Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1992, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992.
11
Sviðsljós
Löggur á Evrópu-
meistaramóti
Nýlega fór fram í Skien í Noregi
úrslitakeppni Evrópumeistaramóts
lögreglumanna í handknattleik.
íþróttasamband lögreglumanna
sendi hð til keppninnar og var þetta
í þriðja skiptið sem íslenskir lög-
reglumenn voru þátttakendur á mót-
inu.
íslendingar tóku fyrst þátt í Evr-
ópumeistaramótinu þegar það var
haldið í Frakklandi árið 1984. Má
segja að þeir hafi komið, séð og sigr-
að því að íslenska hðiö fór með bikar-
inn heim. Fjórum árum síðar var
mótið haldið hér á landi og urðu
heimamenn þá í þriðja sæti. Að þessu
sinni gekk þó ekki eins vel og fengu
íslensku löggumar að verma fimmta
sætið eftir nauman sigur gegn Sviss-
lendingum.
Þátttakendur í Evrópumeistaramóti tögreglumanna i handknattleik. í efri
röö eru: Björgvin Björgvinsson þjálfari, Árni Friðleifsson, Haukur Ásmunds-
son, Birgir Hilmarsson, Bjarni Ólafsson, Páll Briem, Alexander Alexanders-
son, Kristján Hilmarsson, Valgarður Valgarðsson og Guðmundur Sigmunds-
son liðsstjóri. I neðri röð eru: Hörður Sigurðsson, Birgir St. Jóhannsson,
Hermann Karlsson, Ragnar Kristjánsson, Gunnlaugur Jónsson, Gísli Skúla-
son og Einar Þórarinsson.
Borgarkringlan eins árs
Það var talsvert um að vera í Borg-
arkringlunni um helgina. Ástæðan
var sú að verið var að halda upp á
eins árs afmæh hennar en starfsemi
hófst í húsinu þann 1. júní 1991.
Á fostudaginn var nýr flygill Borg-
arkringlunnar vígður af nemendmn
Nýja tónhstarskólans og á laugar-
daginn skemmti Tríó Eddu Borg hjá
versluninni Jazz. Einnig kom Simp-
sonfiölskyldan í heimsókn og gátu
ungir sem aldnir látið taka mynd af
sér með henni. Ekki má svo gleyma
að taka það fram að boðið var upp á
afmælistertu frá Sveini bakara.
Bart Simpson kom i afmæli Borgarkringlunnar og gátu ungir sem atdnir
látið taka mynd af sér með honum. DV-mynd JAK
Fyrrum slökkviliðsstjóri í faðmi fjölskyldunnar. Talið frá vinstri eru Gylfi Rúnarsson, Hjördis Gulla Gylfadótt-
ir, Anna Guðsteinsdóttir, Rúnar Bjarnason, Sandri Freyr Gylfason, Sóley Kristjánsdóttir, Anna Gulla Rúnars-
dóttir, Valur Rúnar Kristjánsson, Þórunn Sævarsdóttir og Helga Alexia Gylfadóttir.
Rúnar
hengdur-
uppávegg
Fyrir skömmu var Rúnar Bjama-
son, fyrrum slökkvihðsstjóri,
hengdur, það er að segja upp á
vegg. Skal það tekið fram að það
var málverk af Rúnari sem hengt
var upp á vegg en ekki hann sjálf-
ur. Var þetta gert við hátíðlega at-
höfn í slökkvistöðinni að viðstödd-
um borgarstjóra, Markúsi Emi
Antonssyni, vandamönnum og
öðrum velunnurum Rúnars.
Er málverkið eftir Einar Hákon-
arson og er það komið í hóp mál-
verka af forverum Rúnars í starfi
sem prýða setustofu slökkvihðsins.
Núverandi og fyrrverandi slökkviliðsstjórar og varaslökkviliðsstjórar:
Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri, Rúnar Bjarnason, fyrrum slökkviliðs-
stjóri, Jón Viðar Matthiasson varaslökkviliðsstjóri og sitjandi er Gunnar
Sigurðsson, fyrrum varaslökkviliðsstjóri. DV-myndir S
Hugbeittur sattr®oiuyi»'
semtætiríþértaugarnar.
RONNV COX
(TOXkLRKMl)
SHÁRON SIONt
(lOTALttCALÚ