Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992. 9 Bretar kreflast þess aö fá yfir- ráö yfir stórura hluta færeysku efiiahagslögsöguirnar þar sem taliö er mögulegt að ohu sé aö fínna. Þeir hafa lengi deilt viö Dani um stærð færeysku lögsög- unnar. Bretar beita þeim rökum að þeir hafi lengri strandlengju en Faereyingar og vilja að mið sé tekið af því víö utreikningana. Danski utanríkisráðherrann vill senda nráliö fyrir Alþjóða- dómstólinn í Haag en Færeyíngar vilja bíða átekta. Bretar eiga nefiúlega í svipaðri deilu við Arg- entínumenn vegna Falklands- eyja. Þar vilja Bretar að miðlínan skeri úr um stærð lögsögunnar. Mitterrand veisprækurog ræðuröilu Pierre Bérégovoy, forsætisráö- herra Frakklands, sagði í gær að Francois Mitterrand forseta heilsaðist vel eftir aögerð á blöðruháiskirtli sem hann gekkst undir á föstudag. ; Bérégovoy sagði í viðtali við franska utvárpið að forsetinn stundaði vinnu sína af sjúkra- húsinu og væri hann með beinan síma til nánustu samstarísmanna sinna. Mitterrand ætlar heim í kjör- dæmi sitt t miðhluta Frakklands til að greiða atkvæði í þjóðarat- kvæðagreiðslunni um Ma- astricht-samkomulagið næsta sunnudag. húsnæflislána- keafiFæreyja Jens Dabgaaid, DV, Færeyjum: Húsnæðisstofnun Færeyja býr við mjög þröngan kost um þessar mundir. Framlag til hennar úr landskassanum nemur nú aðems fimm milljónmn færeyskra króna, eða tæpum fimmtíu millj- ónum íslenskra, i staö tuttugu til íjörutiu milljóna færeyskra króna áður. Ástæðan er minnk- andi tekjur ríkissjóðs. Vextir afhúsnæðislánum verða; þvi hækkaöir um tvö prósent og endurgreiðslutími lánanna stytt- ur úr 28 árum í 20 ár. Hámarkslán úr húsnæðiskerf- inu verður eftirleiöis 300 þúsund færeyskrar krónur, eða tæpar þrjár milljónir íslenskra. Há- markslán var áður 450 þúsund færeyskar krónur, Spænskur nautabani stunginnáhol Nautabaninn Ramon Soto Vargas iét lífið í La Maestranza nautaatshringnum í Sovilla á sunnudag. Horn nautsins stung- ust inn í síðu hans og í gegnum hjartaö þegar hann stakk skutl- um í bak bola. Maðurinn Iést þremur kiukkustundura siðar. geta nú aftur hafist í vesturhluta Limaflarðar á Jótlandi, eftir all- langt hlé. Veiðunum var hætt í öllum íiröinum vegna kísilþör- unga sem gátu eitrað krækiing- ana og gert þá óhæfa til manneld- ÍS. ReuterogRitwiu Fischer hef ur ekki greitt skatta í 16 ár „Ég hef ekki greitt tekjuskatt frá árinu 1976 og hef ekki í hyggju að gera það hér eftir,“ sagði Bobby Fisc- her á blaðamannafundi í gær þar sem hann ræddi útistöður sína við stjómvöld í Bandaríkjunum. Skattayfirvöld vestra segja að Fischer þurfi að greiða 31% í tekju- skatt af væntanlegu verðlaunafé eför einvígið við Borís Spasskíj í Sveti Stefan. Sigri Fischer fær hann hátt í þijú hundruð milljónir íslenskra króna. Fischer segir að bandaríska skák- sambandið standi ekki með honum enda vart við því að búast þar sem sambandið er að mati Fischers „glæpasamtök á bandi kommúnista" eins og hann orðar það. Bobby Fischer virðist helst geta lynt við andstæðing sinn, Borís Spasskíj. Reuter Landar hans fá hins vegar kaldar kveðjur. Símamynd Reuter ________________Útlönd Úilendirflótta- mennfluttirfrá þýskum bæ Þýskir embættismenn fluttu um áttatíu erlenda flóttamenn á brott frá hóteli í bænum Quedlin- burg i austurhluta landsins í gær eftir ofbeldisverk hægrisinna í nær eina viku. Innanríkisráðherra Saxland- Anhalt fylkis sagði að þeir hefðu verið fluttir á brott tO að koma í veg fyrir frekara ofbeldi og til að þeir þyrftu ekki að sæta ómann- eskjulegum sálrænum þrýstingi. Flóttamennirnir eru frá Búlg- aríu og Rúmenlu. Ráðherrann skýrði ekki frá því hvert heföi verið farið með þá. Síðast var ráðist á hótel þeirra á laugardags- kvöld. Hægrisinnarnir lentu í átökum viö lögreglu og hóp vinstrisinna sem stóð vörð um hóteliö. Ráðist var á útlendinga víðar í Þýska- landi um helgina, bæði f austur- og vesturhluta landsins. Reuter Abimael Guzman, leiðtogi Skinandi stígs í Perú, er nú bak við iás og slá. Hans bíður ef til vill dauðarefs- ing. Simamynd Reuter Dauðarefsing tekin upp í máli skæru- liðaforingja Alberto Fujimori, forseti Perú, seg- ir að vel komi tO grein að taka upp dauðarefsingu í landinu áður en skæruliðaforinginn Abimael Guz- man kemur fyrir dóm. Nú er lífstíð- arfangelsi þyngsta refsingin sam- kvæmt lögum Perú. Lögreglan náði Guzman á sitt vald á laugardag en hann hefur í meira en áratug sfjórnað skæruhernaði Skínandi stígs í Perú. Aðgerðir sam- takanna hafa valdið miklum usla í landinu á undanförnum árum. Skin- andi stígur berst fyrir stofnun ríkis kommúnista í Perú og hefur fjár- magnað starfsemi sína með eitur- lyfjasölu. Liðsmenn Guzman hafa heitið hefndum. í gær sprengdu þeir rútu í loft upp á þjóðveginum nærri höfuð- borginni Lima og segjast ætla að halda hryðjuverkum áfram meðan Guzman er í haldi. Átta menn slösuð- ust í tilræðinu. Yfirvöld í Perú segja að þeim hafi tekist að lama starfsemi Skínandi stígs með handtöku leiðtogans. Liðs- menn hans eru varaðir við að halda sprengjutOræðum áfram, enda verði baráttan gegn skæruhðunum nú hertumaOanhelming. Reuter Grænlendingar hætta við orkuver Grænlendingar hafa hætt við bygg- ingu nýs vatnsorkuvers við Sisimiut og tekið það út úr fjárlagafrumvarp- inu fyrir árið 1993. „Við höfum einfaldlega ekki ráð á svona mikdli fjárfestingu," sagði fjármálaráðherra landstjórnarinnar, EmO Abelsen, á sunnudag þegar fjár- lagafrumvarpiðvarlagtfram. Ritzau I rl =1 i'i [11 i'í B -111 > JI tril VEGNA BREYTINGA Komið og gerið góð kaup Skóverslun Þórðar KSimM41818 SEPTEMBERTILBOÐ: ÞRIGGJA MÁNAÐA KORT Á AÐEINS Bjööum upp á tvo tækjasali, Ijós og gufuböð. Einkaþjálfun fyrir þá sem vilja komast í góða þjálfun á skömmum tíma. Upplýsingar í síma ORKUBÓT LÍKAMSRÆKT HAMRABORG 20A SIMI46655

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.