Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Page 16
16
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1993.
Burt með slenið!
KOMUM OKKUR í FORM
Alhliða líkamsþjálfun hjá Katy í World Class.
* Elnkatímar
* Hóptímar
Innritun í World Class í síma 35000.
Worid Class
SKEIFUNNI 19, SÍMAR 30000 OG 35000
BMW 316i
árgerð 1992, ekinn 50.000 km, 5 gíra, vín-
rauður, álfelgur fylgja, verð 1.850.000 stað-
greitt.
Upplýsingar í Bílahöllinni h/f, sími 674949
og í síma 687666.
SÖNGSMIÐJAN AUGLÝSIR:
sonoimnsKEiÐ
FSRIR l'íllil!
R ÖLLUOIHLDRI
ÍSLENSK OG ERLEND, LIFANDI
OG SKEMMTILEG TÓNLIST!
NÚ GETA ALLIR LÆRT AÐ SYNGJA.
Námskeið fyrir unga sem aldna, laglausa sem
lagvísa. Söngkennsla í hóp, tónfræði og
ýmislegt fleira sem hjálpar þér að ná tökum á
söngröddinni þinni.
NÚ GETA ALLIR HALDIÐ
ÁFRAM AÐ SYNGJA.
Námskeið fyrir fyrri nemendur Söngsmiðj-
unnar og aðra sem vilja bæta söngkunnáttu sína.
EINSÖNGSNÁM.
Einkatímar í söng, vinna með undirleikara,
tónfræði, túlkun og ýmislegt fleira.
Kennarar:
Esther Helga Guðmundsdóttir, söngur.
Guðbjörg Siguijónsdóttir, undirleikur.
Illllllll'l
SOIIGLEIKIR
Hópnámskeið fyrir ungt fólk sem
hefur áhuga á að læra að tjá
sig í söng, leik og dansi. Stefnt að
nemendauppsetningu á útdrætti úr
söngleiknum CATS.
Öll námskeiðin miðast við að auka söng-
og tjáningargetu og að efla sjálfstraust.
KENNSLA HEFST 18. JANUAR.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 654744
ALLA VIRKA DAGA FRÁ K L. 10 - 13.
Neytendur
Þessar frúr voru að spá og spekúlera á fyrsta degi útsölunnar í Miklagarði.
DV kannar útsölur:
Mikil verðlækk-
un og hægt að
gera reyfarakaup
Janúarútsölumar eru byijaðar og
á eftir að fiölga þegar líða tekur á
mánuðinn. DV gerði skyndikönnun
á útsölum í bænum og er víða hægt
að gera mjög góð kaup.
Á Laugaveginum er töluvert af skó-
verslunum sem hafa þegar hafið út-
sölur sínar. Þar má nefna Skóverslun
Reykjavíkur og Stínu finu sem seija
spari- og götuskó með góðum af-
slætti eftir tegundum. Dæmi eru um
spariskó sem lækka frá 4.990 í 2.990
og 1.990.
í Kringlunni eru nokkrar verslanir
byijaðar með útsölur. Við kíktum
inn í Benetton-búðina en þar er af-
sláttur á bilinu 20-70%. Sem dæmi
má nefna peysur sem áður kostuðu
4.350 en nú 3.400 kr., og frá 7.700 krón-
um lækkar verðið í 5.900 krónur og
frá 9.200 krónum í 7.300 krónur. Ekki
var mikið að gera upp úr hádeginu
á föstudag en starfsstúlka sagði að
verslun hefði verið jöfn og þétt frá
því útsalan byijaði. *
Barnafatnaður
Hinum megin á ganginum er
bamafataverslunin Krakkar. Einn
viðskiptavinur benti á að nú væri
tækifærið að kaupa jólakjólinn fyrir/
næstu jól því verölækkun væri mik-
il. Sem dæmi má nefna fallega flau-
elskjóla telpna á 3.900 krónur sem
kostuðu áður 6.950 kr., kjólar á 9.850
kosta nú 6.900, kjólar á 4.980 kosta
nú 3.900 krónur, góðar úlpur fást á
4.900 krónur, rúllukragabolir á 1.400
kr., og háskólabolir á 1.900 kr., galla-
smekkbuxur, sem áður kostuðu
4.950, kosta nú 3.400 krónur.
Jóladót á útsölu
í Hagkaup er jólaskraut til næstu
jóla með góðum afslætti. Þótt sumum
finnist það kannski flarstæðukennt
að hugsa um jólainnkaup í janúar
sagði starfsstúíka að það seldist alltaf
dijúgt af jólavörunni í janúar. Og það
er ekki bara skraut sem fólk kaupir
heldur líka smávara, svo sem hand-
klæði, til gjafa á næstu jólum. Af-
sláttur er líka góður og allt upp í
50%. Þegar við stóðum við fóru hjón
úr deildinni með fullt fangið af jóla-
dóti. Af kúlum eru til margir litir svo
sem, blátt, bleikt og lilla en rautt var
tískuliturinn um síðustu jól og seld-
ist allt rauða skrautið upp. Sex kúlur
kosta nú 199 krónur en kostuðu áður
329 krónur.
Jakkaföt og barnaúlpur
Flest en ekki allt í fatadeildum
Hagkaups í Kringlunni er á útsölu. í
herrafatadeild hafa jakkafót lækkað
úr 22.995 í 14.995 krónur, flauelsbux-
ur úr 5.995 í 3.995 krónur, frakkar
Úr 16.995 í 12.995 Og 18.999 í 14.995
krónur. Skyrtur hafa lækkaö úr 2.495
í 1.495 og skór úr 3.995 í 2.595 krónur.
í bamafatadeild em smekkbuxur á
989 en kostuðu áður 1.695 krónur,
úlpur frá 5.495 í 3.995 og telpupeysur
úr 2.395 í 1.595 krónur.
í kvenfatadeild er dæmi um pils
sem lækkar úr 4.995 í 3.995, strets-
buxur úr 2.995 í 1.995 og 1.995 í 1.495
og úlpur úr 8.995 í 5.995 krónur.
Barnapeysur á 199 krónur
Útsalan í Miklagarði var í fullum
gangi á fyrsta degi. Þar mátti sjá
dæmi um bamaúlpur sem höfðu
lækkað úr 3.995 í 799 krónur,
kvenskó á 395 krónur sem áður kost-
uðu 1.990 og bamapeysu sem kostaöi
199 krónur en áður 995 krónur.
Uppreimaðir herraskór úr tvöfóldu
leðri höfðu lækkaö úr 5.495 1 2.795
krónur. Kvenpeysa kostaði 3.995 en
nú 1.995, ullarleggjur kvenna höfðu
lækkaö úr 2.595 í 1.295 og ullarpils
úr 1.995 í 995 krónur. Kvenpeysa sem
áður kostaði 3.995 kostar nú 1.995
krónur og bamagallar em nú á 1.995
en kostuðu áöur 4.499 og 3.995. Skíða-
galli í bama- og unglingastærðum
hafði lækkað úr 7.995 krónum í 3.995,
dömuúlpa úr 8.990 í 4.495, herrapeysa
úr 3.995 í 1.995, flauelssmekkbuxur
bama úr 1.995 1 995 krónur og vax-
jakkar úr 4.995 í 2.495 krónur.
Fyrir heimilið
Margar verslanir, sem selja vörur
til heimilisins, eru með sínar árlegu
útsölur. Má nefna Áklæði- og glugga-
tjöld í Skipholti sem bjóða góðan af-
slátt af gluggatjaldaefnum og rúm-
teppum. Sem dæmi má nefha rúm-
teppi sem kostaði 11.700 en kostar
nú 8.400 og gardínuefni sem áður
kostaði 1.500 hver metri fæst nú á 750
krónur hver metri.
Rúmfatalagerinn er með ódýrari
heimilisvöruverslunum og verður
enn ódýrari með janúarútsölunni.
Þar em fiðursængur á 3.990 krónur,
koddar á 690 krónur, handklæði á 190
krónur, rúmfatnaöur lækkar úr 1.590
í 690 krónur og svona mætti lengi
telja.
Teppi eða þvottavél
Útsölur em árlegar í bygginga-
vöruverslunum og má nefna Litaver,
Metró, Teppabúðina og Málarann. í
slíkum versltmum má gera góð kaup
í málningu, teppum, mottum, gólf-
og veggflísum og gólfdúkum auk þess
sem oft er veittur sérstakur afslátttir
af málningu. Oft er afsláttur veruleg-
ur og sérstaklega ef vara er til í litlu
magni. Dæmi frá því í fyrra er flísa-
lagning á forstofu sem kostaði innan
við 5.000 krónur meö öllu fyrir utan
vinnu. Allt efni var keypt á útsölu í
janúar.
Raftækjaverslanir bjóða sínar vör-
ur með góöum afslætti. Heimilistæki
em með útsölu í Kringlunni og þar
fást sjónvörp, þvottavélar, örbylgju-
ofnar, hljómflutningstæki, straujárn
og fleira með allt að 45% afslætti. Á
útsölu í Pfaff fást þvottavélar, ísskáp-
ar, ofnar, helluborð, uppþottavélar
og saumavélar með afslætti sem er
mismikill efdr tegundum.
Af framansögðu má vera ljóst að
hægt er að spara með því að vera
þolinmóður og bíða þar til útsölur
heflast eftir jólin. Það er að segja ef
fólk á þá einhvem afgang eftir jóla-
mánuðinn. -JJ