Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1992, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992.
Fréttir
Ályktun flölmenns borgarafundar á Seltjamamesi um skipulagsmál:
Svæðið vestan núverandi
-
■ *?í.
byggðar verði fólkvangur
: Bæjarstjórn Seltjamamess boðaði
til almenns borgarafundar í gær-
kvöldi til að kynna umdeildar hug-
myndir að skipulagi vestast á Sel-
tjamarnesi. 150-200 Seltimingar
sóttu fundinn og samþykktu, með
yfirgnæfandi meirihluta, ályktun
þar sem óskað var eftir að óbyggða
svæðið fyrir vestan núverandi byggð
yrði skipulagt sem fólkvangur og
bæjarstjóm leiti leiða til að kaupa
landið fyrir hönd bæjarbúa. Þetta
gengur þvert á þær skipulagshug-
myndir sem uppi hafa verið hjá Sig-
urgeiri Sigurðssyni, bæjarstjóra og
oddvita sjálfstæðismanna. Þá sam-
þykkti fundurinn ályktun þar sem
skorað var á bæjarstjóm að gangast
fyrir skoðanakönnun meðal bæj-
arbúa um kosti í skipulagningu
svæðisins.
„Músarungar“
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri
kynnti í upphafi fundarins nokkrar
hugmyndir að skipulagi vestast á
nesinu sem allar fólu í sér aukna
byggð og miklar vegaframkvæmdir.
Hann sagöi fjárhagsleg rök hggja að
baki tihögunum. Brýnt væri að selja
lóðir og fá þannig peninga í bæjarsjóð
upp í þau umfangsmiklu landakaup
sem ráðist hefði verið í. Ennþá væm
ókeypt lönd vestast á nesinu fyrir
um 94 mhljónir og vahð stæði á milli
þess að kaupa þau eða ráðast í önnur
brýn verkefni eins og holræsagerð,
stuðning við íþróttafélagið og stækk-
un skólans. „Þótt náttúran sé góðra
gengur þvert á hugmyndir bæjarstjóra um aukna byggð
Mikið fjölmenni var á borgarafundinum á Seltjarnarnesi í gærkvöldi en þar var samþykkt ályktun um að umdeilt
svæði á nesinu yrði gert að fólkvangi.
DV-mynd GVA
gjalda verð og músarungar séu ágæt-
ir þá verða þeir að koma á eftir böm-
unum okkar,“ sagði Sigurgeir.
Guðrún Þorbergsdóttir, annar af
tveimur fulltrúum minnihlutans í
bæjarstjóm, sagði að sér leiddist
jarmtónninn í bæjarstjóra um pen-
ingamál á sama tíma og hann segði
að bæjarsjóður stæði vel. Hægt væri
að finna ýmsar leiðir til að fjármagna
landakaupin, meðal annars með
beinni þátttöku bæjarbúa, með því
að bjóða þeim að kaupa skuldabréf
og eignast um leið hiuta í landinu.
„Rothögg“
Vhhjálmur Lúðvíksson tók undir
hugmynd Guðrúnar um skulda-
bréfakaup bæjarbúa og sagði að hug-
myndir bæjarstjóra væm rothögg
fyrir náttúrulífið á nesinu. „Bæjar-
stjóri stendur í gmndvaharmisskhn-
ingi um náttúruvernd. Þetta mál
snýst ekkert um mýs eða músarunga
heldur einmitt um okkur, börnin
okkar og þeirra framtíð."
Hugmyndir bæjarstjóra um að
auka við byggð vestast á nesinu hafa
mætt mikilh andstöðu innan hans
eigin flokks. í DV fyrir skömmu sagði
Magnús Erlendsson, fyrrverandi for-
seti bæjarstjórnar, aö ef farið yrði
að thlögum bæjarstjórans yrði það
póhtísk kviðrista og Sjálfstæðis-
flokkurinn myndi klofna.
Á fundinum í gær sagðist Guðmar
Magnússon, sem einnig er fyrrver-
andi forseti bæjarstjómar fyrir D-
hstann, styðja friðun á umræddu
landsvæði. Hann lagði th að bæjar-
stjórnin legði skipulagshugmyndir
sínar th hhðar, að minnsta kosti fram
yfir næstu kosningar. Siv Friðleifs-
dóttir, fuhtrúi minnihlutans í bæjar-
stjórn, sagði tihögu Guðmars afar
athyghsverða og hljóma eins og van-
traustsyfirlýsing á meirihluta bæjar-
stjómarinnar.
-ból
Herkulesfiugvél frá varnarliðinu lenti á Reykjavikurflugvelli í gærkvöldi með
slasaðan sjómann af togaranum Skafta sem var að veiðum út af Langa-
nesi þegar maðurinn slasaðist í gær. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins
þar sem Gæsluþyrlan var ekki til taks. Varnarliðsþyrla fór að togaranum,
hífði hinn slasaða um borð og flutti hann til Akureyrar þar sem Herkules-
inn tók við honum og flutti hann suður. Myndin var tekin á Reykjavikurflug-
velli i gærkvöldi. DV-mynd S
Slökkti þrisvar í líf■
seigum sorphaug
Slökkvhiðið hefur þrisvar sinn-
um á síðasta sólarhring farið að
gömlu sorphaugunum í Gufunesi
th að reyna að slá á eld og reyk sem
sífellt stígur upp úr gömlum sorp-
haug. „Þetta viröist vera sjálfnær-
andi á súrefni þama niðri í jörð-
inni,“ sagði Bergsveinn Alfonsson
slökkvihðsvarðstjóri við DV í
morgun.
Slökkvihðiö fór uppefhr um há-
degisbihð í gær, síðan um hálftvö
í nótt og aftur á áttunda tímanum
í morgun th að dæla á hinn shog-
andi sorphaug. Bergsveinn sagði
að eina leiðin th að kæfa eldinn
endanlega væri að ryðja yfir haug-
inn og stæði slíkt th.
-ÓTT
Siv Friðleifsdóttir:
Bæjarstjóri er einn
um skoðanir sínar
- þetta kom ekki á óvart, segir bæjarstjórinn
„Það var greinhega eindregin
skoðun fundarmanna að það eigi
ekki að byggja á þessu svæði. Mér
fannst skína í gegn að bæjarstjórinn
er einangraður í þessu máh og fólk
tók ekki undir hans sjónarmiö á
fundinum. Ég sé ekki að þessar
skipulagsthlögur nái fram að ganga.
Vilji bæjarbúa er svo greinhega
sterkur gegn þeim,“ segir Siv Frið-
leifsdóttir, annar fuhtrúi minnihiut-
ans í bæjarstjóm Seltjamarness.
„Fundurinn kom mér að engu leyti
á óvart. Það hafði komið fram fyrir
fundinri að það er stór hópur Seltirn-
inga sem ber ipjög sterkar tilfinning-
ar th svæðisins vestast á nesinu.
Andstaðan kom mér því ekki á óvart.
Við munum taka fuht tilrit th þeirra
skoðana sem hér hafa komið fram
eins og skoðana annarra Seltiminga
sem hafa viijað tjá sig um márið,"
segir Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
stjóri á Seltjamamesi.
Hann segir að bæjarstjómin muni
haida ótrauð áfram að vinna að
skipulaginu.
„Ég á fastlega von á því að bæjar-
stjóm muni kanna hug ahra Seltirn-
inga um máhð og hafa það th hhð-
sjónar þegar ákvörðun verður tekin
en skoðanakönnun er náttúrlega aht
annað en kosning. Að mínu viti væri
það ekki skemmd á svæðinu þó þessi
htla nýting yrði á því. Ef þessi hóp-
ur, sem kom hér fram í kvöld, kemur
hins vegar með seðla á silfurbakka
fyrir landverðinu þá væri fáránlegt
að hlusta ekki á það. Það er því aht
opið í þessum málum," sagöi Sigur-
geir.
-ból
Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjómar:
Hvorki Ijúft né skylt að svara
Magnús L. Sveinsson, forseti borg-
arstjómar, sagði á borgarstjómar-
fundi í gærkvöld að sér væri hvorki
ljúft né skylt að svara fyrirspum frá
Nýjum vettvangi um fundarsköp -
en fyrirspurnin er tilkomin vegna
orða Markúsar Amar Antonssonar
borgarsfjóra á borgarstj ómarfundi á
dögunum.
„Mér er th efs að nokkur borgar-
fuhtrúi í sögu Reykjavíkur hafi leyft
sér annað eins orðbragð um póhtíska
andstæðinga," sagði Magnús L.
Sveinsson meðal annars þegar hann
sagði Óhnu oft nota verri orð en aðr-
ir borgarfuhtrúar leyfa sér að gera.
Ólína Þorvarðardóttir sagði svar
Magnúsar vera hrokafuht og snaut-
legt.
Markús Öm Antonsson borgar-
stjóri tók eirihig th máls. Hann sagð-
ist hafa haldið að skrápurinn á Óhnu
væri ekki eins þykkur og hann virt-
ist.
Kristín Á. Ólafsdóttir, félagi Ólínu
í Nýjum vettvangi, sagði í sinni ræðu
að sér dytti helst í hug einelti, fyrir
svo miklum árásum yrði Órina aö
háifu forseta borgarstjómar og borg-
arstjóra. .Sme