Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993. íslenskir karlmenn vilja í bamapössun til Bandaríkjanna: Kokkar og fiskeldisfræð- ingar meðal umsækjenda rætt við Iindu Hallgrímsdóttur, fulltrúa samtakanna Au pair in America „Það er mjög mlMl aðsókn hjá okk- ur. Þetta er bæði fyrir stúlkur og pilta. Því miður er miklu minna beð- ið um piltana. Það er hins vegar mjög mikill áhugi hjá þeim og síðastliðinn vetur leituðu til mín yfir 40 sem vildu komast út á vegum samtakanna. Meðal þeirra sem hafa sótt um eru kokkar og fiskeldisfræðingar, svo eitthvað sé nefnt. Því miður hefur okkur ekki tekist að senda neinn karlmann enn sem komið er. Þeir þurfa aö hafa þrefalda reynslu miðað við stúlkurnar." Þetta sagði Linda Hallgrímsdóttir, fulltrúi samtakanna Au pair in Am- erica hér á landi. Þessi samtök eru deild í menningarsamtökunum Am- erican Institut for Foreign Study Foundation. Þau hafa verið starf- rækt í Bandaríkjunum síðan 1964. Au pair-deildin var stofnuð 1986. Frá stofnun hafa þúsundir ungmenna á aldrinum 18-25 ára farið á vegum samtakanna til Bandaríkjanna frá 20 Evrópulöndum. ísland gekk svo inn í samstarfiö fyrir ári. „Við sendum tugi fólks til Banda- ríkjana á síðasta ári,“ sagði Linda. „Þetta er svipað og skiptinemasam- tök. Við undirbúum krakkana fyrst hérna heima og vöndum mjög til þess.“ Ókeypis námskeið Að loknum undirbúningnum heima er öllum þeim sem fara utan á vegum samtakanna boðið upp á ókeypis námskeið í New York. Þar lærir fólk skyndihjálp, umönnun barna, ýmis öryggisatriði og ótal margt fleira sem kemur því að gagni í Bandaríkjunum. Einnig ýmislegt sem ekki er vel séð í vistinni erlendis. „Reykingar eru til dæmis strang- lega bannaðar," sagði Linda. „Það kemst enginn út sem reykir. Ég hef lofað stúlkum, sem reykja, að sækja um. En þær hafa ekki fengið fjöl- skyldur." Að námskeiðinu loknu fer hver til sinnar fjölskyldu. Allur kostnaður er 'greiddur af fjölskyldunni, flugfar, uppihald, sjúkra- og slysatrygging, upp á 3 milljónir króna, og vasapen- ingar. Heildarkostnaðurinn nemur 8740 dollurum (rúmlega hálf milljón ísl. kr.) Mjög er vandaö til valsins á fjöl- skyldum úti. Þær þurfa að fá með- mæh frá nágrönnum, lækni, vinnu- veitendum og fleirum. Þá eru sam- tökin með ráðgjafa á hveiju svæði sem fylgist með og ungmennin geta leitað til ef eitthvað bjátar á. „Þau mega skipta um fjölskyldu einu sinni til tvisvar yfir árið,“ sagði Linda. „Það getur alltaf eitthvað komið upp á. Þótt hjónin séu hið besta fólk og stúlkan frábær þá eiga þau ekki alltaf skap saman. Stundum gefast stúlkumar upp á bömunum og þá er ekki um annað að ræða en að skipta um fjölskyldu. Það hefur ætíð gengið mjög vel. Þá leitar ung- mennið til ráðgjafa sem finnur aðra fjölskyldu." Ein af fjölskyldunni „Meginmálið er þaö að stúlkan er tekin inn á heimilið sem ein af fjöl- skyldunni. Það er ekki litið á hana sem vinnukonu. Hún vinnur fyrst og fremst við bamapössun. Á öllum þeim heimilum, sem mínar stúlkm- era á, kemur manneskja og þrífur húsið einu sinni í viku til tvisvar í mánuði. Þaö er svo hlutverk stúlk- unnar að halda í horfinu. Of mikið Sigurbjörg Guðjónsdóttir úr Reykjavík er á vegum samtakanna á Long Island í New York. Hér er hún að gæða fjölskyldu sinni á rammíslenskum sviðum. Svo virðist sem húsbóndinn ætli að ráðast til atlögu. vinnuálag heyrir til sérstakra und- antekninga. Ungmennin geta stundað létt nám í nærliggjandi skóla, sér að kostnað- arlausu. Þau fá vegabréfsáritun fyrir námsmenn sem gildir í 13 mánuöi. Síðasta mánuðinn nota þau gjarnan til að ferðast um Bandaríkin saman í hóp. Það ferðalag verða þau að greiða sjálf.“ Síminn stopparekki Eins og áður sagði er gífurlegur áhugi hér fyrir au pair-dvöl erlendis. Síminn hefur ekki stoppað hjá Lindu eftir að hún auglýsti slíka dvöl í Bandaríkjunum á dögunum. Fyrr í vikunni fóru 4 stúlkur út og í hveij- um einasta mánuði fara a.m.k. 5-8 héðan. Þess má geta að umsóknar- gjöld era engin. „Það hefur komið upp að stúlkur hafa komið heim áður en umsaminn dvalartími var liðinn," sagði Linda. „Oft fá þær heimþrá, eiga jafnvel kærasta heima og dæmið gengur ekki upp. Svo hafa tvisvar komið fyrir ófyrirsjáanleg atvik, eins og að stúlkan hafi lent í umferðaróhappi. Fjölskyldan hefur þá ekki treyst henni til að keyra bömin eftir þaö. í þessu tilviki kom stúlkan heim, en svona óhapp getur komið fyrir alla. En okkar stúlkur hafa aldrei lent í neinu slæmu, eins og sumar sem farið hafa á eigin vegum. Margar sem farið hafa eftir auglýsingum í blöðum hafa hringt í mig og sagt mér ljótar sögur. Þær hafa lent í kynferðislegri áreitni frá heimilisföður og alls kon- Linda Hallgrimsdóttir, fulltrúi Au pair in America hér á landi DV-mynd BG ar ótrúlegri framkomu af hendi fjöl- skyldunnar." Á löglegan hátt „Ég ráðlegg stúlkum að fara þetta á löglegan og öruggan hátt. Þær geta verið vissar um að komast á góð heimili. Okkar fólk er búið að skoða heimilin og ræða við fjölskyldurnar og veit því nákvæmlega hvað er í boði. Að auki kostar þetta fjölskyld- urnar svo mikið, eins og ég gat um áðan, að fólk er ekkert að leika sér með þetta. Þetta er fólk, sem er í hærri kantinum tekjulega séð. Þetta er yfirleitt vel menntað fólk, vel upp- lýst og hefur ferðast og jafnvel num- ið í Evrópu. Það er ekki verið að senda stúlkurnar í einhver fátækra- hverfi, eins og komið hefur fyrir með íslensk ungmenni sem hafa farið á eigin vegum. Þetta fólk býr allt í út- hverfum stórborga, við góðar aö- stæður í góðum hverfum. Allt vegur þetta þungt þegar tryggja á stúlkun- um góöa og öragga vist erlendis." -JSS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.