Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1992, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1992, Page 4
4 MMVIKUDAPVR 14. OKTjQBER 49^, Frétfir Greiðslubyrði okkar meiri en fyrr: Þriðji hver þorskur í greiðsluhítina Geta íslendingar sætt sig við, að komandi kynslóðir borgi fyrir lífs- kjör þeirra, sem nú eru á bezta aldri? Svarið virðist vera já og hafa verið lengi. Erlendar skuldir okkar eni töluvert minni en Færeyinga, eins og sést á meðfylgjandi grafi, en erlendar skuidir okkar eru þó nettó ekki fjarri því sem var hjá Færeyingum árið 1985. Við verðum á næsta ári enn að auka erlendar skuldir, samkvæmt fjárlagafrum- varpinu. Erlend skuldastaða þjóðarbús okkar mun versna verulega á yfir- standandi ári og hinu næsta. Greiðubyrði okkar af erlendum lánum verður meiri en nokkru sinnifyrr. Skuldum 52 prósent af árs- framleiðslunni Líklega verður skuldahlutfailið nálægt 49 prósentum af framleiöslu í landinu 1 ár, og árið 1993 stefnir í Sjónarhom Haukur Helgason 52 prósent, sem er með því hæsta sem hlutfall erlendra skulda okkar hefur orðið. Enn verri er staðan um greiðslubyrðina, vexti og af- borganir af erlendum lánum sem hlutfall af útflutningstekjum okk- ar. Greiöslubyrði af erlendum lán- um stefnir í að verða 25 prósent af útflutningstekjum árið 1992 og tæp- lega 30 prósent áriið 1993. HlutfaU erlendra skulda hefur hækkað jafiit og þétt frá árinu 1987, enda hefur veriö stöðugur halh á viðskiptum við útlönd allt þetta Erlendar skuldir nettó á mann - í þúsundum króna - 1760 7J*70 1 76o 1.650. Færeyjar I I Island 1.077 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 Grafiö sýnir erlendar skuldir nettó á mann á Islandi og í Færeyjum síð- ustu ár. Skuldir okkar eru enn talsvert minni en Færeyinga en þó ekki langt frá því sem skuldir þeirra voru á mann 1985. tímabil. Halhnn hefur síðan verið fjármagnaður með erlendum lán- um. Framangreind greiðslubyrði hefur jafnframt stöðugt verið að vaxa. Hún var um 6 prósent af landsframleiðslu eða 16 prósent af útflutningstekjum þjóðarinnar ár- ið 1987. Árið 1991 var hlutfah þetta komið í 8 prósent af landsfram- leiðslu eða 23 prósent af útflutn- ingstekjum þjóðarbúsins. Lítil huggun Viðskiptahallinn varð árið 1991 hinn mesti síðan 1982 eða 19 mihj- arðar. Viðskiptahahinn verður minni í ár, enda þolum við æ minna af slíku. Viðskiptahallinn í ár verð- ur sennilega 13,5 mihjarðar króna, sem samsvarar 3,5 prósentum af landsframleiðslu. A næsta ári er spáð 13 mihjarða haha á viðskipt- um við útlönd. Smávegis minnkun árshaha af þessu tagi dugir Utið, þar sem hahinn eykur enn á er- lenda skuldasöfnun, svo mikih sem hann áfram verður. Því er Utíl huggun í því, þótt Seðlabankinn segi okkur í skýrsl- um sínum, að þróun utanríkisviö- skipta og greiðslujafnaðar við út- lönd hafi verið hagstæöari á fyrra helmingi yfirstandandi árs en var á sama tíma í fyrra. Utanríkisvið- skiptin hafa einkennzt af minnkun tekna af útflutningi og enn meiri minnkun á innflutningi vöru og þjónustu. Þannig var vöruskipta- jöfnuður við útlönd hagstæður okkur um einn mihjarð króna á fyrri helmingi ársins í ár, en hann var óhagstæöur um 2,5 mihjarða króna á sama tímabih í fyrra. Þetta segir okkur aðeins söguna um út- flutning og innflutning á vöru. Þetta er í áttina að því leyti sem það sýnir áhrif aðhalds - en því miður einnig áhrif atvinnuleysis og annars efnahagsvanda. Mörgum finnst, að við eigum nú bara að slá meiri erlend lán. En væri þaö óhætt í ljósi hinnar hrik- legu skuldastöðu, sem hér hefur veriðrakin? Kári Þorgrímsson, bóndi í Mývatnssveit: „Frjálsa“ lamba- kjötið til sölu í Kolaportinu Gylfi Kristjánsscm, DV, Akuieyii; „Ég er mjög bjartsýnn á að þetta gangi vel og þama kemst ég eins nálægt neytendunum og kostur er,“ segir Kári Þorgrímsson, bóndi í Garöi í Mývatnssveit. Kári hefur sagt skihð við sjóðakerfi ríkisins, hann hafnar greiðslu frá hinu opinbera og ætlar sjálfur að selja lambakjöt sitt án styrkja sem aðrir bændur þiggja. „Ég ætla að vera með kjötið tíl sölu í Kolaportinu í Reykjavík um helgina og væntanlega verður framhald á. Ef vel tekst th hef ég áform um frek- ari sölu þama, t.d. á slátri og sviðum og jafnvel hangikjöti þegar nær dreg- ur jólum,“ segir Kári. Hann segir að ekki verði um útsölu að ræða í Kolaportinu en verðið verði heldur neðan við það verð sem er á nýju kjöti í verslunum. Ekki hafa ahir spáð vel fyrir Kára og menn m.a. keppst við að lýsa því yfir að sú stefna hans að hafna styrkjum ríkis- sjóðs við framleiðslu sína sé glapræði sem muni enda í gjaldþroti. Þá telur Kári að Kaupfélag Þingeyinga leggi á sig refsigjöld vegna þessa. „Eg fæ mjög háan sláturkostnað á þetta kjöt og hátt frystigjald, þaö er ekkert leyndarmál. Ef ekki ganga saman samningar við Kaupfélagið vegna þessa á það mál sennilega eftir að fara fyrir Verðlagsstofnun, ég reikna meö að ég skjóti því þangað." Kári segir einnig að það sé með ólíkindum hvað margir komist í það að kroppa af þessu kjöti einhverjar krónur frá því það breytist úr lambi í kjöt og þangað th það sé selt og hann sé ahtaf að uppgötva eitthvað nýtt í því sambandi. „Það em alls kyns sjóðagjöld og auðvitað virðisaukaskatturinn. Þetta er í rauninni aht saman plat með það aö virðisaukaskatturinn sé ekki nema 14%. Neytendur greiða 24,5% virðisaukaskatt á kjötið aha hnuna og síðan fá afurðastöðvamar rekstr- arstyrki sem nema um 8% úr ríkis- sjóði. Ef þetta væri eðlilegt hefði ég selt Kaupfélagi Þingeyinga lömbin mín með virðisaukaskatti, sem Kaupfé- lagið hefði fengið endurgreiddan úr ríkissjóði, og kaupmaðurinn síðan lagt á 14% virðisaukaskatt. En þetta gerist ekki svona. Kaupfélag Þingey- inga fær endurgreiddan virðisauka- skattinn af lömbunum, sem það kaupir af mér, leggur síðan 24,5% ofan á hehdsöluverðið og kaupmað- urinn gerir það svo aftur. í reynd er það 24,5% sem er innheimt af kjötinu og það virðist vera htið svo á að með því að greiða 8% af heildsöluverði til afurðastöðvanna sé verið að lækka sláturkostnaðinn sem þvi nemur. Nú er eftir að sjá hvort ég kemst inn í þetta kerfi en helst af öhu hefði ég vhjað að ríkið kæmi th móts við þá sem starfa á þennan hátt og léti þá ekki innheimta neinn virðisauka- skatt af sölunni. Þá væri þetta mjög gott mál,“ segir Kári. Þyrluf lug með farþega Þyrluþjónustan hf. hefur áhuga á að hefja áætlunarflug mihi Reykja- víkur og Akraness. Fyrirtækið hyggst þó fyrst um sinn hefja leigu- flug ef tilskilin leyfi fást. „Ef leigu- flugið gengur vel fórum við aha leið og sækjum um áætlunarleyfi," pegir Hahdór Hreinsson, framkvæmda.- sfjóri Þyrluþjónustunnar hf. „Við höfum orðið varir við áhuga fólks á að komast flugleiðis á mihi. Við erum ekki aö fara út í sam- keppni við Skahagrím. Þetta er bara thbreyting sem gefur fólki annan kost en Akraborgina eða landleið- ina,“ tekur Hahdór fram. Flug með þyrlu mihi Reykjavíkur og Akraness tekur um 9 th 10 mínút- ur að meðaltali, að sögn Halldórs. Fargjaldið í leiguflugi aðra leið yrði 1600 krónur. -IBS í dag mælir Dagfari Fussað á allaballa Alþýðubandalagið hefur gert ríkis- sijóminni thboð sem erfitt er að hafna. En samt hefur ríkisstjómin hafnað því. Það er að segja ef Al- þýðubandalagið ætlar að standa við thboðið. Ef Alþýðubandalagið er thbúið til að breyta thboðinu eða gera annars konar thboð er ríkis- stjómin hugsanlega thbúin th að taka því en meðan Alþýðubanda- lagið gerir thboð, sem það sjálft vih gera en ekki thboð eins og ríkis- stjómin vih að þaö sé, er auðvitað hth von th að ríídsstjómin taki th- boðinu. Alþýöubandalagið hefur áhyggj- ur af ástandinu í þjóðfélaginu. Sér- staklega hefur Alþýðubandalagið áhyggjur af stöðu ríkisstjómarinar og erfiðleikum hennar við að rétta ástandið við. Alþýöubandalagið hefur þess vegna boðist th að taka höndum saman við ríkisstjómina um að leysa úr efnahags- og at- vinnumálunum með því að taka upp samstarf um að ríkisstjómin fari þær leiðir í efnahags- og at- vinnumálum sem Alþýðubanda- lagið hefur lagt th. Þetta er góður og göfugur hugsunarháttur hjá Al- þýðubandalaginu sem lyftir sér yfir dægurþrasið og hinn hefðbundna ríg mihi stjómar og sljómarand- stöðu og býðst th að vera með í því að taka á málunum eftir að ríkis- stjórnin hefur gefist upp á því. Alþýðubandalagið vhl sem sagt rétta .ríkisstjóminni hjálparhönd með því að leyfa ríkisstjóminni að grípa th aðgerða sem Alþýðu- bandalagið hefur bent á, án þess að erfa það við ríkistjómina og án þess að segja eftir á að Alþýðu- bandalagið hafi bjargað málum. Alþýðubandalagið vih með öðram orðum ganga th samstarfs við rík- isstjórnina án þess að ganga í ríkis- stjómina og þannig fær rhtisstjóm- in að sitja áfram eftir að hafa fram- kvæmt stefnu Alþýðubandalags- ins, án þess að Alþýðubandalagið skipti sér frekar af ríkisstjóminni eða sé á nokkum hátt bendlað við hana. Dagfara finnst að ríkisstjómin eigi að vera þakklát fyrir þetta góða boð frá Alþýðubandalaginu. Það sýnir hvað Alþýðubandalagið er góður flokkur og það sýnir hvað auðvelt væri að leysa vandamálin ef ríkisstjómin vhdi þiggja ráð Al- þýðubandalagsins. í raun og vera er það skandah aö svona góður flokkur skuh ekki eiga sæti í ríkis- sfjóm, vegna þess að þá hefði eng- inn efnahagsvandi dunið yfir okk- ur og þá væri búið að leysa vanda- málin fyrir löngu. Dagfara finnst að ríkisstjómin hafi ahs ekki efni á að setja sig á háan hest og neita að taka thboðinu frá Alþýðubandalaginu á þeirri for- sendu einni að thboðið feh í sér th- lögur Alþýðubandalagsins. Annaö mál væri ef Alþýöubandalagið byði ríkisstjóminni upp á samstarf sem gengi út á það að fara eftir efna- hagsúrræðum ríkisstjómarinnar. Þá er eðlhegt að ríkisstjómin neiti slíku thboði, vegna þess að þau úrræði hafa ekki gengið og ríltis- stjórnin veit það og hefur vit á því að fara ekki sínar eigin leiðir leng- ur. Þess vegna lætur hún aht reka á reiðanum, vegna þess að ríkis- stjómin getur hvorki fariö sínar eigin leiðir né heldur vih hún fara þær leiðir sem Alþýðubandalagið stingur upp á. Þetta er vandinn og ef Alþýðu- bandalagið er svona góöur flokkur, sem það er, hvers vegna þá ekki að gera ríkisstjóminni það tilboð að nota úrræði Alþýðubandalags- ins án þess að ganga th samstarf við Alþýðubandalagið? Alþýðu- bandalagið vih hvort sem er ekki ganga í ríkisstjórnina og Alþýöu- bandalagið er ekki aö gera ríkis- stjóminni thboð sín vegna, heldur er tilboðið lagt fram th að allir flokkar geti tekið þátt í því aö leysa efnahagsmálin. Það má til sanns vegar færa að allir flokkarnir hafa búið th vandamálin og hvers vegna ættu þá ekki ahir flokkamir að taka þátt í að leysa þau? Ef hægt er að nota thboð Alþýöubandalags- ins um samstarf án þess aö ganga th samstarfs og nota thboðið með því að hafna því fær ríkisstjómin rós í hnappagatið fyrir að nota ráð stjómarandstöðunnar en ekki sín og þá getur ríkisstjómin líka skammað stjómarandstöðuna fyr- ir að hafa lagt á ráðin um lausnir sem ekki ganga! Ekki verður ríkisstjómin skömmuð fyrir ráð sem hún hefur ekki sjálf fundið upp og stjómar- andstaðan hefur lagt fram og ríkis- stjómin farið eftir! Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.