Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993.
23
Vísnaþáttur
Látum fljóðin líða skort
„Því em ek fáræðinn um þetta
mál, at engi heflr mik at kvatt. En
ef ek skal segja mína ætlan, þá
hygg ek, at sá myni til vera hér-
landsmönnum at ganga eigi undir
skattgjafar við Óláf konung ok ali-
ar álögur hér, þvílíkar sem hann
hefir við menn í Noregi. Ok munu
vér eigi þat ófrelsi gera einum oss
til handa, heldur bæði oss ok son-
um várum ok allri ætt várri, þeiri
er þetta land byggvir, ok mun
ánauð sú aldrigi ganga eða hverfa
af þessu landi. En þótt konungur
sjá sé góður maður, sem ek trúi vel
at sé, þá mun þat fara heðan frá
sem hingat til, þá er konungaskipti
verðr, at þeir eru ójafnir, sumir
góöir, en sumir ilhr. En ef lands-
menn vilja halda frelsi sínu, því er
þeir hafa haft, síðan er land þetta
byggðisk, þá mun sá til vera at hjá
konungi enskis fangstaðar á,
hvártki um landaeign hér né um
þat at gjalda heðan ákveðnar
skuldir, þær er til lýðskyldu megi
metask. En hitt kalla ek vel fallit,
at menn sendi konungi vingjafar,
þeir er þat vilja, hauka eða hesta,
tjöld eða segl eða aðra þá hluti er
sendilegir eru. Er því þá vel varit,
ef vinátta kömr í mót. En um
Grímsey er þat að ræða, ef þaðan
er engi hlutr fluttr, sá er til mat-
fanga er, þá má þar fæða her
manns. Ok ef þar er útlendr herr
ok fari þeir með langskipum þaðan,
þá ætla ek mörgum kofbóndanum
munu þykkja verða þröngt fyrir
dyrum".
Jón Arason, verkamaður í
Reykjavík: Land og þjóð
Eitt til hróss þó hef ég mér,
heims ei lána gæddur,
þetta bara, að ég er
Islendingur fæddur
Þegar síðast fer af fold
og frændur leg mér búa,
óska ég geymi íslenzkt hold
íslenzk moldarhrúga.
Um þig kæra íslands þjóð
á ég minning bjarta.
Meðan æðum yljar blóð,
ann ég þér af hjarta.
Ber ég nú fram bænarljóð
og beztu óskir mínar.
Leggðu, drottinn, land og þjoð
í líknarhendur þínar.
Kvæði Jóhannesar úr Kötlum
Eiður vor:
Vér stöndum, hver einasti einn,
um ísland hinn skylduga vörð:
af hjarta vér leggjum nú hönd
á heilaga jörð
og sverjum að sameinast bezt
þess sál, þegar hættan er mest,
hver einasti einn.
Gegn kalsi um framandi kvöð
skal'kynstofninn sjálfum sér
trúr,
í landhelgi rísa við loft
sem lifandi múr.
Og heldur en hopa um spönn,
vér herðum á fóm vorri og önn,
hver einasti einn.
Þótt særi oss silfur og gull,
þótt sæki að oss vá eða grand,
vér neitum að sættast á svik
og selja vort land.
Á fulltingi frelsisins enn
vér festum vort traust eins og
menn,
hver einasti einn.
Vona ég að sem allra flestir ís-
lendingar taki heils hugar undir
þau orð skáldsins.
Torfi Jónsson
Torfi Jónsson
Þetta var svar Einars Eyjólfsson-
ar Þveræings við spurningu um
það hvort gefa skyldi Ólafi Haralds-
syni Noregskonungi Grímsey. Eftir
það „þá var öll alþýða snúin með
einu samþykki, at þetta skyldi eigi
fásk“. En margt hefur breyst og
ekki allt til batnaðar á þeim árum
sem síðan hafa runnið sitt skeið.
Þó eru þeir enn til sem eru sama
sinnis og Einar Þveræingur og
myndu fúslega taka undir með
Guðmundi Sigurðssyni sem kvað:
Látum fljóðin líða skort,
lemjum góöa vini,
fyrr en bjóðum frelsi vort
falt í gróðaskyni.
Og engum var þetta betur ljóst
en Þorsteini Erhngssyni þegar
hann kvað:
Síðast glaðir sigla í strand,
sama er hvað þeir börðu,
þeir sem aðeins áttu land,
elskuðu það og vörðu.
Þingvisa frá 1918:
Sjálfstæðis þeir sungu vers,
svo að hvein í grönum;
að því loknu langs og þvers
lágu fyrir Dönum.
Hugi Pétursson Hraunfjörð: Þjóð-
hátíðarljóð
Frelsisbarátta er yfirleitt illa
þokkuð
og ennfremur stefna sem lítið er
spunniö í.
Ó, hættum við sjálfstæðisbröltið
og svoleiðis nokkuð
og sveijum Baununum
hollustueiðinn á ný.
Eyjólfur Sverrisson, knattspymumaður
„STJÖRNUBÓKIN
HITTIR BEINT í MARK!“
Með spariáskrift að Stjörnubók er unnt að losa alla innstœðuna á sama tíma.
Vísnaþáttur
BUNAÐARBANKINN
Traustur banki
STJÖRHUBQK
BÚNAÐARBANKANS
4* Verðtrygging og háir raunvextir.
4* Vextir bókfærðir tvisvar á ári.
Lausir til útborgunar eftir það.
4* Hver innborgun bundin í 30 mánuði.*
Eftir það er hún alltaf laus til útborgunar.
4* Spariáskrift - allar innborganir lausar á sama tíma.
4* Lántökuréttur til húsnæðiskaupa.
Lánsupphæð hámark 2,5 milljónir til allt að 10 ára.
* Ef nauðsyn ber til getur reikningseigandi sótt um heimild til
úttektar á bundinni fjárhæð gegn innlausnargjaldi.