Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1992.
31
dv LífsstOI
Grænmetisverð í Bandaríkjunum og á íslandi:
Allt að fjórtán-
faldur munur
Allt í pústkerfið
Hljóðkútar og púströr eru okkar sérgrein. Fjöðrin hf. er
brautryðjandi í sérþjónustu við íslenska bifreiðaeigendur.
Eigin framleiðsla og eigið verkstæði tryggir
góða vöru og gæðaframleiðslu.
Verslið
Anna Bjamasan, DV, Flórída:
Flestir eru sammála um það að
grænmetisborðið í Hagkaupi er
óvenju íjölbreytilegt. Þar er græn-
meti nánast alltaf fyrsta flokks og
úrvalið er mikið. Fáar verslanir er-
lendis hafa upp á jafnmikið græn-
metisúrval að bjóða. En menn hafa
tekið eftir að kgverð á grænmetinu
hefur í sumum tilfellum verið ansi
hátt. Það á sérstaklega við um sjald-
gæfari tegundirnar, þær sem ein-
göngu fást í Hagkaupi en ekki öðrum
verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
DV gerði verðkönnun á 27 af sjald-
gæfari grænmetistegundum í Hag-
kaupi Kringlunni þann 12. maí. Til
samanburðar gerði fréttaritari DV í
Flórída, Anna Bjamason, verðkönn-
un á sömu tegundum í þremur stór-
mörkuðum í fylkinu. Niðurstöðum-
ar koma töluvert á óvart.
í flestum tilfellum var verð mikiu
lægra í Bandaríkjunum en í einstaka
tilfellum var þessu öfugt farið. Verð-
munurinn var mestur í tilfelli
strengjabauna en munur á verði er
14,6 faldur. Svipaða sögu er að segja
um verðmuninn á belgbaunum,
vatnsmelónum, maís-komstönglum
og grænni papriku. Þetta sést glögg-
lega á súluritinu hér á síðunni.
Athygh vekur að græn paprika er
mjög ódýr í Bandaríkjunum enda
ræktuð þarlendis, en annar litur á
papriku, gul, rauð og appelsínugul
er rándýr, á hærra verði en hérlend-
is. Paprika af öðrum lit en grænum
er innflutt til Bandaríkjanna.
Verðkönnunin var gerð á 27 teg-
undum í Hagkaupi en af þeim feng-
Neytendur
ust aðeins 17 í stórmörkuðum á
Flórída. Tegundimar og kgverðið
(fyrst íslenskt, síðan bandarískt) eru
sem hér segir; eggaldin 599 og 110,
grænt zucchini 399 og 65, vantsmel-
ónur 299 og 35, passion 999 og ekki
til, Japan pemr 599 og 254, avocado
329 og 183, kiwano 999 og ekki til,
tamariUos 999 og 395, kumquats 999
og ekki til, lime 499 og 151, rambout-
an 1.299 og ekki til, mangó 499 og
151, Granada epli 849 og ekki til,
mangistan 1.299 og ekki til, epla ban-
anar 599 og ekki til, piparrót 999 og
538, rauðlaukur 129 og 197, engifer
399 og 249, strengjabaunir 1.399 og 96,
belgbaunir 1.399 og 104, sykurbaunir
1.399 og 528, grasker 299 og ekki til,
sellerí rót 129 og ekki til, sellerí 229
og 88, komstönglar 999 og 71 og loks
sætar kartöflur 399 og 269.
Strengjabaunir og belgbaunir eru á 14 sinnum lægra kílóverði i Flórida
en hér á íslandi. DV-mynd GVA
Til gamans var borið saman meðal-
verð papriku hérlendis í stórmörk-
uðum og verð í Bandaríkjunum.
Græn paprika 460 og 91 og gul papr-
ika 432 en kostaði 846 krónur kílóið
í Bandaríkjunum. Eftir því sem
fréttaritari í Bandaríkjunum kemst
næst fer vöruúrval í grænmetis-
mörkuðunum þarlendis mikið eftir
árstíðum en aðstandendur grænmet-
ismarkaðarins í Hagkaupi leggja
greinilega mikið á sig til að hafa
ávailt á boðstólum mikið úrval. Það
getur þó varla verið að sá tilkostnað-
ur sem af því hlýst, skapi þennan
mikla verðmun. Það skyldi þó aldrei
vera svo að þetta háa verð sé vegna
þess að enginn annar aðih er með
sumar þessara tegunda til sölu og
samkeppnin því ekki til staðar th að
haldaverðinuniöri? -ÍS
Bíbvörubú6in
fjodrin
Skeifunni 2, Sími 81 29 44
Abu
Garcia
Gleðilegt
veiðisumar ^
með Abu Garcia
Þegar kemur að vali á
veiðivörum er Abu Garcia
merki sem æ fleiri treysta á,
enda framleiddar úr
físléttum en sérlega sterkum
efnum með hámarks gæði
og endingu að leiðarljósi.
Nú er einmitt rétti tíminn til
að huga að endumýjun eða
kaupum á veiðibúnaði.
Kynntu þér gott úrval Abu
Garcia veiðivara hjá
Veiðimanninum eða á
sölustöðum um land allt.
Opið til kl. 18 mánud.-fimmtud.,
til kl. 19 á föstudögum,
frá kl. 10 til 16 á laugardögum
og frá kl. 11 til 16 á sunnud.
Hafnarstræti 5
Símar 1 67 60 og 1 48 00