Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1993, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1993. Fréttir Ástandið í Færeyjum versnar dag frá degi: Annaðhvort launalækk- un eða fjöldauppsagnir - stærstu launþegasamtök Færeyja samþykktu 9 prósenta launalækkun Það er glæsilegur miðbær í Þórshöfn. Þar, eins og annars staðar var byggt upp fyrir lánsfé á niunda áratugnum. DV-mynd S.dór Ekkert lát virðist ætla að verða á efnahagserfiðleikum Færeyinga. Það nýjasta er að færeyska landstjómin hefur samið við stærstu launþega- samtök Færeya, sem er félag opin- berra starfsmanna, um 9 prósenta launakækkun. Félaginu var stillt upp fyrir framan þá staðreynd að annaðhvort samþykkti það launa- lækkunina eða að 40 prósent félags- manna myndu missa vinnuna. Tahð er fifilvíst að önnur launþegasamtök í Færeyjum neyðist til að samþykkja sömu launalækkun á næstunni. Atvinnuleysið eykst enn Um miðja síðustu viku var talaö um að atvinnuleysið væri orðið 15 til 17 prósent. Að því er fréttaritari DV í Færeyjum, Jens Dalsgaard, sagði í gær voru nýjustu tölur um hádegið 22 prósenta atvinnuleysi. Flestir, sem DV ræddi við í Færeyjum í síð- ustu viku, spáöu því að með vorinu yrði atvinnuleysið komið í 50 pró- sent. Skuldafenið Færeyingar eru komnir niður í bullandi skuldafen. Erlendar skuldir þjóðarinnar, sem er 50 þúsund manns, nema rúmum 90 milljörðum íslenskra króna eða um 1,8 milljón- um króna á hvert mannsbam. Er- lendar skuldir okkar íslendinga eru innan við 230 milljarðar króna. Þannig að skuldin á hvert manns- bam er enn innan við eina milljón. Fyrir 7 árum vom skuldir þjóðanna þær sömu á hvert mannsbam. Síðan þá hefur sigiö jafnt og þétt á ógæfu- hliðina hjá Færeyingum. Á árunum mn 1980 og alveg til árs- ins 1990 töluðum við íslendingar um Færeyjar sem gósenlandiö. Laun vom meira en helmingi hærri í Fær- eyjum ená íslandi, skattar vom mun lægri, matur meira en helmingi lægri og vömverð á flestum hlutum lægra þar en hér. Sem dæmi má nefna að árið 1989 var besínveröið í Færeyjum 39,95 krónur íslenskar htrinn. Þá kostaði bensínlítrinn á íslandi 42,80 krónur. Nú kostar bensínhtrinn í Færeyjum 79 krónur en um 60 krónur á íslandi. Framkvæmt fyrir lánsfé Nú tala Færeyingar um níimda áratuginn sem „tíu ára sorgarsögu óarðbærra fjárfestinga.“ Vissulega Fréttaljós: Sigurdór Sigurdórsson er það rétt. Á þessum árum fengu allir lán sem vhdu. Menn byggðu sér einbýhshús, keyptu innbú og bifreið- ar, allt fyrir lánsfé. Það er algengt að fjölskyldur skuldi 10 tíl 15 milljón- ir íslenskra króna eftir þetta fram- kvæmdatímabh. Landstjómin lagði vegi um allar eyjar aihc þess aö bora jarðgöng í gegnum þær líka. Hafnir vom byggð- ar, frystihús og fiskvinnslustöðvar lika. Óhum eyjum átti að halda í byggð. Þess vegna fékk hver smábær höfn og frystihús, jarðgöng og vegi. Aht var þetta gert fyrir lánsfé. Laun í Færeyjum yom og em enn helmingi hærri en á íslandi. Sá mikh kaupmáttur sem haldið var uppi var falskur. Honum var haldið uppi á lánsfé. Nú hrapar hann dag frá degi með vaxandi efnahagserfiðleikum. Þegar loðnuverksmiðjan í Fugla- firði var gerð upp samkvæmt nýjustu tækni, keyptu Islendingar gömlu véÞ amar frá Færeyjum. Þegar íslensku loðnuverksmiðjumar sögðust ekki geta greitt nema 3 þúsund krónur fyrir tonnið af loönu, borgaði sú fær- eyska 4 þúsund krónur. Og þegar íslensku verksmiðjumar buðu 4 þús- und krónur, þá bauö sú færeyska 5.400 krónur fyrir tonnið. Svona var þetta mestahan níunda áratuginn. Þegar mest gekk á við húsabygg- ingar í Færeyjum á þessmn árum urðu Færeyingar einhveijir stærstu viðskiptaaðilar Steinuharverksmiðj- unnar á Sauðárkróki. Þaö má eigin- lega segja að þeir hafi komið henni tíl hjálpar með kaupum sínum á húsaeinangrun þegar verst stóð á fyrir verksmiðjunni. Á þessum árum fengu Færeyingar íslenskt kindakjöt fyrir brot af því verði sem íslenskir neytendur urðu að greiða fyrir það. Þess vom dæmi að íslensk skip kæmu við í Færeyjum th að kaupa ódýrt íslenskt kindakjöt. Færeyjar vom gósenlandið. En því miður fyrir þá, aht á fólskum forsendum. Stjórnleysi Menn hljóta að spyija nú, hvers vegna var engin stjóm á þessum hlutum? Færeyingar benda á að þeir ráði ekki gengi færeysku krónunnar. Hún fylgir þeirri dönsku. Þeir hafi því ekki getað feht gengið eftir hent- ugleikum eins og Islendingar gerðu. Þeir benda líka á að þeir eigi engan seðlabanka. Þess vegna geti þeir ekki ráðið peningamagni í umferð. Eflaust er eitthvað th í þessu. Það skýrir þó ekki hvers vegna engin stjóm var höfð á þessum gegndar- lausu lántökum, bæði einstaklinga og þess opinbera th lúxusfram- kvæmda eins og þeirra að byggja varanlegan veg yfir heiði en bora jarðgöng í gegnum hana líka. Að bora jarðgöng fyrir 25 manna byggð- arlag og jafnvel jarðgöng svo fé kæm- ist í betri haga. Að byggja höfn og frystihús í 400 manna byggðarlagi og byggja líka höfn og frystihús í 600 manna byggðarlagi í 7 kílómetra fjar- lægð meö steyptan veg í mihi. Það em nokkur dæmi um þetta. Vakna upp við vondan draum Færeyingar hafa sannarlega vakn- að upp við vondan draum. Það er komið að skuldadögimum. Fólk hafði greitt afar lága skatta. Nú aht í einu em þeir hækkaðir upp úr öhu valdi, eru að verða jafn háir og hér. Það er þó ekkert á móti því útsvari sem gjaldþrota byggðarlög leggja nú á fólkið. Dæmi em um byggðarlög sem em komin með 25 prósenta útsvar. Þar greiðir fólk orðið 63 prósent í opinber gjöld. Það snýst við þessu með þeim hætti að flytja frá byggðarlaginu og fara í atvinnuleysið annars staöar. Þá fær það í atvinnuleysisbætur 70 prósent af þeim launum sem það hafði árið áður. Þegar maður talaði um flottræfils- hátt við Færeyinga fékk maður að heyra hjá þeim, sem þekkja th hér á landi, að við ættum nú okkar flugstöð í Keflavík, Perlu, Ráðhús og höfn og frystihús í hverjum smábæ um land- iö. Þá sagði maöur ekki fleira. í dag mælir Dagfari Fimm hundruð milljóna ferja Eitthvert írafár er í uppsiglingu í sambandi við Heijólf. Þetta góða og trausta skip, sem er í siglingum mihi lands og Eyja, hefur fyrir mikinn misskilning lent í hremm- ingum bæði th sjós og lands. Fyrst var það að skipið valt meira en góðu hófi gegndi og þoldi iha öld- una. Farþegar og aðrir aðstandend- ur skipsins héldu því fram að skip- ið hristist óeðlhega og sú spuming vaknaði hvort Heijólfúr væri sjó- fær. Að minnsta kosti voru þeir ekki sjófærir sem tóku sér far með skipinu, því þeir lögðust allir sjó- veikir um leið og skipið var leyst frá landi. Ekki kom þetta th af góðu. Og þetta er ekki Heijólfi að kenna. Skipið var stytt á sínum tíma, sem stafaði af spamaðaráformum á Al- þingi, þar sem þáverandi fjármála- ráðherra var að spara sér nokkrar mihjónir með því að skera nokkra metra af skipinu. Þær milfjónir vom þó eins og krækiber í helvíti miðað við þann kostnað sem fylgir því að reka skipið og greiða niður kaupverðið. Núverandi samgöngu- ráðherra segir að þetta séu fimm hundmð mihjónir á ári og stynur þungan. Aht þetta gátu menn séð fyrir enda lá kaupverðið fyrir þegar skipið var keypt. Og þaö lá jafn- framt fyrir að farþegar meö skipinu mundu aldrei vera fleiri en svo að rekstur skipsins stæði ekki undir sér. Þar af leiöandi var ahtaf vitað frá upphafi að Herjólfur yrði á framfæri þjóðarinnar og ríkisins og Vestmannaeyingar segja íslend- inga ekki of góða th þess, úr því þeir vhja ekki samþykkja að Vest- mannaeyjar fái sjálfstæði. Nú hefur Ámi Johnsen, alþing- ismnaöur og sjálfskipaður tals- maður Vestmanneyinga í hvert skipti sem Vestmannaeyjar eru nefndar á nafn, bent á þá staö- reynd, að Hahdór Blöndal eigi ekki að vera rífa kjaft út af nokkrum krónum sem kostar að reka Her- jólf. Þær krónur em eins og skítur á priki miðað við spihinguna og eyðsluna sem hlýst af þeim fram- kvæmdum sem ríkið hefúr kostað í Norðurlandskjördæmi eystra. Ámi Johnsen mun vera í fiár- laganefnd Alþingis og hefúr þess vegna gott yfirlit yfir helstu spih- ingarbæli landsmanna og veit hvar spillingin er mest. Ef einhver ráð- herra dirfist að opna munninn og brúka hann th að fetta fingur út í Vestmannaeyinga, er Ámi thbúinn með svör á reiöum höndum th að upplýsa um að spillingin sé meiri annars staðar. Mórallinn er nefnhega sá í þing- inu aö útgjöld era sjálfsögð og rétt- lætanleg ef þau era ekki eins mikh og útgjöldin annars staðar. Spilling má þrífast ef hún er minni spilling en annars staðar. Þaö eina sem kemur í veg fyrir að spihingin og eyðslan vegna Her- jólfs verði minni en eyðslan annars staðar, er verkfah stýrimanna á Heijólfi sem era sárir yfir því að bera ekki meira úr býtum heldur en undirmennimir. Verkfahið hef- ur stöðvað Heijólf og nú er smávon th þess að meðan Heijólfur er bundinn við bryggju dragi svo úr útgjöldunum að hlutfóhin mihi spillingarinnar á einum stað verði meiri en spillingin á öðram stað og ákvarðanir alþingis og ráðherra raskist meö þeim hætti að enginn viti hvar spihingin er mest. Hitt er annað mál aö Dagfari hef- ur fuhan skhning á kröfum stýri- mannanna á Heijólfi. Það hlýtur að vera erfiðisvinna að stýra skipi sem hristist við minnstu öldu og getur þess vegna hrist í sundur áður en varir og svo hlýtur það aö vera álag á blessaða mennina aö sigla með hálftómt skip á mihi lands og Eyja og eiga yfir höfði sér ásakanir frá samgönguráðherra um að reksturinn sé svo dýr aö rík- ið hafi ekki efni á honum. Hvað ef ríkið hættir að reka skipið þegar það er úti á rúmsjó? Hvað ef leggja verður skipinu vegna kostnaöar? Þetta er ekkert atvinnuöryggi og stýrimennirnir verða aö fá hærra kaup miðað við hvað þeir hafa lítið kaup miðað við undirmennina og miðað við þann mikla kostnaö sem rekstur skipsins hefúr í fór meö sér. Það er að minsta kosti ekki þeirra vegna sem rekstur er svona dýr. Og hvaða sanngimi er í því að stýrimenn fái lúsalaun og fái ht- ið sem ekkert af þeim fimm hundr- uð mihjónym sem þaö kostar að reka skipið? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.