Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Page 29
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992.
33
Afmæli
Ragnar Elíasson og Árdís
Olga Steingrímsdóttir
Ragnar Elíasson og Ardís Olga Steingrimsdóttir.
Ragnar Elíasson, fyrrum starfs-
maöur hjá Skeljungi, Hvassaleiti
153, Reykjavík, er sjötíii og fimm
ára í dag. Eiginkona hans, Árdís
Olga Steingrímsdóttir, húsmóöir og
fyrrum starfsmaður hjá Fönn,
Hvassaleiti 153, Reykjavík, veröur
sjötíu ára á morgun, miövikudag-
inn 16.9.
Fjölskylda
Ragnar og Árdís Olga giftu sig
11.6.1946. Foreldrar Ragnars voru
Ehas Einarsson, b. á Norður-Fossi,
og Sigríöur Vigfúsdóttir. Árdís
Olga er dóttir Steingríms Davíös-
sonar, skólastjóra á Blönduósi, og
Helgu Jónsdóttur.
Dætur Ragnars og Árdísar Olgu
eru: Helga, f. 2.12.1945, skrifstofu-
maöur hjá sýslumannsembættinu
í Hafnarflrði, gift Sigurði Guö-
mundssyni, vélfræöingi hjá Hita-
veitu Reykjuvíkur, búsett í Hafnar-
firði og eiga þau fjögur börn; og
Ehsa Sigrún, f. 9.3.1962, kennari í
Reykjavík, gift Friðriki Guðnasyni,
vélvirkja hjá Stálsmiðjunni, og eiga
þaueinnson.
Alsystkini Ragnars: Einar, f. 1917,
fyrrverandi eigandi Ziemsen^g
Þuríður, f. 1919, húsmóðir í Edin-
borgí Skotlandi.
Hálfbróðir Ragnars, sammæðra,
er: Elías Júhusson, f. 1930, þjónn á
Hótel Holti, búsettur í Reykjavík.
Alsystkini Árdísar Olgu eru 11.
Þau eru: Anna, húsmóðir í Mos-
fellsbæ; Svava, húsmóðir á Sel-
fossi; Hólmsteinn, fyrrverandi
bankastarfsmaður í Reykjavík;
Haukur, húsasmiðameistari í
Kópavogi; Fjóla, starfsmaður Pósts
og síma, búsett í Hafnarfirði; Jón-
ína, húsmóðir á Blönduósi; Bryn-
leifur, læknir á Selfossi; Sigþór,
bifvélavirki og starfsmaður hjá
Mjólkursamsölunni; Steingrímur
Daði, rafvirki í Kópavogi; Pálmi,
búsettur í Kópavogi; og Sigurgeir,
tannlæknir á Seltjarnarnesi.
Þau hjónin taka á móti gestum í
Sóknarsalnum að Skipholti 50b,
fóstudaginn 18.9. kl. 17-19.
Veiðivon
Elliðaámar:
Lokatölur eru 1350 laxar
THkynningar
Félag áhugafólks um
Kammerhljómsveit Akureyrar
Aðalfundur Félags áhugafólks um
Kammerhljómsveit Akureyrar verður
haldinn í sal Tónlistarskólans á Akur-
eyri, Hafnarstræti 81, 4. hæð, miðviku-
daginn 16. september kl. 20.30. Allir sem
áhuga hafa fyrir starfi Kammerhijóm-
sveitar Akureyrar eru hvattir til að
mæta og gerast félagar.
ITC deildin Irpa
Fundur í kvöld kl. 20.30 að Brautarholti
30, Reykjavík. Fundurinn er öllum opinn.
Upplýsingar gefa Anna s. 687876 og Ág-
ústa s. 656373.
Vitni óskast
Laugardaginn 12. september var ekið ut-
an í hhð á gráum Galant R. 58368 og hann
stórskemmdur. Enginn gaf sig fram sem
tjónvaldur og er þetta mikið tjón fyrir
eigenda bílsins. Ef einhver sjónarvottur
hefur verið er hann beðinn að hafa sam-
band í síma 675370 til kl. 17 og 672448 eft-
ir kl. 18. Atburðurinn átti sér stað á bíla-
stæði við Hólagarð í Breiðholti um há-
degið. Einnig má hafa samband við lög-
regluna í Reykjavik.
„Þær lokatölur sem við höfum úr
Elliðaánum eru 1350 laxar og hann
var 20 pund sá stærsti," sagði Jón
Gunnar Bergþórsson, framkvæmda-
stjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur,
í gærkvöldi.
„Lokatölur úr Norðurá voru 1964
laxar og síðustu tölur úr Gljúfurá
voru 388 laxar. Það styttist í að veiði-
tímanum ljúki en við veiðum ennþá
í nokkrum ám. Þetta eru veiðiár eins
og Stóra Laxá í Hreppum, Brynju-
dalsá, Miðá, og Sogið svo einhveijar
séu tíndar til,“ sagði Jón Gunnar
ennfremur.
Laugardalsá endaði
í 230 löxum
„Við hættum á sunnudaginn á
þessu sumri og það veiddust 230 lax-
ar og sá stærsti var 17,5 punda,“ sagði
Sigurjón Samúelsson á Hrafnabjörg-
um í gærkvöldi er við spurðum um
lokatölur úr Laugardalsá í ísafjarð-
ardjúpi.
„Það hefði mátt veiðast meira því
það gekk mikið af fiski í ána,“ sagði
Sigurjón í lokin.
Veiðin hefur verið feiknarlega góða
í Langadalsá í ísaijarðardjúpi og eru
komnir 280-290 laxar á land. Stærsti
laxinn úr ánni er 19,5 punda.
Tombóla
Nýlega héldu þessar stúlkur, sem heita
Sofíía Theódóra Tryggvadóttir og Fanney
Björk Tryggvadóttir, tombólu til styrktar
Rauða krossi íslands. Alls söfnuðu þær
2.050 kr.
Bókmenntahátíð 1992
Þriðjudagur 15. sept.
Hádegisrabb í Norræna húsinu kl. 12.30.
Péter Esterházy segir frá ungverskum
bókmenntum. Erindið flutt á þýsku með
túlkun á íslensku eftir þörfum. Pallborðs-
umræður kl. 14. Rithöftmdakynning í
Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 20. John Bala-
ban, Jon Fosse, Olh Jalonen, Pascal Qu-
ignard og Ingibjörg Haraldsdóttir kynna
verk sín og lesa upp. Einnig verða lesnar
íslenskar þýðingar á efni eftir erlendu
höfundana.
Silfurlínan
s. 616262. Síma- og viðvikaþjónusta við
eldri borgara aha virka daga kl. 16-18.
Veiði lýkur á Vatnasvæði Lýsu eftir viku en þar hafa veiðst vel yfir hundrað
laxar. Á myndunum sjást veiðimenn með fjóra frá sumrinu. DV-mynd SS
Grálúsugir laxar í
lokin í Flekkudaisá
„Flekkudalsá á Fellsströnd endaði
í 264 löxum og síðasta holl veiddi 10
laxa, 7 af þeim voru grálúsugir fisk-
ar,“ sagði okkar maður á bökkum
Flekkudalsár í gærkvöldi.
Sjóbirtingsveiði í Rang-
ánum til 20. október
„Við höfum fengið framlengingu til
20. október í sjóbirtinginn. Sjóbirt-
ingur hefur verið að veiðast töluvert
síðustu daga,“ sagði Þröstur Elhða-
son í gærkvöldi er við spurðum um
veiðina.
„Þetta er veitt í Hólsánni, af vestur-
bakkanum og er þar veitt á fjórar
stangir. Svo er það svæði tvö líka þar
sem veiddur verður sjóbirtingur líka
á fjórar stangir. Stöngin er seld á
2000 til 3000 þúsund. Áin hefur gefið
470 laxa og það er gott ef við náum
500 löxum. Það eru komnir 100 sjó-
birtingar og hann er 8 pund sá
stærsti," sagði Þröstur í lokin.
-G.Bender
Leikhús
Leikhús
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Litla SVIÐIÐ:
KÆRA JELENA
eftir Ljúdmílu Razumovskaju.
Uppselt á allar sýningar tll og með 27.
sept.
Flyst á stóra sviðið laugard. 3. okt.
Stóra sviöið
HAFIÐ
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Frumsýning laugard. 19. sept. kl. 20.00.
Únnur sýning sunnud. 20. sept. kl. 20.00.
KÆRAJELENA
Fyrsta sýning á stóra sviði laugard.
3. okt. kl. 20.00.
Úrfá sæti laus.
SALA AÐGANGSKÚRTA STENDUR YFIR
Á3.-8. SÝNINGU.
Verð aðgangskorta kr. 7.040.
Elli- og örorkulífeyrisþegar kr. 5.800.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13-20 meðan
á kortasölu stendur.
Miðapantanirfrá kl. 10 virka daga i sima
11200.
Greiðslukortaþj. -Græna linan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
Tónleikar
Píanótónleikar á
Norðurlandi
Jónas Ingimundarson píanóleikari leikur
á þrem stöðum á Norðurlandi nú í vik-
unni. Efnisskrá er Qölbreytt. Fyrst leikur
hann í sal Bamaskólans á Húsavík í
kvöld, 15. september, þeir tónleikar eru
hður í fjölbreyttri dagskrá á Húsavík
vegna fimm ára afmæhs Framhaldsskól-
ans þar. Næst mun Jónas leika miðviku-
dagskvöldiö 16. september í Framhalds-
skólanum að Laugum. Síðustu tónleik-
amir verða síðan fimmtudagskvödið 17.
september í Safnaðarheimih Akureyrar-
kirkju. Allir tóneikarnir hefjast k. 20.30.
Beethoven skipar öndvegi á þessum tón-
leikum. Jónas mun spjaha ögn um verkin
sem flutt verða og höfunda þeirra.
Tapaðfundið
Píla ertýnd
Hún er htil sex ára gömul tík, brún með
hvíta bringu, dökk í kringum munninn,
uppspert eyru og lafandi skott. Píla á
heima norður í Eyjaíjarðarsveit. Hún var
í heimsókn í Garðabæ 23. ágúst, en slapp
þá út og hefur síðan verið á flakki, ráö-
vhlt og matarlaus. Hún sást síðast á
Reykjaveginum í Mosfehsbæ í hádeginu
mánudaginn 7. sept. Hún hefur auk þess
sést í Garðabæ, Hafnarfirði og Reykjavík
(Geirsnefi og við Sorpu í Gufunesi). Hún
er blíðlynd og mannelsk og svarar nafn-
inu Píla. Best væri, ef ykkur tækist að
handsama hana í rólegheitum og láta
vita í síma 668366 hjá Ninnu á hudahótel-
inu Leirum, Við Eirík hs. 656004, vs.
627222 eða Ingimar hs. 37375, vs. 685833,
Ástu hs. 51031, eða fara með hana á Dýra-
spítalann. Fundarlaun.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
DUNGANON
eftir Björn
Th. Björnsson
Leikstjóri: Brynja Benedlktsdóttir.
Leikmynd og búningar: Slgurjón Jó-
hannsson.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson.
KarlEinarsson.
Leikarar: Hjalti Rögnvaldsson.
Ámi Pétur Guðjónsson, Björn Ingi
Hilmarsson, Eggert Þorleifsson, Ehert
A. Ingimundarson, Felix Bergson, Guð-
rún Asmundsdóttir, Jakob Þór Einars-
son, Jón Hjartarson, Jón Júlíusson, Jón
St. Kristjánsson, Karl Guðmundsson,
Kristján Franklín Magnús, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Steinunn Olína
Þorsteinsdóttir, Steindór Hjörleifsson,
Valgerður Dan, Valdimar Flygenring,
Þorsteinn Gunnarsson, Þröstur Guð-
bjartsson, Ásta Júha Theodórsdóttir,
Ástríður Guðmundsdóttir, Björn
Gunnlaugsson, Hafsteinn Hallldórs-
son, Helga Þ. Stephensen, ívar Þór-
hallsson, Karl V. Kristjánsson og Saga
Jónsdóttir.
Frumsýnlng föstudaglnn 18 september
kl. 20.
2. sýn. lau. 19. sept. Grá kort gilda.
3. sýn. sun. 20. sept. Rauð kort gilda.
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17.
Miöapantanir I sima 680680 alla virka
dagafrá kl. 10-12.
Greiðslukortaþjónusta - Faxnúmer
680383.
Leikhúslínan, simi 991015.
Aðgöngumiðar óskast sóttir þrem
dögum fyrir sýn.
Ath. Sölu aðgangskorta lýkur 20.
sept.
Munið gjafakortin okkar, skemmtileg
gjöf.
Leikfélag Reykjavikur - Borgarleik-
hús.
ÍSLENSKA ÓPERAN
__liili
dc
eftir Gaetano Donizetti
Hljómsveitarstjóri: Robin
Stapleton.
Leikstjóri: Michael Beauchamp.
Leikmynd og búningahönnun:
Lubos Hruza.
Ljósahönnun: Jóhann B. Pálmason.
Sýningarstjóri: Kristín S.
Krisljánsdóttir.
Aðstoðarbúningahönnun: Helga
Rún Pálsdóttir.
Aðstoð yið leikstjórn: Lilja
ívarsdóttir.
Kór íslensku ópenmnar.
Hljómsveit íslensku óperunnar.
Konsertmeistari: Zbigniew Dubik.
Hlutverkaskipan:
Lucia: Sigrún Hjálmtýsdóttir.
Enrico: Bergþór Pálsson.
Edgardo: Tito Beltran.
Raimöndo: Sigurður
Steingrímsson.
Arturo: Sigurður Bjömsson.
Alisa: Signý Sæmundsdóttir.
Normanno: Björn I. Jónsson/
Sigutjón Jóhannesson.
FRUMSÝNING: Föstudaglnn 2. október
kl. 20.00.
HÁTÍÐARSÝNING: Sunnudaglnn 4.
október kl. 20.00.
3. SÝNING: Föstudaglnn 9. október kl.
20.00.
MIÐASALAN OPNUÐ ÞRiÐJUDAGINN
15. SEPTEMBER.
Styrktarfélagar eiga forkaupsrétt
að miðum dagana 15.-18.
september.
ALMENN SALA MIÐA HEFST19.
SEPTEMBER.
Mlðasalan er opln frá og með 15.
september kl. 15.00-19.00 daglega en
til kl. 20.00 sýnlngardaga. SÍM111475.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
Golfkylfur töpuðust
3 golfkylfur töpuðust á laugardagsmorg-
uninn af bíl á leið ffá Garöabæ til Heið-
merkur. Skhvís finnandi vinsamlegast
hringi í síma 657472.