Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1992, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1992, Blaðsíða 26
34 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992. Afmæli Bjöm Ríkarður Lárusson Bjöm Ríkaröur Lámsson hús- gagnasmíðameistari, Hringbraut JM í Hafnarfirði, verður fimmtugur á morgun, laugardag. Starfsferill Bjöm fæddist í Reykjavík og ólst upp í Skuggahverfinu. Hann lauk prófi í húsgagnasmíði frá Iðnskól- anum í Reykjavík árið 1964 og hefur starfað í iðninni upp frá því. Frá árinu 1967 hefur Bjöm rekið eigið fyrirtæki, Grein hf., ásamt Geir Oddgeirssyni. Bjöm hefur í mörg ár setið í stjóm Félags húsgagna- og innréttinga- framleiðenda og var þar formaöur 1975-79. Hann var einnig í fram- kvæmdastjóm Landssambands iðn- aöarmanna frá 1985-89 og hefur ver- ið í iðnfræðsluráði frá 1990. Bjöm sat í stjóm Lyftingadeildar KR fyrstu árin eftir að hún var stofnuð 1970 og var fyrsti formaður Lyftingasambands íslands 1973. Ennfremur sat Bjöm í Olympíu- nefnd íslands 1973-89 og hefur setið í aðalstjóm KR frá 1979, sem með- stjórnandi, ritari og varaformaður. Fjölskylda Björn kvæntist 26.6.1976 Eddu Ársælsdóttur, f. 17.2.1948, kennara- skólanema. Hún er dóttir Ársæls Pálssonar og Álfheiðar Guðmunds- dóttur. Böm Björns og Eddu eru: Skarp- héðinn Orri, f. 25.1.1971; Ingibjörg Hrefna, f. 10.7.1974; og Sigurbjörn Jóhannes, f. 1.12.1975. Björn á fimm systkini. Þau em: Hrafnlúldur, læknir í Svíþjóð; Heimir Fjeldsted, mjólkurfræðing- ur; Eggert, formaður HÍK; Birgir, verslunarstjóri; og Sigurbjöm. Faöir Björns var Láms Harrý Eggertsson, f. 22.6.1910, d. 7.4.1991, sjómaður. Móðir hans er Ingibjörg Bjömsdóttir, f. 22.8.1911, húsmóðir íReykjavík. Ætt Láms Harrý var sonur Eggerts Fjeldsted, b. á Klukkulandi í Dýra- Til hamingju með afmælið 6. nóvember firði, bróður Lárusínu, móður Helga Hjörvar útvarpsmanns og ömmu Auðar Haralds rithöfundar. Eggert var sonur Lárusar Fjeldsted, b. í Kolgröf í Eyrarsveit, bróður Andr- ésar á Hvítárvöllum, afa Lámsar Fjeldsted hæstaréttardómara, afa Katrínar Fjeldsted, læknis og borg- arráðsmanns. Andrés var einnig langafi Guðjóns Teitssonar, for- stjóra Ríkisskipa. Láms var sonur Vigfúsar, gullsmiðs í Stóm-Tungu á Fellsströnd og ættfoður Fjeldsted- ættarinnar, Sigurðsonar og Karitas- ar Magnúsdóttur, sýslumanns í Búðardal, Ketilssonar. Móðir Lárusar var Ríkey Jóns- dóttir, b. á Meiribakka, Jóhannes- sonar, b. á Blámýrum, Jónssonar. Móðir Jóhannesar var Þóra Jóns- dóttir, b. á Laugabóli í Ögurhreppi, Bárðarsonar, ættfóður Arnardals- ættarinnar, Illugasonar. Móðir Rík- eyjar var Helga Bjarnadóttir í Haga- koti, Einarssonar. Ingibjörg er dóttir Bjöms, vörubíl- stjóra í Reykjavík, Guðmundssonar, b. á Hrafnagili í Laxárdal, Guð- mundssonar, b. á Ingveldarstöðum, bróður Sigríðar, langömmu Péturs, fóður Siguijóns borgarráðsmanns. Guðmundur var einnig bróðir Þor- valds á Skefilsstöðum, langafa Jóns, alþingisforseta á Akri, föður Pálma alþingismanns en Þorvaldur var einnigrafi Ragnheiðar, langömmu Magnúsar frá Mel fjármálaráðherra og Halldórs Þormar, sýslumanns á Sauðárkróki, Jónssona. Guðmund- ur var sonur Gunnars, hreppstjóra og ættfóður Skíðastaðaættarinnar, Gunnarssonar. Móðir Björns var Ingibjörg Bjömsdóttir, hreppstjóra á Hafragili í Skagafiröi, bróður Guð- mundar á Ingveldarstöðum. Móðir Ingibjargar var Guðrún Ólafsdóttir, smiðs á Ingveldarstöðum og Hafra- gili, Kristjánssonar og Sigurlaugar, systur Gunnars á Skíðastöðum. Móðir Ingibjargar og amma Egg- erts var Evlalia Olafsdóttir, sjó- manns og steinsmiðs í Hlíðarhúsum í Reykjavík, Jónssonar, b. í Hrúts- staðahjáleigu, Bjarnasonar, b. á Björn Ríkarður Lárusson. Syðra-Velli í Flóa, Þorgrímssonar, b. í Ranakoti, Bergssonar, hrepp- stjóra og ættföður Bergsættarinnar, Sturlaugssonar. Móðir Evlalíu var Sigurbjörg Jónsdóttir, b. í Hvammi í Kjós og á Gróttu á Seltjamarnesi, Jónssonar. Björn verður að heiman á afmæl- isdaginn. Þórður Kr. Guðmundsson 95 ára isdaginn. Ragnheiður Pálsdóttir, Laufvangi9, Hafharfírði. Guðný Kristjana Magnúsdóttir, Kirkjubrautl2, HöfníHoma- flrði. Guðný er fráHoltaseliá MýrumiA- Skaftafellss. Hún dvelurnúáElli- oghjúkmnar- heimilinu Skjól- garðiáHöfh. 90 ára Oddgerður Geirsdóttir, Aragötu 12, Reykjavfk. 60 ára Jóhann Antoniusson, Haðalandi 13, Reykjavík. Magnús Hallgrimsson, Boilagötu 3, Reykíavik. Sigurður O. Bjarnason, Suðurgötu 13, Hafnarfirði, Reynir Ástþórsson, Bleikjukvísl 20, Reykjavík. Reynir verður erlendis á afmælis- daginn. Jóhanna Sigurjónsdóttir, Hólagötu 18, SandgerðL Magnús Magnússon, Sraárahvammi 12, Hafnarfirði. 80ára__________ 50ára Ingigerður Bjarnadóttir, Andrésfjósi, Skeiðahreppi. Sesselja Gísladóttir, Garöasenda 5, Reykjavik. 75 ára Júiíus Jóakimsson, Túngötu 16, Grenivík. Ámi Ingóifur Arthúrsson, Réttarholtsvegi 61, Reykjavík. 40ára Kristrún Jónsdóttir, Lónabrautö, Vopnafirði. Unnur Ingvarsdóttir, Tómasarhaga 38, Reykjavik. Sigurjóna Friðjónsdóttir, Háaleitisbraut 151, Reykjavík. 70 ára Fanney Jónsdóttir, Seljahlið 3f, Akureyn. Fanney ver ður að heiman á afinæl- Magnús Bergmann Matthíasson, Garðavegi 1, Keflavík. Ásiaugur Haddsson, Skútahrauni 3, Mývatnssveit. Guðmundur S. Stefánsson, Fögmbrekku 15, Kópavogi. " Jarðþrúður Baidursdóttir, Klébergi 15, Þorlákshöfn. Bjarni Eiiasson, Bræðraborgarstíg 43, Reykjavík. Heiga Sigurðardóttir, Egilsstöðum 1, Egilstöðum. Bridge_________________________________________________________ Stórmót Bridgefélags Munans Mikil keppni var um efstu sæti á stórmóti Bridgefélags Munans í Sand- gerði sem spilað var laugardaginn 31. október en að lokum stóðu uppi sem sigurvegarar þeir Valur Sigurðsson og Sigurður Sverrisson. Alls skráðu 53 pör sig til leiks í mótið aö þessu sinni, en það hefur jafnan verið vel skipað keppendum. Keppnisstjóri og útreiknismeistari á mótinu var Kristján Hauksson. Lokastaða efstu para varð þannig: 1. Valur Sigurðsson-Sigurður Sverrisson 2326 2. Helgi Sigurðsson-Helgi Jónsson 2319 3. Matthias Þorvaldsson-Sverrir Ármannsson 2305 4. Hjördís Eyþórsdóttir-Ásmundur Pálsson 2300 5. Páll Valdimarsson-Karl Sigurhjartarson 2270 6. Ólafur Steinason-Stefán Jóhannsson 2264 7. Gylfi Baldursson-ísak Öm Sigurðsson 2258 8. Guðmundur Sveinsson-Magnús Ólafsson 2228 9. Hermann Lárusson-Jakob Kristinsson 2201 10. Bragi Hauksson-Sigtryggur Sigurðsson 2184 Þórður Kr. Guðmundsson vélfræð- ingur, Akurgerði 12, Vogum á Vatnsleysuströnd, verður fertugur á morgun. Starfsferill Þórður fæddist í Garðhúsum í Vogimum og ólst upp á Vatnsleysu- ströndinni. Hann útskrifáðist sem vélfræðingur úr Vélskóla íslands áriö 1973 og lauk síðar meistara- prófiívélvirkjun. Þórður starfaði sem vélstjóri á mótorbátnum Héðni árið 1971 og hefur lengst af síðan þá verið vél- stjóri á ýmsum skipum. í dag rekur hann eigið verkstæði í Vogunum og annast þar m.a. við- gerðir á bátum og bílum. Fjölskylda Þórður kvæntist 27.9.1975 Maríu Gunnarsdóttur, f. 23.8.1950, sjúkra- liða. Hún er dóttir Gunnars Einars- sonar, verkstjóra í Keflavík, og Jó- hönnu Júlíusdóttur húsmóður. Böm Þórðar og Maríu eru: ívar Öm, f. 16.2.1975; Guðríður Kristín, f. 26.12.1977; Halla Guðbjörg, f. 7.4. 1983. Þórður átti fimm systkini, eitt þeirra er látið. Þau em:.Þórunn Kristín, f. 8.5.1947; Lfija Júlia, f. 13.6.1948; Andrés Ágúst Þorkell, f. 31.3.1951; Sigurður Magnús, f. 14.9. 1957, d. febr. 1987; Guðrún, f. 27.8. 1959. Foreldrar Þórðar em Guðmundur í. Ágústsson, f. 25.8.1918, skipstjóri, og Guðríður Þórðardóttir, f. 15.6. 1923, ljósmóðir og húsmóðir. Þau búa í Vogum á Vatnsleysuströnd. Ætt Guðmundur er sonur Ágústs Andrésar Þorkels, útvegsb. í Hala- koti á Vatnsleysuströnd, en systur hans vom Ragnheiöur María í Há- koti, amma Hauks Helgasonar, að- stoðaritstjóra DV, og Margrét, móð- ir Guðmundar í. Guðmundssonar, ráðherra og sendiherra. Ágúst var sonur Guðmundar, útvegsb. á Neðri-Bmnnastöðum, ívarssonar, formanns í Skjaldarkoti, Jónssonar. Móðir Guðmundar var Ragnheiður Gísladóttir. Móðir Ágústs var Kat- rín, systir Magnúsar, prófasts og alþingismanns á Gilsbakka, föður Péturs ráðherra og Ragnheiðar, ömmu Jakobs Frímanns Magnús- sonar menningarfulltrúa. Katrín var dóttir Andrésar, hreppstjóra í Syðra-Langholti, Magnússonar, al- þingismanns þar, Andréssonar. Móðir Andrésar í Syðra-Langholti var Katrín Eiríksdóttir, dbrm. og ættfóður Reykjaættarinnar, Vigfús- Þórður Kr. Guðmundsson. sonar. Móðir Guðmundar skipstjóra var Þuríður Kristín Halldórsdóttir, b. á Kistufelli í Lundarreykjadal, Jóns- sonar, b. á Skálpastöðum, Bjarna- sonar. Móðir Halldórs var Guðrún Jóhannsdóttir. Móðir Þuríðar var Kristín Magnúsdóttir, b. í Hrafna- björgum á Hvalfjarðarströnd, Ein- arssonar, og Þuríðar Árnadóttur. Guðríður er af Víkingslækjarætt, dóttir Þórðar Kristins Jónassonar, b. í Sviðugörðum og síöar útvegsb. á Stóru-Vatnsleysu, og konu hans, Þórunnar Einarsdóttur húsmóður. Merming_____________________ Glæsilegur orgelleikur Tónlistardögum Dómkirkjunnar var fram haldið í gærkvöldi. Þá lék Hörður Áskelsson einleik á orgel. Á efnisskránni voru verk eftir Pedro Arajo, Francois Couperin, Louis Nicolais Marchand, Domenico Zipoli, Johann Sebastian Bach og Jón Nordal. Eins og sjá má af þessari upptalningu tónskálda var efnisvalið um margt dálítið sérstakt, enda þótt allir höfundamir nema Jón Nordal teljist til barokktímans. Einleikarinn kynnti verkin og kvaðst hafa valið þau m.a. með það fyrir augum að nýta blæbrigði orgelsins sem best. Það kom og á daginn að raddaval hans lýsti bæði vandvirkni og mikilli smekkvísi. Fyrsta verkið, Batalha de saxto Tom eftir Araujo, sem er einfalt og um sumt hrátt í sniðum, fékk þykkt hljóð, stundum með grófum blæ. Annað verkið, Tierce en taille eftir Couperin, var mjúklega samið og fékk þýðan hljóm. Hann var þó truflaður af einni röddinni sem haföi viðbætta þríund og hljómaði hrífandi ómstrítt í hinum annars blíöa vef. Svo mætti áfram telja. Dialog eftir Marchand geislaði af tilþrifum og All Elevazáoni eftir Zipoli var ekki síður áhrifaríkt þótt með allt öðrum hætti væri. Þar ríkti fegurð kyrrðarinnar og einleikar- inn gaf sér nógan tíma til að blæbrigði smáatriðanna fengju notið sín. Hápunktur barokkverkanna var Pra- eludium et fuga í G-dúr eftir Bach. Þetta er glæsilegt verk og saman sett af þeirri snilld sem hinum mikla Tónlist Finnur Torfi Stefánsson meistara er eiginleg. Hér fór fótbassinn í fullan gang og haföi ekki minna hlutverk en aðrar raddir, hvort sem spilað var hægt eða hratt. Tónleikunum lauk með tveimur verkum eftir Jón Nordal, Sálmforleik um sálm sem aldrei var sunginn og Toccata. Þetta eru sérlega fersk og falleg verk. í því fyrra eru áhrifamiklar andstæður ómstríðra og ómblíðra hljóma. í því síðara eru einnig andstæður en af öörum toga. Hörður Áskelsson á mikið hrós skilið fyrir frammi- stöðu sína á þessum tónleikum. Verkefnaval og með- ferð hljóðfærisins sýndi alúð og góðan smekk. En mestu skipti þó leikur hans, sem var í senn hugmynda- ríkur og agaður, vandaður og þrunginn tilfmningu. Þetta voru skemmtilegir tónleikar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.