Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992. 3 Fréttir Efnahagskreppan í Færeyjum: ísland er á sömu leið - segir Eiríkur Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Mjólkursamsölunnar í Færeyjum „Mér finnst á öllu að ísland sé hægt og sígandi að fara sömu leið og Færeyjar. Færeyjar eru svo litl- ar að svona efnahagskreppa kemur mjög fljótt og hart fram og er að sama skapi fljótari að ganga yfir. Ég er sannfærður um að ísland er á sömu leið en þar mun þetta taka lengri tíma,“ segir Eiríkur Þor- valdsson, framkvæmdasljóri Mjólkavirkisins, sem er nokkurs konar Mjólkursamsala Færeyja. Eiríkur er íslendingur en hann hefur búið í Færeyjum í 14 ár og er giftur færeyskri konu. Hann seg- ir gott að búa í Færeyjum en nú sé mikil svartsýni í fólki. „Þessi kreppa hefur tekið allt loft úr fólki. Það virðist allt áræði búið og fnnnkvæði dautt. Þetta byxjaði á því að ætið í sjónum hvarf, svart- fuglinn fór og lítið veiddist af grind. Svo einn dag var fiskurinn bara horfinn. Gamlir sjómenn héma segja að svona gerist tvisvar til þrisvar á öld. Nú virðist ætið hins vegar komið aftur og lundinn er í aukningu svo ég hef trú á því að fiskurinn komi aftur og allt falli í rétt horf. Ég vona bara að fólk hafi þá lært af þessu og hætti að bruöla og fari að hfa af því sem fæst,“ seg- ir Eiríkur. Hann segir sjálfstæði Færeyja ekki ofarlega í hugum manna núna þó að óánægja ríki yfir sjáifræðis- sviptingunni. „Fólk er fyrst núna að jafna sig eftir áfallið. Það vissu allir að eitt- hvað þurfti að gera til að koma lagi á efnahagslífið en það er skömm- ustulegt yfir því að ekkert gerðist fyrr en utanaðkomandi aðilar gripu inn í máhð. Fólki finnst réttast að koma öhum stjómmálamönnum landsins fyrir á eyðieyju og henda til þeirra mat öðm hveiju. Annars er ekki hægt að kenna neinum ein- um einstaklingi um ástandið. Þetta er skriða sem fer af stað, vítahring- ur sem erfitt er að losna út úr,“ seg- irEiríkur. -ból Eiríkur Þorvaldsson er Islendingur sem hefur verið búsettur I Færeyjum 114 ár. Hann segir að fólk sé rétt aðjafnasigáfréttumundangenginnadaga. ___ „ DV-mynd bol „Mér finnst ungt fólk hugsa mikið um ástandið í landinu en það veit ekki hvað er til ráða,“ sagði Jannie sem er 16 ára og vinnur við að passa börn í Þórshöfn. Hún segist þó ekki hafa áhyggjur af sinni framtíð, alia vega ekki i bili, því hún komi til með að halda vinnunni enn um sinn. DV-mynd ból Það er ekki bara ríkissjóður Færeyja sem stendur illa. Sveitarfélög lands- ins eru vel flest komin að gjaldþroti. Á þessu grafi má sjá hvernig skuldir sveitarfélaganna hafa aukist síðustu árin á meðan tekjur þeirra hafa farið minnkandi. Nýstofnaður atvinnuleysistryggingasjóður Færeyja: Riðar á barmi gjaldþrots „Ef atvinnuleysi eykst eins hratt og það hefur gert hingað til þá stefnir í að atvinnuleysistryggingasjóður landsins, sem settur var á stofn fyrir einungis um tveimur mánuðum, fari á hausinn innan tíðar. Áður fyrr fékk fólk ekki greiddar atvinnuleysisbæt- ur ef það missti vinnu sína og það var ekki fyrr en fólk haíði misst aht ofan af sér sem það fékk einhverja félagslega hjálp. Ég má ekki til þess hugsa að ástandið verði aftur eins og þá,“ segir Ingehorg Vinther, for- maður Verkamannasambands Fær- eyja, en hún situr einnig í stjóm hins nýstofnaða Atvinnuleysistrygginga- sjóðs Færeyja. Ingeliorg segir ástandið í atvinnu- málum vera verst á Suðurey og á norðureyjunum þaðan sem margir hafa nú þegar flutt í burtu. „En hvert á fólk að fara? Það er atvinnuleysi ahs staðar á Norður- löndum. Verst af öhu er að fjármála- ráðherra okkar, Jógvan Sundstein, og lögmaður, Ath Dam, halda því ennþá fram að allt sé í lagi og að þeir stjómi landinu þegar þaö er í raun danska stjómin. Við höfum færst aftur á nýlendutímann og það er alveg Ijóst að við getum gleymt sjálfstæðiskröfum okkar núna. Það em margir sem segja að danska stjómin hafi tekið við og að lands- stjómin geti bara farið heim, hún hafi ekkert að gera lengur,“ segir Ingeborg. Um 7.500 manns af um 47 þúsund íbúum Færeyja em í Verkamanna- sambandinu. Ingeborg segir að at- vinnuleysi í röðum meðlima sé mikið eða um 10-15 prósent og um 80 pró- sent vinni ekki fulla vinnuviku. „Þetta er ófaglærða fólkið með Ingeborg Vinther, formaður Verka- mannasambands Færeyja, segir landsstjórnina ekki viðurkenna að Færeyjar séu orðnar að nýlendu á nýjan leik. lægstu launin. Þetta fólk á erfitt og það getur ekki tekið við meiri byrð- um. Það er ekki nóg að færeyskir skattborgarar hafi borgað ahar þær skuldir sem hafa falhð á ríkissjóð vegna ábyrgða á fiskiskipum og frystihúsum sem hafa farið á haus- inn. Nú eigum við líka að fara að borga þær 500 mihjónir sem þurfti til að bjarga Sjóviimubankanum. Það hafa allir misst trúna á stjórnmála- menn landsins og fólki finnst það hafa verið svikið," segir Ingeborg. Hún segir að mikið starf sé fram- imdan í Verkamannasambandinu í vetur. „Við munum ekki taka á okk- ur kjaraskerðingu. Ef það á að gerast þá fórum við í gang og þá útiloka ég ekki verkfah," segir Ingeborg. -ból Fyrirsjáanlegt gjaldþrot Sjóvinnubankans varð upphafið að því að dönsk stjórnvöld tóku í taumana og fyrirskipuðu færeysku landsstjórninni að grípa til raunhæfra aðgerða í efnahagsmálum sínum. DV-myndir ból Sódóma Reykjavík: Mjög góð aðsókn „Rúmlega 6500 manns höfðu séð Sódómu um helgina og við erum auðvitað mjög ánægðir með viðtök- umar enda held ég að engin kvik- mynd hérlendis hafi fengið slíka aðsókn fyrstu dagana,“ sagði Ing- var H. Þórðarson, annar fram- leiðslustjóra Sódómu, í samtah við DV. Sódóma Reykjavík var frumsýnd sl. fimmtudagskvöld og er nú sýnd í þremur kvikmyndahúsum í Reykjavík. -GRS Ólafsíjörður: Sigurbjörgin braut tvo báta Gyffi Kristjánsscm, DV, Akureyri: Tveir þilfarsbátar eru ónýtir eftir harkalegan árekstur við togarann Sigurbjörgu en áreksturinn varð í höfninni á Ólafsfirði sl. föstudags- kvöld. Þegar verið var að færa Sigur- björgu tókst ekki betur th en svo að skipið festist í bakkgír og sigldi tog- arinn á bátana tvo sem eru 10 og 11 tonn. Togarinn lenti fyrst á öðrum þeirra og mölbraut hann með þeim afleiðingum að hann sökk. Síðan fór togarinn á hinn hátinn og hann skemmdist einnig mjög mikið og er jafnvel talinn ónýtur einnig. Bátnum sem sökk var náð upp með aðstoð krana en hinum var siglt upp í fjöru.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.