Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1992. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEIIMN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Rifist um síðustu krónuna Ekki var deilunni um Lánasjóö íslenskra námsmanna fyrr lokið en nýr og alvarlegur ágreiningur hefur risið um annan sjóð. Sjávarútvegsráðherra hefur lagt til að hluti af Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins verði notað- ur til að létta nokkuð á skuldum fiskvinnslunnar. Sjó- menn og forseti Alþýðusambandsins hafa mótmælt þessum fyrirætlunum og virðist mikil harka hafa hlaup- ið í málið. Lánasjóðsdeilan spratt upp vegna áforma og ákvarð- ana ríkisstjómarinnar að draga úr lánafyrirgreiðslu sjóðsins. Mótmæh námsmanna stöfuðu af því að þeir vilja ekki missa spón úr sínum aski. Sama segja sjó- menn nú og halda því fram að hlutur þeirra sé skertur. í báðum þessum deilumálum er ríkisvaldið að gera til- raunir til að rétta við halla og mæta vandamálum sem hingað til hefur ekki verið horfst í augu við. Það er eðlilegt að hagsmunaaðilar hafi uppi mótmæh en hvað á að gera? Ekki getum við endalaust látið reka á reiðanum. Ekki getum við endalaust velt vandanum á undan okkur. í tilviki námsmanna er í rauninni ekki verið að draga úr námslánum, heldur seinka útborgun- um þeirra, þar th námsmenn geta sýnt fram á námsár- angur og að þeir séu raunverulega viö það nám sem lánin eru veitt út á. Stjóm Lánasjóðs íslenskra náms- manna hefur rökstuddan grun um að lánin séu misnot- uð og erfitt er að hafa á móti þeirri viðleitni að reglur séu hertar. Hvort rétt aðferð hefur verið valin til þess er annað mál og vissulega ber að hlusta á þær aðvaran- ir að með frestun á útborgunum lána skapist stéttaskipt- ing í hópi námsmanna. Það má aldrei gerast. Hitt er ekki síður alvarlegt að sjávarútvegurinn í landinu er skuldum hlaðinn. Fiskvinnsla er undirstöðu- atvinnugrein íslendinga og án þeirrar starfsemi verða engir sjóðir til og engar lánafyrirgreiðslur til náms- fólks. Ekki einu sinni atvinna fyrir þorra landsmanna. í ofanálag er samfelldur aflabrestur mikið áhyggjuefni og fróðir menn í útgerð og fiskveiðum gera því jafnvel skóna að meiriháttar breytingar séu að verða til hins verra í fiskigengd og á fiskislóðum. Maður hugsar þá hugsun ekki til enda. A svo alvarlegum tímum langvarandi efnahags- kreppu, skuldasöfnunar og almenns samdráttar í efna- hags- og atvinnulífi er ekki verjandi aö deila stöðugt um skiptingu fjárins. víö erum nánast að deila um síð- ustu krónuna og í þeim efnum verður hver og einn að leggja sitt af mörkum. Það verða allir að fóma ein- hverju. Námsmenn jafnt sem sjómenn. í ljósi þeirra fuhyrðinga sjávarútvegsráðherra að hlutur sjómanna sé ekki skertur, þegar gengið er á Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins, verður að fara fram á að verkalýðsforystan hafi skilning á björgunaraðgerð- um í sjávarútvegi. Þær eru auðvitað hálfkák eins og flest annað sem aðhafst hefur verið í þeim málum, en við- leitni þó, og forsvarsmenn sjávarútvegsins jafnt sem stjómmálamenn hafa viðurkennt að hlutverki Verðjöfn- unarsjóðsins sé að mestu lokið. Ekki síst eftir að fisk- markaðir voru opnaðir og verðlag var gefið frjálst. Deilan um námslánasjóðinn var hörð enda snerist hún að nokkm leyti um jafnrétti í námi. En ágreiningur um björgunaraðgerðir fyrir fiskvinnsluna er að því leyti þyngri á bárunni að þar er í rauninni verið að slást um síðasta vígið. Að því leyti á sjávarútvegsráðherra samúð skilda. Ef fiskvinnslan riðar til fahs, riðar þjóðfélagið allt til fahs. Ellert B. Schram „Efasemdir og endurteknar spurningar þingmanna Framsóknarflokks um girðingar eru ekki nýtt innlegg í umræðuna ... “, segir greinarhöfundur. EES - Landráð eða þjóðráð? í lok apríl varð umræða utan dagskrár á Alþingi um EES-samn- inginn. - í sjálfu sér ekki frétt- næmt, svo oft sem hann hefur orð- ið tilefni shkrar umræðu á yfir- standandi þingi. Hún varö ekki heldur fréttnæm vegna þess sem sagt var því fyrirspumir efasemda-. manna, mótrök og ástæður and- mælenda aðildar íslands aö samn- ingnum voru öll áður komin fram og svör utanríkisráðherra söm og fyrr. Samningi náð Tilefniö var fréttnæmt, undirrit- un utanríkisráðherra okkar og annarra aðildarríkja, svo og fuli- trúa EB. Staðfesting þess að samn- ingamenn hafi lokið verki, samn- ingur liggi fyrir og nú muni ríkis- stjómir leita staðfestingar þjóö- þinga og framkvæmdastjórn EB leita staðfestingar þess - yfirþjóð- legs bandalags ríkjanna hinum megin borösins á sviði efnahags- mála. Samningur hefur tekist milli 19 ríkja í tveimur ólíkum viðskipta- bandalögum, sem ólikra hagsmuna eiga að gæta, eftir nærfellt þriggja ára viðræður. Upptalning formanns utanríkis- málanefndar Alþingis viö þessa umræðu á 12 atvikum á ferh samn- ingaviðræðna sýnir ekki að svo oft hafi framtíð samningsgerðar oltið á afstöðu innan EB, eða staðið hafi upp á EB að taka afstöðu til áhta- efnis samningamanna, segir ekkert um áreiðanleika þess eða aðildar- ríkja þess sem samningsaðila. Á það mun reyna í framhaldinu að samningnum staðfestum. Þessi ríki hafa reynst áreiöanleg í samningum, a.m.k. á undanforn- um áratugum, t.d. um öryggis- og varnarmál og fleira á vettvangi SÞ og Evrópuráðsins. Þau hafa sjálf sýnt fram á áreiðanleika sinn. Formaðurinn lét þess með öhu ógetið hversu oft hefði staðið upp á EFTA-ríkin eða strandað á af- stöðu þeirra - eða sundurlyndi. Með orðum hans varð hins vegar ljóst að áhts utanríkismálanefndar Alþingis hefur oft verið leitað meö- an á samningsgerð stóð, af samn- ingamönnum, utanríkisráðherra og öðrum sem um áhtamálin hafa flahað af íslands hálfu. Utanríkis- málanefnd Alþingis hefur ekki ver- ið sniðgengin við samningsgerðina, ekki heldur formaöur hennar. Hvaða hlutskipti vilja þeir Islandi? Efasemdir og endurteknar spumingar þingmanna Framsókn- arílokks um girðingar eru ekki nýtt innlegg í umræðuna - fr emur KjaUaiinn Árni Ragnar Árnason alþingismaður Sjálfstæðisfiokks- ins fyrir Reykjaneskjördæmi en algjör óvissa um afstöðu hans. Heldur ekki ofstækisfuU andstaöa þingmanna AÍþýðubandalags og þingmanna Kvennahsta. Þaö hefur verið ljóst svo mánuðum skiptir að í herbúðum þessara flokka hafa hreiðrað um sig einangrunarsinn- ar. En þeir hafa aldrei gert þjóðinni grein fyrir þeim kjörum sem þeir ætla henni. Við, sem teljum það rétt að ísland staöfesti samninginn með þeirri lagasetningu sem Alþingi verður ásátt um, höfum gert grein fyrir því að við teljum umræður og ábendingar um það sem gera þurfi tU að tryggja hlut okkar Islendinga sem best, vera til þess faUnar að greiða fyrir almennri sátt um mál- iö. Við höfum hka gert grein fyrir því hvaða kjör við vUjum skapa íslenskri þjóð með afstöðu okkar og athöfnum. Við vUjum að hún gerist þátttak- andi í víðtæku samstarfi þeirra þjóða sem hún hefur átt mesta sam- leiö með að fomu og nýju. - um sköpum samhæfðra við- skiptareglna fyrir einn stærsta markað heimsins og með þátt- töku okkar fá kjör okkar stór- bætt í viðskiptum við okkar bestu markaðslönd fyrir íslensk- ar afurðir - 96% þeirra innflutn- ingstolla sem við greiðum nú af unnum sjávarafuröum fluttum tU þessara landa munu falla nið- ur - að íslendingar hafi jafnframt fulla heimild til að gera samninga um fríverslun og niöurfelhngu tolla við önnur mikUvæg viðskipta- lönd okkar, t.d. Bandaríkin - að hagkvæmara verði að fuU- vinna íslenskar afurðir hér heima og selja þannig úr landi - í stað þess að flytja út óunnið hráefni eða lítt unnar vörur - aö íslensk fyrirtæki fái aðgang að alþjóðlegu áhættufé, en ekki einungis að lánsfjármagni, sem reynst hefur dýrkeypt - að auka samkeppnishæfni at- vinnugreina okkar og möguleika nýrra, svó sem tengsl ferðaþjón- ustu og heUsugæslu með nýjum heUsuhótelum við baðstaöi, mót- un fríhafna sem iðnaðarsvæða í viöskiptum mUli heimshluta og viöskiptabandalaga og þátttöku íslendinga í alþjóðaviðskiptum - að við eigum aðUd að samstarfi grannþjóöa okkar um ráðstafan- ir til vemdar umhverfmu. Við vitum að aðUd íslands að EES nær þessu fram og teljum hlut okk- ar viðunandi og við erum tUbúnir aö fela stofnunum þessa samstarfs afmarkað vald tíl að tryggja jafn- ræði í framkvæmd þess og ein- staklingar, fyrirtæki og ríki geti leitað réttar síns ef á þarf að halda. Þannig stofnunum hefur ísland áður framselt fullveldi sitt á tU- teknu sviði - sbr. Alþjóða hafrétt- arsáttmálann, svo aðeins einn slík- ur sé nefndur, sem hefur þegar kostað okkur nýtingu einnar af auðlindum sjávarins. Ekki voru hvalveiðar lagðar af að okkar eigin frumkvæði. En hvaöa lífskjör vUja einangr- unarsinnar, sem við hvert tækifæri mótmæla aðUd íslendinga að þessu samstarfi nítján Evrópulanda, bjóða íslendingum framtíðarinnar? - Hvert er það hlutskipti sem þeir vUja íslenskri þjóð? Árni Ragnar Árnason „Hvaöa lífskjör vilja einangrunarsinn- ar, sem við hvert tækifæri mótmæla aðild Islendinga að þessu samstarfi nítján Evrópulanda, bjóða íslendingum framtíðarinnar? - Hvert er það hlut- skipti sem þeir vilja íslenskri þjóð?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.