Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Page 18
18 MANUDA9.UK 26. OKTÓKEK 1992. Útboð Óskum að taka á leigu húsnæði og tóm- stundaaðstöðu fyrir bandaríska starfsmenn varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Staðsetning verður að vera: - Innan tveggja og hálfs stundar akst- urs frá Keflavíkurflugvelli -í sveitaum- hverfi - Ca 15 km fjarlægð frá silungs- veiðisvæði. íbúðarhús verða að hafa: - Átta svefnherbergi, - Eldhús með tveim eldavélum og borðstofu - Gufu- bað - Geymsluherbergi - Kæli/frysti- skáp- Þvottaherbergi - Þrjú snyrtiher- bergi (tvö þeirra fullkomin með sal- erni, baðkari eða sturtu). Byggingin verður að vera í samræmi við allar byggingar- og skipulagsregl- ur. Staðsetningarkröfur: - Tjaldstæði, nægileg fyrir 15 tjöld - Bílastæði fyrir tuttugu bíla - Golfvöll- ur, eða að minnsta kosti lA hektari til slíkra nota - Ca 300 m2 hlaða eða geymsluhúsnæði. (Jtboðsfrestur er til 5 nóvember 1992 Nánari upplýsingar veitir: Varnarliðið PWD Planning DIV. 235 Keflavíkurflugvöllur, P.O. Box 216, C/O Ari Hjörvar. Sími: 92-54120. Fax: 92-57898. GOODjpYEAR VETRARHJÓLBARÐAR 60 ÁR Á ÍSLANDI UMBOÐSMENN UM LAND ALLT m HEKIA FOSSHÁLSI 27 SÍMI 695560 674363 Popp Frank Zappa á tónleikum. DV-mynd Rasl Ekki í svampfrakka Er Frank Zappa rokkari, (Fjassari eða nútímatón- skáld? Líklega blanda af þessu þrennu, með meiru. Orðkynngi og hugmyndaflug rokkskáldsins og þjóðfé- lagsgagnrýnandans gerði hann snemma að útlaga í bandariskri hljómplötuútgáfu og bannvöru á fjölda útvarpsstöðva. Hann rekur því sitt eigið útgáfufyrir- tæki sem býður upp á heimsins bestu „öðruvísi" skemmtun. í gegnum tíðina hefur hann öðlast viður- kenningu flestra innan rokk- og djassheimsins og einn- ig margra meðal hinna klassísklærðu. Á neðangreindum geislaplötum eru hljómleikaupp- tökur með gömlum og nýjum verkum Zappa en einnig má heyra lög og brot úr verkum eftír aðra. Má nefna t.d. „Bolero“ eftir Ravel, „Purple Haze“ eftir Hendrix, „Stairway to Heven" (í reggae-taktí), mars úr „Sögu hermannsins“ eftír Stravinsky og bút úr píanókonsert eftir Bartok. Sama hljómsveitin leikur á öllum upptökunum og er þar vahnn maður í hveiju rúmi enda þarf meira en venjulega meðaljóna til að þrælast í gegnum sumar útsetningar meistarans. Hljóðfæraskipan minnir á Blood, Sweat and Tears og Chicago á sínum tíma, að viðbættum víbrafóni, marimbu og hljóðgerflum. „Make a Jass Noise Here“ er að talsverðu leyti án söngs og minnir dálítíð á þá tíma er bræðingstónlistin kaUaðist djass/rokk og hljómsveitir eins og Colosseum og Mahavishnu Orchestra voru upp á sitt besta. Sungnu lögin eru fleiri á „The Best Band...“ og meira glens og gaman. Þessi tvö lagasöfn (ásamt plötunni og myndbandinu „Does Humor Belong In Music“) eru jafngóð fyrir byij- endur í Zappafræðum og eldri aðdáendur sem vflja endumýja kynni sín af kappanum og fá beint í æð frábæra tónleikastemningu þar sem engin andhtslyft- ing hefur farið fram á músíkinni eftir á. - Enginn Hljómplötur Ingvi Þór Kormáksson svampfrakki, ef svo má segja. Tónhst Frank Zappa er enn í dag jafn spennandi og ónvenjuleg og fyrir 20 árum sem segir sitthvað um hæfni hans en Uka eitthvað um íhaldssamt eðli rokk- tónUstar. Þótt rokkið fái hina ýmsu merkimiða og kalUst eitt í dag og annað á morgun er ótrúlega mikið um blindgötur og öngstrætí, ekki síst þegar menn eru að rembast við að vera frumlegir. Frank Zappa: The Best Band You Never Heard In Your Llfe, I og II. Frank Zappa: Make A Jass Noise Here, I og II. Memiing BíóhöUin/Laugarásbíó: Lygakvendið: ★★ Heima er best Enn einu sinni klikkar ameríski formúluendinn og rífur niður í leiðinni skemmtilega bíómynd. Nú á tím- um markaðskannana og prufusýninga eru fáar mynd- ir sem koma frá bíó-risunum vestra án þess aö vera með farsælan endi, sérstaklega ef um afþreyingar- myndir er að ræða. Stundum er þessi góði endir svo yfirgengilegur að allar persónur veltast um hverja aðra þvera til þess að tryggja að enginn í sögunni verði óhamingjusamur að henni lokinni. Gáfulegar myndir hafa skyndilega misst allt vit, persónur tekið út þroska og breytingu á tveim mínútum, sem aðrir þurfa að borga milljónir tíl sálfræðinga fyrir, lífsskoðunum og hegðunum fleygt burt jafn hátíðlega og ruslinu. Kvikmyndin Housesitter er mynd sem þarf að labba út af rétt undir lokin til þess að skflja við hana með góðum minningum. Það er sniðugu handriti og skemmtilegum leikurum að þakka aö myndin liður hreint ágætlega hjá og byggir upp sögufléttuna sem verður sífellt flóknari eftir því sem persónumar koma sér í meiri vandræði. Steve Martín leikur ástfanginn arkitekt sem byggir draumahús í sveitinni handa æskuástinni (Darta Del- aney). Rómantíkin er í hámarki þegar hann sýnir henni húsið í fyrsta sinn og ber upp bónorð. Hún seg- ir nei. Nokkrum mánuðum seinna, kvenmannslaus og niðurbrotinn, rekst hann á gengilbeinu (Goldie Hawn) sem dregur hann í rúmiö. Hann stingur af um morguninn en hún gerir sér litíö fyrir og leggur undir sig draumahúsið. Gengilbeinan lýgur með bros á vör að öllum 1 sveitinni, þar á meðal foreldrum hans og hinni fyrrverandi, að hún sé spánný eiginkona arki- tektsins. Þegar hann ber loks að garði em allir hæst- ánægðir með ektakvendiö og ekki laust við að gamla kærastan sé afbrýðisöm. Hann sér sér leik á boröi og býður hinni tungulipru gengilbeinu að búa í húsinu ef hún vilji þykast vera konan hans til þess eins að fá æskuástina til að snúast hugur. Lygaflétta þeirra er með endemum og þau ná líka að koma höggi á hvort annað með ótrúlegum sögum meðan þau em að semja sambandið frá grunni. Það þarf ekki kjameðhsfræðing til að átta sig á því hvað muni gerast næst en handritshöfundurinn og leikstjórinn misreikna sig og senda út röng boð á röng- um tímum um hvað sé í væntum. Leikhópurinn er svo góður að það er engin spuming um það að Martín er bálskotinn í Delaney og hún í honum. Goldie er líka glerfín sem sálarflækjan sem hengir sig í Martin og umfram allt húsið hans. AUt til endaloka Utur út fyrir, þvert ofaní öU lögmál Holly- Kvikmyndir Gísli Einarsson wood, að myndin muni fá á sig hárbeittan endi, þvi ekkert gefur til kynna að Martin muni á eðUlegan hátt snúast hugur. Ekkert væri því tíl fyrirstöðu að Martín fleygði Goldie á dyr um leið og hann hefði krækt endanlega í hina, nokkuð sem væri enn sterkara vegna þess að Goldie hafði verið ægUega góð við aUa og reddað öllu (með lygum reyndar). Hann hefði bara verið sam- kvæmur sjálfum sér og hans farsæU endir verðskuld- aður. En svoleiðis ádeUa væri of góð til að vera sönn. Við" fáum í staðinn dæmigerðan gervUegan góðan endi þar sem aUt það versta sem hægt er að ímynda sér gerist. Mynd sem varö sífeUt skemmtUegri því sem lengra leið, hrynur í einni svipan og skUur mann eftir mun vonsviknari en ef fyrstu 99 mínútumar hefðu verið eins andlausar og síðust þrjár. Housesitter (Band. 1992) 102 mln. Saga: Mark Steln, Brian Grazer (Splash!). Handrit: Stein. Leikstjórn: Frank Oz (Dirty Rotten Scoundrels, What About Bob?). Leikarar: Steve Martin, Goldie Hawn, Dana Delaney (China Beach), Julie Harris, Donald Molfat, Peter MacNicol.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.