi Scalfaro, forseti neðri
deildar þingsins, sagði í gær að í
kosningunum á laugardag hefðu
nokkrir þingmenn greitt tvö at-
kvæði. Hann fyrirskipaði að þegar
yrði gripiö til ráðstafana til að koma
í veg fyrir frekara svindl.
Scalfaro sagöi að eina ástæðan fyr-
ir því að hann hefði ekki ógilt kosn-
ingamar væri sú að svindiseölarnir
hefðu verið svo fáir að þeir hefðu
ekki haff nein áhrif til eða frá. Kosn-
ingamar á laugardag leiddu ekki til
niðurstöðu. Taliö er aö svindlið verði
Arnaldo Forlani, leiðtogi kristilegra
demókrata á Ítalíu, varð að draga
framboð sitt til forsetaembættisins
til baka um helgina vegna ósam-
komulags innan stjórnarflokkanna
fjögurra. Simamynd Reuter
þingmönnum enn frekari álits-
hnekkir.
Scalfaro fyrirskipaði að byggður
skyldi sérstakur kjörklefi inni í þing-
salnum. Hver þingmaður fær aðeins
einn atkvæðaseðil og blýant þegar
hann fer inn í klefann og á þaö að
koma í veg fyrir að frekar verði
svindlað.
Reuter
Skoskeyja
tilsölu
Ein af sögufrægustu og harð-
býlustu eyjum Skotlands er tii
sölu fyrir eina milljón punda. Á
eyjunni, sem kallast Eigg, eru
tvær kirkjur, skóli, verslun, póst-
hús og 70 íbúar, þ.á m. læknir,
bréfberi og kennari.
Byggð hefur verið á eyjunni allt
frá steinöld og var hún miðstöð
víkinga þegar þeir réðu yfir
Helbrides-eyjunura.
Bannaðað
syngja í
leigubílunt
Stjómvöld í Seoul, höfuðborg
Suður-Kóreu, hafa ákveðiö að
bannað sé með öllu að syngja í
leigubílum. Hafa þau beðið eina
1,200 leigubílstjóra þar 1 borg að
fjarlægia úr bílum sínum kara-
oke-tæki, lítil sjónvarpstæki og
jafnvel bilasíma. Ástæðan fyrir
þessum hörðu aðgerðum er sú að
talið var að drukknir viðskipta-
vinir leigubílastjóranna, sem
hæfu upp raust sína, væm stór-
hættulegir allri umferð. Þar að
auki var þetta mikil raun fyrir
þá sem urðu samferða söngfugl-
unum.
Geðræn vandamál
hjá japönskum
karimönnum
Rúmlega 40 prósent japanskra
karlmanna á miðjum aldri telja
að þeir eigi við geðræn vandamál
að stríða. Þetta kemur fram í
rannsókn sem japanska heil-
brigðisráðuneytið hefur látiö
gera. Kvarta mennirnir aðallega
yfir svefnleysi, streitu og þung-
lyndi. Rúmlega helmingur marrn-
anna sagðist drekka áfengi á
hverjum degi og sami fjöldi
reykir. Mitóð er um streitu meðal
japanskra starfsmanna og er tii
sérstakt orð yfir þá sem deyja
drottni sinum vegna of mikiliar
vinnu.
Þrælahaldí
Bandaríkjunum
Blómabóndi í Kaiiforníufylki í
Bandaríkjunum hefur játað aö
hafa haldið hundruðum mexík-
anskra starfsmanna nauðugum.
Hefur hann samþykkt að borga
þeim um 90 milljónir f ógreidd
iaun.
Bóndinn, Edwin Ives, réð
verkamennina frá mexíkönskum
smáþorpum, lét þá vinna 16 tíma
á dag og borgaöi þeim aðeins tæp-
lega 60 krónur á tímann, Þar að
auki var verkamönnunum haldið
innan vírgirðingar og var gætt
af vopnuðum vörðum og hund-
uro. Bóndinn getur hugsanlega
einnig fengið 16 ára dóin.
EBekki reiðubúið
utanrikisstefnu
Forseti Evrópubandalagsins,
Jacques Delores, hélt þvi fram í
gær í viðtali við franska sjón-
varpið að aöildarlönd Evrópu-
bandalagsins væru ekki reiðubú-
in fyrir sameiginlega utanríkis-
og varnarmálastefnu, en þau
yrðu það fyrir aldamót
Delorcs fór undan í flæmingi
þegar hann var spurður hvort
hann sæktist eftir að verða eftir-
maður Francoís Mitterrand, for-
seta Frakklands, en hann stað-
festi óbeint aö hann hefði neitað
tilboði Mitterrands um að verða
forsætisráðherra. Sagði Delores
að ef hann heföi tekið boðinu
hefði hinum 11 aðildariöndunum
fundist sem Evrópubandalagið
skipti Frakka engu máli.
Reuter