Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 2
24
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
íþróttir
Sæmundur og
Guðni efstir á
Strandarvelli
Sæmundur Pálsson, GR, og
Guðni Sv. Theodórsson, GHR,
urðu sigurvegarar í opna Endur-
vinnslumótinu í golfi sem fram
fór á Strandarvelli við Hellu á
laugardaginn. Þátttakendur voru
77 og leiknar voru 18 holur, með
og án forgjafar.
Sæmundur sigraði í keppni án
forgjafar á 75 höggum. Sigurður
Oddur Sigurðsson, GK, varð ann-
ar á 77 höggum og Einar B. Jóns-
son, GKJ, þriðji, einnig á 77.
Guðni sigraði í keppni meö
forgjöf á 60 höggum, Guðjón
Steinarsson, GHR, varð annar á
63 höggum og Svanþór Þor-
bjömsson, GR, þriðji á 65 högg-
um.
-VS
Völsungum
SM úr Eyjafirði vann UMF
Langnesinga, 6-1, í 1. umferð bik-
arkeppni KSÍ á Þórsvellinum á
Akureyri á laugardaginn. Helgi
Eyþórsson gerði 3 mörk, Amar
Kristinsson 2 og Donaid Kelly 1
fyrir SM en mark Langnesinga
var sjálfsmark Sigurbjöms Við-
arssonar. SM fær Völsung í heim-
sókn í 2. umferðinni annað kvöld.
-HK/VS
Sex útimörk
Barcelona
Gífurleg spenna er komin í bar-
áttuna um spænska meistaratitil-
inn eftir stórsigur Barcelona á
Valladolid á útivelh í gær, 0-6. Á
meðan rétt náði Real Madríd jafn-
tefli gegn Osasuna úti, 1-1. Ron-
ald Koeman, Hristo Stoichkov og
Miguel Nadal gerðu 2 mörk hver
fyrir Barcelona en það var Emilio
Butragueno sem jafnaði fyrir Re-
al gegn Osasuna, fjórum mínút-
um fyrir leikslok. Atletico
Madríd vann Logrones, 2-1, og á
einnig möguleika. Þegar tvær
umferðir em eftir er Real Madríd
með 52 stig, Barcelona er með 51
og Atletico Madríd 50 stig.
Lietzkevann
í bráðabana
Bruce Lietzke tryggði sér í gær
sigur í Colonial-golfmótinu sem
þá lauk í Forth Worth í Texas
þegar hann vann Corey Pavin i
bráðabana eftir að þeir höfðu
skilið jafnir meö 267 högg hvor.
Bandaríkjamenn vom einnig í
næstu sætum, Jim Gallagher lék
á 269 höggum, Rick Fehr og Mark
Brooks á 270, en síðan kom Ástr-
ahnn frægi, Greg Norman, á 272
höggum, og margir þekktir kylf-
ingar urðu mun neðar.
-VS
Halldór i
mark Þróttar?
Halldór Halldórsson, fyrrum
markvörður FH-inga og nú að-
stoðarþjálfari FH, mun jafnvel
leika í marki Þróttar í 2. deildinni
um næstu helgi. Báðir markverð-
ir Þróttara em meiddir en Hall-
dór Steingrímsson, sem hljóp í
skarðið, stóð sig mjög vel gegn
Stjömunni á laugardaginn svo
ekki er ömggt að nafni hans Hall-
dórsson þurfi að taka fram
hanskana.
-GH
Þórður Birgir Bogason jafnaði
metin fyrir Grindavík á lokamínút-
unni.
DV
Megum teljast heppnir
að hafa náð öðru stiginu
- sagöi Bjami Jóhamisson, þjálfari Grindvikinga, eftir 2-2 jafiitefli gegn ÍBK
Ægir Mar Kárason, DV, Suðumeajunv
„Eini ljósi punkturinn var að við
náðum að vinna upp þennan mun
og megura tefjast heppnir að ná
stigi því að Keflvikingar voru
sterkari aðilinn í leiknum. Það var
kannski óheppni að fá svona Suö-
umesjaslag í 1. urnferð, enda mikil
taugaspenna ríkjandi hjá leik-
mönnum," sagði Bjarni Jóhanns-
son, þjálfari Grindvíkinga, við DV
eftir að Grindavík og Keflavík
höfðu gert 2-2 jafntefli í 2. deildinni
á lélegum grasvelh Grindvíkinga á
laugardaginn.
Á fyrsta hálftimanum skoraðu
Keflvíkingar tvívegis, fyrst Marco
Tanasic á 20. minútu með glæsilegu
skoti beint úr aukaspyrnu af 35
metra færi. Tíu mínútum síðar
skoraði Óh Þór Magnússon með
skaha eftir aukaspymu Tanasic. Á
síðustu mínútu fyrri háhleiks áttí
Guðlaugur Jónsson sendingu inn í
vítateig Keflvíkinga og af vamar-
mönnum Keflvíkinga fór knöttur- '
inn í netið og staöan var 1-2 í leik-
hléi.
Um miðjan síðari hálfleik var
dæmd vítaspyrna á Grindvikinga
en Þorsteinn Bjarnason, mark-
vörður Grindvíkinga, varði spyrnu
Júgóslavans Marco Tanasic mjög
vel. Það var ekki fyrr en á lokamín-
útunni sem Grindvíkingar jöfnuðu
metin. Eftir fyrirgjöf frá hægri
kanti skoraði Þórður Birgir Boga-
son, sem kom frá Val, og tryggði
sínum mönnum annað stigið við
mikinn fögnuð heimamanna.
„Það var klaufalegt að tapa þessu
niður í jafntefh. Við áttum að gera
út um leikinn þegar við fengum
vítið. Ég hélt að Grindvíkingar
væru sterkaii með alla þessa aö-
komumenn," sagði Kjartan Más-
son, þjálfari Keflvíkinga, sem var
ekki ánægður með leik sinna
manna í síðari hálíleik, við DV eft-
ir leikinn.
Haukur Magnússon fagnar hér marki sínu sem hann skoraði fyrir Þrótt i sigrinum á Stjörnunni. DV-mynd GS
Þróttur skelHi Stjörnunni
- óvæntur sigur Þróttara í Garðabænum, 2-3
Það er ekki hægt að segja annað
en að Þróttarar hafi komið skemmti-
lega á óvart er þeir lögðu Stjörnuna
að velli á malarvehi þeirrar síðar-
nefndu á laugardaginn, 2-3. Þróttar-
ar gátu ekki sthlt upp sínu sterkasta
hði því að Guðmundur Erhngsson
markvörður er meiddur og veröur
frá í 6-8 vikur og Dragan Manojlovic
var í leikbanni.
Stjömumenn byijuðu leikinn af
krafti og strax á fyrstu mínútu komst
Guðni Grétarsson einn inn fyrir vörn
Þróttara en Halldór Steingrímsson
markvörður handsamaði boltann á
glæsilegan hátt. Stjörnumenn nýttu
því ekki sín færi en þaö gerðu Þrótt-
arar á 7. mínútu þegar Þórður Jóns-
son komst á auðan sjó og skoraði,
0-1, sem var staðan í hálfleik.
Sijarnan jafnaði leikinn þegar
skammt var hðið á seinni hálfleik-
inn. Ámi Sveinsson tók homspyrnu,
Kristinn Lárusson nikkaði boltanum
yfir sig og í vamarmann Þróttar og
inn, 1-1. Það tók Þróttara aöeins tvær
mínútur að komast yfir aftur og var
þar Haukur Magnússon að verki er
hann þrumaði boltanum í markið
með höfðinu eftir aukaspyrnu sem
Zoran Stosic tók. Zoran átti líka þátt
í næsta marki Þróttar. Hann tók
hornspyrnu og barst boltinn th Þórð-
ar Jónssonar sem potaði honum inn,
1-3. Zoran Coguric náði að minnka
muninn fyrir Stjörnuna úr auka-
spymu á síðustu mínútum leiksins
og lokatölur urðu því 2-3 fyrir Þrótt-
ara.
Halldór Steingrímsson var maður
þessa leiks. Hann varði oft glæsilega
og gæti orðið erfitt fyrir Guðmund
að vinna sig inn í hðið aftur. Að öðm
leyti var Þróttarliðið mjög jafnt.
Stjömumenn geta meira en þeir
sýndu en verða í fyrsta lagi að nýta
færin ef betur á að ganga. Þetta á
sérstaklega við um Guðna Grétars-
son.
-KG
Glæsileg mörk I Garðinum
-þegar Víðir og Selfoss skildu jöfn, 1-1
Vignir Rúnarsson, DV, Garði:
„Þetta var aht í lagi, við byrjuðum
vel og þeir komust varla fram fyrir
miðju. Við vomm óheppnir að skora
ekki í fyrri hálfleik," sagði Vilhjálm-
ur Einarsson, vamarmaðurinn
sterki í hði Víðis, eftir að Víðir og
Selfoss höfðu skihð jöfn, 1-1, á góðum
grasvelh Víðismanna í Garðinum.
Víðismenn hófu leikinn af miklum
krafti og fyrsta hálftímann vom þeir
ahsráðandi á vellinum. Undir lok
hálfleiksins komu Selfyssingar
meira inn í leikinn og tveimur mínút-
um fyrir leikhlé skoraði Páll Guð-
mundsson fyrir Selfoss. Markið kom
eftir varnarmistök hjá Víðismönn-
um. Knötturinn barst th Páls inn í
víteig sem tók hann og „hamraði"
hann undir markslána.
Víðismenn réðu feröinni áfram í
síöari hálfleik og um hann miðjan
náðu þeir að jafna metin. Vilberg
Þorvaldsson skoraði glæshegt mark,
fékk knöttinn utan vítateigs og skrúf-
aði hann efst upp í markhomið.
Sævar Leifsson og Vilhjálmur Ein-
arsson vom bestir Víðismanna og í
hði Selfyssinga var Páh Guðmunds-
son góður, stórhættulegur leikmaður
þar á ferð.
Vilberg brotinn
Vilberg Þorvaldsson varö fyrir því
óláni að handarbrotna í leiknum og
verður hann sennilega frá í einn
mánuð. Þetta er mikhl missir fyrir
Víðismenn því að Vhberg er ein af
kjölfestunum í Garðshðinu.
Markalaust
á Ólafsfirði
-hjáLeiftriogÍR
Helgi Jónsson, DV, Ólafsfirði:
Leiftur og ÍR gerðu markalaust
jafntefh í 2. deild karla á íslandsmót-
inu í knattspyrnu á Ólafsfirði á laug-
ardaginn.
Leikurinn var jafn og úrshtin vérða
að teljast sanngjörn. Liðin skiptust á
færum, ÍR-ingar hófu leikinn með
stórsókn og besta færi þeirra kom á
10. mínútu þegar Þorvaldur Jónsson,
markvörður Leifturs, varði á ótrú-
legan hátt skot frá markteig. Leiftur
fékk tvö mjög góð marktækifæri í
fyrri hálfleik. Pétur Marteinsson
skallaði framhjá, einn á móti mark-
verði ÍR, og Pétur Jónsson komst
einn inn fyrir vöm ÍR en skaut yfir.
Síðari hálfleikur einkenndist af
þófi og þreifmgum leikmanna. ÍR-
ingar vora mun betri aðilinn og áttu
mörg hættuleg færi. Leiftursmenn
féhu hins vegar mjög oft í rangstöðu-
ghdru ÍR-inga. Á lokamínútunni
munaði minnstu að Kristján Hall-
dórsson tryggði ÍR sigurinn þegar
hann slapp einn inn fyrir vörn Leift-
urs en Þorvaldur bjargaði með góðu
úthlaupi.
Þorvaldur Jónsson og Sigurbjörn
Jakobsson voru bestir í liði heima-
manna en hjá ÍR var Kristinn Guö-
mundsson bestur og Þorri Ólafsson
var sprækur á hægri kantinum.
Fimm mörk á
Fylkisvelli
Kristinn Tómasson tryggði Fylki
sætan heimasigur á BÍ, 3-2, á Fylki-
svelh í 2. dehd íslandsmótsins í
knattspymu á fóstudagskvöldið.
Kristinn skoraði sigurmarkið þeg-
ar 7 mínútur voru til leiksloka. Indr-
iöi Einarsson skoraði fyrir Fylki á
16. mínútu leiksins en Kristmann
Kristmannsson jafnaði fyrir BÍ á 43.
mínútu eftir að Páh Guðmundsson í
marki Fylkis hafði hálfvarið skot
Hauks Benediktssonar. Skömmu síö-
ar átti Kristinn Tómasson skot í
þverslána á marki BÍ.
í síðari hálfleik skoraði Indriði Ein-
arsson öðm sinni fyrir Fylki á 61.
mínútu en á sömu mínútunni jafnaði
Örn Torfason sem hafði áður komiö
inn á sem varamaður fyrir BÍ.
Skömmu síðar komst Jóhann Æv-
arsson í dauðafæri en Páll varði
glæsilega.
Leikurinn var ágætlega leikinn á
köflum, sérlega kom hð BÍ á óvart
og verðskuldaði jafntefli í þessum
leik.
Kári Gunnlaugsson dæmdi leikinn
og var mjög slakur.
-SK