Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Page 29
28 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993. LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993. 37 i I t -S Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra: Höfum staðið af okkur alla storma „Það er léttir. Sumir hafa sagt að þeir séu hundleiðir á EES og öllu sem því fylgir. Ég segi dittó, ég er hund- leiður á þvi. Ég er feginn að þessi áfangi er aö baki,“ sagði Jón Baldvin Hannibaisson utanríkisráðherra um staðfestinguna á EES. „Það hafa komið tímabil þegar geðshræringar hafa risið sem hæst. Þegar umræðan um skattkerfis- breytinguna 1988 stóð sem hæst fór ekki á milli mála að húsbóndinn á Vesturgötu 38 var ekki með vinsæl- ustu mönnum þjóðarinnar. Þá vór- um við vissulega umsetin. Það voru hringingar, sumar djöfullegar, morð- hótanir og hótanir um að brenna of- an af okkur og eggjum var kastað í húsið. Þessa hefur einnig orðið vart núna og mér er enn hótað lifláti. Ég geri ráð fyrir að fleiri umdeildir stjórnmálamenn verði fyrir þessu. Það væri dapurlegt til þess aö hugsa ef sfjómmálamenn þurfa orðið að láta vemda líftómna en við viljum hafa þjóðfélagið opið og við viljum forðast að stjómmálamenn séu um- kringdir lífvörðum." EES vartækifæri „Það skal ég viðurkenna, ekki síst fyrir þá hendingu að það kom í hlut íslands að veita EFTA-ríkjunum for- mennsku í upphafi, að ég var fljótur að átta mig á því að við höfðum feng- ið stórkostlegt tækifæri. Oft er það svo í pólitík að það skiptir mestu hvort menn grípa tækifæri sem gef- ast eða missa af þeim. Það er fjarri öllum sanni að eigna einum manni þetta mikla mál. Þétta er hluti af stærri málum samtíðarinnar." - Eftir kosningamar hafnaðir þú boði um að verða forsætisráðherra. Lagðir þú mikla áherslu á að halda embætti utanríkisráðherra og ljúka EES-málinu? „Nei, en þetta er eitt af þeim málum sem skám úr um hvemig ríkisstjóm var mynduð hér eftir kosningar. Þau vom að vísu fleiri en af okkar hálfu vom það EES, stóriðju- og álmálið og, að fenginni reynslu af starfinu í síðustu ríkisstjóm, ríkisfjármálin, sem vom komin í óefni. Af þessum málum var EES-málið stærst. Ólafur Ragnar Grímsson lagöi það mikið kapp á að áfram héldist samstarf þessara flokka að hann lýsti því yfir, fyrir hönd síns flokks, að hann væri tilbúinn að mynda ríkisstjórn undir forsæti mínu. Óneitanleg var það traustsyfirlýsing. Einhvem tíma sagði ég, í gamansömum tón, að ég hefði á yngri ámm lært til forsætis- ráðherra. Það er ekki á hverjum degi sem menn hafna þvi aö verða forsæt- isráöherra. Þetta undirstrikar að at- fylgi við stefnumál og þjóðarhags- muni er, þrátt fyrir aUt, persónuleg- um metnaði yfirsterkara." Steingrímur staöfesti „Það var á leiðtogafundi EFTA í mars 1989 sem Steingrímur Her- mannsson, þáverandi forsætisráö- herra, var fulltrúi íslands og hann staðfesti fyrir íslands hönd atfylgi okkar að þessum samningaferli. Samstarf okkar Steingríms í þeirri ríkisstjóm var gott og hvað EES varðar alveg snurðulaust. Ég man ekki eftir neinu ágreiningsmáli milli okkar um málið. Að því er varðar Alþýðubandalagið minnist ég þess, frá stjómarmyndun- arviðræðum eftir kosningamar í apríl 1991, að Ólafur Ragnar Gríms- son kom á minn fund og kynnti fyrir mér drög að stefnuyfirlýsingu sem Við hðfum varðveitt æskuástina, segir Jón Baldvin um sig og Bryndisi. Hann segir að samband þeirra hafi aldrei verið leiðinlegt. DV-myndir GVA hann sagði Alþýðubandalagið vera tilbúið að styðja. Ég man að ég spurði hvort þetta hefði verið kynnt og sam- þykkt í þingflokki Alþýðubandalags- ins. Mér þótti ástæða til að spyrja þar sem einhver hefði getað kailað þetta makalaust ftjálshyggjuplagg. Mér þótti með ólíkindum aö þing- flokkur Alþýðubandalagsins hefði samþykkt þetta, í þvf skjali var að sjálfsögðu lýst yfir stuðningi við Evr- ópska efnahagssvæðið. Jafnframt sagði formaður Alþýðubandalagsins að það mál myndi ekki standa í vegi fyrir slíku stjórnarsamstarfi og hann myndi ömgglega, ef þörf krefði, geta handjárnað mann eins og Hjörleif Guttormsson." Hjörleifur járnaði Ólaf „Þegar ég lít til baka þakka ég fyr- ir að þekking mín frá fyrri tíð á inn- viðum Alþýðubandalagsins var næg til þess að gína ekki við þessu agni. Ég þóttist vita betur og efaðist mjög um að þessu mætti treysta. Ég veit ekki enn í dag hvort þingflokkur Alþýðubandalagsins hefur séð þetta plagg. Sumir þingmanna þess hafa sagt mér að þeir hafi ekkert af því vitað. Hvað sem um það er þá sjáum viö hvemig mál hafa þróast eftir kosningar. Framsóknarflokkurinn klofnaði, formaður Alþýðubanda- lagsins söðlaði algörlega um - í stað þess að hann handjárnaði Hjörleif gengur hann nú í hlekkjum Hjör- leifs.“ - VærirþúaðfagnaEES-málinumeð Steingrími og Ólafi Ragnari ef fyrri ríkisstjórn væri enn við völd? „Þessari spurningu verður aldrei svarað svo óyggjandi sé. Ég efast ekki um að Steingrímur og Ólafur hefðu við þær kringumstæður fylgt málinu fram en hvort þeir hefðu get- að tryggt atbeina allra sinna þing- manna, um það efast ég.“ Virði við Hjörleif „Ég virði við Hjörleif Guttormsson að andstaða hans við málið er hans hjartans meining. Hann er þjóðemis- sinnaður íhaldsmaður og villir ekki Jón Baldvin segir aó Sighvatur sé fljóthuga kjarkmaður sem vaxið hafi af verkum sínum og hann segir Jóhönnu vera kvenskörung sem sláist við strákana. á sér heimildir. Þess má líka geta að hann er sá þingmaður stjórnarand- stöðunnar sem hefur kynnt sér málið best og það hefur ekki hent hann eins og hina að fara með tómt mgl að því er varðar staðreyndir.“ - Þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð sögðuð þið að til greina kæmi að hafa stólaskipti um mitt kjörtímabil: Kokkteilráðuneyti „Það eru engin samtöl hafin um þetta mál og verða ekki á næstu vik- um. Ég get engu svaraö tO um þetta.“ - En þetta kemur til umræðu? „Mér þykir vaka fyrir þér hvort ég geti hugsað mér aö fara í annað ráðu- neyti. Vegna þessa vil ég vekja at- hygh á að utanríkisráðuneytið hefur tekið stakkaskiptum á seinni ámm. Áður fyrr þótti ráðuneytið filabeins- tum, stundum kallað kokkteilráðu- neyti. Þeir stjómmálamenn, sem hingað komu, vora oft stjórnmála- menn sem vora á útleið. Flestir sem fylgjast með átta sig á að þetta er gjörbreytt. Þetta breyttist strax haustið 1987 þegar ákveðið var að færa forræði yfir markaðs- og við- skiptamálum í þetta ráöuneyti, frá viðskiptaráðuneytinu. Þaö sem síðar gjörbreytti þessu vora samningamir um Evrópska efnahagssvæðið. Þegar þar við bætist að núverandi utanrík- isráðherra er jafnframt formaður annars stjómarflokksins kemur það að sjálfsögðu í hans hlut aö eiga hlut að mótun stefnu stjómarinnar í öðr- um lykilmálum, svo sem ríkisfjár- málum og efnahagsmálum, þá er þessi mynd gjörbreytt." Hefur metnaö til að veröa forsætisráð- herra - Þú rifjaðir upp áðan aö þú hefðir sagt að þú hefðir menntað þig til for- sætisráðherra. Fylgdi þessu ekki ein- hver alvara, ætlar þú aö vera for- maður stjórnmálaflokks áram sam- an án þess að fara alla leið? „Stjómmálamenn era ekki emb- ættismenn. Embætti forsætisráð- herra er ekki starf sem hægt er að sækja um.“ - En þú getur samt átt drauminn? „Já, já. Það hlýtur að vera sameig- inlegt öllum sem era í forystu í stjómmálum að vera reiðubúnir að hlýða kallinu þegar þar að kemur. Starf forsætisráðherra er þess eðhs að það sakar ekki að menn hafi víð- tæka reynslu þó reynslan ein og sér sé hvergi nærri einhlít." En þú hefur metnað til að verða for- sætisráðherra? „Já, já.“ - Þú segir að það saki ekki að forsæt- isráðherra hafi víðtæka reynslu. Ert þú að segja að Davíð Oddsson hefði mátt hafa meiri reynslu áöur en hann varð forsætisráðherra? „Hann hafði ekki reynslu af þing- inu en það er ekki það þýðingar- mesta. Ég hef sjálfur sagt að reynsla af vera í sveitarstjórn sé sá skóli sem ég lærði einna mest af. Ég var í bæj- arstjórn á ísafirði í tvö kjörtímabil. Sveitarstjórnir fást við þverskurð af þjóðfélaginu og það er gagnleg reynslá. Ég held að reynsla af starfi á Alþingi skipti ekki sköpum." Davíð er harögreindur - Nú ert þú reyndur sem ráðherra og þingmaður. Hefur þú aldrei hrist höfuðið og verið undrandi á þvi sem nýliðinn Davíð Oddsson hefur sagt eða gert? „Nei. Það er nú svo með núverandi forsætisráðherra að það yfirbragð, sem hann hefur á sér fyrir gaman- semi og glaðværð, \illir mönnum sýn. Staðreyndin er sú að Davíð Oddsson er harðgreindur og flestum mönnum fljótari að átta sig á málum og komast að kjama mála. Það ásamt reynslu af stjórnunarstörfum hjá Reykjavíkurborg þýðir að hann kom ekki í forsætisráðuneytið reynslu- laus. Ég hef hins vegar sagt við hann að þegar kemur að veigamiklum efnahagsmálum þyki mér hann draga taum sveitarstjórna um of. Það birtist meðal annars í því að eftir að hann varð forsætisráðherra lagði hann áherslu á að halda áfram sem borgarfulltrúi. Það sitja margir sveit- arstjórnarmenn á Alþingi og sveitar- stjómarhðið er einn harðsvíraöasti hagsmunahópurinn í okkar þjóðfé- lagi.“ Jóhanna slæst við strákana - Jæja, þá langar mig að spyrja þig hvemig samkomulagið mfili þín og Jóhönnu Sigurðardóttur er þessa dagana: „Alveg frá þvi við kynntumst fyrst, en það var eftir að ég flutti frá ísafirði, hefur okkur komið vel sam- an. Við höfum marga hildi háð sam- an og síðar gegn hvort öðru um til- tekin mál. En það er mikill misskiln- ingur ef einhver heldur að milli okk- ar ríki óvild eins og oft vill verða með stjómmálamenn í sama flokki sem lenda í átökum um mikilvæg mál. Þvert á móti, við Jóhanna eram persónulegir vinir og það vottar ekki fyrir óvild milU okkar og í raun og vera eigum við gott með að starfa saman. Það breytir þvi ekki að við getum tekist á og það harkalega. Jó- hanna er kveriskörungur og að mínu mati ber hún höfuð og herðar yfir aðra kvenstjómmálamenn, að þeim ólöstuðum. Hún hefur sýnt það í verki, hún er vinnuþjarkur, hún hef- ur komið miklu í verk, hún beitir sér af miklu harðfylgi fyrir sínum mál- um og hún biðst ekki vægðar á þeirri forsendu að hún er í pilsi, hún slæst við strákana alveg miskunnarlaust og ætlast ekki til sérréttinda. Að því leyti er jafnréttisbaráttan á réttu róli.“ Sighvatur er fljóthuga kjarkmaður - Einn af ráðherrum Alþýðu- flokksins er Sighvatur Björgvinsson og um hann hefur blásið. Styður þú hann í öllu sem hahii hefur verið að gera? „Um Sighvat er það segja að hann er sá maður í okkar röðum sem mest hefur vaxið af verkum sínum. Góður stjómmálamaður þarf að vera gædd- ur mörgum kostum en einn sá mikil- vægasti er kjarkur. Sighvatur er ein- hver ódeigasti maður sem ég hef kynnst. Hann er jafnframt ham- hleypa til verka og það eru fáir menn í okkar þingflokki sem þekkja ríkis- kerfið jafn vel og hann. Þar nýtur hann langrar þingreynslu og starfa sinna í fjárveitinganefnd og sem formaður fiárlaganefndar. Samstarf hans og Þo'rkels Helgasonar er dæmi um hvemig menn bæta hvor annan upp. Þorkell er að eðlisfari varfærinn maður og vísindamaður. Sighvatur er kjarkmikill afkastamaður, stund- um fljóthuga eins og einkennir djarfa menn. Það hafa margir reynt, á und- an Sighvati, að koma böndum á sjálf- vika útgjaldaþenslu í heilbrigðis- kerfinu en enginn hefur náö árangri. Það þarf engan að undra þótt árang- urinn sé torsóttur en Sighvatur hefur náð miklu meiri árangri en nokkur fyrirrennari hans og það skiptir sköpum fyrir þessa ríkisstjórn að þetta skuli hafa tekist. Hitt er rétt að þetta er viðkvæmt fyrir Alþýðu- flokkinn en okkur hefur ekki brostið kjark. Þessi störf Sighvats munu afla honum virðingar þó síðar verði.“ Jón Baldvin segist telja að Alþýðu- flokkurinn hafi ekki í annan tíma haft á að skipa eins öflugu forystu- liði. Hann sagði það mikilvægt vegna þess að flokkurinn er búinn að vera í ríkisstjórn frá 1987, erfiðasta tíma- bilinu frá kreppuárunum. Vildi Jón Sigurðsson „Ég beitti mér fyrir því persónu- lega á sínum tíma að fá Jón Sigurðs- son í forystulið flokksins. Reynslan frá 1978 til 1980 sat í mér en þá vann flokkurinn glæsilegan kosningasig- ur, aðallega fyrir tilverknað Vil- mundar, og inn í þingflokkinn kom fullt af reynslulitlu fólki. Ég kom inn sem varamaður Sighvats og mér of- bauð að horfa upp á þessa ráðvilltu hjörð. Þingflokkurinn náði ekki tök- um á sínum verkefnum og flokkur- inn galt þess svo harkalega að hann var metinn í skoðanakönnunum upp á 3,5 prósent, á árinu 1984, og var minnsti flokkur þjóðarinnar, þrátt fyrir að vera í stjórnarandstöðu. Ég ætlaði aö tryggja að þessi ósköp end- urtækju sig ekki. Það varð að treysta forystusveitina. Jón Sigurðsson er einn mikilvirkasti og traustasti mað- ur sem hægt er að hugsa sér. Ég er ekki í vafa um að það hefur skipt sköpum, í mörgum krísum sem við höfum lent í, að njóta hans yfirburða- þekkingar." Erekkiað hætta í pólitík - Sérð þú hvenær þú lætur af for- mennsku í Alþýðuflokknum? „Nú þegar formaður flokksins hef- ur siglt heilu í höfn einu stærsta máli þjóðarinnar á lýðveldistíman- um er varla rétti tíminn að spyija hvort ég ætli að segja af mér! Sann- leikurinn er sá að það er ekki í mín- um huga. Ég er ekki hættur í pólitík." - Hefur EES-málið reynt mikið á heimili þitt og fiölskyldu? „Ekki vil ég gera of mikið úr því, sennilega af því að þau eru svo illu vön. Sfiórnmálamenn í dag fá aldrei uppstyttu. Nú er stórt mál að baki, en það er ekkert hlé. Stundum segja „Sumir hafa sagt að þeir séu hundleiðir á EES og öllu sem því fylgir. Eg segi dittó, ég er hundleiður á þvi.“ menn sem svo að það séu engir al- mennilegir sfiómmálamenn lengur uppi og segja að það hafi nú verið annað þegar við áttum Ólaf Thors, Bjama Ben, Hermann, Eystein, Gylfa og Hannibal eða aðra sem menn kjósa að nefna. Ég hef kynnst frá blautu barnsbeini hvernig þetta er innan fiölskyldu. Ég held að álag á sfiómmálamenn sé meira núna en nokkru sinni. Ég var að lesa hið frá- bæra verk Guðjóns Friðrikssonar um Jónas frá Hriflu. Þar er sagt að þegar Jónas var á hátindinum og umdeildastur allra gat hann farið burt með skipi að vori og verið lang- tímum burtu. Flokksmálgögnin lyftu sínum mönnum á stall, þeir vora nánast í guðatölu. Þeir þurftu ekki, um leið og þeir komu út úr ríkis- stjórnarherberginu, aö standa frammi fyrir hjörð fiölmiðlunga sem reka tól sín og tæki upp í munninn á þeim og byija þegar í staö að hakka niður allt sem verið er að gera. í þeim skilningi er nálægð sfiómmála- manna nú, í gegnum fiölmiðlana, miklu grimmari. I dag er þetta starf að sumu leyti miklu kröfuharðara en það var, til dæmis í tíð föður míns, sem var þó með umdeildari stjórn- málamönnum á sínum tíma.“ Bryndís er konungsgersemi - Heldur þú að eftir 25 ár eða svo verði sagt eitthvað á þá leiö að það hafi nú veriö annað þegar við áttum hann Jón Baldvin? „Góður er hver genginn." Jón Baldvin segir að íslenskir sfiómmálamenn verði að standa meira á eigin fótum en sfiórnmála- menn í nágrannalöndunum. ,Hann segir að í raun sé merkilegt hvað við höfum átt marga hæfa stjómmála- menn á þessari öld. - Jón Baldvin. Þaö er ekki bara að þú sért með þekktari íslendingum. Eiginkona þín er það líka. Bryndís var eitt sinn kjörin fegurðardrottn- ing og er oft nefnd þegar talað er um glæsilegar konur - hefur þú aldrei verið afbrýðisamur? „Jú, auðvitað var ég það. Hún er konungsgersemi. Þaö hafa margir öfundað mig af henni og ýmsir reynt að ræna mig henni. Auðvitað man ég eftir afbrýðisemi og tilfinninga- stormum. Við eram dæmi um fólk sem hefur varðveitt æskuástina. Að því er varðar uppeldi bama, umönn- un heimilis og fiárreiður er Bryndís forsætisráðherra og fiármálaráð- herra heimilisins. Hún hefur rekið þetta allt saman. Hún er mjög sjálf- stæð. Stundum sjáumst við ekki löngum og þá verða góðir fagnaðar- fundir á ný. Viö erum bæði tilfinn- ingamanneskjur og hún er örlynd kona. Við erum gleðimanneskjur. Við höfum gaman af því að gera okk- ur glaðar stundir og geram það al- mennilega - stundum þannig að veldur einhverri hneykslun, hef ég heyrt. Við höfum staðið af okkur alla storma og okkar samband er orðið nfiög þroskað og það hefur aldrei verið leiðinlegt." Vekur athygli hvar sem hún kemur - Ert þú stoltur af konunni þinni, til dæmis þegar þú kynnir hana erlend- is þar sem þú ert fulltrúi íslands? „Það fer ekki milli mála að svo glæsileg kona vekur athygli hvar sem hún kemur. Ég er oft eins og málhaltur við hliðina á henni þegar hún sveiflar sér úr frönsku, ítölsku eða þýsku. Það hefur oft verið gagn- rýnt að hún hefur ferðast með mér en hún er meira en eiginkona, hún er líka samstarfsaðili minn. Hún að- stoðar mig mikið á ferðalögum. Ég get varla hugsað mér glæsilegri full- trúa íslands og við höfum notið þess. ísland og Ítalía sifia oft hlið við hlið, stafrófsins vegna. Einu sinni á Nató- fundi var verið að kveðja Shultz, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. í þann tíð var Andre- otti forsætisráðherra Ítalíu - og tal- aði aðeins móðurmálið. Bryndís sat á milli ítalska forsætisráðherrans, þýska utanríkisráðherrans Gens- chers, og franski ráðherrann, Roland Dumas, var við borðsendann. Andre- otti talar ekkert nema ítölsku og það var gaman að fylgjast með því álengdar hvemig hún hélt uppi sam- ræðum við þessa þijá menn á þrem- ur tungumálum. Það hefði ég ekki getað.“ - Varst þú stoltur? „Já.“ -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.