Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Page 32
44 MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1992. Hr. Óskar Nafnleyndar „En einn umsækjandi kemur þar undarlega oft fyrir; hann sækir nánast um öll embætti sem losna og stundum viröist hann hafa skilað inn mörgum umsókn- um um sama starflð. Það er ein- hver Óskar Nafnleyndar. Hann er alltaf að sækja um opinber störf og embætti og þótt ljóst sé af framhaldinu að iðulega verður einmitt hann fyrir valinu þá held- ur hann sífellt áfram að skila inn umsóknum," segir Kristján Bersi Ólafsson, skólameistari Flens- borgarskóla, um þennan klíku- kall, Óskar. Unnið í svitalykt og andremmu „Þáttur í ráðgjafarvinnu Önnu er að þefa af fólkinu sem hún er að vinna með til að komast að raun um hvort það angi af svita- lykt, táfýlu eða andremmu og síð- an vinnur hún á viðkomandi þáttum með fólkinu ef vandamál- in eni til staðar," segir í viðtali við Önnu M. Gunnarsdóttur, lita- og fatastílista, í Morgunblaöinu. Ummæli dagsins Þjappað lottófólk „Við þjöppuðum okkur þannig saman í 100 fm húsnæöi hér í kjallaranum," sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, framkvæmda- stjóri íslenskrar getspár, um upp- hafsdaga lottósins. BLS. Antik 33 Atvinna í boði....'. 37 Atvinna óskast 37 Atvinnuhúsnæði 37 Barnagæsla. Bátar 35,39 Bilaleiga 36 Bllamálun 36 Bllaróskast 36 Bllartil sölu 36,39 Bólstrun 33 Byssur 33 Dulspeki 38 Dýrahald 33 Einkamál 37 Fasteignir 34 Ferðalög 38 Ferðaþjónusta 38 Fyrtrungbörn ...33 Smáauglýsingar Fyrir veiðímenn 34 Fyrirtæki 35 Garðyrkja Heimilistækí 33 Hestamennska 33 Hjól 33 Hjólbarðar 35 Hljóðfæri 33 Hljómtæki 33 Hreingerningar 37 Húsaviðgerðir 38 Húsgögn 33 Húsnæði I boði Húsnæði óskast 37 Kennsla - námskeið 37 Lyftarar 36 Nudd Óskast keypt 33 Parket Sendibllar 36 Sjómennska 37 Sjónvörp 33 Skemmtanir 37 Spákonur ...37 Sport 40 Sumarbústaðir 34 Sveit 38 Teppaþjónusta 33 Teppi 33 Til bygginga 38 Tilsölu Tilkynningar TÖIvur Vagnar - kerrur Varahlutir Verslun Vetrarvörur 33 Vólar - verkfæri 38 Viðgerðir Vinnuvélar Vldeó Vörubílar Ýmislegt Þjónusta Ökukennsla 37 Súld og rigning Á höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir golu eða kalda, súld og rign- ingu. Um austanvert landið veröur aust- an- og suðaustangola en vestan til verður austankaldi og sums staðar stinningskaldi norðvestanlands. Rigning og súld verður um mestall land, samfelld sunnan- og vestan- lands en með köflum norðaustan- lands. Slydda eða rigning verður á Vestfjörðum. Hiti verður rétt yfir frostmarki á Vestfjörðum en allt að 12 stiga hiti austanlands í dag. í morgun var hæg breytileg átt norðaustanlands en austangola eða kaldi annars staöar. Rigning eða súld var um mestallt land, einkum sunn- an til. Á Vestfjörðum var snjókoma og slydda. Hiti var á bilinu 1-8 stig, hlýjast suðaustanlands en kaldast á Vestfjörðum. Veðriö í dag Um 500 km suösuðvestan af land- inu er 1000 mb lægð á hreyfingu í norður. Frá henni liggur lægðardrag norðaustur um ísland. 1028 mb hæð er yfir Grænlandi. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri súld 3 Egilsstaðir skýjaö 8 Keíla víkurflugvöllur þoka 7 Kirkjubæjarklaustur súld 6 Raufarhöfn rigning 3 Reykjavik súld 8 Vestmarmaeyjar súld 7 Bergen léttskýjað 7 Helsinki léttskýjað 11 Ósló léttskýjað 12 Stokkhólmur léttskýjað 14 Amsterdam léttskýjað 12 Barceiona þokumóða 17 Beriín skýjaö 12 Feneyjar þokumóða 18 Frankfurt léttskýjað 12 Glasgow heiðskírt 10 Hamborg heiðskírt 11 London skýjað 10 LosAngeles alskýjað 17 Lúxemborg heiðskírt 11 Madrid heiðskírt 17 Malaga léttskýjað 13 Mallorca þokumóða 13 Montreal rigning 17 New York skýjaö 12 Orlando skýjaö 21 París heiðskírt 13 Róm þokumóða 16 Valencia léttskýjaö 13 Vín láttskýjað 12 Winnipeg heiðskírt 12 Veðrið kl. 6 í morgun Jón Ásbjörnsson útílytjandi: „Hnakkarnir eru nákvæmlega jafngóðir og venjulegur saltfiskur. Þetta er afurö sem oftast er kastað aö mestu leyti. Þegar búiö er að hausa fiskinn fyrir flökun þá hanga þunnildin á hausnum og töluvert af fiski á hnakkanum. Þetta læt ég skera og salta og sendi til Portú- gals. Um 50% er fiskur og 50% bein. Það er ár síðan ég byrjaði á þessu. Ég er búinn að selja 250 tonn eða fyrir 20 miUjónir. Þetta er ódýrasti saltfiskur sem hægt er að fá,“ sagði Jón Ásbjömsson útflyfjandi en hann hefur undanfariö verið að selja Portúgölum saltfiskshnakka sem fangar eru meðal annars látnir snæðæ Þaö er að visu ekki af því að hnakkarnir séu svona vondir heldur vegna þess að þeir eru mjög ódýrir. Jón Ásbjörnsson úiftytjandi Jón er fæddur og uppalinn í Reykjavík og tók verslunarskóla- próf og iþróttakennarapróf. Hann var leikfimikennari í Reykjavik, Sandgeröi og Rifi i 16 ár og var trillukarl á sumrin. 1976 stofnaði hann fyrirtæki sitt, Jón Ásbjöms- son hf., og árið 1983 stofhaði hann annað, Fiskkaup hf. Fyrirtæki Jóns er stærsta útflutningsfyrirtæki á Islandi í einkaeign. Jón er einnig landsþekktur bridgespilari. Maður dagsins Maki Jóns er Halla Daníelsdóttir qg eiga þau tvö börn, Ásdísi og Ásbjörn. Ásbjöm er forstjóri Fisk- kaups hf. Ungl- ingar og vímu- efni Fyrirlestur verður fluttur á vegum Unglingaheimilis ríkisins um unglinga og vímuefni kl. 9 í kvöld í Geröubergi. Þessi fyrir- lestur er sá fyrsti af 6 en hinir verða þann 19., 20., 23., 25. og 26. Fundir kvöldsins Fyrirlestrarnir em hluti af sam- vinnu Unglingaheimilisins og dr. Harveys Milkmans, prófessors í sálarfræði, frá Colorado og dr. Stanleys Sunderwirth, prófessors í efnafræði, frá Indianapolis. Þeir verða aðalfyrirlesarar. Skák , Þessi staða er frá skákmóti í Ástralíu fyrir skömmu. Stórmeistarinn Tony Mi- les hafði svart og átti leik gegn heima- manninum Solomon. Svartur heldur uppi þrýstingi en viröist ekki komast áleiðis, auk þess sem hvítur hótar 1. Hhl o.s.frv. Hvemig fór Miles að? Eftir 1. - Kg7 2. Hhl fann Miles upp á 2. - Dxf3 +! 3. Kxf3 Hxc3+ 4. Kg4 Rc2! og nú á hvítur enga fullnægjandi vöm við hótuninni 5. - Re3 + . Eftir 5. Dgl Re3+ 6. Kf3 Rf5+ 7. Kg4 Hg3+ vinnur svartur endataflið auöveldlega. Jón L. Árnason Bridge Bretamir Irving Gordon og Boris Schap- iro urðu í öðm sæti í Sunday Times tví- menningnum á síöasta ári með 495 stig en Bandaríkjamennirnir Chip Martel og Lew Stansby vom rétt á eftir með 490 stig. Gordon og Schapiro vom mjög heppnir í síðasta spili keppninnar sem tryggði þeim annaö sætið. Þeir spiluðu í síðustu umferð gegn eina kvennapari mótsins, McCallum og Horton, sem vom gestir hér á síðustu Bridgehátíð. Sagnir gengu þannig, vestur gjafari og AV á hættu: ♦ D10653 V KG87 ♦ 962 + K Vestur Norður Austur Suður McCall- Schapiro Horton Gordon um 20 dobl 4? pass pass 5» pass 5 G dobl pass pass 6+ pass 7+ p/h Tveggja tígla opnun McCallum var veik opnun sem lofaði hálitum og eins og oft gerist, þegar andstaðan opnar á hindrun, fóm sagnir hinna úr böndunum. Sjö lauf litu ekki vel út en áttu þó möguleika á að standa. Þaö valt allt á því hvort vestur myndi hitta á að spila út tígli, en þá heíði verið vandi að fmna réttu spilamennsk- una fil að vinna spilið (að spila lágu laufi). Tígulgosi var sennilega eina inn- koman á hendi suðurs og það hefði leitt til taps að fara af stað með lauftíuna. En útspilið var þjarta og þar með kom ein aukainnkoma á hendi suðurs til að spila lágu laufi! með það fyrir augum að spila tígli á gosa og endurtaka svíninguna. Spilið stóð því og annað sætið kom í hlut Bretanna. ísak Sigurðsson. ♦ Á4 ¥ -- ♦ ÁKD743 + ÁDG52 ♦ KG8 V D10954 ♦ 8 + 9764 ♦ 972 V Á632 ♦ G105 + 1083

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.