Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1992, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1992, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1992. 31 Fréttir Heilsugæslusel í Tálknafirði Lúðvíg Thorberg, DV, Tálknafirði; Heilsugæslusel var formlega opnað og tekið í notkun hér 13. nóvember. Selið er í 80 m2 húsnæði sem Heilsu- gæslustöð Barðastrandarsýslu hefur nýlega fest kaup á og rekur. Það er á jarðhæð, vel og smekklega innrétt- að, án alls íburðar, og þeim til sóma sem að hafa staðið. Læknir er hér aðeins hálfan dag í viku hverri en vonir standa til að sú þjónusta verði aukin áður en langt um líður. Tálknfirðingar verða að sækja öll sín lyf til Patreksfjarðar. Á þessum tímamótum í heilsugæslumálum staöarins væri það verðugt verkefni að bæta úr því ófremdarástandi á viðunandi hátt. Til þess þarf fyrst og fremst vilja og einfalda en jafnframt örugga skipulagningu réttra aðila. Kvenfélagið Harpa færði Heilsu- gæslustöðinni sjón- og heymarmæl- ingartæki að gjöf viö opnunina og frá Tálknafjarðarhreppi fékk stöðin óm- skoðunartæki, hæðarmæh og vog. Að þessari ágætu opnunarathöfn lokinni voru bomar fram veitingar. Frá opnun Heilsugæsluselsins í Tálknafirði. DV-mynd Lúðvíg 3 Góðir saman 25 ára 1992 Seyðisflörður: Hjálparstarf vegna barna í Júgóslavíu Pétur Kristjánsson, DV, Seyðisfirði: Undanfarið hefur verið í gangi umræðuhópur á Seyðisfirði sem leit- ar leiða til þess að aðstoða stríðshrjáö böm í fyrrverandi Júgóslavíu. Fyrir skömmu hélt hópurinn opinn fund til þess að kynna starfsemi sína og leita að nýjum hugmyndum. Ein hugmynd, sem fékk góðar undirtekt- ir, var að Seyðfirðingar stofnuðu til vinabæjatengsla við eitt ákveðið þorp í landinu og reyndu að koma hjálpargögnum beint þangað. Margar aðrar hugmyndir vom einnig til umræðu en ljóst er aö erf- itt er að koma upp samböndum á stríðssvæðunum, hvað þá að koma gögnum þangað. Mikill hugur er þó í fólki og verður reynt til þrautar að aðstoða saklaus fómarlömb stríðs- ins. Á fundinum var ákveðið að hefj- ast handa strax við að safna vetrar- fotum, skófatnaði og teppum. Dalvik: Skátarkaupahús af Byggðastofnun Heimir Kristinsson, DV, Dalvik: Hjálparsveit skáta hér á Dalvík hefur keypt svokallað Pólstjömuhús af Byggðastofnun fyrir starfsemi sína. Niðurlagningarfyrirtækið Pól- stjarnan varð gjaldþrota í fyrra. Skátamir sögöust fá húsið á góðu verði og kjömm og vinna nú ötullega að lagfæringum og breytingum á þvi fyrir starfsemi sína. Þeir vonast til að taka húsið í notkun fyrir áramót og halda þannig upp á 10 ára afmæli sveitarinnar. Lágttilboðí jólaskreytingu Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum: Þijú tilboð bámst í uppsetningu jólaskreytinga hjá Keflavíkurbæ. Samþykkt var að taka lægsta tilboði, frá HL-spennu í Keflavík, rúmlega 434 þúsund krónur, sem er 38,3% af kostnaðaráætlun. Hún var ein millj- ón 135 þúsund krónur. Hæsta tilboð átti Rafbrú, Njarðvík, kr. 1.158.674, sem er 102% af kostnað- aráætlun. Rafþjónusta Þorsteins bauð kr. 597.500 - 52,7% af áætlun. Lalli ljósastaur Hvað tekur ósköp venjulegur strák- ur til bragðs þegar hann lengist allt í einu og verður eins stór og ljósa- staur? Engin föt passa á hann lengur og það eru heldur ekki til nógu stórir skór á hann. Gerist hann kannski körfuboltahetja í Bandaríkjunum eða vill hann allt til vinna að verða venjuleg- ur strákur á nýjan leik? Góð bók frá Fróða FRÓDI BÓKA& BLAÐAÚTGÁFA Tvær frábærar bækur eftir verðlaunahöfundinn Þorgrím Þráinsson Bak við bláu augun Saga um nýnema í menntaskóla sem eru jafn ólíkir og þeir eru margir og hafa þeir mörgum hnöppum að hneppa. Hver er þessi stúlka með fal- legu bláu augun? Hver er leyndar- dómur hennar og kemst hann nokkru sinni upp? Og hvað tekur bekkjar- bróðir hennar til bragðs til að vinna hylli hennar?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.