Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1992, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1992, Qupperneq 3
MIÐyiKUDAGUR 14. OKTÓBER 1992. 3 Fréttir EES-samnmgurmn í ítarlegri könnun hjá utanríkismálanefnd: ¥æntanlega af greiddur frá Alþingi í næsta mánuði - segir Bjöm Bjamason, formaöur utanríkismálanefndar „Nefndin hefur verið að fara mjög ítarlega yflr EES-samninginn og fengið skýringar á einstökum grein- um hans. Þessari nákvæmu yfirferö verður haldið áfram en síðan verður máhð dregið saman í einn punkt. Væntanlega mun Alþingi síðan af- greiða samninginn fyrir lok nóvemb- er. Þannig skil ég allavega samkomu- lag sem formenn stjómmálafokk- anna gerðu með sér 1 maí,“ segir Björn Bjamason," formaður utan- ríkismálanefndar Alþingis. Bjöm segir það ekki sérstakt at- hugunarefni hjá utanríkismálanefnd hvort samningurinn brýtur í bága við stjómarskrána. Slík umræða hafi hins vegar átt sér stað fyrr í sumar og fyrir liggi sjónarmið í því máli. Að sögn Bjöms er hægt að afgreiða flest fylgifrumvörp EES-samningsins án þess að fyrir hggi samþykkt á sjálfum EES-samningnum. Fylgi- frumvörpin feh í sér endurbætur á íslenskum lögum sem njóti stuðnings jafnt fylgjenda sem andstæðinga EES-samningsins. Af öðrum EFTA-löndum hefur ein- ungis Austurríki lokið afgreiðslu á EES-samningnum. í Sviss hafa báðar deildir þingsins samþykkt samning- inn en endanleg afgreiðsla ræðst af þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer 6. desember. í Liechtenstein verðiu- þjóðaratkvæðagreiðsla um miðjan desember. í Noregi er búist við að samningurinn verði afgreiddur frá þinginu í þessari viku. í Finnlandi er stefnt að því að afgreiða samning- inn síðar í þessum mánuði og í Sví- þjóð um miðjan nóvember. „Það er of snemmt að segja til um hvenær utanríkismálanefnd lýkur sinni vinnu. Ég held að menn hafi tahð það hagkvæmnismál í þinginu að EES-samningurinn verði af- greiddur áður en menn fara að sökkva sér í fjárlagaafgreiðslu. Þetta er viimanlegt verk en því þarf að vera lokið í síðasta lagi fyrir áramót." Aðspurður segir hann það skipta stjómarhða htlu máh þótt meirihluti ahsherjamefndar samþykki þá til- lögu stj ómarandstöðunnar að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla mn EES. þessa þingsályktunarthlögu,“ segir „Það verða bara greidd atkvæði um Bjöm. -kaa ...alltafþegar O- Þaðerbetra . — 1 O-’ — —■ — — — — — wjj . ..W...W.....M, •••*••• ■■••■ • >/1“ *»■■ nju Digranessóknar að öllum likindum rísa. DV-mynd GVA Safnaöarfundur í Digranessókn: Umboð til kirkjubyggingar Almennur safnaðarfundur í Digra- nessókn samþykkti sl. sunnudag að gefa sóknarnefnd umboð tíl að hefja framkvæmdir við kirkjubyggingu á lóð fyrir neðan Hhðarveg í suður- hhðum Kópavogs. Fundinn sóttu rúmlega 100 manns. Eins og kunnugt er hafnaði aðalsafnaðarfundur í sókninni kirkjubyggingu við Víghól. Bjarni Bragi Jónsson, gjaldkeri sóknarnefndar, taldi umboðið duga fram að næsta aðalsafnaðarfundi en þá yrði máhð lagt fram í skýrslu- formi og hugsanlega greidd atkvæði. Bæjarstjóm Kópavogs samþykkti samhljóða að veita söfnuðinum lóð- ina fyrir skemmstu. Máhð á hins vegar eftir að fara fyrir skipulags- nefnd, umhverfisnefnd, bæjarráð, bæjarstjórn og bygginganefnd. Bjami Bragi taldi að lágmarkstími fyrir afgreiðslu væri fram að 6. des- ember en gera mætti ráð fyrir að framkvæmdir gætu hafist í desem- ber. Breyta verður upphaflegri hönnun kirkjunnar en Bjami bjóst við að kirkjan yrði svipuð að innan en breyta yrði úthtí að utan að ein- hveiju leytí. Reynt verði að nýta þá vinnu sem best sem þegar hefur ver- ið unnin. Bjami Bragi sagði að sóknamefnd- in væri út af fyrir sig ánægð með nýja staðinn úr þvi sem komið væri og hann væri mjög fahegur. -Ari T A T I O N Rúmgóður, burðarþolinn og sparneytinn bíll sem nýtist vel bæði sem íjölskyldubíll og í atvinnurekstri. Vegna atvinnurekstrar nýtist frádráttur á virðisaukaskatti. Verð ffá: 474.000 m. vsk 380.723 án vsk BIFREIÐAR OG LANÐBÚNAÐARVÉLAR HF. Ármúla 1 3 108 Reykjavik Simar 681200 & 31236 Eyjolfur Konráð Jónsson: Getum hagað málsmeð- ferð eins og okkur sýnist - nefiidarmeirihluti styður þjóðaratkvæðagreiðslu „í ahsherjarnefnd er klár meiri- hluti fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um EES-samninginn. Við getum því hagað málsmeðferðinni eins og okk- ur sýnist. Vondandi tekst að lempa máhn og ná einhverju allsherjarsam- komulagi en ég geri mér ekki tiltak- anlega miklar vonir um að það tak- ist,“ segir Eyjólfur Konráð Jónsson. Allsherjamefnd kemur saman til fundar á morgun þar sem tekin verð- ur fyrir þingsályktunartihaga stjóm- arandstöðunnar um þjóðaratkvæða- greiðslu um EES. Ennfremur bíður umfjöhunar nefndarinnar frumvarp stjómarandstöðunnar um þá breyt- ingu á stjómarskránni að þriðjungur þingmanna geti krafist þjóðarat- kvæðagreiðslu um umdehd mál. Að sögn Eyjólfs Konráðs hggur fyr- ir að hann og Ingi Bjöm Albertsson muni styðja þingsályktun stjómar- andstöðunnar um að efnt verði th þjóðaratkvæðagreiðslu um EES- samninginn. Samkvæmt þvi em sex nefndarmenn fylgjandi ályktuninni en einungis þrír stjórnarhðar á móti. Aðspurður segist Eyjólfur eiga von á að það muni taka nokkrar vikur áður en nefndin skih áhtí. „Ég á von á miklum umræðum um þetta mál,“ segir hann. I ahsherjamefnd eiga sæti auk Eyjólfs Konráðs og Inga Bjöms þau Sólveig Pétursdóttir formaður, Sig- björn Gunnarsson varaformaður, Bjöm Bjamason, Anna Ólafsdóttir Bjömsson, Kristinn H. Gunnarsson, Jón Helgason og Ólafur Þ. Þórðar- son. -kaa Cai. 12, 34 g, verð frá kr. 790,- pk. Cal. 12, 36 g, verð frá kr. 810,- pk. Cal. 12, 42 g, verð frá kr. 995,- pk. Cal. 16, 28 g, verð frá kr. 830,- pk. Cal. 20, 28 g, verð frá kr. 830,- pk. RIFFILSKOT • Cal. 22, short, verð frá kr. 150,- pk. Cal. 22, long, verð frá kr. 195,- pk. ODYR RJÚPNASKOT SENDUM í PÓSTKRÖFU 108 Reykjavík ® 687090 r***#***4<

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.