Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Side 18
18
Veiðivon
Það er ekki alveg nóg að veiða laxinn ef maður kann ekki að matreiða
hann. Stefán Hjaltested kennir það hjá Ármönnum á miðvikudagskvöldið.
DV-mynd G. Bender
Ármenn:
Heiðursmat-
sveinninn næsta
miðvikudag
Þó veturinn sé svo sannarlega
genginn í garð þýðir þaö ekki algjört
stopp þjá stangaveiðimönnum. Líf-
legt starf verður hjá Ármönnum í
vetur sem og fleiri veiöifélögum.
Heiðursmatsveinninn Stefán Hjalt-
ested kennir að grafa fisk og laga
sósu með. Einnig verður kennd flök-
un og gefin góð ráð verðandi alla al-
menna verkun fisks svo og geymslu-
aðferðir. Þetta verður miðvikudag-
inn 20. janúar. Laugardaginn 23. jan-
úar klukkan tvö verður svo aðai-
fundur félagsins. Síðan verða hnýt-
ingakvöld á mánudagskvöldum í all-
anvetur. -G.Bender
Rangárnar:
Leiðsögumaður
fylgir veiðileyfunum
Þessa dagana keppast leigutakar
við að koma út verðskrám sínum
fyrir sumarið og í flestum tilfellum
stendur verð veiöileyfa í stað eða
lækkar aðeins. Þresti Elliðasyni hjá
Veiðiþjónustunni Strengjum og
leigutaka Ytri-Rangár og vestur-
bakka Hólsár tókst að ná fram lækk-
un á leigu ánna úr 5,2 milljónum nið-
ur í 3 miiljónir næsta sumar. Jafn-
framt er hann skuldbundinn til að
sleppa árlega gönguseiðum að verð-
mæti 3-4 milljóna. Þrátt fyrir það er
lækkun veiöileyfa á biiinu 20-40%
frá sl. sumri. Eins og flestum veiði-
mönnum er kunnugt lækkuöu veiði-
leyfi um miðjan ágúst í fyrra um ailt
að helming í Ytri-Rangá en ekki tekst
að halda þeirri miklu lækkun að öllu
leyti.
„Verö veiðileyfa á svæði tvö í Ytri-
Rangá, sem hefur verið vinsælasta
svæðið í Rangánum, er á bilinu
5-15.000 dagurinn, svo að eitthvert
verðdæmi sé tekið í ánum,“ sagði
Þröstur Elliðason í samtah við DV í
vikunni.
„Ég býð veiðimönmun, sem panta
nokkrar stangir saman, leiðsögu-
mann þeim að kostnaðarlausu ef þeir
óska. Ég er viss um að þessari ný-
breytni verður vel tekið,“ sagði
Þröstur aö lokum.
-G.Bender
Þröstur Elliðason stuttu eftir föndun á 12 punda laxi úr Rangá i sumar en
fiskurinn tók rauöan Franses. DV-mynd ÁSS
LAÍJGÍIRÖÁGUR 16. JANÚAR 1993.
Þjóðar-
spaug DV
Þægindin
í læknistíð Vilmundar Jónsson-
ar á ísafirði var reist þar nýtt
sjúkrahús. Því var valinn staður
á túnbletti rétt hjá kirkjugarði
heimamanna. Þaö var talin vönd-
uð bygging og réð Vilmundur
mestu um staðarval hennar.
Skömmu eftir að sjúkrahúsið
var tekið í notkun kom Stein-
grímur læknir Matthíasson til
Isafiarðar og bauö Vilmundur
honum að skoða sjúkrahúsið.
„ög hvernig list þér svo á?“
spurði Vilmundur er þeir höfðu
gengiö um húsið.
■ „Jú, húsið er gott," sagði Stein-
grímur „og svo eru það býsna
mikil þajgindi fyrir þig að hafa
kirkjugarðinn svona nálægt,“
Aumingja
konan
Á bæhdafundi í Skagafirði fyrir
margt löngu hélt búfræðingur
einn ræöu og komst þá meðal
annars svo aö orði:
„Næst ætla ég að segja ykkur
frá jörð neðárlega 1 Vatnsdal. Á
jörðinni bjuggu ung hjón og fórst
þeim búskapurinn vel úr hendi i
fyrstu eða <últ þangað til maður-
inn dó. Eftir andlát hans bjó ekkj-
an þar ein í nokkur ár en þá
komst ungur maður á hana og sat
hana ágætlega en svo hrakti hún
hann frá sér og síðan hefur hún
verið í hinni mestu niðurníðslu."
„Sá maður sem lætur undan
þegar hann hefur á röngu að
standa er skynsamur," sagöi
ræðumaöurinn. „En sásem lætur
undan þegar hann hefur rétt fyrir
sér, er ...“
...giftur!" gall við utan úr sal.
Finnur þú íimm breytingar? 188
ý*ihJb^s>l»
Nei sko, sjáðu, Elínborg! Fjögra blaða smári!
Nafn:
Heimilisfang:.
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í Ijós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: ELTA útvarps-
vekjaraklukka að verðmæti
kr. 5.450 frá versluninni Tón-
veri, Garðastræti 2, Reykja-
vík.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950. Bækumar, sem eru í verð-
laun, heita: 58 mínútur, Víghöfði,
Sonur Ottós, Kolstakkur og Leik-
maðurinn. Bækumar em gefnar út
af Fijálsri fiölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 188
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundraö
áttugustu og sjöttu getraun
reyndust vera:
1. Kristín Jónsdóttir,
Heiðargötu 27,740 Neskaupstað
2. Jón Eggertsson,
Vesturbergi 54,111 Reykjavík
Vinningamir verða sendir
heim.