Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992.
3
Fréttir
Sameining Odda og Slippstöövarinnar á Akureyri:
Akureyri tilbúin með sinn
hlut í hlutafjáraukningunni
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyn:
„Þetta er sett fram í framhaldi af
viðræðum aðila og á þeim nótum sem
menn hafa verið að vinna að. Ég hlýt
því að vera bjartsýnn á að þetta sé
sá flötur sem menn geti sameinast
um og við erum tilbúnir til frekari
viðræðna við ríkið á þessum grunni,“
segir Halldór Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, en bæjaryfirvöld á Akur-
eyri hafa lagt fram hvað þau eru til-
búin að gera til að liðka fyrir samein-
ingu Vélsmiðjunnar Odda og Slipp-
stöðvarinnar.
í bókun bæjarráðs segir að Akur-
eyrarbær sé tilbúinn að leggja fram
allt að 35 milljónum króna í nýju
hlutafé. Að Akureyrarbær og stofn-
anir hans taki upp viðræður við
stjórnendur Slippstöðvarinnar um
kaup á eignum sem nemur rúmum
15 milljónum króna. Gránufélags-
húsið, þar sem höfuðstöðvar Odda
eru, verði reynt að selja á næstu
tveimur árum. Reynist sölumögu-
leikar ekki fyrir hendi verði teknar
upp viðræður milli Slippstöðvarinn-
ar og bæjarsjóðs um leiðir til að losa
Slippstöðina við þessa húseign.
Rætt er um 100 milljóna króna
hlutafjáraukningu Slippstöðvarinn-
ar sem skiptist þannig að Akureyrar-
bær legði fram 35 milljónir, eignir
Odda eru metnar á annað eins og
hlutur rikisins í hlutaíjáraukning-
unni yrði 30 milljónir.
Ríkið og Akureyrarbær eru lang-
stærstu hluthafar í Slippstöðinni,
ríkið með 54% eignarhlut og Akur-
eyrarbær með 36%. Halldór segir að
með bókun bæjarráðs sé búið að
skerpa línur gagnvart ríkinu þannig
að það væri fyrirliggjandi hver af-
staða bæjarins væri. „Ég er að vona
að þetta fari til afgreiðslu hjá ríkis-
stjórninni mjög fljótlega, sennilega í
þessari viku,“ sagði Halldór.
Gránufélagshúsið við Strandgötu á Akureyri þar sem Vélsmiðjan Oddi er til húsa. Reynt verður að selja húsið og
er það liöur i sameiningu Odda og Slippstöðvarinnar. DV-mynd gk
Atvinnuleysi meira en
tvöfaldast á einu ári
- skráðir atvinnuleysisdagar á árinu gætu farið í eina milljón
Skráöir atvinnuleysisdagar í ágúst
síðastliðnum voru 72 þúsund á öllu
landinu. Það svarar til þess að 3.300
manns hafi veriö atvinnulausir.
Þetta er 132 prósent meira atvinnu-
leysi en var í ágústmánuði í fyrra en
þá voru atvinnuleysisdagar skráðir
31 þúsund.
Þrátt fyrir þetta minnkaöi atvinnu-
leysi í ágúst örlítið frá júlímánuði,
en þá voru skráðir 63 þúsund at-
vinnuleysisdagar á landinu öllu.
Fækkun atvinnuleysisdaga í ágúst
var mest á höfuðborgarsvæðinu og
dró þar meira úr atvinnuleysi
kvenna en karla.
Skýringin á þessu er eðlileg árs-
tíðasveifla. Má í því sambandi benda
á að konur eru í meirihluta þess fólks
sem sér um þrif í öllum skólum
landsins. Það fólk fór á atvinnuleys-
isskrá 1. júní síðastliðinn en fer nú
aftur til vinnu í lok ágúst.
Fyrstu átta mánuði ársins hafa
verið skráðir samtals 620 þúsund at-
vinnuleysisdagar á landinu öllu. Það
jafngildir því að 3.600 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysisskrá,
sem er 2,8 prósent af áætluðum
mannafla.
í skýrslu vinnumálaskrifstofu fé-
lagsmálaráðuneytisins um atvinnu-
ástandið segir aö fari svo sem horfi
í atvinnumálum það sem eftir er árs-
ins gæti svo farið að í fyrsta sinn
verði skráðir atvinnuleysisdagar ein
milljón á ári.
-S.dór