Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992. Útlönd Björgunarmenn i Kaíró verða að róta í rústunum með berum höndum vegna skorts á vinnuvélum. Gífurlegar skemmdir hafa orðið i borginni þrátt fyrir að jarðskjálftinn hafi verið innan við 6 stig á Richter. Yfirvöld segja að 340 hafi farist en jafnframt er tekið fram að sú tala kunni að hækka. Talið er að þúsundir manna hafi slasast. Simamynd Reuter Versti jarðskjálfti 1 sögu Egyptalands ríður yfir höfuðborgina Kaíró: Skólabörn tróðust til bana eftir skjálftann skjálftinn var vægur en flöldi húsa hrundi til grunna og hundruð fórust Björgunarmenn í Kaíró í Egypta- landi segja aö í það minnsta 340 manns hafi farist í öflugasta jarö- skjálfta sem riðið hefur yflr landið í manna minnum. Enn eru þó endan- legar tölur um látna ekki komnar fram og verða ekki ljósar á næstunni. Skjálftinn var tiltölulega vægur en tjóniö samt óskaplegt. Heilu skýja- kljúfamir hrundu til gnmna og ótölulegur íjöldi húsa skemmdist meira og minna. í Kaíró búa um 12 milljónir manna. Talið er að ekki færri en 4000 manns hafi slasast. Jarðfræðingar segja að skjálftinn hafi mælst á bilinu 5,3 til 5,9 á Richt- er. Margir létust í troðningi þegar skelfmgu lostið fólk reyndi að ryðja sér braut út úr hrundum húsum. Þannig segja björgunarmenn að fjöldi skólabama hafi farist í troðn- ingi þegar skólahúsið hálfhrundi. Því hafi ekki færri látist í óreiðunni aö skjálftanum loknum en í honum sjálfum. Upptökin voru um 30 kílómetra suðvestan borgarinnar. Óttast var að Aswan-stíflan ofar í Nílardalnum hefði laskast en svo reyndist ekki vera. Verði stíflan fyrir skemmdum má búast við miklum hörmungum í Kaíró og víðar við Níl vegna flóða. Píramídamir miklu em að sögn óskemmdir eftir náttúruhamfarirn- ar. Björgunarstörf ganga mjög illa í Kaíró. Sagt er að björgunarmenn róti í rústimum með bemm höndum vegna þess að skortur er að stórvirk- um vinnuvélum. Sími og rafmagn er og úr lagið gengið og torveldar það skipulagningu björgunarstarfanna. í morgun tókst að bjarga mörgum ur rústum 14 hæða fjölbýlishúss sem jafnaðist viö jörðu. Björgunarmenn segja að enn séu góðar vonir um aö finna fleiri á lífi því fólk hafi lokast inni í hálfhrundum húsum án þess að slasast. Atef Sedki forsætisráðherra sagði í morgun að stjóm sín hygðist ræða á neyðarfundi hvort beðið yrði um aðstoð alþjóölegra hjálparstofnana. Hosni Mubarak forseti kom heim í skyndingu í gær en hann var á flokksþingi kommúnista í Kína. Reuter SÞ viðurkenna mistöksíni Sómalíu Sameinuðu þjóðimar hvöttu Vesturlönd í gær til þess að styöja eitt hundraö daga neyðaráæflun til að draga úr hungursneyðinni í Sómalíu og bjarga um milljón sveltandi Ibúum landsins frá bráðum bana, Á sama tíma viöur- kenndu samtökin að þau hefðu ekki brugðist tímanlega við neyðarástandinu þar. Starfsmenn hjálparstofnana segja að um eitt þúsund manns látist á degi hverjum í Sómalíu. „Við vitum að neyðin er gífur- leg og að við erum að gjalda van- rækslu okkar,“ sagði Mohamed Sahnoun, sérstakur fulltrúi framkvæmdastjóra SÞ í málefn- um Sómalíu, á ráðstefnu í Genf í Sviss. . Heuter Flokksþmg kommúnista í Kína: Efnahagsumbótum hraðað Kommúnistaflokkur Kína veitti Deng Xiaoping, æðsta leiötoga lands- ins, yfirgnæfandi stuðning við að hraða efnahagsumbótum í anda markaðshagkerfisins á fyrsta degi flokksþingsins í gær. Þingið er hið fyrsta frá hruni kommúnismans í Sovétríkjunum. Þingfulltrúar lögðu blessun sína yfir áætlanir Dengs þar sem notast á við öll tæki kapítalismans, allt frá hlutabréfamörkuðum til húsnæðis- markaðarins. En á sama tíma gerðu þeir lýöum ljóst að ekki yrði nein breyting á einsflokkskerfinu. Jiang Zemin, aðalritari flokksins, lýsti í ræðu sinni yfir endalokum rúmlega íjögurra áratuga miðstýr- ingar í anda Stalíns og sagði að eina leiðin til að bjarga ríkisiönaðinum, Jiang Zemin, aðalritari kínverska kommúnistaflokksins, segir rangt aö efast um flokkinn. Símamynd Reuter sem væri að hruni kominn, væri að etja honum út á markaðina. Þeim Kínverjum, sem þrá póhtísk- ar breytingar í takt við bættan efna- hag, var þó lítil huggun í ræðu for- mannsins þar sem hann dustaði ryk- ið af orðfæri harðlínumanna. „Það væri fullkomlega rangt og skaðlegt hveijum og einum að efast um, veikja eða afneita valdastöðu flokksins og forustuhlutverki hans,“ sagði hann. Til að undirstrika orð sín enn frek- ar minntist hann hersveitanna sem tóku þátt í fjöldamorðunum á lýð- ræðissinnuöum námsmönnum á Torgi hins himneska friðar í júni 1989 og sór þess eið að hart yrði tek- ið á óróa í framtíðinni. Reuter Langar biðraðir Grænlands Vegna skorts á starfsfólki á sjúkrahúsi Ingiríðar drottningar i Nuuk, helsta sjúkraliúsi Græn- lands, hafa rayndast langir bið- listar sjúklinga. Um þessar mundir bíða 686 manns eftir að komast í skurðað- geröir á sjúkrahúsinu í Nuuk á sama tíma og 660 sjúklingar bíða eftir aö komast í aðgerð á ríkis- sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Ove Rosing Olsen, sem fer með heilbrigðismál innan heima- stjórnarhmar, lagöi fram neyð- aráætlun fyrir sjúkrahúsið á fostudag þar sem gert er ráö fyrir að loka 28 sjúkrarúmum til viö- bótar þann 15. október, auk þess sem tilflutningur veröur innan stofnunarinnar. Bæði læknar og hjúkrunarfræðingar hafa fallist á neyðaráætlunina. Þann 1. desember næstkomandi kemur til með að vanta 27 hjúkr- unarfræðinga og 25 sjúkraliða á sjúkrahúsið. Madonnaklippt kantahjáBBC Breska sjónvarpið, BBC, ætlar að koma íyegfyrir að áliorfendur blygðist sín með því að beita skærunum allótæpilega ó nýjasta tónlistarmyndband söngkonunn- ar Madonnu. Myndband þetta þykir í æsilegra lagi. Myndband Madonnu er sjö mínútna langt en þegar skæra- meistarar BBC hafa farið hönd- um um það verður það aðeins þrjár mínútur. Og þannig verður það sýnt í vinsælum poppþætti á fimmtudag. Að sögn talsmanns sjónvarps- þáttarins verða engin nektarat- riöi send út né neitt þvíumlíkt. Myndbandið er af laginu „Erotica" sem er í ellefta sæti breska vinsældalistans. Sígarettufirma kaupirmeiri- hlutaFreiu Marabou Bandaríska risafyrirtækið Phibp Morris sigraði í kapp- hlaupinu um rúman helming stærsta súkkulaðiframleiðanda Norðurlanda, hið norska Preia Marabou, í gær. Sigarettufram- leiðandinn, með meiru, hafði bet- ur en helsti keppinauturinn, Hershey Foods. Þrír stærstu hluthafarnir í Freiu, sem eiga samtals 54,9 pró- sent, sögðu að þeir hefðu fallist á tilboð Kraft General Foods, und- irdeíldar Philip Morris. Amer- íska fyrirtækið metur hið norska á tæpa níutíu milljarða króna. ISiescu hélt forsetastólnumi Rúmeníu Ion Iliescu, forseti í Rúmeníu, hélt velli í síðari umferö forseta- kosninganna sem fór fram á sunnudag. Iliescu fékk rúm 61 prósent atkvæða en andstæðing- ur hans, Emil Constantinescu, fékk rúm 38 prósent. Constantin- escu játaði ósigur sinn í gær og sagði að úrslitin sýndu að taka þyrfti tillit til stjórnarandstöö- unnar. í þingkosningum, sem fram fóru 27. september, fékk flokkur forsetans flest atkvæði en náði þó ekki hreinum meirihluta. Þvi er búist við að erfitt gæti reynst að mynda starfliæfa tíkissfj óm. Kosningarnar fóru friösamlega fram. RltzauogReuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.