Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1992, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1992.
Myndbönd
í hefndarhug
PAYOFF
Útgefandi: Sam-myndbönd.
Leikstjóri: Stuart Cooper.
Aðalhlutverk: Keith Carradine, Kim
Greist og Harry Dean Stanton.
Bandarisk, 1991 -sýningartimi 110 mfn.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Þegar Peter MacAllister (Keith
Carradine) er unglingur verður
hann vitni að því að foreldrar hans
eru drepnir. Andlitið á þeim manni
sem bar ábyrgð á verknaðinum
greipist inn í huga Peters. Mörgum
árum seinna sér hann andhtið og
þótt hann komist að því að maður-
inn er háttsettur í mafíunni og
tengdasonur mafluforingja aftrar
það ekki honum frá að hefna for-
eldra sinna...
Payoff er formúluspennumynd
sem rennur hnökralaust í gegn.
Keith Carradine leikur kappann
Peter með hangandi hendi, enda
býður hiutverkið ekki upp á mikil
tilþrif, svo er einnig um aðra leik-
ara. Payoff hefur B-mynda brag
yfir sér en er samt vandaðri en
flestar af sömu gerð og er í heild
hin sæmilegasta afþreying.
Brúðgumaraunir
THE PERFECT BRIDE
Útgefandi: Myndform.
Lelkstjóri: Terence O'Hara.
Aðalhlutverk: Sammi Davis, Kelly Pres-
ton og Linden Asby.
Bandarisk, 1991 - sýningartimi 95 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Hin unga breska léikkona,
Sammi Davis, leikur í The Perfect
Bride sálsjúka stúlku sem þráir það
heitast aö komast í hjónaband og
gerir allt til að þóknast væntanleg-
um brúðguma og víst er hún áht-
legur kostur. En það er eins gott
fyrir brúðgumann að misstíga sig
ekki áður en að brúðkaupinu kem-
ur. Einnig er öruggast fyrir þann
sem áöur hefur séð Stephanie að
vera ekki aö segja henni frá því.
The Perfect Bride er sálfræði-
þriher en langt í frá að vera nógu
spennandi, aðahega vegna þess að
ekkert kemur á óvart. Byijunaratr-
iðið er athafnalýsing þar sem mað-
ur er myrtur. Morðinginn sést ekki
en mínútu seinna eru allir búnir
að uppgötva hver morðinginn er.
Þá er leikur ahs ekki nógu góður
og Sammi Davis, sem hefur hingað
th sýnt góða leikhæfileika, er mjög
ósannfærandi í hlutverki sálsjúks
morðingja.
Tvær Verónikur - ein sál
TVÖFALT LÍF VERÓNIKU
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Krzysztof Kielslowski.
Aðalhlutverk: Iréne Jacob og Philippe
Volter.
Frönsk, 1991 - sýningartimi 97 mín.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Pólski leikstjórinn Krzysztof Ki-
elslowski var, áður en hann gerði
Tvöfalt líf Veróniku, þekktastur
fyrir verðlaunamynd sína Stutt-
mynd um morð en í kjölfarið gerði
hann sjónvarpsmyndir um boðorð-
in ásamt kvikmyndinni Stuttmynd
tun ást.
Tvöfalt líf Veróniku er fyrsta
kvikmyndin sem hann gerir fyrir
aðha utan Póhands en myndin ger-
ist samt að hluta th í Póllandi og
að hluta til í Frakklandi. Með þess-
ari eftirtektarverðu kvikmynd hef-
ur Kielslowski skipað sér í fremstu
röð leikstjóra í Evrópu.
Eins og í öllum myndum Ki-
elslowski er söguþráðurinn drama-
tískur en á mun breiðari grund-
velh. Stuttmynd um morð var þrátt
fyrir snhldarthþrif og áhrifamik-
inn boðskap niðurdrepandi og
þungmelt. Tvöfalt líf Veróniku er
ekkert léttmeti en mun jákvæðari
í afstöðu sinni th persónanna. Dul-
úðin gerir myndina hehlandi þótt
sálarflækja sú sem fylgir persón-
unum fari kannski fyrir hrjóstið á
sumum.
í myndinni kynnumst við tveim-
ur Verónikum. Þær eru ekkert
skyldar, önnur er fædd í Póllandi.
en hin í Frakklandi. Þær eru samt
alveg eins í úthti, hugsa eins og
hafa sama áhugamál, tónhstina.
Þegar önnur þeirra deyr finnur hin
fyrir svo miklu tómarúmi í sál
sinni að hún hættir námi í tónlist
og snýr sér að tónlistarkennslu.
Veróniku finnst ávaht að einhver
sé henni nálægur. Það er samt ekki
fyrr en hún lendir í sérkennilegu
ástarsambandi sem hún fer að
skhja samhengið og lokaatriðið,
Iréne Jacob leikur Verónikurnar tvær i Tvöfalt líf Veróniku.
þegar hún gerir sér grein fyrir að
hluti af henni er ekki th lengur, er
sterkur endir en kannski ekki fuh-
nægjandi. í heild er Tvöfalt líf Ver-
óniku áhrifamikil kvikmynd sem
snertir tilfinningar um leið og hún
krefst mikhs af áhorfandanum.
Ung leikkona, Iréne Jacob, fer
með hlutverk Veróniku og gerir
það meistaralega og er hún vel að
Guhpálmanum komin sem hún
fékk á kvikmyndahátíðinni í Fe-
neyjum fyrir leik sinn í myndinni.
-HK
DV-myndbandalistiim
Hin ágæta kvikmynd, Boyz N the Hood, sem nánar er fjallað um hér
á siðunni, fer beint í sjöunda sætið á listanum þessa vlkuna. Á
myndinni er aðalpersóna myndarinnar, Tre (Cuba Gooding, jr.), og
vinur hans, Ricky (Morris Chestnut).
1 (1) The Last Boyscout
2 (4) Father of the Bríde
3 (3) Pure Luck
4(2) JFK
5 (5) Deceived
6(7) MyGirl
7 (-) BoyzNtheHood
8 (10) Once upon a Crime
9 (6) Dead again
10 (8) The Lawnmower Man
11 (9) Freejack
12 (11) True Identity
13 (-) Bingo
14 (-) What about Bob?
15 (14) Rocketeer
Atök í hverfinu
BOYZ N THE HOOD
Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: John Singleton.
Aöalhlutverk: lce Cube, Cuba Gooding,
jr. Morris Chestnut og Larry Fishburne.
Bandarísk, 1991 -sýningartimi 107 min.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Boyz N the Hood er fyrsta mynd
hins unga leikstjóra John Single-
ton. Er kominn fram á sjónarsviðið
leikstjóri sem vert er að fylgjast
með. Myndin er meöal bestu kvik-
mynda frá byijenda í langan tíma,
spennandi og dramatísk en fyrst
og fremst mannleg.
Kvikmynd Singletons leiðir hug-
ann að öðrum svörtum og reiðum
kvikmyndagerðarmanni, Spike
Lee. Þrátt fyrir að þeir fjahi um
sama efni, Úfsstrit blökkumanna,
þá nálgast þeir viðfangsefnið á ólík-
an hátt. Ef Spike Lee ræður enn
sem komið er meira yfir möguleik-
um kvikmyndavélarinnar þá verða
persónur Singletons mun mann-
legri í meðförum hans og hann gef-
ur þeim meiri möguleika.
$fl££H9É
í byrjun myndarinnar kemur
fram að svartir menn eru mun oft-
ar myrtir en hvítir og að það eru
svartir sem drepa svarta. Með þetta
að leiðarljósi reynir faðir Styles,
sem er aöalpersónan, að ala upp
son sinn í hverfi þar sem leið ungl-
inganna liggur oftast í eitthvert
glæpagengi. í myndinni fylgjumst
við meö nokkrum persónum í bhöu
og stríðu og örlögum þeirra, per-
sónum sem tengjast Styles en þrátt
fyrir skhjanlegt hatur, sem kemur
upp í Styles, sleppur hann heih aö
þvi er virðist í gegnum erfitt tíma-
bil.
Singleton er í mynd sinni að segja
frá atburðum sem hann þekkir frá
eigin uppeldi. Persónur hans veröa
lifandi í meðförum ágætra léikara
og áhorfandanum er ahs ekki sama
um þær, ólíkt því sem var th að
mynda í New Jack City sem einnig
fjallaði um hverfaátök í hverfi
svartra. Mynd á borö við Boyz N
the Hood getur ekki leitt annað en
gott af sér. Það er ekki beint verið
að ásaka hvíta kynstofninn en sagt
réttilega að ástæður séu fyrir því
að hvítir vilji hafa svarta sér. En
það sé aftur á móti sök svartra
sjálfra að þeir skuh vera að berja
hverjir á öðrum og þaö sé einmitt
þaö sem hvítir vilji.
-HK
Fallglæpaforingja
BILLY BATHGATE
Útgefandi: Bíómyndir.
Leikstjóri: Robert Benton.
Aóalhlutverk: Dustin Hoffman, Nicole
Kidman, Loren Dean og Bruce Willis.
Bandarisk, 1991 -sýningartimi102min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Þrátt fyrir að mikið úrval hæfi-
leikafólks standi að gerð Billy
Bathgate er ekki nema um míðl-
ungsgóða mynd að ræða sem hald-
ið er á floti af stórgóðum leik Dust-
ins Hofiman.
Myndin gerist á fyrri hluta aldar-
innar. Bihy Bathgate (Loren Dean)
er götustrákur sem sér draum sinn
rætast þegar hann fær vinnu hjá
glæpaforingjanum Dutch Schultz
(Dustin Hoffman). Dutch er að
missa tökin á starfsemi sinni um
leið og réttarhöld yfir honum
standa fyrir dyrum. Bathgate fær
það verk að gæta unnustu hans,
Drew Preston (Nicole Kidman),
sem Dutch „erföi“ eftir besta vin
sinn sem hann lét drepa þegar
hann komst að því að sá haföi svik-
ið hann.
Dustin Hoffman sýnir mikh th-
þrif og gnæfir yfir aha aðra. Það
er aðeins Steven Hih í hlutverki
gjaldkera Dutch sem vert er að
minnast. Bruce Wilhs leikur htið
hlutverk vinar Dutch og er hálf-
vandræðalegur og sá mikh kyn-
þokki, sem á aö streyma frá Drew,
skhar sér ekki í meðförum Nicole
Kidman á persónunni. í hehd er
Bihy Bathgate ahs ekki slæm mynd
en heföi átt að geta verið mun betri.
-HK