Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augíýsingar - Áskríft - Dreifing: $imi 63 27 0© Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992. Lára Halla þekkir ekki læknalögin Röntgentæknar: Tilboði haf nað Þrettán röntgentæknar af sextán á Borgarspítala og forráöamenn spítal- ans hafa enn ekki náð samkomulagi. Röntgentæknar lögðu fram tilboð um að vinnutími þeirra yrði óbreyttur þar til gerður yröi nýr kjarasamning- ur og það yrði gert fyrir 1. nóvemb- er. Tilboðinu var hafnaö. Þrír röntgentæknar, sem btu á breyttan vinnutíma sem uppsögn, hafa fengið yflrlýsingu um óbreyttan vinnutíma og eru því komnir aftur til starfa. -sme Harðurárekstur vegna hálkunnar Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; Harður árekstur varð á Ólafsfjarö- arvegi í gær á móts við Baldurs- heima. Þar skullu saman tvær bif- reiðar og var ástæðan sú að önnur rann yfir á rangan vegarhelming í hálku sem var á veginum. Einn farþegi var í hvorri bifreið auk ökumanns, og voru ailir fjórir fluttir á sjúkrahús á Akureyri. Að sögn lögreglu voru meiðsli ekki al- varleg nema hjá öðrum farþeganna sem mun hafa hlotið beinbrot og önnur meiðsli. Bifreiðarnar eru báð- ar mjög mikið skemmdar. LOKI Varekki einfaldara að skilja eftir ökuskírteinið? - - segir landlæknir Lára Halla Maack, réttargeðlæknir á geðdeild Landspítalans, hefur kært Ólaf Ólafsson landlækni til siða- nefndar læknafélagsins fyrir að hafa misbeitt valdi sínu gagnvart sér. Landlæknir hafði vítt Láru Höllu fyrir umrnæh sem hún lét falla um starfsfólk og sjúklinga að Sogni. Hún segir aö ummælin hafi verið blákald- ar staðreyndir. „Henni er fijálst að kæra en ég held að hún geri sér ekki Ijósa grein fyrir vandamálinu sem hér er á ferð- inni. Það er leitt hvað hún þekkir illa læknalögin sem jafnframt eru lands- lög. Öllum læknum, nema henni, er ljóst að þeir geta ekki tjáð sig um íSjúklinga sem þeir hafa hvorki rann- sakað né séð. Hún talar auk þess niðrandi um starfsfólk á Sogni en gætir þess ekki að meðferðaheimilið er byggt upp af lækni sem hefur stjómað einni stærstu svona deild í Skandinavíu í 25 ár. Margir af starfsliðinu hafa auk þess verulega reynslu af meðferö geðsjúkra og ó- sakhæfs geðsjúks fólks,“ segir Ólaf- ur. -ból „Meginforsenda stöðugleikans er gengisfesta," sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í stefnuræöu sínni í gærkvöldi. Hann sagði að erfið staða sjávarútvegs væri engin rök fyrir gengisfellingu því að raungengið hefði ekki hækkað þeg- ar á allt dæmið væri litið. Sam- keppnisstaðan heíöi ekki versnað. En Steingrímur Hermannsson (F) sagði að „leiðrétta" yrði gengiö sem væri vægasí sagt afai- veikt. Skrá ætti gengið „rétt“ til stuðnings at- vinnu og atvinnuvegum. Stein- grimur sagði að þröngva yröi vöxt- um niöur með handafli. Jón Sigurðsson ráðherra lagðist gegn gengisfellingu og valdboði i vaxtamálum. Hann og fleiri ræddu „sænsku leiðina", samvinnu stjórnar og stjómarandstöðu í glimu við efnahagsvandann. AI- þýöubandalagið og Halldór Ás- grímsson (F) mæltu fyrir breiðara samstarfi viö lausn vandans. For- sætisráðherra kvaðst reiðubúinn að ræða viö hvem sem væri, En Tómas Ingi Olrich (S) kallaði boð Alþýöubandalags um samvinnu „leiksýningu". Ólafur Ragnar Grimsson (Ab) sagði að ftokkur sinn hefði undir- : búið tilboð um samvinnu gegn efnahagsvandanura áður en fréttir hefðu borist um slíka samvinnu í Svíþjóð. Ýta yrði til hliðar þröngum hagsmunum flokka. Guöný Guð- björnsdóttir (K) kvaöst sammála ríkisstjórninm um að halda geng- inu fiistu „eða því sem næst“. Veturínánd: Skafrenningur á Norðurlandi Samkvæmt upplýsingum frá Veð- urstofu íslands í morgun var vægt frost eiginlega um allt land. Norðan- áttin er hins vegar býsna þurr þann- ig aö ekki snjóaði nema á Norðaust- urlandi. Á morgmi á norðanáttin að ganga niður og á fimmtudag eða fóstudag er búist við hlýnandi veðri. Að öðru leyti verður veður bjart og fallegt um mestallt land þegar líður á morgundaginn. Hjá Vegaeftirlitinu fengust þær upplýsingar í morgun að allir helstu vegir væru enn vel færir. Hálka hefði þó myndast á vegum á Vestfjörðum og Norðurlandi og skafrenningur hefði gert vart við sig í Þingeyjarsýsl- um. Hálendisvegir munu hins vegar vera orðnir varhugaverðir. -kaa Árekstur 1 gærkvöldi: Stakk af en náðist | er bíllinn gafst upp r Ökumaður, sem grunaður er um ölvun við akstur, stakk af frá árekstri sem varð við Bústaðaveg í gær- kvöldi. Við áreksturinn varð stuðari og skráningarplata bíls hans eftir á vettvangi. Nokkru eftir að ökumað- urinn yfirgaf vettvang tók lögreglan í Hafnarfirði manninn í Engidal við Hafnargörð. Hann var þá fótgang- andi og hafði bíll hans gefist upp. Vatnskassinn lak og ofhitnaði vélin. Maðurinn var í gæslu lögreglunnar í morgun og verður málið rannsakað í dag. Hafnarfjarðarlögreglan tók tvo aðra ökumenn sem grunaðir eru um ölvunarakstur og því óvenjumargir teknir fyrir slíkt á mánudagskvöldi. -ÓTT Skákmótið í Tilburg: Stórmeistaramir Margeir Péturs- son og Jóhann Hjartarson skildu jafnir í seinni skák sinni á stórmót- inu í Tilburg í Hollandi í gær. Jó- hann, sem hafði hvítt, komst ekkert áleiðis gegn öruggri vöm Margeirs og sömdu þeir um jafntefli eftir 42 leiki. Margeir vann fyrri skák þeirra fé- laga á sunnudag og verður því í hópi 32 skákmanna sem halda áfram keppni en Jóhann er úr leik. í 3. umferð, sem hefst á morgun, teflir Margeir við enska áskorandann Nig- el Short eða ástralska stórmeistar- ann Ian Rogers. Einvigi þeirra lauk 1-1 og þurfa þeir að skera úr um það með bráðabana í dag hvor mætir Margeiri. Margir kunnir kappar tefla á mót- inu enda er til mikils að vinna. Fyrstu verðlaun nema 100 þúsund gyllinum eða tæpum 3,4 millj. ísl. króna. -JLÁ 26 ára verkamaður lést samstundis er hann féll af vinnupalli á 12. hæð nýbyggingar við Árskóga 6 i Mjóddinni sfðdegis i gær. Hann var að losa vinnupall frá, sem festur var i krana, þegar slysið varð. Maður í bygging- arkrana var i talstöðvarsambandi við manninn stuttu fyrir slysið en enginn varö þó sjónarvottur að þvi. Eitthvert kast er talið hafa komið á vinnupall- inn með manninum I þannig að hann féll niður. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. DV-mynd Sveinn Ryksöf nun olli eldi í sjónvarpi Eldur kviknaði í sjónvarpi þegar verið var að horfa á spennumynd í íbúð í Smiðshúsi í Grafarvogi í gær- kvöldi. Að sögn slökkviliðs var tækið í eldra lagi og er talið að ryk hafi verið farið að safnast fyrir í því. Eld- urinn kviknaði án þess að sprenging yröi. Búið var að rjúfa straum af tækinu þegar slökkvilið kom á staðinn. Skemmdir urðu ekki verulegar en þóeinhveijarafvöldumreyks. -ÓTT Veðriöámorgun: Slydduél á Norðaustur- og Austur- Á hádegi á morgun verður norðanátt, allhvöss eða hvöss austast á landinu en mun hægari vestanlands. Slydduél norðaust- an- og austanlands en bjart veður um sunnanvert landið. Veðrið í dag er á bls. 28 ÖFenner Reimar og reimskífur Vtnulsen SuAuriandsbraut 10. S. 680409.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.