Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1992, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1992, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1992. 9 Utlönd Erich Honecker, fyrrum kommúnistaleiðtogi Austur-Þýskalands, yfirgefur sendiráð Chile i Moskvu þar sem hann dvaldi frá því í desember í fyrra til að komast hjá handtöku og framsali til Þýskalands. Hann dúsar nu i fangelsi í Berlín. Símamynd Reuter Erich Honecker aftur kominn til Þýskalands: Akærður fyrir að drepa 49 manns Erich Honecker, fyrrum kommún- istaleiötogi Austur-Þýskalands, sem kominn er heim eftir sextán mánaða dvöl í Moskvu á ílótta undan þýskri réttvísi, verður færður fyrir dómara í dag til að hlýða á 49 ákærur fyrir manndráp. Hann verður einnig ákærður fyrir 25 tilraunir til mann- dráps vegna mála um 200 Austur- Þjóðveija sem voru ýmist skotnir af landamæravörðum eða féllu fyrir sprengjum á fyrrum landamærum þýsku ríkjanna. Honecker var fluttur úr sendiráði Chile, þar sem hann hefur haldiö til, um borð í rússneska flugvél sem flaug með hann til Berlínar. Þar var hann samstundis handtekinn og fluttur til Moabit-fangelsisins, rétt- um fimm árum eftir opinbera heim- sókn til Vestur-Þýskalands sem var hápunktur átján ára valdaferils hans. Jutta Lámbach, dómsmálaráðherra Berlinar, sagði að líklega yrði réttað í máh Honeckers síðar á árinu. Eftir bráðabirgðaskoðun tveggja lækna var Honecker dæmdur hæfur til að sitja í fangelsi. Hann fékk þó her- bergi á sjúkradeild fangelsisins þar til óháðir læknar hafa metiö heilsu- far hans. Hubert Dreyling, lögfræðingur sem hefur tekið aö sér að veija Erich Mielke, fyrrverandi yfirmann leyni- þjónustunnar Stasi, sagði að Honec- ker ætti yfir höfði sér mjög þunga refsingu vegna fjölda ákæranna. Hann spáði því að réttarhöldin gætu orðið heillandi upprifjun á sambandi þýsku ríkjanna í fjörutíu ár. í leiðurum dagblaða kom fram að óþægilegar staðreyndir um sam- skipti sijómmálamanna frá fyrrum Austur-Þýskalandi og Vestur-Þýska- landi, allt frá íhaldsmönnum á borð við Kohl kanslara til forustumanna Jafnaðarmannaflokksins, gætukom- ið upp á yfirborðið í réttarhöldunum. Honecker leit hraustlega út og hann var enn fullur ögrunar þegar hann gaf sig fram í gær. Hann rétti upp krepptan hnefa að kommúnista- sið þegar hann yfirgaf sendiráð Chile í Moskvu og batt þar með enda á sjö mánaða deilu milli Þýskalands, Chile og Rússlands um örlög sín. Dómsmálayfirvöld í Berlín og þýska ríkisstjórnin vísuðu á bug vangaveltum fjölmiðla um að til að tryggja uppgjöf Honeckers hefði hon- um verið lofað mildilegri meðferð, svo sem að hann fengi að ganga fijáls á meöan hann biði réttarhaldanna. Limbach sagði að réttarhöldin yfir honum yrðu sanngjöm þrátt fyrir megnustu óbeit almennings á stjóm- artíð hans. Þýsk stjómvöld ákærðu Honecker fyrst í desember 1990 en sovéskar hersveitir, sem enn vom í austur- hluta Þýskalands, komu honum und- an til Moskvu þremur mánuðum síð- ar. Hann settist að í sendiráði Chile í desember í fyrra eftir að hrun kom- múnismans í Sovétríkjunum stofn- aði griðlandi hans í voða. Sendiherr- ann var gamall vinur sem Honecker hafði skýlt fyrir herforingjasfjóm- inni í Chile á áttunda áratugnum. Honecker hafði yfirumsjón með byggingu Berlínarmúrsins árið 1961 til að koma í veg fyrir fjöldaflótta til Vesturlanda. Hann varð leiðtogi kommúnistaflokksins árið 1971 og stjómaði landinu með harðri hendi þar til almenningur hrakti hann frá völdum í október 1989. Honecker var ekki nema átta ára gamall þegar hann fór að bera út blað kommúnista í Þýskalandi og í flokkinn gekk hann árið 1929. Hann barðist gegn nasistum og sat í fanga- búðum þeirra í tíu ár. Sovéskar her- sveitir frelsuðu hann 1945. Við stofn- un austur-þýska ríkisins 1949 gegndi hann þegar ábyrgðarmiklum störf- um og var kosinn í stjómamefnd kommúnistaflokksins 1958. Reuter Karimaður fær fóstureyðingalyf Bandaríska matvæla- og lyfjaeftir- litið (FDA) hefur ákveðið að leyfa manni nokkrum frá Georgíu-fylki að nota fóstureyðingapilluna RU486, sem valdið hefur miklum deilum í Bandaríkjunum að undanfómu. Er maðurinn með illkynja heilaæxli og telja læknar 75 prósent líkur á þvi að pillan kunni að geta stöðvað vöxt æxlisins. Lyfið, sem veldur fósturláti, er tal- in geta gagnast við ýmsum sjúkdóm- um. Hingað til hefur það verið bann- að í Bandarikjunum, en Frakkar og Bretar hafa leyft það. Þó að bannað væri að flytja RU486 inn til Banda- ríkjanna fékkst sérstakt leyfi fyrir því þar sem um rannsókn var aö ræða sem stjómin hefur samþykkt. Þeir sem erU fylgjandi því að fóst- ureyðingar séu leyfðar í Bandaríkj- unum hafa sagt að ástæðan fyrir því að FDA hafi skipað að lyfið væri gert ólöglegt væri byggð á andstöðu þingsins við fóstureyðingar. Reuter Velkomin í Veiðimanninn í yfír fímmtíu ár hefur verslunin Veiðimaðurinn þjónað sportveiðimönnum og öðmm unnendum útiveru. Hjá okkur fæst mikið úrval veiðistanga og hjóla í fjölda verðflokka, ásamt fyrirtaks veiðifatnaði á hagstæðu verði. Við seljum aðeins viðurkennd vömmerki. Opið mánud. - fimmtud.kl. 09 - 18, föstud.kl. 09 - 19, laugard. kl.lO - 16, sunnud. frá kl.ll - 16.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.