Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992. 13 Sviðsljós Afmælisbarnið Sigurður Oddsson er í miðíð og honum á hægrí hönd er eiginkona hans, Erla Aðalsteínsdóttir. Aðrir á myndinni eru, (rá vinstri: Viiný Reinkvist, Siggeir Jóhannsson, Ágústa Þorgilsdóttir og Gunnlaugur Jóhannsson. son Sigurður Oddsson, verkfræðing- ur og íramkvæmdastjóri Plastos, hélt upp á fimmtugsafmæli sitt í húsakynnum verksmiðjunnar um helgina. Mikill fjöldi gesta heiðraði af- mælisbamiö með nærveru sinni og voru því færöar margar góðar gjaf- ir. Meðal viöstaddra voru menn úr Skarphéöingafélaginu en það eru skólafélagar Sigurðar úr Mennta- skólanum í Reykjavík. Skarphéðingafélagið færði Sigurði Oddssyni fortáta viskiflösku i afmæl- isgjöf og fyigdu hamar, upptakari og glerskeri, svo og itarlegar leiðbein- ingar um notkun Höskunnar. DV-myndirJAK Rokkað til heiðurs Coca Cola Margar fremstu rokksveitir lands- ins spiluðu til heiðurs fimmtíu ára nærveru Coca Cola á meðal vor á risatónieiktun á laugardagskvöld. Geimið var haldið í verksmiöjuhúsi Vífilfells, framleiðanda drykkjarins, við Stuðlaháls í Reykjavík. Fjölmenni var á tónleikunum og um tíma varð umferðaröngþveiti í götum sem hggja að verksmiðjunni. Meðal þeirra sem komu fram má nefna Todmobile, Sáhna hans Jóns míns, Síðan skein sól, Pís of keik og Júpíters. Andrea Gylfadóttir og Eyþór Arnalds úr Todmobile í hita leiksins á kók- tónleikunum á laugardagskvöld. Unglingar af höfuðborgarsvæðinu fjölmenntu í Coca Cola verksmiðjuna á laugardagskvöld þegar þar var efnt til mikilla popptónleika. Tilefnið var að 50 ár eru frá því kók kom á markaðinn á íslandi. DV-myndir JAK Pops á fullu á sviði Hótel íslands á föstudagskvöld: Björgvin Gislason, Pétur Kristjánsson, Óttar Felix Hauksson, Ólafur Sigurðsson og Birgir Hrafnsson. DV-myndir JAK Pops ungir í annað sinn Það var ekki laust viö aö margir yrðu ungir í annað eða þriðja sinn á Hótel íslandi á föstudagskvöld þegar „unglingahljómsveitin“ Pops lék fyr- ir gesti. TUefnið var að 25 ár voru hðin frá því sveitin kom fyrst fram opinberlega í Reykjavík. Popsarar riíjuðu upp gömlu góðu dagana með gömlu góðu lögunum, lögum á borð við Dandy, Wild Thing, Lola og Black Magic Woman, og þeir sýndu og sönnuðu að þeir hafa engu gleymt. Gestir kunnu líka vel að meta og voru ekki feimnir við að láta fógnuð sinn í ljós. Hljómsveitina Pops skipuðu þeir Björgvin Gíslason, Pétur Kristjáns- son, Ólafur Sigurðsson, Birgir Hrafnsson og Óttar Felix Hauksson. Flestir þeirra áttu eftir að spila með frægum hljómsveitum löngu eftir að Pops voru hættir. Finnborgi Gunnlaugsson, Ragnheiður Ólafsdóttir og Valdemar Þórarinsson Pétur Kristjánsson, poppari og rifjuðu upp unglingsárin með hljómsveitinni Pops á Hótel íslandi á föstu- Popsari, söng af hjartans lyst þegar dagskvöld. Ekki er annað að sjá en þeim haii vel likað. unglingahljómsveitin Pops hélt upp á að 25 ár voru liðin frá þvi hún skreið út úr hiðinu. Menning Sinfónían áUNM Sinfóníuhljómsveit íslands lék í Langholtskirkju á tónleikum sem voru hður í tónhstarhátíð UNM sem staðið hefur yfir í Reykjavík undanfama viku. Af ein- hveijum ástæðum var stjórnandans ekki getið í efnis- skrá en kunnugir kenndu þar Bemharð Wilkinsson, flautuleikara og Blásarakvintettsmann með meira. Flutt vom verk eftir unga norræna höfunda; Juhani Nuorvala frá Finnlandi, Guðrúnu Ingimundardóttur frá íslandi, Helge Havsgard Sunde frá Noregi, Martin Palsmar frá Danmörku og Johan Jeverud frá Svíþjóð. Þá var fiutt verkið „Le Temps et l’Ecume" eftir franska tónskáldið Gerard Grisey en hann hefur undanfama daga haldið fyrirlestra hér í borginni um tónhst sína í tengslum við UNM hátíðina. Tónverk hinna ungu höfunda bám öll þess merki að þeir kunna sitthvað fyrir sér í hstinni og vom þau hin áheyrilegustu. Það er ástæöa til þess fyrir íslenskt tónhstaráhugafólk að fagna sérstaklega tónskáldi sem hér kvaddi sér hljóðs í fyrsta sinn á íslandi eftir því sem best er vitað, Guðrúnu Ingimundardóttur. Svo áhugavert sem þaö var að hlusta á verk unga fólksins biðu margir í eftirvæntingu eftir að heyra verk Griseys. Ekki er rúm til annars hér en að víkja aðeins mjög lauslega að „Le Temps et l’Ecume". Það var mjög áhugavert að heyra það flutt af Sinfóníu- hljómsveitinni sem virtist komast vel frá flutningnum þótt erfitt sé að fullyrða sum slíkt þegar um slík verk er að tefla. Verkið snýst um htbrigði hljóöefnisins sem tekið er til meðferðar og er það aödáunarvert hversu nákvæmt vald höfundur hefur á blæbrigðum efnivið- arins og hvílíkri fiölbreytni hann nær fram innan þess ramma sem verkinu er settur. Aht frá því Schön- berg lýsti hugmyndum sínum um Klangfarbenmelodie hafa menn reynt að ná fram þeirri draumsýn að semja verk úr litbrigðum hljóðs í stað tóna eða í það minnsta að gefa hljóðinu meira vægi í verkum sínum en tónun- um. Menn hafa séð í hillingum hina endalausu mögu- leika tónblæsins og fundist tónarnir heldur fátæklegir í þeim samanburði enda eru þeir aðeins tólf í þeirri sthhngu sem algengust er. Á síöari árum hefur sá Tónlist Finnur Torfi Stefánsson grunur fariö að læðast að sumum að ef th vih sé það ekki fiöldi möguleikanna sem hér skiptir máh, heldur hitt hve vel efniviðurinn er fallinn til að skipuleggjast í tónverk. Einn múrsteinn er í sjálfu sér ekki mjög merkilegur en sé hann settur í samhengi við aðra múrsteina er með ólíkindum hvað hægt er að gera. „Fúgulistin" eftir Bach er ekki samin fyrir nein sér- stök hljóðfærí og virðist njóta sín jafnvel hvemig sem hún er flutt. „Hiö velstihta hljómborð" eftir sama höf- und er samið fyrir hvaða hljómborð sem er og kemur jafnvel út á Steinway flygh, sembal eða DX 7. Þrátt fyrir þetta em þessi verk þrungin merkingu sem lætur fáa ósnortna sem komast í tæri við þau. Fáir munu verða th aö segja í alvöru shkt um hin bestu hljóð- verk. Falleg hljóð munu því miður ekki umkomin annars en að vera áfram það sem þau hafa ahtaf ver- ið; faheg hljóð. Sinfónían komst i hehd þokkalega frá þessum tónieikum þótt nákvæmni hefði stundum mátt vera meiri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.