Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993. Rannveig mætt í sjónvarpið -en án knimma: Anægjulegt að vera komin hingað aftur Rannveig sér um barnaefni morgunsjónvarpsins. DV-mynd GVA Rannveig og Krummi voru feiknavinsæl hjá yngri kynslóðinni. „Það er afskaplega ánægjulegt að vera komin aftur til starfa hér í sjón- varpinu og hitta hér marga sem ég vann með áöur,“ sagði Rannveig Jó- hannsdóttir, umsjónarmaður morg- unsjónvarps barnanna. Rannveigu þekkja allflestir lands- menn. Fyrir rúmum tuttugu ánun var hún tíður gestur á skerminum ásamt krumma sínum. Allir krakkar þekktu þau skötuhjúin og fylgdust með asnastrikunum hjá krumma. Vandséö var hvemig hann hefði komist fram úr lífmu og tilverunni ef Rannveigar hefði ekki notið við. En svo hættu þau hjá sjónvarpinu og flugu sitt í hvora áttina. Rannveig hóf nám til undirbúnings kennslunni sem nú er hennar aðalstarf. Hún kennir nú bömum í æfmgadeild Kennaraháskólans. Einnig kennir hún kennaranemum í Kennarahá- skólanum. „Þetta er virkilega skemmtilegt starf,“ sagði hún. „og hreint ekki þreytandi eða tilbreytingarlaust. Annars vegar era það börnin og hins vegar unga fólkið sem er aö búa sig undir að fara sjálft út í kennslu." Hún er nú komin með fjölskyldu og á tvær dásamlegar dætur. Af krumma og athöfnum hans fara hins vegar engar sögur. Tvenn tímamót „Mér finnst það mjög merkilegt að eiga þess kost að taka þátt í starfi sjónvarpsins á tvennum tímamót- um,“ sagði Rannveig. „Annars vegar þegar það var að byija og hins vegar þegar morgunsjónvarpið er að hefj- ast. Hér mæta mér mörg kunnugleg andlit sem vora hér fyrir rúmum tuttugu árum. Margir hafa unnið hér allan tímann, kannski með aðrar áherslur í starfi núna. En þetta sýnir bara hvað það er gott að vinna hérna hjá sjónvarpinu." Varðandi morgunsjónvarpið sagð- ist hún fá efnispakka í hendurnar og reyna að gera hann eins aðlaðandi og skemmtilegan fyrir bömin og kostur væri. Ekki væri reiknað með flölskrúðugri umgjörð en lögð áhersla á að hafa efnið gott. Aðspurð hvort krummi fengi að vera með í morgunsjónvarpinu sagðist Rann- veig ekki búast við því. En hún ætti efdr að ræða málið við hann. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.