Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Qupperneq 4
Skipting í trúfélög 1982 og 1992
Þjóðklrkjan: 219.091 Aðrlr: 15.889
1982
1992
Alls: 234.980
Þjáðklrkjan: 241.634
Aðrlr: 20.568
Alls: 262.202
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993.
Fréttir
Ríkissaksóknari um sakamálin sem komin eru í biðstöðu vegna hæstaréttardóms:
Viðbúið að kröf ur komi
um endurupptöku mála
- óskar upplýsinga frá öllum lögreglustjórum landsins um fjölda mála
óafgreidd geti orðiö með tvennum
hætti - að þau verði látin bíða um
sinn eða að lögreglustjórar sendi þau
til ríkissaksóknaraembættisins til
afgreiðslu á meðan, ef þeim býður
svo. En ég á eftir aö ræða við lög-
reglustjórana og sendi þeim væntan-
lega bréf þegar Ijósara verður um
framvindu þessara mála,“ sagði Hall-
varður Einvarðsson.
-ÓTT
„Ég er aö kalla eftir upplýsingum
frá lögreglustjórunum um flölda og
umfang þessara mála. Þetta ætti því
að verða ljósara í næstu viku. Þetta
er gert fyrst og fremst vegna athug-
unar á tillögum mínum um réttar-
farsbreytingar vegna dóms Hæsta-
réttar. Þetta er einnig til meðferðar
í réttarfarsnefnd," sagði Hallvarður
Einvarðsson ríkissaksóknari að-
spurður um þau mál hjá lögreglu-
stj óraembættunum og héraðsdóm-
stólum sem nú eru komin í biðstöðu
vegna dóms sem Hæstiréttur kvað
upp í síðustu viku.
Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu að lögreglustjóraembættin
hefðu ekki heimild til að ákæra í
ýmsum líkamsárásarmálum og
fíkniefnamálum, samkvæmt því sem
ríkissaksóknari fól þeim frá 1. júlí
þegar nýjar réttarfarsreglur tóku
gildi. Eins og fram hefur komið í DV
er fíöldi mála kominn í bið vegna
hæstaréttardómsins. Ríkissaksókn-
ari gerði strax um síðustu helgi til-
lögur að breytingum á réttarfarslög-
unum og sendi dómsmálaráðuneyt-
inu.
Talsmaður ráðuneytisins sagði við
DV í gær að þvi yrði hraðað að leggja
fram frumvarp til laga eins fljótt og
kostur er, í samræmi við óskir ríkis-
saksóknara - strax í febrúar þegar
Alþingi kemur næst saman.
Um þau mál sem eru komin í bið,
eða hafa þegar verið afgreidd í kerf-
inu, sagði Hallvarður: „Um þau mál
sem þegar hafa hlotið afgreiðslu hjá
lögreglu og fyrir dómi skal ég ekki
segja. Það er auðvitað viðbúið aö
fram komi óskir um áfrýjun eða end-
urupptöku þeirra. Ég vænti þess þó
að framgangur þeirra mála sem eru
Gömlu fastagestirnir á Borginni hafa aö undanförnu snætt hádeglsverð saman á Hótel Sögu. Óvist er hvort þeir flytja allir aftur á Borgina þegar hún verður opnuð eftir miklar endurbætur í næstu
viku. Liklega munu þeir þó allir prófa staðinn enda togar minnlngin og tilhugsunin um Albert Guðmundsson i þá. Á myndinni eru f.v. örn Clausen, Guðmundur Haraldsson skáld, Jón H.
Guðmundsson, Ragnar Ingólfsson, Egill Snorrason, Björn Guðjónsson, Guðmundur Ottósson og Haukur Jacobsen. DV-mynd S
Fastagestir Borgarinnar sitja sem fastast á Hótel Sögu:
Vttum ekkert um reksturinn hjá Tomma
segir Öm Clausen, einn af þekktum fastagestum á Borginni
„Við vitum ekkert hvemig rekstur
Tomma veröur á Borginni. Hins veg-
ar hefur Hótel Saga meðhöndlað okk-
ur svo vel að ég held aö það veröi
erfitt mál að fá okkur þaöan aftur.
Vissulega er nokkur eftirsjá að Borg-
iimi og margir í hópnum ætla sér
þangað aftur svo framarlega sem
þeim verður vært þar. Meirihlutinn
er hins vegar á þeirri skoðun að það
sé allt svo frábært á Hótel Sögu
að erfitt sé að hugsa sér eitthvað
betra,“ segir Öm Clausen, hæstarétt-
arlögmaður og fastagestur á Hótel
Borg.
í áratugi hafa þekktir menn í þjóð-
lífinu komið saman til hádegisverðar
á Hótel Borg. í þeim hópi em meðal
aimarra bræðumir Öm og Haukur
Clausen, Hilmar Pálsson, Guðmund-
ur Arason, Haukur Jacobsen, Egill
Snorrason, Ragnar Ingólfsson,
Kristján Knútsson og Gunnlaugur
B. Daníelsson. Albert Guömundsson
og Indriði G. Þorsteinsson vom einn-
ig í þessum hópi.
Eftir að Tómas Tómasson keypti
Borgina í fyrra hófust víðtækar end-
urbætur á húsinu og neyddust gömlu
fastagestimir þá til aö finna sér nýj-
an samanstað í hádeginu. Skrúður á
Hótel Sögu varð fyrir valinu og ríkir
nú fullkomin óvissa um hvort þeir
flytja sig aftur yfir á Borgina
þegar hún verður opnuð að nýju, en
stefnt er að opnun á þriðjudaginn
kemur.
Að sögn Arnar hafa fastagestimir
látið sér líka ótal breytingar á Borg-
inni í gegnum árin. Alþýðlegt og gott
starfsfólk hafi haldið mönnum róleg-
um. En þrátt fyrir efasemdir nú seg-
ir hann hópinn staðráðinn í að mæta
til prufu þegar Borgin opnar aftur.
En hvað mun Albert segja ef allir
vinimir verða farnir?
„Himn mun vafalaust reyna að toga
menn niðureftir aftur.“
-kaa
Mörg ný trúfélög hafa sprottið upp hér á landi é undanförnum árum á
kostnað þjóðkirkjunnar, meðal annars Vegurinn, Orö lifsins og Krossinn.
Þá hefur kaþólikkum fjölgað og sömu sögu er aö segja um trúleysingja.
Þjóðkirkjan horfír á eftir 6.300 safnaðarbömum:
Skakkaföll í Fríkirkju
en kaþólskum fjölgar
- Helgi Jónsson á Merkigili, eini fulltrúi almættisins í Ábæjarsókn
Tæplega átta prósent landsmanna
voru utan þjóðkirkjunnar um síð-
ustu áramót samkvæmt samantekt
Hagstofu íslands. Á undanfómum 10
árum hafa 2,4 prósent Jandsmanna
yfirgefið þjóðkirkjuna og miðað við
manníjölda í dag jafngildir það tæp-
lega 6.300 manna fækkun. Á sama
tíma hefur kaþólikkum á íslandi
íjölgað um 42 prósent. í árslok vora
vel á íjórða þúsund landsmanna utan
trúfélaga og hefur þeim fjölgað um
25 prósent á 10 áram.
Hvað varðar önnur trúfélög á land-
inu hefur Fríkirkjan í Reykjavík orð-
ið fyrir hvað mestum skakkafóllum
undanfarin 10 ár. Þar hefur safnað-
armeðlimum fækkað um ríflega 13
prósent. í Hvítasunnusöfnuðinum
hefur fjölgunin hins vegar verið tæp-
lega 45 prósent og hjá Vottum Jehóva
hefur fjölgunin orðiö 63 prósent.
Innan þjóðkirkjunnar era alls alls
16 prófastdæmi sem prestaköll og
sóknamefndir úti um allt land falla
undir. Fjölmennasta sóknin í
Reykjavík heyrir undir Neskirkju en
í sókninni era búsettir tæplega 10.600
manns. Á landinu öllu era einungis
6 sóknir sem hafa fleiri en 8 þúsund
íbúa en það eru Nessókn, Árbæjar-
sókn, Háteigssókn, Seljasókn, Hafn-
arfiaröarsókn og Akureyrarsókn.
Minnsta sóknin á landinu er hins
vegar Abæjarsókn í Skagafirði. Ein-
ungis einn íbúi er í sókninni, Helgi
Jónsson á Merkigili, og er hann
væntanlega sjalfkjörinn í sóknar-
nefndina. Þá má geta þess að í Fitja-
sókn í Borgarfirði, Möðrudalssókn
og Víðihólssókn á Noröurlandi
eystra, Kirkjubólssókn á Vestflörð-
um og Bjamarhafnarsókn á Snæ-
fellsnesi era innan við 10 íbúar.
-kaa
Önnur trúfélög