Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993. 45 Úlfur ásamt öörum starfsmanni Rauða krossins lega jafnt á milli íbúa þorpsins og flóttafólksins. Við endurbættum kerfið, flölguðum dreifingarstöðvum og dreifðum matvælunum beint til fjölskyldna flóttafólksins. Aðstæður þama eru aUar mjög erf- iðar, það rignir mjög mikið, vegir eru slæmir og jafnvel þorpin sjálf eru á flakki. Því var oft erfiðleikum bundið að koma mat til sumra þorpa og í nokkrum tilvikum þurftum við jafn- vel að standa í vegagerð og brúar- smíði. Þegar mest var voru á mínu svæði um 48 þúsund manns sem tóku við matvælum frá Rauða krossinum. Til að gefa einhverja hugmynd um umfang þessara aðgerða komu í hveijum mánuði um 600 tonn af matvælum á mitt svæði að verðmæti um 25 milljónir króna. Við settum á laggirnar ítarlegt skráningarkerfi þeirra sem nutu aöstoðar okkar og með því tókst að minnka verulega misnotkun á hjálpargögnum. Það eru margir sem vilja njóta að- stoöar; land þama er ekki mjög vel falhð til ræktunar og enginn hefúr á móti fleiri bitum í pottinn. Maturinn er hins vegar ekki aðeins notaður til neyslu; þetta er í rauninni eini tryggi gjaldmiðillinn. Það er alltaf nóg eftir- spum eftir mat og hann fellur aldrei í verði.“ Aftur suður á bóginn „í janúar fer ég aftur til Afríku, í þetta sinn til Keníu, þar sem Rauði krossinn er meö tvö verkefni. Sam- tökin sjá annars vegar um þrennar flóttamannabúðir við ströndina þar sem dvelja á bilinu 40 og 60 þúsund flóttamenn frá Sómalíu. Einnig er nýhafin hjálparstarfsemi í norðausturhluta landsins. Þar búa á þriðja hundrað þúsund manns og þama hefur ekki rignt í tvö ár. íbú- amir eiga þess vegna orðið í miklum erfiðleikum með að lifa af landinu og ástandið er orðið nokkuð alvar- legt. Fólkið, sem býr þama, er af sómölskum og eþíópskum uppruna þannig að á þessu svæði er einnig nokkuð um flóttamenn frá Sómalíu og Eþíópíu sem flúið hafa til ætt- menna sinna hinum megin við landamærin. Mitt verkefni verður að sjá um matvælaflutninga frá hafnarborg- inni Mombasa til þurrkasvæðanna í norðri, setja upp dreifingarkerfi á þessum svæðum ogfylgja því eftir.“ Vandasamara verkefni „Þetta verkefni verður sennilega vandasamara en það sem ég var að fást við á Fílabeinsströndinni. Fyrir það fyrsta er um fleira fólk að ræöa og þama ríkir í rauninni alvarlegra ástand. Nálægðin við sómölsku landamærin gæti líka skapað ákveð- in öryggisvandamál vegna tilkomu bandaríska hersins í Sómalíu. Sá möguleiki er vissulega fyrir hendi að þeir flokkar byssumanna sem vora í borgum Sómalíu hafi hörfað út á land þegar Bandaríkjamenn komu til skjalanna. Þessir flokkar eiga því sennilega erfiðara með að afla sér matar en áður. Þetta getur leitt til þess að þeir leiti yfir landa- mærin til Keníu í matarleit. Þá yrði öryggi matvælaflutninga í norðaust- urhlutanum ógnað." Úlfur er menntaður skipulagsfræð- ingur og þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann fer til Afríku í þeim til- gangi að hjálpa íbúum þar; hann hefur einnig unnið fyrir Þróunar- samvinnustofnun íslands í Namibíu. En hvað fær fólk til að starfa viö erfiðar og oft hættulegar aöstæður í framandi löndum? „Það er auðvitað ákveðin ævin- týraþrá sem rekur mann út í svona störf. Verkefnin em óvenjuleg og aðstæðumar ekki síður. En fólk þarf einnig að hafa einhveija hugsjón sem drífur það áfram; án hennar endist enginn í þessu starfi. í mínu tilviki má sennilega rekja þessa hugsjón allt aftur til frönsku byltingarinnar; hugmyndarinnar um frelsi, jafnrétti og bræðralag allra manna. Stundum er þó erfitt að sjá mikinn árangur gerða sinna, sérstaklega þegar til langs tíma er litið, en ég held að flestir skilji eftir ákveðna vitund hjá þeim sem þeir umgangast í sínu starfi, hvort sem þaö em flótta- menn eða íbúar hvers svæðis. Annars fer oft lítið fyrir hugsj ónum og hugarfarsbreytingu hjá fólki sem er að glíma við sínar frumþarfir, það reynir fyrst og fremst að halda sér og sínum á lífi. En hins vegar hef ég orðið var við mikla og sterka samheldni hjá íbúum þeirra Afríkulanda þar sem ég hef unnið. Þessi samheldni nær hins vegar aðeins til fjölskyldu og ætt- bálks viðkomandi en ekki til ríkis- ins, enda skildi nýlendutíminn þann- ig við Afríku að þegnar nánast allra ríkja álfunnar eru af margvíslegum uppruna og eiga í mörgum tilfellum ekkert sameiginlegt." Myndir: Jón Haukur Jensson og Úlfur Björnsson. Texti: Björn Malmquist. Þegar mest var nutu um 340 þúsund flóttamenn aðstoðar Rauða krossins. Það sem óbreyttir borgarar á Fílabeinsströndinni hafa veriö að flýja undanfarið er sú skálmöld sem ríkt hefur í Líberíu allar götur síðan 1980. Liklega eru flestum enn i fersku minní hryllilegar myndir frá þessu stríðshrjáða landi á meðan heims- pressan hafði enn áhuga á borgara- stríðinu þar. En ef marka má magn frétta frá Líberíu nú undanfarið, er hins vegar eins og allt hafi þar veríð meö kyrmm kjörum. Því fer þó fjarri. Enn er barist í Lfberíu og enn streymir flóttafólk yfir landamærin til Fílabeinsstrandar- innar í leit að hjálp. En hveijir era að beijast og um hvaða hagsmuni er barist? Rfláð Líbería hefur nokkra sér- stöðu meðal ríkja í Afríku. Snemma á 19. öldinni keyptu Bandaríkjameim landsvæði í Vest- ur-Afríku og sendu þangaðsvokall- aða leysingja, þræla sem leystir höfðu veriö úr ánauð í Bandankj- unum og fluttir aftur til Afríku, Af þessu dregur landið nafn sitt. Flutningur leysingjanna hófst um 1820 og áriö 1847 var rfldð stofnað. Á þessu svæði bjó fólk fyrir en all- ar götur síðan Líbería var stofnuð hafa Ieysingjarnir og síðan afkom- endur þeirra litið á sig sem yfir- stétt í landinu. Þeir sátu í öllum valdastöðum, böm þeirra fóru tfl DV landamæra Filabeinsstrandarinn- ar og heija þaðan á austurhérað Líberíu.-Þær innrásir hófust í des- höfðu sett upp búðlr í nágrannarik- inu Sierra Leone og réðust þaðan á sveitir Taylors í Líberíu. Taylor svaraöi með árásum á búðir friðar- Landið er ríkt af verðmætum auðlindum, þama finnst gull og demantar, jám og hai’ðviður og í landinu er eínnig að finna eina stærstu gúmmíplantekru í heimin- um. Öllu þessu var stjómað í nánu sambandi við bandarísk stórfyrir- tæki, td. réð bandaríski dekkja- framleiðandinn Firestone yflr gúmmíplantekrunni Stjómarfar leysingjanna var við lýði allt fram til 1980. Það ár var gerð blóðug bylting í landinu, ibr- setinn Tudman (sem var leysingi) var myrtur og til valda komst ung- ur liðþjálfí af ættbálki Krahn- manna, Samuel Doe. Þessiættbálk- ur er eirrnig flölmennur á Fíla- beinsströndinni, nefnist þar Gere, og hefur sterk ítök í öryggislög- reglu ríkisins. Forsetinn, Huffet, og flestir valdamestu menn á Fílabeins- ströndinni era hins vegar af ætt- bálki sem nefnist Baule, sem er í ininnililuta í landinu. Huffet var þess vegna talsvert í nöp viö Doe, þar sem hann gæti stuðlað að breyttum valdáblutfollum á Ffla- beinsströndinni með stuðningi við sinn ættbálk, Gere-menn. Af þess- um ástæðum studdi Huffet við bak- ið á ungum uppreisnarmanni M Liberíu, Charles Taylor, leyfði hon- um að dvelja með liö sitt innan voru þeir búnh’ að umkringja höf- uðborgina, Monrovíu. Tekinnaflífi í september var Doe tekinn aí'lífi og allt útlit var fyrir að menn Tayl- ors næðu öllu landinu undir sig. Nágrannaríkjunum var ekki farið að lítast á blikuna og stuttu síðar kom Nígería því til leiðar gegnum Efnahagsbandalag Vestur-Aíríku- ríkja, að sent var friðargæslulið til Líberíu til að stflla til friöar. Níger- íumenn vissu sem var að Taylor var tengdur Huffet, forseta Fíla- beinsstrandarinnar, og gátu ekki horft upp á Huffet ná auknum áhrifum í Líberíu. Friðargæsluliö- inu tókst að semja við Taylor að hann drægi sitt lið frá höfuðborg- inni og þar var sett á laggimar bráðabirgðasljóm sem undirbúa Nú er svo komið að Taylor hefur sigrað sveitir ULIMO og er aftur kominn að úthverfúm Monrovíu, Hér að framan hefur verið rakin valdabar- inu i Líberíu. En þaö er ekki aðeins tekist á um völd, hvort sem þau eru raunveruleg eða ímynduð. Striðið mikla tilfærslu a viðskiptum og hagsmunum tengdum þeim. í Lí- berfu finnst mikið af verðmætum náttúruauðlindum. í stjórnartíð leysingjanna og Doe voru það bandarísk fyrirtæki sem réðu aö mestum hluta yfir þessum auðlind- um en með hugsanlegri tiikomu ■ • |V ! ði Taylors í valdastól munu þau við- Nú var svo konúð aö í raun réö skiptasambönd sennilega breytast. Frönsk fyrirtæki á Fílabeins- ströndinni eru nú þégar komin í samband við Taylor og selja honum vopn í skiþtum fyrir gull og dem- anta. Fflabeinsströndin er fyrrum frönsk nýlenda og með Taylor við Síöastliðið haust blossuðu siðan stjómvölinn í Líberíu geta frönsk aftur upp bardagar í Líberíu. Her- fyrirtæki vænst þess aö fylla það menn af ættbálki Doe og fyrrum skarö sem brottfór bandarískra ULIMO (Frelsisfýlking liberíu), borginni, önnur svæöi haföi Taylor á valdi sínu. Eftir þetta varð hlé á beinum bardögum i landinu, þó oft slægi í brýnu milli manna Taylors
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.