Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1993.
Útlönd
Enn eitt stórviðrið gengur yfir Færeyjar á nýbyijuðu ári:
700f lúðu að heiman
- Færeyingar draga botnvörpur yfir hús sín til að koma 1 veg fyrir fok
Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum:
Um 700 íbúar í tveimur þorpum
syðst á Suðurey yíirgáfu heimili sín
í gærkvöldi af ótta við að veðurham-
urinn, sem nú gengur yfir Færeyjar,
gæti orðið þeim að fjörtjóni. Þetta eru
íbúar í þorpunum Lopra og Sumba.
Fólkið kom sér fyrir hjá kunningj-
um norðar á eyjunni en vonast til
að geta snúið heim síöar í dag. í
Sumba búa um 500 manns og nærri
200 í Lopra. Þama hafa orðið veru-
legir skaðar í óveðrum á undanfórn-
um árum enda staðirnir kunn veðra-
viti.
Þetta er þriðja veðuráhlaupið sem
gengur yfir Færeyjar á þessu ári.
Ástandið er verst á Suðurey sem
jafnan fyrr. Þar mældist vindhrað-
inn í nótt 42 metrar á sekúndu sem
jafngildir um 14 vindstigum.
Skaplegra veður var á nyröri eyj-
unum en þó var þar verulegt hvass-
viðri enn í morgun og er gert ráð
fyrir að það standi fram eftir degi.
Hvergi hefur orðið umtalsvert tjón
enda hafa menn á orði að allt sé fok-
ið sem fokið getur.
Menn bjuggu sig vel undir áhlaupið
nú, negldu fyrir glugga og festu allt
lauslegt. Nokkuð er um að eigendur
húsa dragi botnvörpur yfir þau til
að koma í veg fyrir fok. Hefur þetta
reynst vel og eru björgunarsveitir
búnar að verða sér úti um vörpur til
að koma yfir hús í fokhættu.
í síðustu veðnun hefur mikið borið
á að ný álþök rifnuðu af húsum.
Gömlu bámjámsþökin virðast aftur
á móti standast lætin mun betur.
í morgun var lægðin, sem olli
óveðrinu, komin norður fyrir Fær-
eyjar og ætti því að draga úr vindi
þesar líður á daginn. Þó er búið að
aflýsa öllum feröum milli eyja í dag
og óvíst er hvort fólk kemst til vinnu
nema stutt sé að fara. Loftþrýstingur
var innan við 920 millibör í Þórshöfn.
». :l'
'4'i
■ •
m
i: ■*! J) i> h 11 ),
h d % x i x \
, ý V, _ I,
A M B R-A
PAR SEM VERD OG GÆÐI
FARA EKKI SAMAN
Þú færð mun meira en þú borgar fyrir þegar þú kaupir AMBRA tölvur, því þær
eru vandaðri og öflugri en verðið gefurtil kynna.
Það er því engin furða hvað AMBRA hefur verið gríðarlega vel tekið, bæði af
fyrirtækjum og einstaklingum. Komdu í Nýherja og kynntu þér hvað þú færð
stórkostleg gæði fyrir skemmtilega lágt verð.
LOKSINS FÆRÐU TÖLVU ÞAR SEM VERÐ OG GÆÐI FARA EKKI SAMAN
Tegund Örgjörfi Tiftíðni Minni Diskur Skjár Tengi- raufar Stgr. verð
AMBRA Sprinta 386SX 25MHz 4MB (16MB) 85MB 14"SVGA 3 98.000
AMBRA Hurdla 386SX 25MHz 4MB (16MB) 170MB 14"SVGA 6 131.000
AMBRA Sprinta 486SX 25MHz 4MB (32MB) 107MB 14“SVGA 3 138.000
AMBRA Sprinta 486SX 25MHz 4MB (32MB) 212MB 14"SVGA 3 157.000
AMBRA Sprinta 486DX 33MHz 4MB (32MB) 107MB 14"SVGA 3 166.000
AMBRA Hurdla 486DX 33MHz 4MB (32MB) 107MB 14" SVGA 6 173.000
AMBRA Hurdla 486DX 50MHz 4MB (32MB) 107MB 14"SVGA 6 199.000
y
i
1
• t
■ m ■
I
I
A M B R -A
NÝHERJI
SKAFTAHLlÐ 24 • SlMI 69 77 00 & 69 77 77
Alltaf skrefi á undan
h-
Raögreiðstur GREIÐSLUSAMNINGAR
Yfirtuttugu
vindstighafa
mælstnorðan
Þórshafnar
Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum;
I óveðrum síðustu daga hefur
vindhraðinn mælst allt að 77
metrar á sekúndu á öallveginmn
norðan Þórshafnar. Þetta eru yfir
20 vindstig ef sá skali næöi svo
hátt.
Á þessum slóöum verða jafhan
einhver verstu veður í Færeyjum
enda hefur vegurinn nú verið
lagður af og er hægt að komast
undir fjallið gegnum ný jarðgöng.
Vestmanrm
Vogey
NORÐUREYJAR
ÍK Kúne I gy
Auslorey Klákksvík
Straumeyœl*
Miðvopur
QÞÓRSHÖFN
Nólsey
Sandey
Skúfey
Stóra-Dímon
Suðurey
Sumbá
Lopra
Veðravíti um
allareyjar
Jens Dálsgaard, DV, Færeyjum:
Veöurhæð getur orðið mjög
mikU víða í fjallaskörðum, sem
eru mörg hér í Færeyjum. Þessu
fylgja sviptivindar og gætir
þeirra mjög á Suðurey og einnig
í Klakksvík og Hvannasundi á
Norðureyjunum. í Þórshöfn gæt-
ir óveðra minna en víða annars
staðar í Færeyjum.
Skipibjargaðaf
strandstað
viðEngland
Flutningaskip skráð í HoUandi
með sjö hundruð tonna kolafarm
strandaði á sandrifi undan suð-
vesturströnd Englands i slæmu
veðri í gær en aftur tókst aö koma
því á flot eftir sex klukkustundir.
í skipinu voru einnig tuttugu
tonn af gasolíu til eigin nota og
fréttir hermdu aö örlítið af henni
hefði lekið í sjóinn. Skipið sigldi
af strandstað fyrir eigin vélarafli.
Fimm manna áhöfn var á skip-
inu og var hún um borö allan tím-
ann.
Eyjarskeggjar
fiuttirvegna
sprengihættu
Eitt hundrað og tuttugu ibúar
eyjarinnar Skjernoy undan suð-
urströnd Noregs voru fluttir á
brott snemma í gærmorgun eftir
aö flutningaskip hlaöið dínamíti
strandaöí.
íbúamir fengu að snúa til síns
heima síöar um daginn. Þá höföu
sprengjusérfræðingar sagt að
engin hætta væri lengur á ferð-
um.
Um borð í skipinu voru 100 tonn
af dínamítí, 20 þúsund hveJIhett-
ur, 300 tonn af áburði og 20 tonn
af dísilolíu. Verið var aö draga
skipið þegar þaö strandaöi.
Lögregla mun á næstu dögum
leita að hvellhettum sem tljóta
um í sjónum eða hefur skolað upp
á land. Að sögn geta þær verið
hættulegar. Lögreglustjórinn í
Vest-Agder, Tor Backe-Hansen,
segir að fræða eigi skólabörn um
hættuna og vara þau við hvell-
hettunum. ReuterogNTB