Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Qupperneq 12
34 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992. fþróttir Úkraínu- stúlkan fékk 5 verðlaun Tatiana Gutsu, 15 ára stúlka frá Úkraínu, hlaut 5 verðlaun á Evr- ópumeistaramótinu í fimleikum sem lauk í Nantes í Frakklandi í gær. Hún sigraði í Qölþraut og vann síðan á tveimur áhöldum, hlaut silfur á einu og hrons á einu. Svetlana Boginskaja frá Hvíta- Rússlandi og Gina Gogean unnu sín gullverðlaunin hvor á áhöld- um. Boginskaia er fyrrum heims- meistari og árangur hennar olli vonbrigðum. Er hún nú ekki talin líkleg til afreka á ólympíuleikun- umísumar. -VS Peterborough í 2. deildina Peterborough United leikur í 2. deild ensku knattspyrnunnar í fyrsta skipti næsta vetur en liðið sigraði Stockport í úrslitaleik um þriðja sætið í 3. deild, 2-1, á Wem- bley-leikvanginum i London. Þá er hið fornfræga félag Blaekpool komið upp í 3. deild eftir sigur á Scunthorpe í vítaspyrnukeppni eftir 1-1 jafntefli á Wembley. -VS B1903 með góðastöðu B1903 á mikla möguleika á danska meistaratitlinum i knatt- spyrnu eftir 6-0 sigur á AaB í úrslitakeppninni 1 gær. Lyngby vann Frem úti, 0-1, og er stigi á eftir B1903 þegar tvær umferðir eru eftir. Bröndby vann loks sig- ur, 0-1, gegn Næstved en er næstneðst í átta liða úrslitunum. Silkeborg vann AGF, 3-1. B1903 er með 29 stig, Lyngby 28 og Frem er í þriðja sæti með 23 stig. -VS Boavista bikarmeistari Lið Boavista varð í gær portú- galskur bikarmeistari í knatt- spyrnu þegar liðið vann meistar- ana í Porto, 2-1. Marlon Brandao og Richard Owubokiri gerðu mörk Boavista en Jaime Magal- haes skoraði fyrir Porto. -GH Lynfékk stóran skell Lyn, lið Teits og Ólafs Þórðar- sona, fékk skell gegn Start, 5-0, í norsku L deildinni í knattspyrnu í gær. Önnur úrslit: Ham-Kam - Molde...........3-0 Lilleström -Tromsö........6-0 Mjöndalen - Rosenborg.....0-1 Sogndal - Brann...........1-1 Viking - Kongsvinger......1-1 Rosenborg er með 13 stig, Start 11, Lilleström 10, Ham-Kam 9, Molde 9 og Lyn 9 stig. -VS Getraunaúrsfit Úrslit sænsku leikjanna á ís- lenska getraunaseðlinum um helgina urðu þessi: AIK - Gauta- borg 3-0, GAIS - Öster 2-2, Frö- lunda - Djurgárden 3-1, Kir- una-Hammarby 1-2, Spárvág- en - Luleá 0-2, Vásby - IFK Sund- svall 0-1, Degerfors - Brage 2-0,. Eskilstuna-Forward 1-1, Sir- ius-Vasalund 3-5, Myresjö- Tidaholm 3-0, Skövde AIK -Elfs- borg 0-3, Karlskrona - Helsing- borg 2-0, Landskrona - MjáUby 4-0. -VS Sigþór Halldórsson á Hlébaröanum tekur stökk í tímabrautinni. í umfjöliun um b.f. Goodrish torfæruna varð myndabrengl. Mynd sem sögð var vera af Hlébarðanum var af Benidikt Eirikssyni á Tíkinni. Greifatorfæra Bílaklúbbs Akureyrar: Óvæntur sigur Einars í sérútbúna f lokknum Greifatorfæra Bílaklúbbs Akur- eyrar var haldin á laugardaginn í gryfjunum fyrir ofan Akureyri. Alls tóku 26 bílar þátt í keppninni, 15 út- búnir, 11 götubílar og voru allir bíl- arnir keyrðir í gegnum keppnina sem er sú fyrsta í sumar sem gefur stig til íslandsmeistara. Keppnin byrjaði stundvíslega klukkan tvö og stóð yfir í rúma fjóra klukkutíma. Þrátt fyrir þetta langan tíma var alltaf nóg um að vera og þar sem gott veður var kom þessi seink- un ekki í veg fyrir að fjölmargir áhorfendur ættu góðan dag. Starfs- menn voru yfirleitt nokkuð fljótir að koma bílum úr brautum eftir brot og veltur, enda orðnir vanir í lokin þar sem veltur urðu í allt 11 talsins. Flokkur sérútbúinna Brautir hjá sérútbúnum voru nokk- uð skemmtilegar og fjölbreyttar og mikið um góð tilþrif en því miður mikið um veltur líka eða 9 talsins. Baráttan um toppsætin var hörð framan af en veltur, brot og bilanir settu strik í reikninginn hjá mörgum. Sem dæmi má nefna að bæði Stefán Sigurðsson og Ámi Kópsson misstu út braut vegna bilana. Þegar leið á keppnina var ljóst að óþekkt nafn var í toppbaráttunni, Einar Gunnlaugsson. Hann keyrði af yflrvegun, losnaði við veltur og bilanir og uppskar sigur. Eftir þenn- an árangur bætist hann í hóp margra sem líklegur íslandsmeistari. Flokkur götubíla Brautir hjá götubílum voru einnig íjölbreyttar og skemmtilegar. Keppnisharka er á köflum alveg ótrúleg. Sem dæmi um hana má taka aö tveir bílar fóru með affelgað í gegnum nær alla tímabrautina, þeir Steingrímur Bjarnason og Rögnvald- ur Ragnarsson. Tilþrif hjá götubílaflokki voru síst minni en hjá útbúnum og einungis tvær veltur í þeim flokki. Keppni var hörð en úrslit svona nokkuð eftir bókinni. Úrsht um kvöldið fór fram verð- launaafhending í Sjalianum og tóku Akureyringar upp þá skemmtilegu nýbreytni að verðlauna einnig að- stoðarmenn þriggja efstu manna í hvorum flokki en segja má að árang- ur keppenda byggist að miklu upp á góðum aðstoðarmönnum og eru þeir vel að viðurkenningu komnir. Úrsht voru sem hér segir. Sérút- búnir: 1.........Einar Gunnlaugsson 1125 2..'.........Magnús Bergsson 939 3............Arni Kópsson 916 stig Tilþrifaverðlaun hlaut Sigþór Hall- dórsson á Hlébarðanum fyrir glæsi- akstur í tímabraut. Götubílar 1 ..........Ragnar Skúlason 1435 2 .......Gunnar P. Pétursson 1377 3 .......Þorsteinn Einarsson 1236 Tilþrifaverðlaun hlaut Rögnvaldur Ragnarsson einnig fyrir glæsiakstur í tímabraut. Ása Jóa Rögnvaldur Ragnarsson krækti sér í sinn sjötta tilþrifabikar með þessu prjóni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.