Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992. 15 Ferðaþjónusta bænda: Arðsemi og fjárfesting Bændagisting hefur þekkst hér á landi nánast frá landnámsöld en byrjar sem atvinnugrein upp úr sjöunda áratugnum. Á þeim árum starfaði Birgir Þorgilsson, núver- anndi ferðamálastjóri, hjá mark- aðsdeild Flugfélags íslands og hafði frumkvæði að því að gera bænda- gistingu að atvinnugrein á íslandi. Starfsmaður Flugfélags íslands var fenginn til að skoða þá bæi sem hugsanlega gætu og vildu stunda þessa atvinnugrein. Gunnar Hilm- arsson, núverandi forstöðumaður Hluthafasjóðs, ferðaðist um landið árin 1969 og 1970 og skoðaði þá sveitabæi þar sem áhugi var fyrir hendi. Afrakstur ferðarinnar var bækhngur útgefinn af Flugfélag íslands árið 1971 með nöfnum tólf bæja. Þróunin varð hæg næstu ár en reýnslan þótti góð og gaf þeim sem þetta stunduðu einhverjar aukatekjur. Ferðaþjónusta bænda er síðan stofnuö árið 1980 og hefur orðið veruleg aukning í atvinnugreininni síðan en nú er áætlað að ferðaþjón- ustubændur séu milli 130 og 140, með um 2000 rúm til ráðstöfunar. Mikil vinna Tilefni þessarar greinar er að benda bændum á að hugsa sig tvisvar um áður en þeir leggja út í þessa atvinnugrein. Við fyrstu sýn virðist þetta 'geta gefið einhveijar aukatekjur en reynslan hefur orðið allt önnur, eins og reynt verður að skýra hér á eftir. KjaUariim Skúli Ólafs lýkur mastersprófi í rekstrar- hagfræði við Handelshojskolen í Kaupmannahöfn Fiskeldi og loðdýrarækt hafa far- ið Ula með þá bændur sem létu til- leiðast eins og þekkt er og er þaö von mín að ekki fari eins fyrir ferðaþjónustubændum en aUt virð- ist nú stefna í þá átt. Fjárfesting í atvinnugreininni er of mikU til aö mögulegar framtíðar- tekjur geti greitt hana niður. MikU og óeigingjörn vinna er við rekstur á bændagistingu og launin UtU eða engin. Hafi fólk í huga að fara út í þessa atvinnugrein ætti það að reyna að gera sér grein fyr- ir þeirri vinnu sem það á fyrir höndum og hvort það sé tilbúið að leggja þetta á sig, fyrir lítil eða eng- in laun. Oftast lendir það á húsmæðrun- um að sjá um reksturinn enda varla á færi nema hraustustu kvenna að sjá um alla þá vinnu sem þessu fylgir. Vinnudagurinn er gjaman frá kl. 6.30 til miðnættis yfir háannatímann. Ferðaþjónustan er ekki eins áhættusöm og loðdýrarækt og fisk- eldi með tUUti til þess að ekki er fjárfest fyrir jafn háar upphæðir en þó nógu miklar, jafnvel allt að tuttugu miUjónum eða meira. Hætt er við að mörgum bóndanum reyn- ist erfitt að standa í skilum eftir slíkar flárfestingar og þá þarf ekki að spyrja að leikslokum. Fjárfesting og tekjumöguleikar: Undirritaður áætlar að fjárfest- ing í bændagistingu hafi verið um kr. 603 mUlj. í árslok 1991 (verðlag 1991), þar af voru beinir styrkir kr. 120 miílj. Sé reiknað með að bænda- gistingin hafi 2000 rúm til ráðstöf- unar er fjárfestingin kr. 300.000 á rúm. Tekjur samkvæmt mínum út- reikningi eru eftirfarandi: 2000 rúm til ráðstöfunar, 60% nýting tímabU- ið 6 júní tU 31. ágúst, samt. 12 vik- ur, samt. 100.800 gistinætur, meðal- tekjur á rúm kr. 1700 á dag, heildar- tekjurafgistingu verðaþvíkr. 171,4 mUljónir. Sé reiknaö með að 75% gestanna borði morgunmat (kr. 600) og 25% kvöldmat (kr. 1200) væru tekjurnar kr. 45,36 millj. af morgunmat og kr. 30,24 millj. af kvöldmat, samt. kr. 75,6 miUj. og að frádregnum vsk. (19,68%) kr. 60,7 millj. Áætlaðar tekjur 1991 kr. 232,1 milljónir Áætluð ársverk í bændagistingu eru 307 (samkv. útreikn. höf.). Heildartekjur kr. 232,1 miUj. - hráefni í mat kr. 24,3 núllj. - rekstr- arkostnaður, * 30%, kr. 69,6 millj. - vextir af fjárfest., 7%, kr. 42,2 mUlj. - afb., 15 ára lán, kr. 40,2 millj. - til gr. launa 1. árið kr. 55,8 millj. Samt. á ársverk kr. 182.000 * Afskriftir, hiti og rafm., þvottur og fl., umboðslaun, kr. 30.000 fram- lag til ferðaþjónustu bænda og fl. Sé gert ráð fyrir 40% nýtingu, sem er nær lagi, yrðu launin kr. 121.000 á ársverk eða kr. 10,100 á. mán. og þætti mörgum ekki mikið. Meðal- ársnýting er því um 10%. í ofan- nefndum útreikingum er fjárfest- ing mjög líklega vanmetin og með- alnýting og tekjur á rúm ofmetin þannig að tekjur 1. árið eru nei- kvæðar og má reikna með að lítið verði eftir næstu ár til að greiða laun. Niðurstaða Ferðaþjónusta bænda er ekki arðvænleg fyrir bændur og má gera ráð fyrir því aö aðeins 10-15% þeirra sem stunda þessa atvinnu- grein beri eitthvað úr býtum, aðrir ekkert nema þá ánægjuna og alltof margir sitja uppi með stórt tap. Stefna verður að því að takmarka framboðið sem nú stefnir í algjört óefni og lækka verðið sem helst er hægt með því að draga úr þeim kröfum sem nú eru og spara sam- eiginlegan kostnað. Nauðsynlegt er að gera markaðsrannsókn til að átta sig á því til hvaða markhóps á að höfða í auglýsingum framtíðar- innar. Skúli Ólafs „Feröaþjónustan er ekki eins áhættu- söm og loðdýrarækt og fiskeldi með til- liti til þess að ekki er fjárfest fyrir jafn- háar upphæðir en þó nógu miklar...“ „Með lækkun eða niðurfellingu virðis- aukaskatts mætti ná matvælaverði eitthvað niður, svo og með innflutningi landbúnaðarvara. Við slíkum innflutn- ingi þurfa bændur að vera búnir...“ Stéttarsamband bænda beitti sér fyrir því að kvótakerfið í landbún- aði var tekið upp og lög og reglu- gerðir fólu ýmist Stéttarsambandi bænda, Framleiðsluráði landbún- aðarins eða landbúnaöarráðherra að sjá um framkvæmdina. Prófessor Sigurður Líndal hefir ritað ítarlega áhtsgerð um þessi Greinarhöfundur telur rikari ástæðu til að fella niður kvótakerfi á fram- leiðslu kjöts en mjólkur. Lítið varð úr útflutningi Líklegt virðist að eftirspurn eftir mjólk sé fremur óteygin, þ.e. lítt næm fyrir verðbreytingum. Öðru máh gegnir um kindakjöt sem á í harðri samkeppni við annað kjöt á markaðnum. TU að standast sam- keppnina verða kindakjötsfram- leiðendur að taka ahan sinn bú- rekstur til endurskoöunar. Mestu skiptir að ná niður kostn- aði við framleiðsluna, svo sem slát- urkostnaði, sem mun vera allt að fjórfaldur á við slíkan kostnað í Skotlandi. - Hér virðast útboð geta bætt úr skák. Margir minnast þess þegar slát- urhús landsmanna lögðu í mikinn kostnað við endurbætur th að standast bandarískar kröfur en lít- ið varð úr útflutningi þangaö. Erlendum ferðamönnum, sem hingað koma, ofbýður gjarnan verðlag á matsölustöðum hér. Með lækkun eða niðurfehingu virðis- aukaskatts mætti ná matvælaverði eitthvað niður, svo og með inn- flutningi landbúnaðarvara. Við slíkum innflutningi þurfa bændur að vera búnir og þurfa því að ná fram aukinni hagkvæmni í fram- leiðslunni en tíl þess þurfa þeir aö losna úr viðjum kvótakerfisins. Ríkari ástæða virðist tíl þess að fella niður kvótakerfi á framleiðslu kindakjöts heldur en mjólkur en ljóst er að ekkert gerist í þessum efnum nema að frumkvæði bænda sjálfra. Því eiga þeir leikinn. Ólafur Stefánsson Hinn 11. mars 1991 var undirrit- aður samningur mihi Stéttarsam- bands bænda og ríkisstjómar ís- lands um stefnumörkun í mjólkur- framleiðslu og sauðfjárrækt. Samningurinn, sem nefndur hefur veriö búvörusamningur, fjallar um framleiðslu mjólkur og sauðfjáraf- urða á tímabUinu frá 1. september 1992 tU 31. ágúst 1998. Þama er því ekki verið að tjalda tU einnar nætur. Gerðar voru ■ nauðsynlegar lagabreytingar í framhaldi af þessum samningi með lögum um breytingu á framleiðslu, verölagningu á sölu á búvörum nr. 46/1985 sem samþykkt vora á Al- þingi hinn 28. febrúar sl. Aðal- breytingin er að beinar greiðslur tU bænda koma í stað niður- greiðslna og útflutningsuppbóta. efni og kemst að þeirri niðurstöðu að kvótakerfið í landbúnaði sam- ræmist tæplega stjórnarskránni. Á bls. 183 í áhtsgerðinni segir Sigurð- ur: „Afleiöingar af þessu viðtæka framsali eru þá þær að reglur veita enga leiðsögn, ekkert aðhald og enga vernd - staða mála í landbún- aði verður þá áþekk og í umferð án markvissra umferöarreglna." Jafnvel þótt Sigurður hafi rétt fyrir sér er hitt þó verra að kvóta- kerfið verður til þess að gera fram- leiðsluna óhagkvæmari og þar með afkomu bændastéttarinnar verri en hún væntanlega yrði, ef mark- aðslögmálin fengju að ráða ferð- inni. Bændur munu hafa af þessu nokkrar áhyggjur enda er sá eldur- inn heitastur er á sjálfum brennur. Upphaf kvótakerfisins Upphaf kvótakerfisins má rekja aftur th ársins 1979 en þá var það loks viðurkennt af bændasamtök- unum að framleiðslan væri of mik- h. Þetta vora þó engin ný tíöindi. Margbent hafði verið á þá fásinnu að ríkið ræki framleiðsluhvetjandi stefnu í allri offramleiðslunni. Þeir sem héldu slíku fram voru gjarnan lýstir óvinir bænda af bændaforastunni en nú taldi hún ekki lengur verða komist hjá að viðurkenna staðreyndir, einkum vegna síversnandi útflutnings- möguleika fyrir kjöt. Þá var hið svokahaöa búmark tekið úpp, sbr. lög nr. 15/1979. Með lögum nr. 46/1985 var grandvehinum breytt og kvótinn nefndur fullvirðisréttur í stað búmarks. Kjallaiinn Ólafur Stefánsson viðskiptafræðingur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.