Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992.
5
Fréttir
Ragna Bergmann, formaöur Verkakvennafélagsins Framsóknar:
Þref alt fleiri konur
atvinnulausar en áður
- sé ekki hvað bíður þeirra kvenna sem nú eru atvinnulausar
„Það verða sennilega 86 konur sem
fá greiddar atvinnuleysisbætur hér á
fóstudaginn kemur. Það hefur aldrei
verið svo mikið atvinnuleysi hjá okk-
ur á þessum árstíma," sagði Ragna
Bergmann, formaður Verkakvenna-
félagsins Framsóknar í Reykjavík,
þegar hún var spurð um atvinnu-
leysi meðal félagskvenna í Fram-
sókn.
„Það hefur oft verið erfitt á sumrin
en í byrjun september og október
hefur atvinnuleysið alltaf hrapað
niður í 27 til 30 konur. Nú eru þre-
falt fleiri konur án atvinnu en áður
hefur verið á þessum tíma. Það er
annað að verða áberandi hjá okkur
- en það virðist vera mikið um að
stúlkur séu að flytja utan af landi í
von um atvinnu hér í Reykjavík.
Mikið af þeim nýjum skýrslum, sem
eru að berast okkur, eru einmitt utan
af landi," sagði Ragna Bergmann.
Hún sagði enga vinnu að fá í
Reykjavík og því væri ekkert fyrir
atvinnulaust fólk á landsbyggðinni
að sækja í til höfuðborgarinnar.
Ragna sagði að eldri konur og þær
yngstu væru frekar atvinnulausar
en aðrar konur.
„Það er verið að tala um að setja
peninga í vegagerð, skipasmíðaiðn-
aðinn og fleira. Mér finnst ekki nóg
gert fyrir konur. Jóhanná Sigurðar-
dóttir er búin að veita milljónir til
atvinnubyggingar fyrir konur á
landsbyggðinni. Mér finnst að það
þurfi að skapa ný atvinnutækifæri
fyrir konur hér í Reykjavík,“ sagði
Ragna Bergmann.
Hún sagöist vita að margir ungir
menn ættu erfitt - ekki síður en kon-
ur.
- En hvemig líst þér á veturinn?
„Mér líst illa á þetta allt. Staðan í
þjóðfélaginu er þannig. Ég á eftir aö
skoða íjárlögin betur og ég á því eftir
að sjá hvað í þeim felst. Það sem
mest mæðir á hjá mér eru eldri kon-
urnar og þær yngstu. Hvar lenda
þær? Hvað verður um þessar konur?
Við verðum að vona að þetta lagist.
Ég sé ekki hvar þær konur sem eru
atvinnulausar lenda, ég sé það ekki,“
sagðiRagnaBergmann. -sme
Konráð Valsson, atvinnúLaus Reykvikingur sem ætlar úr landi:
Getur ekki verið verra en þetta
- má ekki hætta að vona - sagði Ástríður Kristjánsdóttir sem hefur verið án atvinnu í tæpt ár
„Ég hef verið atvinnulaus frá því
í janúar. Ég hef sótt um mörg störf
en án nokkurs árangurs. Það er
hrikaleg tilfinning að vera svo lengi
án atvinnu. Það hlýtur að vera ein-
hverjum um að kenna. Stjórnmála-
menn hafa sóst eftir að ráða þessum
málum og því hlýt ég að kenna þeim
um hvemig þessu er komið,“ sagði
Konráð Valsson þegar hann kom frá
því, eitt skiptið enn, að skrá sig at-
vinnulausan.
Konráð starfaði á bílaverkstæði en
hann segist ekki vera lærður bifvéla-
virki. Konráð býr í foreldrahúsum.
„Ég ætla úr landi um áramótin fái
ég ekki atvinnu. Ég veit að það er
erfitt um atvinnu víðar en hér á landi
en það getur ekki verið minni von
annars staðar en hér á landi - því
hér virðist ekkert að fá,“ sagði Kon-
ráð Valsson.
Konráð segist ekki geta verið bjart-
sýnn þegar daglega berast fréttir af
uppsögnum og erfiðleikum, jafnvel
hjá þeim fyrirtækjum sem hann hélt
vera sterk fyrir.
„Ég hef verið atvinnulaus í tæpt
ár. Ég hef sent fjöldann af umsóknum
eftir störfum en ekkert fengið. Ég er
gift og á tvö börn. Maðurinn minn
er bílstjóri og hann hefur getað auk-
ið sína vinnu - það hefur bjargað
miklu fyrir okkur,“ sagði Ástríður
Kirstjánsdóttir þegar hún var að
koma frá því að láta stimpla sig á
Ráðningaskrifstofu Reykjavíkur.
Ástríður var bókari áður en hún
missti atvinnuna. Hún er með
menntun úr Skrifstofu- og ritara-
skólanum.
„Á vissan hátt finnst mér eins og
mér hafi verið hafnað. Ég er þyngri,
því er ekki að neita. Það vantar þenn-
an félagslega þátt - það er að vera í
vinnu. Það léttir ekki á mér að heyra
um sífellt meira atvinnuleysi - en
það þýðir ekki að hætta að vona,“
sagði Ástríður Kristjánsdóttir.
„Ég var að láta skrá mig atvinnu-
lausan. Þetta er varla nema sex mán-
aða vinna nú orðið. Atvinnuleysiö
skellur fyrr á okkur nú en áður og
að auki var minni vinna í sumar en
áður hefur veriö,“ sagði Borgar
Skarphéðinsson, vörubílstjóri á
Þrótti, en Borgar var að skrá sig at-
vinnulausan í gær.
Við erum fjögur í heimili. Konan
er í vinnu en eigi að síður sjáum við
fram á samdrátt á okkar heimili,"
sagði Borgar.
-sme
Borgar Skarphéðinsson vörubíl-
stjóri. Hann segist sjá fram á sam-
dráttarskeið hjá sér. Vinna vörubíl-
stjóra hefur dregist mikið saman,
segir Borgar.
DV-myndir GVA
Astriður Kristjánsdóttir þegar hún mætti á Ráðningaskrifstofuna í gær. Hún
hefur verið án vinnu í tæpt ár.
Atvinnulausir verslunarmenn í Reykjavík:
10% aukning á hálf um mánuði
- úr 400 manns í 430 til 440 - segir Þorgerður Sigurðardóttir VR
Mikið atvinnuleysi er meðal fé-
lagsmanna í Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur. Fyrir hálfum mánuði
fengu rétt um 400 manns greiddar
atvinnuleysisbætur hjá Verszlunar-
mannafélagi Reykjavíkur. Þorgerður
Sigurðardóttir, starfsmaður VR, seg-
ir að næst þegar bætur verða greidd-
ar, það er næsta mánudag, fái 430 til
440 manns greiddar bætur - það er
um tíu prósent fleiri en fengu greitt
fyrir rúmri viku.
Hervar Gunnarsson, formaður
Verkalýðsfélag Akraness, segir að í
hans félagi séu 134 atvinnulausir. í
ágúst var ástandið enn verra en þá
voru um 170 atvinnulausir. Hervar
tók fram að í þessar tölur vantaði
uppsagnirnar á Grundartanga - en
þar var 38 mönnum sagt upp. Hervar
hafði ekki enn fengið að vita hversu
margir af þeim sem sagt var upp á
Grundartanga væru félagar í Verka-
lýðsfélagi Akraness.
„Ég sé ekkert framundan sem kem-
ur til með að bæta úr þessu ástandi,"
sagðiHervarGunnarsson. -sme
f THEFNI35 ÁRA AFMÆLIS S. WAAGE SF. VEITUM VIÐ 20% afslátt
AF ÖLLUM VÖRUM í VERSLUNUM OKKAR DAGANA 13. OG 14. OKTÓBER.
Binni bangsi úr brúöubílnum kemur /—— í heimsókn í verslunina í í Kringlunni báða dagana S milli kl. 15 og 16. 1 p
STEINAR WAAGE ,rf> STEINAR WAAGE >T SKÓVERSLUN Jjfr* SKÓVERSLUN S 1 “ ' 1 8 5 19 -pv S i M 1 6 8 9 2 1 2 V- oppskórinn VELTUSUMDI • SjMI: 21212