Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Síða 28
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992.
32
Merming
Einsöngstónleikar
í Haf narborg
í gærkvöldi voru tónleikar í Hafnarborg í Hafnar-
firði þar sem Guðrún Jónsdóttir sópransöngkona söng
einsöng við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar. A
efnisskránni voru verk eftir Robert Schumann, Jo-
hannes Brahms, Gustav Mahler, Richard Strauss,
Wolfgang Amadeus Mozart, A. Boito, Giacomo Puccini
og Gaetano Donizetti.
Eins og sjá má af þessari upptalningu er þess gætt
að fara ekki út fyrir nítjándu öldina í verkefnavalinu,
ef frá er tahnn Mozart. Verður þaö að teljast þröngt
skorinn stakkur. Af einhveijum ástæðum virðast
söngvarar hafa takmarkaðri sögulegan skilning á list
sinni en flest annað tónlistarfólk og er það upplagt
verkefni fyrir tónlistarfræðinga að grafast fyrir um
rætur þess. Með þessu er ekki sagt að verkefnavalið
hafi ekki veriö gott. Þvert á móti var þama flest vel
valið og gersemar og perlur inn á milli. Má þar nefna
Von ewiger liebe eftir Brahms og Zueignung eftir
Strauss. Aria Donnu Önnu úr Don Giovanni eftir
Mozart „Non mi dir bell idol mia“ er af hreinni snilld
gerð, en vandmeðfarin í flutningi, trúlega jafnvel erfið-
ari en tónfimleikar Donisetti í Cavatínunni úr Don
Pasquale. Af einhverjum ástæðum virðist ófullkom-
leiki og snurður, jafnvel þótt litlar séu, meir áberandi
í tónlist Mozarts en annarra manna. Er það sennilega
vegna þess hve tónlistin sjálf er fullkomin. Aría Liu
úr Turandot eftir Puccini, „Tu che di gel cinta“, getur
ekki tahst með bestu aríum hans og aría úr óperu
Boitos, Mefistofeles, sem þarna var flutt, er heldur
sundurlaus tónsmíð.
Með Guðrúnu Jónsdóttur hefur enn bæst góður liðs-
kraftur í hóp íslenskra söngvara. Hún hefur ágæta
rödd og góða hæð. Neðri hluti tónsviðsins er hins veg-
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
ar veikari. Þá má finna aö því að hún sýndi stundum
tilhneigingu th að hggja of hátt í tóninum og söng þá
ekki nógu hreint. Þess utan geröi hún margt mjög fal-
lega og sýndi góð tilþrif í fimleikaaríum ítölsku höf-
undanna. Undirleikur Ólafs Vignis var smekklegur
að vanda. Húsfylhr var og undirtektir mjög góðar og
virðist áhugi landans á góðum söngvurum síst fara
minnkandi.
Smáauglýsingar
Dráttarbeisli, kerrur. Ódýru, ensku
dráttarbeislin á flestar gerðir bíla.
Samþykkt af Bifreiðaskoðun íslands.
Ásetning á staðnum. Póstsendum.
Opið alla laugardaga. Víkurvagnar,
Laufbrekku 24, s. 43911 og 45270.
.
Rýmingarsala á eldri sturtuklefum og
baðkarshurðum, verð frá kr. 15.900 og
11.900. A & B, Skeifúnni 11 s. 681570.
Bílar tíl sölu
Chevrolet Impala sport, árg. '63. Glœsi-
legur antik bfll. Allur yfirfarinn. Sjón
er sögu ríkari. Verð 800.000 stað-
greitt. Til sýnis og sölu á Bílasölunni
Bílagallerí, Dugguvogi 12, sími
91-812299. Þar sem bílamir seljast.
Mazda 626 GTI, 16 v, árg. '88, svartur,
álfelgur, ekinn 80 þúsí km. Bíll sem
er sem nýr. Verð kr. 980.000 stað-
greitt. Til sýnis og sölu á Bílasölunni
Bílagallerí, Dugguvogi 12, sími 91-
812299. Þar sem bílamir seljast.
Til sölu Mazda 626 GLX 2000 '87, rauð-
ur, vel með farinn. Skipti möguleg.
Uppl. í síma 91-73399 eða 985-32878
e.kl. 17.
Toyota Celica GTi 2000, árg. '88, sjálf-
skiptur, álfelgur, ekinn 80 þús km.
Toppeintak, verð 980.000 staðgreitt.
Til sýnis og sölu á Bílasölunni Bíla-
gallerí, Dugguvogi 12, sími 91-812299.
Þar sem bílamir seljast.
VW Golf GLi 1800, árg. '88, 5 dyra,
dökkblár, ekinn 36 þús. km, 5 gíra.
Toppeintak, verð kr. 850.000 stað-
greitt. Til sýnis og sölu á Bílasölunni
Bílagallerí, Dugguvogi 12, sími
91-812299. Þar sem bílamir seljast.
Camaro Z28, árg. '84, til sölu, ekinn
AÐEINS 32 þús. milur, aðeins 2
eigendur, skipti koma til greina.
Nánari upplýsingar í síma 91-20361.
Líkamsrækt
Viltu megrast? Nýja ilmoliu-, appelsinu-
húðar- (cellul.) og sogæðanuddið
vinniu- á appelsínuhúð, bólgum og
þreytu í fótum. Trim Form vöðvaþjálf-
unartæki til að stinna og styrkja
vöðva, um leið og það hjálpar þér til að
megrast, einnig árangursrík meðferð
við gigt og íþróttaskaða. 16% afsl. á
10 tímum. Tímapantanir í síma 36677.
Opið frá kl. 10 til 19. Heilsustúdíó
Maríu, Borgarkringlunni, 4. hæð.
Hjónaband
Þann 18. júll vom gefm saman í Seltjam-
ameskirkju af séra Solveigu Lám Guö- ’
mundsdóttur Sigrún Benediktsdóttir og
Ingólfur Friöjónsson. Heimih þeirra er
aö Sólbraut 13, Seltjamamesi.
Ljósm. Nýja myndastofan. ,
Þann 8. ágúst vom gefi
fjarðarkirkju af séra Magnúsi Bjömssyni
Hólmfríður Inga Eyþórsdóttir og Við-
ar Ingi Jónsson. Heimih þeirra er að
Hæðarbyggð 8.
Ljósm. Nýja myndastofan.
Þann 15. ágúst vom gefin saman í Bú-
staðakirkju af séra Guðmundi Þorsteins-
syni Karen Krístjánsdóttir og Guð-
mundur Hafsteinsson. Heimih þeirra
er í Reykjavík.
Ljósm. Ljósmyndarinn-Jóhannes Long.
Pppp________________________DV
Red Hot And Dance -Ýmsir
Góð-
gerðardans
Margir af þekktustu tónlistar-
mönnum heims hafa verið iðnir við
að leggja góðum málefnum hð á
undaníomum árum og þær era
ófáar plötumar sem komið hafa út
til styrktar þeim sem eiga um sárt
að binda vegna hungurs, slysa og
sjúkdóma. Sér í lagi hafa tónhstar-
menn stutt vel við bakið á rann-
sóknum og ýmsum fyrirbyggjandi
aðgerðum gegn þeim ihræmda vá-
gesti eyðni. Og það er einmitt það
málefni sem lagt er hð á plötunni
Red Hot And Dance sem kemur í
kjölfar plötunnar Red Hot And
Blue sem kom út í fyrra og studdi
sama málefni.
Á Red Hot And Dance er saman-
komið mikið úrvalshð tónhstar-
manna og kvenna sem hafa nútíma
danstónhst sem sérgrein, fönk, soul
og það sem nefnt er house nú til
dags; aht tónhst sem byggist á þétt-
um, þungum takti.
Og meðal þeirra stórmenna sem hér láta gamminn geisa eru George
Michael, Madonna, EMF, Lisa Stansfield, PM Dawn, Seal, Sly And The
Family Stone og Crystal Waters auk nokkurra minni spámanna. Lögin
Hljómplötur
Sigurður Þór Salvarsson
eru vel flest þekkt frá fyrri tíð og því ekki sérstaklega samin fyrir þessa
plötu en hins vegar endurblönduð sum hver. Hér eru til að mynda nýleg
vinsæl lög eins ög Too Funky með George Michael, Crazy með Seal, Set
Adrift On Memory Bhss með PM Dawn, Change með Úsu Stansfield,
Gypsy Woman með Crystal Waters og Unbehvable með EMF, aht lög sem
hafa gist vinsældalista um víða veröld undanfarin misseri.
Eins og við er að búast þegar slíkt einvalalið og að framan greinir er
samankomið á einni og sömu plötunni er efnið og öh umgjörð eins pott-
þétt og hægt er. Og hafi menn sérstakan áhuga og ást á góðri danstónhst
af því tagi sem hér er framreidd og vilji jafnframt styðja gott málefni,
gefst hér ákjósanlegt tækifæri á að slá tvær flugur í einu höggi.
Meiuiing___________________
Kammertónleikar
Tónlistarfélagsins
Tónhstarfélagið í Reykjavík stóð fyrir tónleikum í íslensku óperunni á
laugardag. Tríó Reykjavíkur lék ásamt Margréti Bóasdóttur sópransöng-
konu. Á efnisskránni voru verk eftir Ludwig van Beethoven, Dmítríj
Shostakovítsj og Jóhannes Brahms. Tríó Reykjavikur skipa þau Guðný
Guðmundsdóttir, sem leikur á fiðlu, Gunnar Kvaran, sem leikur á selló,
og Halldór Haraldsson sem leikur á píanó.
Píanótríó Beethovens í c-moh er sérlega vel heppnað verk, vandað og
heilsteypt en jafnframt uppfullt af afslappaðri hugmyndaauðgi þar sem
má finna glaðværð, glettni og aht þar í mihi. Þótt sums staðar megi
greina frækom ólgunnar, sem einkennir mörg síðari verk Beethovens,
er hið klassíska yfirbragð að mestu ráðandi. Oft verður vart í túlkun
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
verka Beethovens tilhneigingar til að gera hana of rómantíska. Einkum
á þetta við um suma flytjendur frá fyrri hluta þessarar aldar. Við þetta
glatast sá hreinleiki og virki einfaldleiki sem þegar grannt er skoðað er
eitt sterkasta einkenni hins mikla meistara. Beethoven túlkar tilfinningar
og átök með því að skrifa skýran stíl og hreinan.
Það var ánægjulegt að heyra að Tríó Reykjavíkur kann réttu tökin í
þessu efni. Flutningur þess á verkinu var laus við ýkjur og öfga þótt
hvergi skorti á blæbrigði eða tilbreytingu í túlkuninni. Hiö ágæta verk
Brahms, tríóiö nr. 3 op. 87, er að sönnu í megindráttum rómantísk tón-
smíð en hefur einnig ýmis klassísk einkenni, svo sem skýrleika í formi
og framsetningu efnisins. Hinn hófsami flutningsmáti Tríós Reykjavíkur
á þessu verki var einnig mjög viðeigandi.
Það var forvitnhegt að heyra Sjö rómönsur eftir Schostakovic fyrir sópr-
an, fiðlu, sehó og píanó. Oft er það að tónskáld hljóðfæratónhstar selja sig
í aðrar stellingar þegar þau semja fyrir rödd og glata þá stundum ein-
hveiju af persónuleikanum. Þetta er ekki uppi á teningnum hvað Schos-
takovic varðar og hafa þessi sönglög flesta þá kosti sem gera önnur tón-
verk hans áhrifarík. Má þar t.d. nefna sparsemi í efnisvah og fjölbreytni
í úrvinnslu. Flutningur Margrétar Bóasdóttur á sönghlutverkinu var með
ágætum og verður ekki á það fallist með Ríkarði Emi Pálssyni að raddb-
lær hennar henti ekki þessu verki. Tríóið komst einnig vel frá sínum
hlut og tókust þessir tónleikar í hehd mjög vel.
PM Dawn eiga eitt lag á Red Hot
and Dance.