Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
29
Iþróttir
L''
g ' ' > 5. 1
.
- ■ •
iv's
'7-'‘
ðara mark KR gegn IA á laugardaginn, 2-1. A innfelldu myndinni sendir hann boltann yfir Kristján Finnbogason, markvörð ÍA, sem hafði varið skot Heimis Guðjóns-
■ Steinar markinu en Kristján er ekki jafn ánægður. DV-myndir Brynjar Gauti
og Akranes gerðu jafntefli, 2-2, í líflegum leik á KR-vellinum á laugardaginn
boltann út í teiginn þar sem Rúnar
Kristinsson skoraði með hnitmiðuðu
skoti, 1-0.
Bæði lið fengu góð færi skömmu sið-
ar. Þórður Guðjónsson átti gott skot á
mark KR en Ólafur Gottskálksson varði
mjög vel og hinum megin fékk Steinar
Ingimundarson tvö dauðafæri fyrir KR
en brást bogalistin í þeim báðum.
Skagamönnum tókst þó aö finna leið-
ina í markið á 34. mínútu þegar dæmd
var aukaspyma rétt utan vítateigs KR.
Haraldur Ingólfsson skoraði beint úr
spymunni, 1-1, en vamarveggur KR-
inga var þar illa á verði.
Heimamenn höföu undirtökin framan
af síðari hálfleik og voru meira með
knöttinn. Litlu munaði að þeir næðu
forystunni þegar Steinar átti góðan
skalla frá markteig en boltinn datt ofan
á þverslána. En Steinar bætti þaö upp
um miðjan síðari hálfleik með marki.
Heimir Guðjónsson átti þá þmmuskot
sem Kristján Finnbogason hálfvarði en
Steinar fylgdi vel á eftir og skoraði, 2-1.
Rétt á eftir átti Heimir annaö hörku-
skot en þá sá Kristján við honum og
varði. Eftir markið var eins og KR-ingar
misstu tökin og Skagamenn fóru að ná
undirtökunum. Tvíburamir spræku,
Amar og Bjarki Gunnlaugssynir, voru
KR-ingum sérstaklega erfiðir og það var
einmitt samvinna þeirra sem skóp jöfn-
unarmark Skagamanna 12 mínútum
fyrir leikslok. Aðdragandinn var glæsi-
legur. Sigurður Jónsson opnaði vörn
KR með góðri sendingu á Harald sem
sendi fyrir markið. Þar skaut Arnar
viðstöðulaust á markið, Ólafur varði en
hélt ekki boltanum og Bjarki skoraði
af stuttu færi, 2-2.
Bæði liö fengu góð færi á síðustu 10
mínútunum án árangurs. KR-ingar
vildu fá víti þegar Heimir féll í víta-
teignum en ekkert var dæmt.
„Við áttum að fá víti í lokin en í heild-
ina er ég ánægður með þetta og þetta
var mjög góður leikur. Jafntefli vom
alls ekki slæm úrslit fyrir liðin,“ sagði
Atli Eðvaldsson, aðstoðarþjálfari KR,
eftir leikinn.
Besti maður KR-inga var Óskar Hrafn
Þorvaldsson, hinn ungi og efnilegi
varnarmaður. Ragnar Margeirsson var
einnig öflugur ásamt þeim Rúnari og
Heimi. Þá stóð Ólafur sig einnig vel í
markinu.
Skagaliðið var jafnt að getu en tví-
burabræðurnir Amar og Bjarki vom
sérstaklega sprækir. Þórður og Luca
Kostic unnu geysilega vel og Sigurður
var einnig öflugur þó hann geti leikið
munbetur. -RR