Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992. Fréttir Mannskemmandi ferill hins 21 árs bamsræningja: Var haldið sextán ára í einangrun í þrjá mánuði - var hjá femum fósturforeldrum til 14 ára aldurs !l|ll <E vife rill b arns ræni ngjai 1S 1 fóstri hjá móðurbróður Fósturforeldrar á Snæfellsnesi. Foreldrahús, skólagöngu lýkur Fósturh. i Skagaf., unglingadeildin, SAAA/ogur, fangageymslur, geðdeild Siðumúlaf. /einangr. Litla-Hraun, Hegningarh., á gðtunni : fioreldrahús. í Ýmisvandamál Fósturforeldrar á Hellu og stofnun Neyðarathv. ungl. í Kópav. 80 dagar í innilokun Unglingah. i Kóp., flakk á milli ' 0-6ára 6-8ára 8-9 ára 10-12 ára 13 ára 14 ára 15 ára 16-21 árs !dv „Trausti Róbert er haldinn per- sónuleikatruflunum sem eru þess eölis aö honum veitist erfitt að sýna öðrum nægilega tfllitssemi og fara eftir reglum samfélagsins. . . Trausti er í mikilli þörf fyrir mikla aöstoð en um leið þurfi hann aðhald og umhyggju ef takast á að rjúfa þann vítahring sem hann er í.“ Svona hljóðaði hluti af vamarræðu Ragnars Aðalsteinssonar hrl. í saka- máli árið 1989 á hendur Trausta Ró- bert Guðmundssyni sem rændi stúlkubarni af heimili um helgina. Ferill þessa manns, sem nú er 21 árs, er verulega misjafn. Síðustu vik- umar sótti hann vinnu á sama stað og einn fimm bræðra hans á Suöur- nesjum og stóð sig prýðflega að sögn bróðurins. Síðustu helgar eyddi hann hins vegar launum sínum ávallt í áfengi og eiturlyf. Daginn áður en ránið var framið var hann í vinnu. Trausti Róbert var í foreldrahúsum til sex ára aldurs. Þar voru mikil vandamál tfl staðar sem leiddu til þess að ættingi hans tók hann að sér tfl átta ára aldurs. Þá flutti frændinn tfl útlanda og drengnum var komið fyrir hjá fósturforeldrum á Hellu. Á níunda aldursári var honum auk þess komið fyrir á stofnun. Á10. ald- ursári fór drengurinn á vist tfl ann- arra fósturforeldra á sveitabæ á Snæfellsnesi. Þar var hann í tvö ár og á því tímabfli hóf hann áfengis- drykkju að sögn fjölskyldu hans. Sveitadvölin endaði með því að drengurinn strauk þaðan, þá tólf ára. Skólaferlinum var þá um það bfl lokið. Hann kom við í foreldrahúsum en var komið fyrir í neyðarathvarfi fyrir unglinga í Kópavogi. Móðir Trausta Róberts segir hann þá hafa dvahö í 263 daga í athvarfmu, þar af hafi hann verið innflokaður í 80 daga í einangrun. Á þessu tímabili var farið að bera verulega á afbrotum. Þegar pflturinn var 14 ára fór hann á sveitabæ í Skagafirði. Þaðan strauk hann, fór aftur norður en kom svo tfl baka. Um þetta leyti vildi Trausti fara í áfengismeðferð á Vogi en var sóttur þangað af lögreglu. Á þessu aldursári fór hann einnig á geðdefld og eitt sinn gisti hann fangageymslur í Keflavík þegar verið var að ákveða hvað um hann yrði. Fram að þessu höfðu bamavemdaryfirvöld meira eða minna látið mál piltsins til sín taka. 15 ára dvaldist Trausti á unglinga- heimilinu í Kópavogi og var síðan farinn að stunda afbrot í vemlegum mæli. Þegar pilturinn var orðinn 16 ára var hann orðinn „nógu gamafl" til að vera beittur innilokun í fang- elsi. Á því aldursári var hann 4 sinn- um í Síðumúlafangelsinu - hann var þar í einangrun í samtals 3 mánuði. Síðustu 5 ár hefur hann verið meira innan fangelsisveggja en utan þeirra. á Litla-Hrauni, í einangrun í Síðu- múlafangelsinu og í Hegningarhús- inu. Inni á milli hefur hann verið hjá fjölskyldu sinni, á götunni og víðar. Innflokun, áfengisdrykkja, flkni- efnaneysla, afbrot og persónuleika- truflanir hafa einkennt þessi ár. Dag- leg samskipti hans hafa helgast af því að hitta fangaverði, lögreglu, embættismenn, lækna og fleiri sem við koma löggæslu- og fangelsiskerf- inu. -ÓTT Fjölskylda Trausta Róberts í Yiötali við DV í gærkvöldi: Er lokaður og vitum ekki um líðan hans - telja hann hafa verið misnotaðan í fangelsi og á unga aldri „Við vitum ekki hvort Trausti Ró- bert er sakhæfur eða ekki. Tfl þess þarf lækni til að kanna máliö. Hann þarf að fá hjálp á stofnun. Hann seg- ir lítið og er mjög lokaður. Það er hægt að tala við hann en maður veit ekki hvemig honum líður eða hvað hann er að hugsa,“ sagði einn af fimm bræðrum mannsins sem rændi stúlkubami frá heimili þess um helg- ina í samtali við DV í gærkvöldi. „Hann sat héma og var að horfa á þáttinn um kynferðislega ofbeldiö gegn bömum á fimmtudagskvöldið. Hann sagði ekkert en svo gerist þetta um helgina. Hvort hann fékk ein- hverja ranghugmynd eða annað vit- um við ekki en hann var örugglega í eiturlyfjum," sagði bróðirinn. Fjölskyldan segir úrræði yfirvalda hafa brugðist þegar Trausti var und- ir handleiðslu barnavemdaryfir- valda. Honum hafi verið ógnað með haglabyssu á heimfli fósturforeldra er hann var 13 ára, hann hafi oröið fyrir kynferðislegri misnotkun á unga aldri og verið beittur harðræði auk þess sem hann hafi mjög oft ver- ið innflokaður á stofunum í einangr- un áður en hann náði sakhæfisaldri. Móðirin segist einnig hafa vissu fyrir því aö sonur hennar hafi verið mis- notaður í fangelsisafplánun. Fólkið segir að eftir þessa reynslu hafi Trausti aldrei náð að þroskast tfl- finningalega. „Mér var aldrei trúað að hann ætti við vímuefnavandamál að stríða og ég er búin að biðja um það í áraraðir að fá kannaðan andlegan þroska hans og geðheilsu. Aðalatriðið núna er að það verði gert,“ sagði móðirin. Það hefur alltaf verið þrautalending að það er engin stofnun tfl aö taka við svona fólki," sagði móðirin. Hún hefur óskað eftir að réttar- gæslumaöur sonar síns í gæsluvarð- haldinu sjái tfl þess að geðlæknir rannsaki andlega heflsu hans. -ÓTT Gunnlaug Helga Jónsdóttir, móðir barnsræningjans, segir afar mikilvægt að rannsókn fari fram á andlegri heilsu sonar síns sem hefur verið innilok- aður meira eða minna frá 15 ára aldri. DV-mynd GVA Alþýðubandalagið vill þjóðarsátt um efnahagsaðgerðir: Lítt breytt launastig en aukin skattbyrði - boðskapur flokksforystunnar kynntur í húsi Dagsbrúnar 1 gær „Alvarlegt ástand ríkir nú í efna- hagsmálum og atvinnulífi þjóðarinn- ar. Það er nauðsynlegt að víðtæk samstaða skapist um aðgerðir sem duga til aö forða þjóðinni fiá vaxandi atvinnuleysi jafnframt því sem stöð- ugleiki í efnahagslifi sé festur," segir í bréfi sem Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, sendi Davíð Oddssyni, formanni Sjálfstæð- isflokksins, í gær. Þingflokkur Alþýðubandalagsins boðaði til blaðamannafundar í húsi Dagsbrúnar í gær um tillögur sínar í efnahags- og atvinnumálum. Á næstu dögum verður forystumönn- um stjómmálaflokkanna og aðila vinnumarkaðarins boðið að ræða tfl- lögumar við þingmenn flokksins með það að markmiði að ná eins konar þjóðarsátt um aðgerðir. Tillögur Alþýðubandalagsins gera meðal annars ráð fyrir að ríkið fjár- magni allt að 1.800 ný störf á næstu átta tfl tólf mánuðum. I ferðaþjón- ustu sjá alþýðubandalagsmenn fyrir sér 250 ný störf, 200 tfl 300 í skipa- smíðum, 400 tfl 500 í viöhalds- og byggingaframkvæmdum, 100 til 200 í landgræðslu og umhverfisbótum, 100 til 200 vegna fullvinnslu verkefna í fiskvinnslu og sjávarútvegi, 150 til 250 í heilbrigðisþjónustu og 100 tfl 150 í greinum sem sækja fram vegna hagstæðra tflboða á innlendri orku. Að mati Alþýðubandalagsins þarf allt að 6,1 mflljarð til að fjármagna þessi störf. í því sambandi er lagt tfl að skattar ríkisins verði hækkaðir um allt að 3,1 milljarð með upptöku á hátekjuskatti og fjármagnstekju- skatti. Þá er bent á að ríkisstjómin hafi þegar ákveðið að setja 2 millj- arða í atvinnuskapandi aðgerðir. Með aukinni atvinnu er loks talið að ríkið geti sparað sér allt að milljarö í atvinnuleysisbætur. Tfl að létta undir með atvinnulífinu leggur Alþýðubandalagið til aö að- stöðugjöld verði felld niður en árlega skfla þau um 5 til 6 milljörðum í tekj- ur. Tfl að bæta sveitarfélögum upp tekjumissinn er lagt til aö innleidd veröi breytileg fasteignagjöld og að sveitarfélögum verði heimilað að ákveða útsvar samkvæmt eigin mati ásamt þvi að leggja á umhverfisgjöld og nýta meðal annars bifreiðaeign og umferð sem skattstofn. Miðað við aö sveitarfélög þoli ekki skertar tekjur er Ijóst að skattbyrði almennings myndi aukast verulega ef farið yrði að tillögum Alþýðu- bandalagsins. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að í tfllögum Alþýðubanda- lags segir að mikflvægt sé að ná sam- komulagi á vinnumarkaði um lítt breytt launastig í landinu. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.