Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÚNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Lífsstíll nútímans
Þeir ákveðnustu láta ekki á sig fá, þótt yfir landið
fari ein dýpsta lægð í manna minnum. Þeir klæða sig
við hæfi og fara út að ganga eða skokka eins og þeir eru
vanir. Aðrir haga seglum eftir vindi og fara frekar 1
sund þann daginn. Þetta eru hinir nýju íslendingar.
Heilsurækt á ört vaxandi gengi að fagna hér á landi.
Skokkarar á gangstéttum eru auðsæ mæhstika á þessa
ánægjulegu þróun, sem er smám saman að breyta
hvehisjúkri kyrrsetuþjóð í heilbrigða sportþjóð, sem
gætir betra jafnvægis í lífi sínu en áður tíðkaðist.
Um leið og veður lægir leggja bílalestir af stað úr
þéttbýh í skíðalöndin. Þúsundir manna velja fremur að
taka þátt í skemmtilegri og erfiðri íþrótt heldur en að
kúra heima í sófa að glápa á íþróttir annarra. Þetta er
virkur lífsstíU, sem leysir hinn óvirka af hólmi.
Aukinnar heilsuræktar sér ekki aðeins stað í auknum
almenningsíþróttum. Tóbaksnotkun hefur minnkað
svo, að því stigi hefur verið náð, að tóbaksneytendur
eru orðnir að minnihlutahópi, sem verður að sæta aukn-
um takmörkunum af hálfu hinna, sem lifa heUbrigðu lífi.
Enn er þó ástandið þannig, að kostnaður ríkisins af
tóbaksneyzlu landsmanna er tahnn meiri en tekjur þess,
samkvæmt athugun, sem nýlega var birt. Það bendir
til, að töluvert sé enn í land og að enn verði að þrengja
kosti þeirra, sem eru háðir þessari tegund eiturs.
Því miður verður hinnar nýju hugsunar ekki mikið
vart í umgengni við dýrasta eitrið hér á landi. Það er
áfengið, sem er meginorsök lagabrota, slysa, fjárhags-
tjóns, félagsvandræða og sálrænna truflana. HáUæris-
legir drykkjusiðir eru enn við lýði hjá háum og lágum.
Útlendingar eru enn að furða sig á, að íslenzkar helg-
ar skuh einkennast af gargandi fólki,' sem hvert slefar
í eyru annars á mannamótum og af stöðugum ferðum
lögreglumanna í heimahús til að reyna að stiUa tU frið-
ar með fólki, sem stundar íslenzka drykkjusiði.
Þótt þúsundir manna hafi hætt þessarri undirgefni
við Bakkus og tekið upp heilbrigðari lífshætti, hafa eng-
in straumhvörf orðið með þjóðinni á þessu sviði. Það
þykir ennþá fínt hjá unga fólkinu að missa ráð og rænu
og verða að slyttisiegum bjánum á almannafæri.
Betri árangur héfur náðst 1 mataræði. Fiskbúðir og
bakarí eru betri en nokkru sinni fyrr og njóta vaxandi
viðskipta. Góð fordæmi eru gefin í veitingahúsum, sem
mörg hver bjóða mjög gimUegan og hollan mat á tiltölu-
lega sanngjömu verði miðað við íslenzkar aðstæður.
HeUsufæði og náttúrufæði af ýmsu tagi nýtur vax-
andi vinsælda. Fólk borðar Qölbreyttari mat og gætir
betra jafnvægis í neyzlunni. Grænmeti og ávextir era
vaxandi þáttur í fæðinu. Um leið minnkar hluti feitmet-
is af ýmsu tagi, sem áður var of umfangsmikUl.
Að vísu skiptir nokkuð í tvö hom á þessu sviði. Ann-
ars vegar sést þessi þróun í átt til heUbrigði og hins
vegar virðist ekki fækka þeim, sem nærast að miklu
leyti á raslfæði af ýmsu tagi, svo sem djúpsteiktum
kartöflum og unnum kjötvörum á borð við fars.
Alvarlegast er þó, að ekki hefur tekizt að hnekkja
óhóflegri sykumotkun okkar, sem er mun meiri en
nokkurrar annarrar þjóðar. Þessi neyzla er svo mikil,
að hún hlýtur að stuðla að slæmri heUsu og útgjöldum
tU heUbrigðismála á sama hátt og áfengi og tóbak.
í heUd hafa lífshættir okkar breytzt til batnaðar.
Dæmin, sem hér hafa verið rakin, benda til, að okkur
miði áfram eftir veginum í átt til lífsstfis nútímans.
Jónas Kristjánsson
Uppljóstranir
atlaga að ríkis-
erfðum Karls
Fjaörafokið út af hjúskaparerj-
um breska ríkisarfans Karls prins
af Wales og Díönu prinsessu er
komið á nýtt stig. Leitt hefur verið
í ljós að prinsessan hefur sjálf kom-
ið máhnu af sfað með því að láta
vini sína leggja til efni í bók með
harmatölum um vonsku eigin-
manns síns og síðan fylgt henni
eftir með frekari leka til slúður-
blaða. Jafnframt sækir að kunnug-
um mönnum grunur um að máhð
hafi póhtíska hhö, verið sé að reyna
að búa svo um hnúta, vegna andúð-
ar á skoðunum sem Karl prins hef-
ur látið í ljós, að hann útilokist frá
ríkiserfðum.
Wilham Rees-Mogg lávarður er
fyrrverandi ritstjóri Times frá því
það blað naut álits og áhrifa. Hann
hefur nú látið uppi þá skoðun aö
upptaka á ástarsamtali Karls prins
við konu annars manns, Camilla
Parker-Bowles, sé svo fagmannlega
gerð að engum sé trúandi tíl að
hafa þar um fjallað öðnun en at-
vinnusímahlerurum bresku leyni-
þjónustunnar, MI5.
Símtahð birtist í ástralska slúð-
urritinu New Idea, sem er í eigu
ástralsk-bandaríska fjölmiðla-
kóngins Ruperts Murdoch. Hann
er einnig eigandi Sunday Times og
Sun í Bretlandi. Fyrrnefnda blaðið
birti meginefni Díönu-bókarinnar
áður en hún kom út. Hið síðar-
nefnda var síðan iðnast við kolann
að halda lífi í hneykshssögum, þar
sem málstað Díönu var jafnan
haldið fram á kostnað Karls.
Stykkin í púslinu taka nú að rað-
ast saman. Eftir að uppvíst varð á
fimmta og sjötta tug aldarinnar
hvemig sovéska leyniþjónustan
hafði komið erindrekum á sínum
snærum í breska utanríkisþjón-
ustu og leyniþjónustu, urðu þeir
sem réðu inngöngu í leyniþjón-
ustuna svo varir um sig að þangað
áttu greiðastan aðgang hægri öfga-
menn, sumir vart með öhum
mjalla. Afleiðingamar komu í ljós
eftir að Harold Whson varð forsæt-
isráðherra í stjóm Verkamanna-
flokksins. Hópur háttsettra manna
Erlenci tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
í MI5 fékk þá flugu í höfuðið að
breski forsætisráðherrann, og
reyndar sumir meðráðherrar hans
líka, væru laumulegir erindrekar
Sovétríkjanna, og gerðu samsæri
um að koma þeim frá völdum með
undirróðri. í því skyni voru símar
hleraðir, brotist inn í skrifstofur
og á heimili og meira og minna
rangfærðum afrakstri af þessu at-
hæfi komið á framfæri við stjóm-
arandstöðumálgögn.
Einn fyrsti ósigur frú Thatcher á
forsætisráðherrastóh var þegar
henni mistókst að hindra að einn
af samsærismönnum, Peter
Wright, gæti birt frásögn af atlög-
unni gegn Whson í bók sinni Spy-
catcher. Ástralskur dómstóll
komst að þeirri niðurstöðu að
Thatcher heíði sent einn æðsta
embættismann í ráðuneyti sínu
gagngert th að bera ljúgvitni.
Þetta dæmi og fleiri sýna að MI5
er th ahs trúandi, og milh leyni-
þjónustunnar og útgefanda af
sauðahúsi Murdochs hafa lengi
legið þræðir. Það hggur svo í aug-
um uppi hvers vegna báðir aðhar
hljóta að hafa ihan bifur á Karh
prins og væri ósárt um þótt hann
missti af bresku krúnunni.
Prinsinn hefur frá því hann varð
fuhveðja verið ófeiminn að tjá
skoðun sína á ýmsum opinberum
málum, sem hann lætur sig veru-
lega skipta, ólíkt móður sinni sem
einkum hefur áhuga á hundum og
hestum. Sérstaklega varð það ber-
sýnhegt eftir að Thatcher komst til
vaida að gildismat prinsins var allt
annað en ráöandi afla. Hann er
hefðarsinni í víðtækri merkingu,
ólíkt jámfrúnni, sem sagt var aö
yrði það fyrst fyrir kæmi hún auga
á virðuiega stofnun að lúskra henni
með handtösku sinni.
Murdoch var einhver öflugasti
stuöningsmaður Thatcher í bresk-
um fjölmiðlaheimi, og er í hópi
hefðbrjótanna sem Karl hefur átal-
ið. Alkunna er úr breskri sögu hver
áhrif þjóðhöfðingjar geta haft á tíð-
arandann. Viktoría drottning var
íhaldssemin dæmigerð, Játvarður
VII. sonur hennar ýtti verulega
undir samskiptin th fijálslyndari
lífsviðhorfa. Því væri þaö alveg eft-
ir þeim öflum, sem vhja fyrir hvem
mun ríghalda í arfleifð Thatcher-
tímans á Bretlandi, að grípa tæki-
færi sem þau sjá gefast th að bola
Karh prins frá ríkiserfðum. Auk
þess sem mergjuð hneykslissaga
selur slúðurblöðin dijúgt, sérstak-
lega þegar konungborið fólk á í
hlut.
Meðan ósköpin ganga á sinna ríkisarfahjónin skyldustörfum.
Díana (t.h.) fæst við regnhlífina í heimsókn í Leyland Daf bílasmiðjurnar. Karl horfir þungbúinn á viðurstyggð
eyðileggingarinnar eftir strand olíuskipsins Braer við Hjaltland. Simamyndlr Reuter
Skoðanir aimarra
Saddam ætlar að sýna veik-
leika Sameinuðu þjóðanna
„Gerðir Saddams sýna einnig að markmið hans
th lengri tíma Utið er að reka fleyg mihi banda-
manna gegn írak og Sameinuðu þjóðanna. Saddam
gerir sitt th að sýna hálfkákið í friðagæslu samtak-
anna, sem er á mörkum þess að mistakast í Kambód-
íu, lýðveldum fyrrum Júgóslavíu og Sómalíu."
Jim Hoagland í IHT, 14. jan.
Varhugavert að styrkja Rússa
„Bandaríkjamenn vilja að Rússar snúi frá mið-
stýrðum kommúnisma til lýðræðislegs kapítaUsma
en þeim sem krefjast þess að Bandaríkjamenn leggi
Rússum th ríkihega aðstoð í þessum thgangi yfirsést
tvennt:
í fysta lagi hefur aðstoö afdrifarík áhrif á stjórn-
mála- og efnahagsþróunina í Rússlandi. Það er ekki
hlutverk stjómarinnar í Washington.
í öðm lagi er ekki líklegt að stuðningur einnar ríki-
stjórnar við aðra verði th að efla markaðsbúskap.
Reynslan úr þriðja heiminum síðustu fjóra áratugina
sýnir annað.“
Ted Galen Carpenter í USA Today, 23. des.
Frelsi í fjölmiðlun
„Það væri skhjanlegt ef ríkisstjóm Johns Major
léti freistast th að takmarka frelsi fjölmiðla. Mönnum
líkar ekki hvemig komið er fram við konungsfjöl-
skylduna en ef fjölmiðlar fá ekki að starfa fijálsir
er heldur enginn th aö segja sannleikann."
Leiðari Sunday Express, 10. jan.