Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 6
28
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
íþróttir
Steinar Ingimundarson skorar sí
sonar, og á stóru myndinni fagnai
ÍBV (1) 1
Valur (1) 2
1-0 Bojan Bevc (6.)
1-1 Baldur Bragason (45.)
1-2 Anthony Karl Gregory (86.)
Lið ÍBV (3-5-2): Friðrik (2) -
Ómar (2), Heimir (1), Elías (1) -
Rútur (1), Jón Bragi (1), Huginn (1)
(Nökkvi (1) 70.), Bevc (1), Tómas
Ingi (2) - Leifur Geir (1) Sindri (2)
(Kristján (1) 70.).
Liö Vals (3-5-2): Bjami (2) - Sæv-
ar (2), Dervic (1), Bergþór (1) (Am-
ljótur (1) 75.) - Ágúst (1), Steinar
(1), Gunnlaugur (1), Porca (2),
Baldur (2) - Jón Grétar (1), Ant-
hony Karl (1).
Gult spjald: Tómas Ingi (ÍBV).
Dómari: Guð-
mundur S.
Maríasson,
dæmdi vel.
Aðstæður:
Vallarskilyrði
þokkaleg,
grasvöllur
Þórs ekki al-
veg nógu sléttur, veður hvasst.
Ahorfendur: 700.
Anthony tryggði Val
sigurinn í Eyjum
- skoraði sigurmarkið gegn ÍBV, 1-2, rétt fyrir leikslok
Ómar Garðaissan, DV, Eyjum:
Vestmannaeyingar urðu að sætta
sig við ósigur á móti Valsmönnum í
Eyjum 1. umferð Samskipadeildar-
innar á laugardagskvöldið, 1-2, á
grasvelli Þórsara í Eyjum. í hálfleik
var staðan 1-1.
ÍBV fékk óskabyrjun. Strax á 6.
mínútu skoraði Bojan Bevc fyrsta
mark leiksins fyrir ÍBV, af stuttu
færi, og var þaö ekki fyrr en á loka-
sekúndum fyrri hálfleiks að Vals-
mönnum tókst að jafna. Baidur
Bragason fékk sendingu frá Steinari
Adolfssyni inn fyrir vörnina og skor-
aði örugglega, 1-1.
Fjórum mínútum fyrir leikslok
náðu gestirnir að tryggja sér stigin
þrjú. Þar var Anthony Karl Gregory
að verki með því að brjótast laglega
í gegnum vöm ÍBV, 1-2.
Aðstæður voru heldur leiðinlegar
á leiknum, austan hvassviðri sem
stóð þvert á völlinn. Setti það svip
sinn á leikinn og eins bar hann þess
merki að vera fyrsti leikurinn í ís-
landsmótinu. Leikmenn voru að
þreifa fyrir sér en þrátt fyrir þetta
mátti á köflum sjá skemmtilega
knattspymu. Valsmenn vora meira
með boltann en Eyjamenn náðu að
skapa sér fleiri hættuleg tækifæri
sem þeim tókst þó ekki að nýta nema
einu sinni. Vöm þeirra átti oft í vand-
ræðum með þá Baldur Bragason og
Salih Porca. Sama má segja um Tóm-
as Inga og Sindra Grétarsson. Þeir
náðu oft að gera usla í vöm Vals-
manna en vantaði herslumuninn til
að ná að gera út um leikinn.
Annars var jafnræði með liðunum
og þau til alls líkleg í sumar. Þó var
eins og Eyjamenn hefðu sætt sig við
jafntefli á meðan gestirnir héldu
áfram að berjast og uppskám sam-
kvæmt því.
Fegnir að vera lausir
héðan með þrjú stig
„Ég er að sjálfsögðu ánægður meö
þessi úrslit. Hingað koma ekki lið og
sækja stig svo auðveldlega og við
emm fegnir að vera lausir héðan
með 3 stig. Ég tel að bæði þessi lið
eigi góða möguleika í deildinni. Þau
spila góðan fótbolta og ég held að þau
verði bæði í toppbaráttunni. En þetta
er fyrsti leikurinn og þá verður
ákveðið spennufall. Þaö þarf að taka
tappann úr og þá geta menn byrj-
að,“ sagði Ingi Bjöm Albertsson,
þjálfari Vals, við DV eftir leikinn.
Sé ekki ástæðu
til svartsýni
Sigurlás Þorleifsson, þjálfari ÍBV,
neitaði því ekki að vera sársvekktur
með úrslitin „Eins og staðan var
heíði maður verið sáttur við að fá
eitt stig. En við vorum ekkert lakari
en Valsmennimir og óheppnir aö
vera ekki marki yfir í hálfleik. Það
var svolítið áfall að fara með fyrra
markið þeirra inn í hlé sem þeir skor-
uðu þegar 15 sekúndur vom eftir.
Það tók toll af okkur og við vorum
dálítið lengi í gang í þeim seinni.
Valsmennimir vom kannski léttari
og frískari en við aftur á móti öflugri
og kröftugri og alls ekki lakari en
þeir og ég sé ekki ástæðu til svart-
sýni.“
Horð barátta á Þórsvellinum í Eyjum, Baldur Bragason, Valsmaður, reynir að komast framhjá Jóni Braga Arnar-
syni hjá ÍBV, sem gnæfir yfir hann. DV-mynd: Ingi T. Björnsson
Jon A. fyrir Jon H.
A ársþingi Handknattleikssam-
bands íslands, sem haldíð var í
Reykjavík um helgina, var Jón
Ásgeirsson kosinn formaður HSÍ í
stað Jóns Hjaltalíns Magnússonar
sem ekki gaf kost á sér áfram eftir
að hafa veriö formaöur HSÍ und-
anfarin 8 ár.
Á þinginu var samþykkt að fjölga
í framkvæmdastjórn HSÍ. Áður
sátu fimm menn í henni en nú
verða þeir 9. Framkvæmdasfjórntn
er öll ný og hana skipa Jón Ásgeirs-
son, formaður HSÍ, Guðjón L. Sig-
urðsson, varafomiaður HSÍ, Jó-
hanna Sigurðardóttir gjaldkeri,
Sigurður I. Tómasson ritari og
meöstjórnendur: Ólafur Scliram,
Kari Jónsson, Sólveig Magnúsdótt-
ir, Vigfús Þorsteinsson og Kjartan
Steinbach.
Skuldur HSÍ 35 milljónir
Á þinginu voru lagöir fram reikn-
ingar Handknattleikssambandsins.
Samkvæmt þeim var halli HSÍ á
árinu um 10 milljónir króna og
heíldarskuldir Handknattlelks-
sambandsins eru nálægt 35 millj-
ónum króna.
Tillaga Eyjamanna felld
Tillaga frá Vestmannaeyingum
þess efnis aö heimila tveimur er-
lendum leikmömium að leika með
hverju félagsliði var felld, 22 vom
á móti og 19 voru með henni.
Leikmaður getur fengið
10 mánaða keppnisbann
Félagaskiptum skal vera lokið fyrir
30. júní en ekki 15. júlí eins og áöur
var. Þá var ákveðiö í miliiþinga-
nefnd að skipa geröardóm komi
upp ágreiningur um félagaskipti. í
nýjum reglum HSÍ segir nú aö ef
bæöi félög skrifa ekki undir félaga-
skipti leikmanns fari hann í 10
mánaða keppnisbann í staö 6 mán-
aða.
Þá var samþykkt að liðin sem
hafna í 11, og 12. sætií 1. deild karla
á næsta keppnistímabili falli í 2.
deild en Jiðin sem skipa 9. og 10.
sætið halda sæti sínu og hafi lokið
keppni.
-GH
-KR
„Þetta var góð byrjun hjá okkur og ég
held að liðið hafi leikið vel miðað við
fyrsta leik. Við sýndum mikinn karakt-
er að jafna leikinn tvisvar. Það er ljóst
að sumarið verður erfitt og þetta var
bara fyrsta skrefið en þetta var góð eld-
skírn,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari
Skagamanna, eftir að lið hans hafði
gert jafntefli, 2-2, gegn KR-ingum í
Frostaskjóli í fyrstu umferð Samskipa-
deildarinnar á laugardag.
Leikurinn var skemmtilegur og vel
leikinn af báðum liöum og vonandi for-
smekkurinn af því sem koma skal í
sumar. Bæði lið léku opinn sóknarbolta
og mörkin hefðu getað orðið mun fleiri
en fjögur.
Leikurinn byrjaði með látum og eftir
aðeins 8 mínútur skomðu KR-ingar.
Dusan Galovic gaf fyrir markið frá
hægri og Ragnar Margeirsson lagði
Ekkijafntefli
fráárinu 1973
ÍBV og Valur hafa ekki gert
jafntefli í Eyjum frá árinu 1973
eða í 19 ár! Valur hefur unnið 7
leiki en ÍBV 6 þegar félögin hafa
mæst þar í 1. deild frá þeim tíma.
Fjórir leikmenn léku sinn
fyrsta leik í 1. deild þegar ÍBV
mætti Val. Það voru Rútur
Snorrason, Krislján Þór Kristj-
ánsson og Slóveninn Bojan Bevc
í liði ÍBV og Júgóslavinn Salih
Porca í hði Vals.
Ómar Jóhannsson, ÍBV, lék
sinn fyrsta 1. deildar leik í sex ár.
-VS
KR •
Akranes
(1) 2
(1) 2
1-0 Rúnar Kristinsson (8.)
1- 1 Haraldur Ingólfsson (34.)
2- 1 Steinar Ingimundarson (67.)
2-2 Bjarki Gunnlaugsson (78.)
Lið KR (3-5-2): Ólafur (2) - Óskar
(3), Þormóður (1), Gunnar O. (1) -
Átli (1), Galovic (2), Heimir (2),
Rúnar (2), Hilmar (1) - Steinar (2),
Ragnar (2).
Lið ÍA (4-4-2); Kristján (2) -
Kostic (2), Alexander (2\ Heimir
(1) (Haraldur H. (1) 75.), Olafur (1)
- Haraldur I. (1) (Theodór 86.), Sig-
ursteinn (2), Sigurður J. (2), Bjarki
(2) - Þórður (2), Amar (2).
Gult spjald: Alexander (ÍA).
Dómari: Þor-
varöur Bjöms
son, gerði sín
mistök en
dæmdi í heild
ágætlega.
Aðstæður:
Blautur gras-
völlur, annars
góður, milt veöur en léttar skúrir.
Áhorfendur: 1.807.
Heimirmeð
100. leikinn
Heimir Guðmundsson, bak-
vörður hjá ÍA, lék sinn 100. leik
í 1. deild með Skagamönnum á
laugardaginn.
Þrír leikmenn liöanna léku sinn
fyrsta leik í 1. deildinni, Dusan
Galovic, Tékkinn í liði KR, og
Skagamennimir Ólafur Adolfs-
son og Theodór Hervarsson.
Sigurður Jónsson lék sinn
fyrsta 1. deildar leik hér á landi
í tæp átta ár eða frá því hann lék
síðast með ÍA árið 1984.
-VS
KRgengur
illa meðÍA
KR-ingar eiga jafnan erfitt með
Skagamenn á sínum heimavelli
og á laugardagvarð engin undan-
tekning þar á. í síðustu tíu viður-
eignum félaganna í 1. deild í
Reykjavík hefur KR aðeins tekist
að sigra einu sinni, árið 1990, en
þetta var 7. jafntefli liðanna á
heimavelli KR á þessum 10 ámm.
-VS