Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1993. 15 Tryggingarnar í janúar í desember sl., þegar flárlögin voru afgreidd á Alþingi, voru gerð- ar ýmsar breytingar á lögum um almannatryggingar. Það er mikilvægt að allir kynni sér vel rétt sinn þjá Trygginga- stofnun og fylgist með þeim breyt- ingum sem verða á almannatrygg- ingunum. Til að auðvelda það ætla ég að nefna hér nokkrar breytingar sem komu til framkvæmda 1. jan- úar 1993. Mæðralaun lækka -barnalífeyrir hækkar Mæðra- og feðralaun eru bóta- greiðslur sem ætlaðar eru þeim sem búa einir með bami eða böm- um sínum undir 18 ára aldri. Þess- ar greiðslur lækka og em nú meö einu bami 12.000 krónur á ári eða 1000 krónur á mánuði, vom 4.732 í fyrra. Mæðralaun með tveimur Kjallaiinn Ásta R. Jóhannesdóttir deildarstjóri félagsmála- og upplýslngadeildar Tryggingastofnunar rikisins „Reglan um sambúðarskráningu og greiðslu mæðra- og feðralauna breytist einnig nú. Launin falla niður einu ári eftir að óvígð sambúð er skráð í þjóð- skrá með öðrum en foreldri bams eða barna en var tvö ár áður.“ bömum em 60.000 kr. á ári eða 5.000 kr. á mánuði, voru 12.398 kr. en með þremur börnum eða fleiri era nú greiddar 129.600 kr. á ári eða 10.800 kr. á mánuöi en var 21.991 króna í fyrra. Heimilt er nú að tekjutengja greiðslu þessara bóta. Nú er krafist aukinna upplýsinga með umsókn um mæðra- og feðra- laun. Henni verður nú að fylgja formlegur meðlagsúrskurður eða staðfestur samningur um meðlags- greiðslur, umsókn um meðlags- greiðslur og vottorð með lögheimili beggja foreldra. Ekki er lengur nægjanlegt að umsækjandi lýsi því yfir að meðlagsgreiðandi greiði meðlagið beint til þess sem heldur heimiii með bami sínu. Reglan um sambúðarskráningu og greiðslu mæðra- og feðraiauna breytist einnig nú. Launin falla niður einu ári eftir að óvígð sam- búð er skráð í þjóðskrá með öðrum en foreldri bams eða bama en var tvö ár áður. Greiðslur falla niður um leið og sambúð með foreldri bams er skráð, það er óbreytt. Bamalífeyrir er greiddur með bömum yngri en 18 ára ef annað hvort foreldra er látið eða er ör- orkulífeyrisþegi. Séu báðir foreldr- ar látnir eða örorkulífeyrisþegar er greiddur tvöfaldur bamalífeyrir. Bamalífeyrir greiðist einnig vegna bama sem ekki er unnt að feðra. Heimilt er að greiða bamalífeyri vegna bama 18-20 ára sem em í námi. Barnalífeyrir hækkar um 2.750 krónur úr 7.551 krónu í 10.300 krón- ur, sama gildir um meðlag. Trygg- ingastofnun sér um meðlags- greiðslur skv. úrskurði dómara en þær em ekki hluti almannatrygg- inga. Þar sem greiðsluupphæðir breytast nú um áramótin ættu þeir sem fá þessar greiðslur frá Trygg- ingastofnun að huga að stöðu skatt- korts nýti þeir það hjá stofnuninni. Breyttar reglur um tannlæknakostnað Regiumar, sem settar vom 1 fyrra um greiðslur fyrir tanniækn- ingar bama, giida nú ekki lengur. „Reglurnar, sem settar voru i fyrra um greiðslur fyrir tannlækningar barna, gilda nú ekki lengur.“ Nú skal sjúklingur greiða fjórðung kostnaöar við tannlækningar bama og unglinga, 15 ára og yngri (nema tannréttingar, gulifyllingar, krónu- og brúargerð). Þó skulu þau eigi rétt á einni skoðun á ári hjá tannlækni sér að kostnaðarlausu. Áður greiddu þau 15% kostnaðar (sérákvæði gilti um Reykjavíkur- böm á skólaskyldualdri) en fyrir- byggjandi aðgerðir vom þeim að kostnaðarlausu. Uxmt er að sækja um greiðslu allt að 50% kostnaðar við guilfyll- ingar, krónu- og brúargerð bama og unglinga. Ungiingar, 16 ára, greiða 50% tannlæknakostnaðar annars en tannréttinga, gullfyll- inga, krónu- og brúargerða, eins og áður. Elli- og örorkulífeyrisþegar, sem era með fulla tekjutryggingu, þurfa nú að greiða fjórðung kostnaðar við tannlækningar og gervitennur sem var þeim að kostnaðarlausu áður. Lífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu greiða nú helming þessa kostnaðar en greiddu fjórð- ung áður. Heimild er í nýju lögun- um til að hækka greiðsluþátttöku almannatrygginga vegna þessa hóps í allt að 100% ef ráðherra set- ur reglur þar um. Þeir sem fá enga tekjutryggingu greiða tannkostnað að fullu nú en greiddu helming áður. Engar endurgreiðslur era fyrir gullfyllingar, krónur og brýr. Þessar reglur á eftir að útfæra nánar, bæði hvað varðar böm og unglinga, sjúklinga á stofhunum, sérfræðiálag og fleira. Menn em því beðnir um að fylgjast með þeim upplýsingum sem koma á næst- unni um þátttöku almannatrygg- inga í tannlæknakostnaði. Ásta R. Jóhannesdóttir Að berja hausnum við hraunið Það er furðuleg þráhyggja að óbyggðir landsins eigi að vera ein- angraðar frá allri umferð venjulegs fólks, þangað eigi enginn erindi nema þeir sem em útbúnir og til- búnir til langra og strangra göngu- ferða. Það er mikill fjöldi fólks, senni- lega fleiri en ekki, sem unna ís- lenskri náttúru í byggð sem í óbyggðum og njóta þess að leita á vit hennar í tómstundum. En þá koma þessir sjálfskipuðu postular og höfða til almennings með tilfinn- ingavæli um hættuna af almennri umferð hans um landið. Hraunflákar til verðmæta Það virðist vera afar brenglað verðmætamat að tala um óræktar- hraunfláka sem menningarverð- mæti. Ég fellst á að nefha þá nátt- úmverðmæti en ég sé ekki hvaða verðmæti kunna að vera fólgin í því einu saman að eiga stærstu hraun- breiðu jarðar ef ekki má fara um það svæði og njóta þeirrar dýrðar sem það kann að bjóða upp á. Ekki mun ég mótmæla því að ís- lenskar hraunbreiður geti verið stórfenglegar, tilkomumiklar og oft em þau fógur á að líta hraunin okkar og þar margt að skoða. Tök- KjaUarinn Benedikt Gunnarsson framkvæmdastjóri menn berja oft fyrst augum af nátt- úm landsins. Þessi hraun em víða áhugaverð að sjá og skoða og marg- breytileiki þeirra hrífandi. Margir eriendir ferðamenn hafa orð á því hve gaman sé að því að fyrstu kynnin áf landinu skuli vera þessi. Ef ekki lægi þjóðbraut um þessar hraunbreiður þá mundu útlendingar eða aðrir ekki eiga auðveldan kost á því að sjá þetta eða fá neina hugmynd um að þessi stórfengleiki fyndist á landinu. Hvað um hraunbreiðuna í þjóð- garðinum á Þingvöllum? Hraunið á milli Almannagjár og Hrafna- gjár? íslensk náttúra fyrir almenning ar þvert yfir þjóðgarðinn sem er í huga þjóðarinnar helgasti reitur landsins. Þá var hvorki talað um hroka eða tillitsleysi þeirra sem að þeirri vegagerð stóðu. Þar er séð fyrir útskotum og bílastæðum, sem standa þétt með leiðinni, enda er á góðviðrisdögum mikil umferð um veginn og margir hafa með sér kaffisopa og neyta hans í gróður- sælum og fögrum lautum hrauns- ins. Áður en þessi vegur var lagður hafði almenningur lítil tök á að njóta þeirrar fegurðar sem svæðið bauð upp á. Ódáðahrauns, hversu stórfenglegt sem það kann að vera, og um það efast ég ekki, fæ ég ekki notið meðan það er ófært vepjuleg- um ferðamanni. Hver man ekki eftir sefasjúkum viðbrögðum fárra einstaklinga vegna ímyndaðrar „sjónmengun- ar“ af Höfðabakkabrúnni yfir Ell- iðaámar. - Brúin þjónar lands- mönnum til gagns og gleði því að útsýnið af henni yfir dalinn og hól- mann er stórfenglegt. Og þannig á þetta að vera. Benedikt Gunnarsson Það vom ekki mörg orð um þaö „Hver man ekki eftir sefasjúkum við- brögðum fárra einstaklinga vegna ímyndaðrar „sjónmengunar“ af Höfða- bakkabrúnni yfir Elliðaámar?“ um til dæmis hraunin á Reykja- höfð árið 1974 að leggja ætti svo- nesi, þá ásýnd sem erlendir ferða- nefhdan Gjábakkaveg til frambúð- Kjöthækkunjn lllnauðsynleg „Matar- skattur er alltaf slæmur en þó aldrei verri en þegar illa árar enda er matur það sem fólk k?uPÍr J^t Gunnlaugur Július- af ollu. Þvi er hagfrœ4ingur hækkun mat- s,éttarsamband8 arskattsins sjónarmiðum. Þessi skattlagning á Islandi er nú raeð því hæsta sem gerist. 111 þessa hefur skatturinn veriö á svipuöu róli á hinum Norðurlöndunum en þar eru fé- lagsleg kjör fólks mun betrl Framleiðendur svínakjöts, eggja, kjúklinga, nautakjöts og hrossakjöts eru nú nauðbeygðir tii að hækka verðið á framleislu sinni. Hækkunin er ilhiauðsyn- leg. Annars vegar hafa aöfóng hækkað en eínnig lækkar endur- greiðsla viröisaukaskatts. Bara gengisfellingin í nóvember hafði þau áhrif að fóður hækkaði um 6 prósent en fóður er stærsti kostn- aðarliðurinn í framleiðslu svína- kjöts, eggja og kjúkbnga, I Uósi þess að Iaunaliður bænda í veröi þessara vara er innan við 9 prósent er útilokað fyrir þá að taka á sigþessar hækkanir. Kjara- skerðingin heföi orðiö algjör og meíri en annarra í þjóðfélaginu. Þegar ákveðið var að taka upp niðurgreiðslu á kjöti ög eggjum raeð endurgreiðslu á skatttekjum lækkaði verð þessara vara. Að skerða þessar greiðslur er því i raun hrein skattahækkun. Verð- iö hlýtur að hækka í kjölfariö. Ríkisstjórnin getur ekki ætlast til aö þessir bændur taki persónu- lega á sig virðisaukaskattinn frekar en oliufélög og bankar.“ Enn meiri „Enn eina ferðina em stjórnvöld að veija lambið. Með því að skerðaendur- greiðslu virð- isaukaskatts af nautakjöti, ............... kjúklingum Jóaa* W»r Jónasson og svínum er k|«twrtiandi. rfkissijómin að mismuna kjöttegundum í enn ríkari mæh en áður. I raun neyð- ast neytendur til að sætta sig við súpukjöt í öll mál og hætta neyslu annarra kjöttegunda. Á það get ég ekki fallist Kjöthækkunin á eftir að orsaka mikla erfiöleika hjá neytendum. veitingamönnum og kjötiðnaðar- mönnum. Það hggur til dæmis mikii vinna að baki úrbeiningu og vinnslu á nautakjöti. Þetta á eftir að orsaka samdrátt í vinnsl- umii og jafnvel atvinnumissi hjá mörgum. Þá get ég undir engum kring- urastæðum samþykkt þessa hækkun á sama tíma og kúa- bændur boða útfhrtning á niður- greiddu kjöti til Mið-Evrópu, alls á górða hundraö tonn. Ég hefði vfijað að íslenskum neytendúm stæði þetta kjöt öl boða á lægra veröi. Á þann hátt hefði mátt grynnka á umfrarobirgðum og koraa til móts við neytendur. Verðhækkunarleiðin raun á endanum koma í bakiö á fram- leiðendum. Neyslan mun dragast saman og kalla á enn meiri hækk- anir. Það mun aftur draga enn frekar úr sölunni. Þessi lausn kallar á hran í íslenakum land- búnaði og mun hafa víðtækar af- leiðingar.“ -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.