Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1992, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1992.
Svipmyndin
Af hverri er
svipmyndin?
Enginn gat verið óhultur. Hver
sem var gat orðið fyrir því að vera
handtekinn. Hver dauðadómurinn
á fætur öðrum var kveðinn upp.
Þetta var í miðjum júlímánuði
1793. Franska stjómarbyltingin var
komin á nýtt stig sem einkenndist
af ofbeldi og ógnum. Þeir sem vildu
halda lífi létu lítið á sér bera.
Þess vegna varð sú sem hér er
dregin upp svipmynd af ekki
ánægð þegar barið var að dyrum
hjá henni.
Háværir menn spuröu um Marie
Groshaltz. Það var nafn þeirrar
sem svipmyndin er af. Hún yrði að
koma án tafar. Um það hefði borist
skipun frá þjóðþinginu. Marat
hefði verið myrtur!
Marie var því vön að vera kölluð
til í skyndi. Hún var mjög hæf í
sinni grein og gat starfað við frum-
stæöar aðstæður.
Þess vegna flýtti hún sér á stað-
inn þar sem morðið hafði veriö
framið. Þar lá Marat látinn með
opin augu. Hann var ekki geðsleg
sjón.
Marie hafði kynnst honum mörg-
um árum áður. Hann hafði oft ver-
ið gestur á heimili hennar. En
henni hafði aldrei fallið við hann.
Hann gekk um klæddur eins og
betlari og var gagntekinn djúp-
stæðu hatri á yfirstéttinni.
Nú var hann ekki lengur lífs. Sú
sem hér er lýst tók til starfa. Lýsa
varð því sem gerst hafði svo að
aðrir gætu gert sér það ljóst.
Þegar hún hafði lokið verki sínu
fór hún til Conciergerie-fangelsis-
ins. Þar fékk hún að hitta morðingj-
ann, unga stúlka sem hét Charlotte
Corday.
Marie virti hana fyrir sér. Charl-
otte var bara tuttugu og fimm ára.
Hún hafði komið Marat að óvörum
í baði og stungið hann nokkrum
sinnum með hníf.
Nú var hún dæmd til dauða.
Marie varð döpur yfir örlögum
hennar. Charlotte var ein af fáum
sem hafði þoraö að gera eitthvað
til að binda enda á byltinguna.
Nokkrum dögum síðar var Charl-
otte færð að failöxinni. Mikill
mannfjöldi safnaöist saman tfi að
vera við aftökuna. Eftir hana voru
líkamshlutamir settir í hesta-
kerru. Hún ók síðan af stað til
Madeleine-kirkjugarðsins.
Þar beiö Marie eftir farminum.
Hún var að ljúka því sem hún hafði
byrjað á nokkrum dögum áður.
Sú sem svipmyndin er af hafði
mjög sérstæðan starfa. Hún var
listamaður. En hún var líka
skemmtikraftur. Hún hafði fyrst
og fremst áhuga á kunnu fólki.
Sýningar hennar drógu að mikinn
fjölda.
Marie Groshaltz var heppin. Hún
var bara nítján ára þegar henni var
boðið að flytja til hirðarinnar í
Versailles. Þar varð hún kennari
Elísabetar prinsessu, systur
franska kommgsins Loðvíks XVI.
Sú sem hér er lýst varð góð vin-
kona prinsessunnar. Hún kynntist
einnig öðrum í konungsfjölskyld-
unni.
Eftir að hafa verið við hirðina í
átta ár fluttist hún aftur til Parísar.
Það var vorið 1789. Nokkrum mán-
uöum síðar hófst byltingin. Þegar
konungurinn og drottningin voru
tekin af lífi árið 1793 hélt Marie í
kirkjugarðinn. Þar sá hún aftur
marga úr háaölinum.
Marie hafði lært grein sína hjá
þýskum lækni, Philippe Curtius.
Hann studdi byltingarsinna. Fyrir
milligöngu hans kynntist hún hin-
um helstu þeirra, Danton, Mirabe-
au, Marat og Robespierre.
Þegar Curtius lést í september
1794 kom í ljós að hann hafði látið
allar eigur sínar ganga til Marie.
Hún varð rík. Nú gat hún farið að
hugsa um hjónaband.
Marie var ekki lagleg. Nefiö var
í stærra lagi og hakan sterkleg. En
hún var gædd vissum töfrum og
bjó yfir góðum smekk. Þar að auki
var hún nú fjáð. Þess vegna skorti
ekki vonbiðlana.
Loks játaðist hún ungum manni
sem hér Francois. Hann var átta
árum yngri en hún. Þau giftu sig í
október 1795.
Hjónabandið varð ekki mjög
hamingjusamt. Francois var verk-
fræðingur. Hann haföi aldrei mik-
inn áhuga á starfi konu sinnar. Þau
eignuöust tvo syni og síðar tóku
þeir við rekstri fyrirtækis móður
sinnar.
Breyttar aðstæður urðu til þess
að sú sem hér er lýst varð að fara
úr landi með sýningar sínar.
í október 1802 fór hún frá París.
Maður hennar varð eftir. Hún sá
hann aldrei aftur. Francois er
gleymdur. En þakka má Marie aö
eftimafn hans varð heimsþekkt.
Það er nú hluti af nafni frægasta
viðkomustaöar strætisvagnanna í
London.
Hver var þessi kona?
Svariö er á bls. 56
Matgæðingur vikuimar
Bragðsterkur
kjúklingur
„Ég tel mér skylt að verða við
áskorun Gríms vinar míns og ná-
granna. Grímur er einn besti kokk-
ur landsins og veisluþjónustan
hans er orðin þekkt fyrir góðan
mat,“ sagði Marinó Sigursteinsson,
pípulagningamaður í Vestmanna-
eyjum og matgæðingur þessarar
viku. „Grímur hefur oft notið þess
að stutt er að leita til mín þegar
hann hefur þurft ráð í eldamennsk-
unni. Reyndar elda ég ekki mikið
núorðið en gerði það oft áður fyrr.
Þá matreiddi ég aðallega fuglakjöt,
t.d. súlu, lunda og svartfugl sem
mér finnst mjög góður matur,“
sagði Marinó.
Hann ætlar að láta lesendum í té
uppskrift að kjúklingarétti sem er
einn af uppáhaldsréttum flölskyldu
hans. „Þetta er bragðmikill og góð-
ur réttur fyrir þá sem eru hrifnir
af sterkum mat.“
Kjúklingaréttur
1- 2 kjúklingar
1 peU ijómi (1 1/2 ef notaðir eru
fleiri en einn kjúkUngur)
Sósa
3 dl tómatsósa (ca ein meðalstór
tómatsósuflaska)
1 '/2-3 tsk. pipar
2- 3 tsk. karrí (gæta verður þess að
Marinó Sigursteinsson.
hafa ekki of sterkt karrí ef böm
eiga að boröa réttinn, ails ekki
meira er 3 tsk. og ekki minna en
1 /2 (bragðsins vegna)
1 tsk. salt
Allt hrært saman. Af eigin
reynslu er alveg nóg að hafa einum
fjórða meira af öllu í sósuna ef fleiri
en einn kjúklingur er notaður í
réttinn. Þá er 4 'A dl tómatsósa, 2 '/<
tsk. pipar, 3-4 tsk. karrí og 2 tsk.
salt.
Kjúklingurinn er hlutaður í
tvennt og settur í ofnskúffu (með
álpappír undir). Sósunni smiu*t á
kjúklinginn (ekki allri) og hann
settur í ofn í 200 gráða hita og bak-
aður í þrjátíu mínútur. Þá er hann
tekinn út og einum pela af ijóma
heUt yfir. Kjúklingurinn er því
næst settur í ofninn aftur og bakað-
ur áfram í háifa klukkustund á
sama hita. Rjómanum, sem nú hef-
ur blandast sósunni, er ausið yfir
um það bil fjórum til sex sinnum á
síðustu mínútunum.
Kjúklingurinn er borinn fram
með sósimni, sem er í sér skál,
hrísgrjónum og fersku salati t.d.
að blanda saman kínakáh eða ice-
berg, papriku, tómötum og gúrku.
í salatsósu er gott aö nota appels-
ínusafa (EgUsdjús) blandaðan með
mæjónesi og hrært saman þannig
að Uturinn sé ljósgulur. Rjóma má
blanda saman við tíl hátíðarbrigða
og tíl að mýkja.
Marinó ítrekar að réttur þessi sé
einn sá albesti og vel þess virði að
prófa og vanda sig við matargerð-
ina.
„Ég ætia síðan að skora á Önnu
Svölu Johnsen að vera matgæðing-
ur í næstu viku. Hún býr einnig
hér í Eyjum,“ sagði Marinó og bætti
við að Anna Svala væri sérlega lag-
in við að matreiða fuglakjöt eins
og súlu, lunda og svartfugl.
-ELA
Hinhliöm:
Koreskur krabbi
er lostæti
- segir Hallur Helgason, framkvæmdastjóri Sódómu Reykjavíkur
Kvikmyndin Sódóma Reykjavík
eftir Óskar Jónasson var frumsýnd
í fyrradag. Framkvæmdasljóri
myndarinnar er HaUur Helgason
sem nýlega kom heim ffá Los Ang-
eles þar sem hann stundaði nám í
kvikmyndagerð. HaUur er líklegast
þekktastur sem Andri úr bíómynd-
inni Punktur, punktur, komma,
strik. Einnig hefur hann getið sér
frægðarorð sem meðlimur hljóm-
sveitarinnar Kátir pUtar en hún er
einmitt um þessar mundir að leggja
lokahönd á nýja hljómplötu. HaUur
segjr myndina Sódómu vera eina
albestu íslensku bíómynda og þar
munu nokkrar stjömur skína. Það
er HaUur Helgason sem sýnir hina
hUðina að þessu sinni:
FuUt nafn: HaUur Helgason.
Fæðingardagur og ár: 22. nóvember
1964.
Maki: Enginn.
Börn: Engin.
Bifreið: Eg á Skoda 110L, árgerð
1975, Ford Sierra, árgerð 1984, og í
Bandaríkjunum á ég Ford Mustang
Mach H með blæju, árgerð 1972.
Starf: Kvikmyndagerðarmaöur og
poppari.
Laun: Eins og vindamir blása.
Áhugamól: Konur, vín og íjár-
hættuspU.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Mest þijár tölur.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að standa á vel völdum
hraunbala í Hafnarfirði, horfa til
Keilis og komast í samband við al-
Hallur Helgason er þekktastur sem
einn í Kátum piltum og leikari i
kvikmyndinni Punktur, punktur,
komma, strik.
DV-mynd Brynjar Gauti
heiminn.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Aö gera ekki neitt.
Uppáhaldsmatur: Kolkrabbi, eld-
aður af kóreskum hætti.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Hvaða iþróttamaður finnst þér
standa ffemstur í dag? Júdókapp-
amir Bjami Friðriksson ogSteinn
Armann Magnússon.
Uppáhaldstímarit: Mannlíf.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð? Maria Jose Femandez
karatemeistari.
Ertu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjóminni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Éinar Benediktsson.
Uppáhaldsleikari: Steinn Armann
Magnússon.
Uppáhaldsleikkona: Sóley Elías-
dóttir.
Uppáhaldssöngvari: Atii Geir Grét-
arsson.
Uppóhaldsstjórnmálamaður: Jón
Baldvin Hannibalsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Þýska hetjan Nick Knatterton.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
vamarliðsins hér á landi? Hlynntur
en tel þó að þaö eigi að vera í stöð-
ugri endurskoðun.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás eitt.
Uppóhaldssútvarpsmaður: Jón
Múli Ámason.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég horfi mjög lítið á
sjónvarp en öllu meira þó á RÚV.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Er
ekki dómbær vegna þess hve lítið
ég horfi.
Uppáhaldsskemmtistaður: Tungl-
iö.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: FH.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Nei.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór til Mexíkó, þrisvar til Las Veg-
as, einu sinni til San Fransisco og
endaði fríið á Búðum á Snæfells-
nesi.
-ELA