Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992. 17 LífsstHL Skólagjöld í framhaldsskólunum: Verslingar borga tæjjlega sjöfalt meira en MR-ingar Aö undaníomu hefur nokkuð verið rætt um skólagjöld í framhaldsskól- um. Menntamálaráðherra þarf að ná fram 200 milljóna króna spamaði í ráðuneyti sínu og ein leið til sparnað- ar, sem nefnd hefur verið, er hækkun skólagjalda í framhaldsskólum. Ekki lítur þó út fyrir í bráð að af þessu verði. Neytendasíðan kannaði hvað nem- endur í framhaldsskólum höfuðborg- arsvæðisins þurftu að borga nú 1 haust til skólanna. Hér er um aö ræða skólagjöld, auk gjalds sem nemendafélögin taka. Skólagjöldin eru iðulega einnig kölluð pappírs- gjald eða efniskostnaður. Haft var samband við 16 fram- haldsskóla, þ.e.a.s. Menntaskólann við Hamrahhð, Menntaskólann í Kópavogi, Menntaskólann í Reykja- vík, Menntaskólann við Sund, Fjöl- brautaskólann Armúla, Fjölbrauta- skólann Breiðholti, Fjölbrautaskól- ann í Garöabæ, Flensborgarskólann í Hafnarfirði, Iðnkólann í Hafnar- firði, Iðnskólann í Reykjavík, Sjó- mannaskólann, Tækniskóla íslands, Verslunarskóla íslands, Tölvuhá- skóla Islands, Háskóla Islands og Kennaraháskóla íslands. Af þessum 16 skólum þarf að borga gjöld tvisvar á ári í 11 þeirra þar sem gjaldið gildir aðeins fyrir eina önn í einu. í Menntaskólanum í Reykjavík, Verslunarskóla íslands, Tölvuhá- skóla íslands, Háskólanum og Kenn- araháskólanum gilda skólagjöldin fyrir aUt árið. Þeir sem stunda nám við Verslun- arskóla íslands eða Tölvuháskóla ís- lands þurfa að greiða 39.000 krónur í skólagjöld fyrir veturinn. Til sam- anburðar má geta þess að skólagjöld í Verslunarskólanum vora rétt um 1.600 krónur fyrir tíu árum og er hér því um að ræða hækkun upp á 2.337,5 prósent á áratug. Ef skólagjöldin í Verslunarskólanum halda áfram að hækka með sama hraða næstu tíu árin þá þurfa nemendur ársins 2002 að borga 950.625 krónur. Nemendur Menntaskólans í Reykjavík borga aðeins 5.600 krónur fyrir veturinn eða tæplega 600 pró- sentum minna en Vershngar. Er það í rauninni lægsta gjaldið sem nem- endur framhaldsskólanna þurfa að borga því eins og áður sagði tvöfald- ast skólagjöld hinna skólanna þar sem nemendur þeirra þurfa að reiða fram sömu upphæð aftur um jóhn. Eins og sjá má af töflunni þá er það á bilinu 4.000 til 12.000 krónur sem nemendur annarra skóla þurfa að greiða fyrir önnina. í Tækniskóla Islands greiða nemendur 4.100 krón- ur á önn og var það tekið skýrt fram að sú upphæð rynni öll til nemenda- félagsins. Nemendur Iðnskólans í Hafnarfirði borga 4.000 til 12.000 krónur á önn og er upphæöin háð því á hvaða braut neminn er enda er efniskostnaður mismikih eftir greinum. Skólagjöld í Kennaraháskóla ís- lands eru 23.000 krónur í vetur. Af þeirri upphæð fara 17.000 krónur beint til skólans. í Háskóla íslands eru skólagjöldin í vetur 22.350 krónur en voru í fyrra 7.700 krónur. Er því um að ræða 190 prósent hækkun Skólagjöld í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu Kennaraháskóli Islands Háskóli íslands Tölvuháskóli íslands Verslunarskóli íslands Tækniskóli íslands Sjómannaskólinn Iðnskólinn í Reykjavík Iðnskólinn í Hafnarfirði Flensborgarskólinn í Hafnarfirði Fjölbrautaskólinn í Garðabæ Fjölbrautaskólinn Breiðholti Fjölbrautaskólinn við Ármúla Menntaskólinn við Sund Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn í Kópavogi Menntaskólinn við Hamrahlíð I 23.000 22.350 39.000 39.000 8.200 10.000 16.000 K 8.000 - 24.000 8.000 9.600 10.800 8.800 _____13.000 5.600 9.000 18.000 Skólagjöld í einkaskólum á grunnskólastigi: Kostar svipað að eiga bam í Miðskólanum og reykja tvo pakka á dag Tiltölulega stutt er síðan gefið var leyfi til rekstrar einkaskóla á grunn- skólastigi hér á landi. Nú eru starf- ræktir fjórir einkaskólar, þ.e.a.s. Skóh ísaks Jónssonar fyrir fimm til átta ára böm, Miðskólinn fyrir níu til tóf ára börn, Tjamarskólinn fyrir þrettán til fimmtán ára unglinga og Landakotsskóh sem er fyrir aldurs- hópinn fimm til tólf ára. Skólagjöld í þessum fjórum skólum eru mjög mishá. Börn í Landakots- skólanum borga minnst, eða 46.800 krónur á ári. Em það 5.200 krónur á mánuöi. í Skóla ísaks Jónssonar borga fimm ára bömin tvisvar sinn- um 13.500 krónur eða 27.000 krónur fyrir skólaárið en böm á aldrinum sex til átta ára borga tvisvar á ári 12.500 krónur eða 25.000 krónur fyrir veturinn. Nemendur Miðskólans borga 15.000 krónur í níu mánuði. Gerir það sam- tals 135.000 krónur fyrir veturinn. Til samanburöar má geta þess að sá sem reykir tvo pakka af sígarettum á dag eyðir 14.198 krónur yfir mánuö- inn og er þá miðað við að pakkinn Skólagjöld í einkaskólum á grunnskólastigi á höfuðborgarsvæðinu Landakotsskóli (5-12 ára) Tjarnarskólinn (13 - 15 ára) Miðskólinn (9-12 ára) Skóli fsaks Jónss. (5 - 8 ára) 46.800 kr. 25.000 - 27.000 kr. kosti 229 krónur. í Tjamarskólanum kostar skólavistin 16.560 fyrir hvem mánuð í níu mánuði og þýðir það að samtals þarf að borga 149.040 krónur fyrir veturinn. Erfitt er að gera hreinan saman- burð milh skólanna þar sem um mis- Nokkuð hefur verið rætt um það að undanförnu að hækka skólagjöld I fram- haldsskólum landsins. Þau eru nokkuð misjöfn eftir skólum og geta legið á bilinu 5.600 krónur til 39.000 krónur fyrir veturinn. milh ára. Skal þó tekið fram hér að ef þessi upphæð var ekki greidd á tilskildum tíma þá hækkuðu skóla- gjöld í Háskólanum um 15 prósent, þannig að þau urðu 25.702 krónur. Við gerð súluritsins var miðað við hvað nemendur þurfa að borga fyrir áriö í heild og voru gjöld einnar ann- ar því tvöfölduð til að fá raunhæfan samanburð á skólunum. -GHK jafna aldurshópa er að ræða. Ekki er ólíklegt að sumir af þeim nemend- um sem fara í Miðskólann haldi áfram upp í Tjarnarskóla. Væri hækkunin fyrir þá nemendur um 10 prósent. -GHK NY MYNDBÖND 15. september: Bllnd Man's Bluff og Keeping Secrets Bllnd Man's Bluff: Thomas Booker er blindur. Nú deyr fólk allt i kringum hann. Fyrir fjórum árum lenti söguprófessorinn Thomas Booker (Robert Urich) í slysi sem kostaði hann sjón- ina, kærustuna og draum- ana. Eftir itarlega endurhæf- ingu og sálkönnun nær Booker tökum á lifi slnu á ný og tekst að sætta sig við blindu sina og að hafa misst kærustuna (Lisa Eilbacher, Beverly Hills Cop) i hendur besta vinar síns, (Ron Perl- man. TV-s Beauty and the Beast). Hið reglubundna lif Bookers umhverfist þegar hann uppgötvar að ná- grannakona hans var myrt og hann er grunaður um morðið. Keeping Secrets: Suzanne Somers leikur sjálfa sig I þessari hjartnæmu mynd um erfiða æsku sína og uppeldisár. I myndinni er fjallað um alkóhólisma fjöl- skyldunnar (þrír nánir ætt- ingjar Somers eru alkóhól- istar) ásamt misheppnuðu hjónabandi hennar, fram- hjáhöldum, fóstureyðing- og handtökum fyrir ávísanafals og nektarsýn- ingar. Þetta er áhrifamikil og sönn saga um stórkost- legt hugrekki, skapstyrk og mikilvaegi fjölskyldueining- arinnar þegar allt virðist vonlaust. MYNDBANALlNAN 99-1020 Á MYNDBANDALEIGUR I DAG CIC MYNDBÖND SÍMI 679787

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.