Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 4
26 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992. Iþróttir Markakóngurinn Hörður Magnússon í liði FH reynir rnarkskot en Blikarnir Pavel Kretovic og Reynir Björnsson eru til varnar. FH-ingurinn Þórhallur Víkingsson fylgist meö. DV-mynd Brynjar Gauti FHIosaði tak Blikanna - Fyrsti heimasigur FH á UBK11. deild „Þetta voru þrjú mjög góð stig. Við spiluðum ágætlega í fyrri háifleik og sköpuðum okkur ágæt færi. í síðari hálfleik vorum við mjög slakir fram- an af og þá má kannski segja að við höfum verið heppnir aö fara með öll stigin því Blikamir voru þá mun sterkari en við,“ sagði Njáll Eiðsson, þjálfari FH-inga, við DV eftir aö FH hafði unnið sigur á Breiðabliki, 2-1, á æfingagrasvelli FH á Kaplakrika í gærkvöldi. Þetta var um leið fyrsti sigur FH á Breiðabliki á heimavelh sínum í 1. deild í 8 leikjum. Leikurinn í gær var mjög kafla- skiptur. FH-ingar voru miklu sterk- ari í fyrri hálfleik en dæmið snerist við í þeim síðari. Glæsilegt mark hjá Andra FH fékk óskabyijun því strax á 5. mínútu skoraði Andri Marteinsson glæsilegt mark. Eftir langt innkast Ólafs Kristjánssonar upp við enda- mörk skallaði einn Blikinn frá og þar tók Andri boltann á lofti og þrumaði honum viðstööulaust neðst í mark- hornið. FH-ingar áttu hættulegt færi 10 mínútum síðar þegar Björn Jóns- son slapp inn fyrir vörn Blika en vamarmaður UBK náði að bægja hættunni frá. Eina umtaisverða færi Blikanna átti Grétar Steindórsson en Stefán Amarson varði skot hans vel. í síðari hálfleik léku Bhkar undan golunni og þeir réöu ferðinni og vora oft ágengir upp við mark FH. Á 55. mínútu hreinsaði Þórhahur Víkings- son nánast á markhnunni og tveimur mínútum síðar kiksaði Reynir Bjömsson í opnu færi. Mark UBK lá í loftinu og Steindór Ehson náði að jafna metin á 68. mínútu. Hann fékk knöttinn inn í vítateig, lagði hann vel fyrir sig og skoraði með góðu skoti. Nokkrum mínútum síöar mun- aði minnstu að Birgir Skúlason skor- aði sjálfsmark en Stefán í marki FH varði meistaralega. Skömmu síðar vildu Kópavogsbúar fá dæmda víta- spymu þegar Hilmar Sighvatsson féh inn í vítateig en Egill dómari var iha staðsettur og sá ekkert athuga- vert. Grétar tryggði FH sigur Það stefndi allt í jafntefhsleik en þremur mínútum fyrir leikslok tryggði Grétar Einarsson FH öh stig- in. Ólafur Kristjánsson tók auka- spymu rétt utan vítateigs renndi knettinum th Þórhalls Víkingssonar sem sendi fyrir markið og þar var Grétar á réttum stað og skoraði ör- ugglega. „Ég var mjög óhress með fyrri hálf- leikinn, við sphuðum þá mjög iha. Við náðum síðan að koma okkur inn í leikinn og hefðum þá átt að skora fleiri mörk. Við sváfum á verðinum í lokin og það kostaði okkur ósigur, sagði Vignir Baldursson, þjálfari UBK, við DV eftir leikinn. FH hðið lék vel í fyrri hálfleik en í þeim síðari datt botninn úr leik þeirra. Ólafur Kristjánsson var mjög drjúgur í liði FH og þeir Andri Mar- teinsson, Björn Jónsson og Stefán Arnarson áttu alhr ágætan leik. Valur Valsson og Kristófer Sigur- geirsson léku best í liði Bhka og þeir Amar Grétarsson og Hilmar Sig- hvatsson áttu ágæta spretti í síðari hálfleik. -GH „Stoltur af strákunum“ - ungt lið KA skellti Víkingi, 0-2 Víkingur (0) 0 KA (0) 2 O-l Ormarr Örlygsson (81.) 0-2 Ormarr Örlygsson (90.) Liö KA (3-6-1): Haukur (2) - Gunnar G. (3), Steingrímur (1), Halldór (1) - Ormarr (2), Bjami (1), ívar (2) (Bjarki (1) 73.), Jóhann (1) (Gauti (1) 46.), Páh (1), Sigþór (2) - Gunnar Már (2). Liö Víkíngs (3-5-2): Guömundur H. (2) - Zilnik (1), Þorsteinn (2), Marteinn (1) - Olafur (1), Guð- mundur Ingi (2), Aöalsteinn (1), Atli H. (1), Höröur (1) - Guömund- ur S. (1), Ath E. (1). Gul spjöld: Páh (KA), Haildór (KA). Dómari: Ari Þórðarson, ekki sannfær- andi. Aöstæður: Mjúkur gras- völlur, kvóld- blíöa en svait þegaraleið. Áhorfendur: 560. KAmeðtaká Víkingum syðra Víkingum hefur ekki tekist að vinna heimasigur á KA i 1. deild frá árinu 1984. Sigur KA í gær- kvöldi var sá íjórði gegn Víking- um í Reykjavík á síðustu fimm áranum en 1 fyrra geröu hðin jafhtefli Vikingar hafa jafnframt aðeins sigrað KA einu sinni i síð- ustu 9 viðureignum félaganna í I. dehd. Ormarrmeð 150. leikinn Ormarr Örlygsson lék í gær- kvöldi sinn 150. leik í 1. deild og hélt upp á þaö með tveimur mörkum. Félagi hans í KA, Stein- grimur Birgisson, lák sinn 100. leik í deildinni. Fjórir KA-menn léku hins vegar sinn fyrsta 1. dehdar leik, ívar Bjarklind, Sig- þór Júlíusson, Jóhann Amarson og Bjarki Bragason. -VS KA-menn geröu lítið úr hrakspám þeim th handa þegar þeir lögðu sjálfa Islandsmeistara Víkings í gærkvöldi og það á þeirra eigin heimavehi í Víkinni í Reykjavík, 0-2. Frábær byrjun hjá Akureyrarliðinu sem tefldi fram þremur ungum nýhðum í byrjunarhði sínu og sá fjórði kom inn á síðar í leiknum. „Ég er stoltur af strákunum, það voru þrír 17-19 ára strákar að spha í fyrsta sinn í 1. dehd og ég var búinn að fá gagnrýni fyrir að velja þá. En þeir skhuðu sínu 120 prósent og mað- ur sér ekki oft unghng byrja svona í 1. deild eins og Sigþór Júlíusson gerði í kvöld,“ sagði Gunnar Gísla- son, þjálfari og leikmaður KA, við DV eftir leikinn í gærkvöldi en hann var mikhl brimbrjótur í öflugri vörn norðanmanna. Tvö mörk Ormarrs Það var Ormarr Örlygsson sem tryggði KA sigurinn með því að skora bæði mörkin á síöustu níu mínútun- um. Fyrst með skoti frá vítateig eftir fallega sókn og sendingu Bjama Jónssonar. „Bjami lagði boltann út í teiginn, ég er búinn að fá mhljón svona færi í gegnum árin og þetta er. í annað eða þriðja sinn sem boltinn rambar inn,“ sagði Ormarr um markið. Það síðara gerði hann með því að komast aleinn upp aö marki Víkings. „Ég fékk glæsisendingu frá Gauta Laxdal og eftirleikurinn var erfið- ur,“ sagði Ormarr Örlygsson. Víkingar vora meira með boltann í leiknum en KA gekk betur aö skapa sér færi. Víkingar fengu þó þau hættulegustu um miðjan síðari hálf- leik þegar Atli Helgason skaut í stöng af 25 metra færi og Guðmundur Steinsson hitti ekki markið úr gal- opnu færi eftir einu mistök Gunnars Gíslasonar í leiknum. Víkingar hefðu síðan hæglega getað fengið víta- spymu á mhh marka Ormarrs þegar boltinn smah í hönd varnarmanns KA. KA-menn, sem notuðu 7 leikmenn 22 ára og yngri í leiknum, börðust af miklum krafti og nýhðamir ungu, Sigþór og ívar Bjarklind, lofa góðu. Gunnar Már Másson gerði oft usla í vörn Víkinga og er KA góöur liðs- styrkur. Hjá Víkingum var Guð- mundur Ingi Magnússon bestur en það er ljóst að meistaramir eru ekki búnir aö finna taktinn frá því í fyrra. Spárnar ekki marktækar Gunnar Gíslason sagði aö slæmar spár til handa Akureyrarfélögunum væra ekki alveg marktækar. „í spánni era Reykjavíkurfélögin meira og minna aö spá hvert öðru gengi og vilja ekki spá hvert öðru falli og þess vegna lenda utanbæjarhðin á botnin- um. Mótið verður mjög jafnt og við ætlum að vera með í baráttunni. Við erum búnir að æfa 4 sinnum á grasi og komumst á möl í aprh þannig aö það er ótrúlegt að byrja svona vel,“ sagði Gunnar Gíslason. „Við voram famir að vera full ák- afir í að skóra í síðari hálfleik og skildum þá eftir og því fór sem fór. KA-menn era sterkir og það er erfitt að spila á móti þeim. Þeir liggja aftar- lega og verjast mjög vel. Eg er ekki sáttur við okkar leik en við vorum óheppnir, áttum stangarskot og dauðafæri. Slíkt verðum við að nýta ef við ætlum að veija titihnn," sagði Ath Helgason, fyrirhði Víkinga. -VS Halldór Kristinsson, varnarmaður KA, í baráttu við Guðmund Steinsson, Víkinginn marksækna. KA-vörnin var sterk í gærkvöldi og gaf fá færi á sér. DV-mynd GS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.